Morgunblaðið - 22.02.1996, Blaðsíða 1
80 SÍÐUR B/C/D
44. TBL. 84. ÁRG.
FIMMTUDAGUR 22. FEBRÚAR 1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Olíuskipið
af skerinu
Milford Haven. Reuter.
TALSMENN bresku strandgæslunn-
ar sögðu í gærkvöld, að tekist hefði
að draga olíuskipið Sea Empress af
skerinu við strönd Wales þar sem það
strandaði fyrir sjö dögum.
Talið er, að 65.000 tonn af olíu,
um helmingur af farmi skipsins, hafi
farið í sjóinn og óttast margir, að
mengunin muni valda gífurleþu tjóni
á dýralífi. Ætlunin er að draga það
í var og dæla olíunni yfir í önnur skip.
Talnaglögg-
ir apar
London. The Daily Telegraph.
APAR eru betri en ungbörn í
samlagningu og frádrætti,
samkvæmt nýrri rannsókn
hóps vísindamanna við Harv-
ard- og Radcliffeháskóla í Bost-
on.
Vísindamennirnir hafa fylgst
með öpum í Puerto Rico og
komist að því að aparnir hafa
betra vald á einföldustu stærð-
fræði en ung mannabörn.
Aðferðir þeirra voru svipaðar
og notaðar við ungbörn. Þeir
sýndu öpunum tvö eggaidin og
földu þau síðan á bak við
skerm. Var síðan fylgst vel með
er skermurinn var fjarlægður.
Virtust aparnir gera sér
grein fyrir muninum ef reynt
var að blekkja þá með mismun-
andi fjölda aldina. Voru þeir
mjög hissa ef tvö voru sett á
bak við skerminn en aðeins eitt
birtist er hann var tekinn frá.
, Morgunblaðið/Halldór Nellett
Dagfari út af Reykjanesi
LOÐNUSKIPIÐ Dagfari GK 70 fékk á sig
brotsjó í gærmorgun með fullfermi af loðnu
í haugasjó og tólf vindstigum grunnt út af
Reykjanesi. Gluggar brotnuðu í brú og sigl-
ingatæki skipsins urðu óvirk. Fjórtán manns
eru í áhöfn Dagfara og slasaðist einn þeirra
lítillega þegar brotið reið yfir. TF-LÍF, þyrla
Landhelgisgæslunnar, sveimaði yfir Dagfara
allt þar til varðskipið Týr kom á vettvang um
kl. 11 í gærmorgun. Skipin héldu sjó fram
eftir degi og voru stödd út af Sandgerði um
kl. 10 í gærkvöldi. Myndin var tekin um tíu-
leytið j gærmorgun af Dagfara út af Reykja-
nesi. Ölduhæð var þar allt að 16 metrar. Eins
og sjá má hefur hluti af loðnunótinni fallið
útbyrðis en skipverjar náðu henni um borð.
■ Siglingatæki óvirk/6
Mikil spenna í
hverfum Serba
Sarajevo. Reutcr.
MIKIL spenna var í fimm hverfum
Serba í Sarajevo í gær en á morgun,
föstudag, falla þau undir yfirráð
sambandsríkis múslima og Króata í
Bosníu í samræmi við ákvæði Day-
ton-samkomulagsins.
Annan daginn í röð varð enginn
við hjálparbeiðni fjölda íbúa sem
vildu komast burt úr Vogosca-hverf-
inu en þeir óttast hefndaraðgerðir
þegar lögregla sambandsríkisins
tekur við vörslu á morgun.
Virtist það lítt draga úr spennu
þótt tilkynnt væri, að bæði lögreglu-
sveitir Sameinuðu þjóðanna og her-
sveitir friðargæsluliðs Atlantshafs-
bandalagsins yrðu í hverfinu til þess
að tryggja öryggi íbúa.
Leiðtogar Bosníu-Serba í Pale
höfðu lofað því að senda bæði elds-
neyti og vörubifreiðar til Vogosca
en ekki hafði verið staðið við það.
Sigur Pat Buchanans
vekur ugg í Evrópu
„Skelfing“ meðal andstæðinga hans í Repúblikanaflokknum
París. Reuter.
SIGUR Buchanans í foi'kosningum
repúblikana í New Hampshire á
þriðjudag hefur vakið ugg í Evrópu
og ítalska vinstra dagblaðið La
Repubblica gekk svo langt að líkja
stefnu Buchanans við málflutning
nasista í Þýskalandi. Bandarískur
fréttaskýrandi sagði í gær, að það
væri of vægt til orða tekið að segja,
að „skelfing" ríkti meðal andstæð-
inga Buchanans í Repúblikana-
flokknum.
„Fyrr á tímum í öðru landi hefði
Buchanan verið skilgreindur „þjóð-
ernissósíalisti". I Bandaríkjunum á
okkar tímum er hann talinn undur,
boða eitthvað róttækt og nýtt,“
sagði í blaðinu.
„Hreinræktaður
harðlínuþjóðernissinni"
í franska dagblaðinu Le Monde
var Buchanan sagður „hreinrækt-
aður harðlínuþjóðernissinni“ og í
leiðara með fyrirsögninni „Hætt-
urnar af bandarískri öfgastefnu"
var sérstaklega til þess tekið að
velgengni í New Hampshire skipti
oft sköpum fyrir forsetaframbjóð-
endur.
Lítið var um opinber
viðbrögð og var lögð
áhersla á að hér væri
aðeins um að ræða
kosningar í einu ríki.
Virtust embættismenn
efast um að Buchanan
gæti farið með sigur
af hólmi gegn Bill Clin-
ton Bandaríkjaforseta.
Buchanan er and-
stæðingur fijálsra við-
skipta og alþjóðlegra
viðskipta- og sam-
vinnustofnana. Ahrifa
sigurs Buchanans þótti
gæta í evrópskum fjár-
málaheimi og voru
menn sammála um að það yrði
ekki gott fyrir markaði yrði hann
forseti.
Stjórnmálaskýrendur höfðu
meiri áhyggjur af því að velgengni
Buchanans myndi leiða til þess að
andstæðingar hans færu að tileinka
sér málflutning hans til að höfða
til kjósenda, en að orðhvati sjón-
varpsfréttaskýrandinn væri líkleg-
ur til að verða útnefndur forseta-
frambjóðandi repúblikana að lokn-
um forkosningunum í
Bandaríkjunum.
Sigur Buchanans
hefur valdið miklum
taugatitringi meðal
repúblikana sjálfra og
andstæðingar hans
spyija sjálfa sig og
aðra hvernig hann
verði stöðvaður. Segj-
ast þeir óttast, að verði
hann forsetaefni
flokksins muni hann
ekki aðeins tryggja
demókrötum sigur,
heldur þurrka út meiri-
hluta repúblikana á
þingi.
Bill Clinton forseti fagnaði í gær
niðurstöðunni í forkosningum
demókrata í New Hampshire en
hann var einn í kjöri og fékk 95%
greiddra atkvæða. Er það nýtt met
þegar um er að ræða einn fram-
bjóðanda og yfirleitt sitjandi for-
seta. Ronald Reagan fékk 86% at-
kvæða 1984 í New Hampshire en
þá var hann einn á kjörseðlinum.
■ Kveðst geta/18
Buchanan