Morgunblaðið - 25.02.1996, Qupperneq 1
96 SÍÐUR B/C/D
47. TBL. 84. ÁRG.
SUNNUDAGUR 25. FEBRÚAR 1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Morgunblaðið/RAX
ÞESSI hundur beið þolinmóður eftir húsbónda sínum, sem hafði brugðið sér inn í verslun í Hafnarfirði.
Meðan á því stóð sá brunahaninn um að gæta hans.
Jórdaníustjórn segir örlög tengdasona Saddams ekki koma á óvart
„Augljóslega um að ræða
vel undírbúín morð“
Amman, Bagdad, Sameinuðu þjóðunum. Reuter.
STJÓRNVÖLD í Jórdaníu sögðu í gær, að
morðið á bræðrunum og fyrrverandi tengda-
sonum Saddams Husseins, forseta íraks,
væri dæmigert fyrir starfsaðferðir ráða-
manna í landinu. Þeir hefðu einfaldlega ver-
ið teknir af lífi án dóms og iaga nokkrum
dögum eftir að þeir sneru heim en þeir flúðu
land fyrir hálfu ári. Madelaine Albright,
sendiherra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu
þjóðunum, sagði í fyrrakvöld, að þessi at-
burður sýndi, að grimmd Saddams og stjórn-
ar hans ætti sér engin takmörk.
Ríkisfjölmiðlar í írak sögðu frá því í fyrra-
kvöld, að þeir bræður, Hussein Kamel Hass-
an og Saddam Kamel, hefðu verið skotnir
af ættingjum sínum, sem hefðu viljað hreinsa
nafn fjölskyldunnar og hefna þess, að þeir
sneru baki við Saddam Hussein forseta og
flúðu land fyrir hálfu ári. Auk þeirra féllu
einnig faðir þeirra og þriðji bróðirinn.
blóði,“ sagði Kabariti.
Talsmaður íraskra stjórnarandstæðinga í
London sagði í gær, að ekkert í þessu máli
kæmi á óvart, svona tæki Saddam á and-
stæðingum sínum hverjir sem þeir væru.
Sýnir grimmd Saddams
Talsmaður bandaríska utanríkisráðuneyt-
isins sagði, að enn hefði ekki fengist staðfest-
ing á morðunum en hann taldi ástæðu til að
trúa fréttunum. Albright, sendiherra Banda-
ríkjanna hjá SÞ, sagði, að grimmd Saddams
ætti sér augljóslega engin takmörk. Undir
það tók Rolf Ekeus, formaður SÞ-nefndar,
sem séð hefur um eyðingu íraskra vopna.
„Ég er ekki hissa á neinu, sem varðar
íraska leiðtoga. Það sýnir hins vegar vel
grimmd Saddams, að hann skuli hafa boðið
þá velkomna, gefið þeim upp sakir og myrt
þá síðan,“ sagði Ekeus.
Skildu við bræðurna
deginum áður
Kamel Hassan
Eiginkonur þeirra
bræðra og dætur Sadd-
ams voru í för með þeim
er þeir flúðu frá írak til
Jórdaníu en þær skildu
við eiginmenn sína á
fimmtudag. Sneru þau öll
aftur til íraks á þriðjudag
en þá hafði Saddam gefið
þeim bræðrum upp sakir.
Abdul-Karim al-Kabariti, forsætisráð-
herra Jórdaníu, sagði í gær, að morðin kæmu
ekki á óvart, þau væru næstum „eðlilegur
hlutur“ miðað við stjórnarfarið í írak.
„Það var augljóslega um að ræða vel
undirbúin morð. Hussein Kamel, bræður
hans og faðir voru teknir af lífi með köldu
Innleggið
linar þján-
ingarnar
NÝTT innlegg í skó sýnist ekki mikið
mál en samt virðist það geta skipt
sköpum fyrir fjölda manna, sem eiga
við ýmsan krankleik að stríða. I Bret-
landi hefur tæplega sjötugur tækni-
fræðingur, Leslie Irving að nafni, kom-
ið fram með nýja tegund innleggja,
sem miklar vonir eru bundnar við.
Felst hún í því, að tekið er nákvæmt
mót af fætinum. Það er gert þannig,
að 4.500 örlitlum rörum er komið fyr-
ir á milli tveggja laga af silíkon-
gúmmíi og fætinum þrýst á það efra.
Rörin laga sig þá alveg eftir ilinni og
er síðan læst í þeirri stöðu. Innleggið
er svo mótað samkvæmt því og það
má setja í alla skó, sem viðkomandi
notar. Komið hefur i ljós við rannsókn-
ir, að með nýja innlegginu dreifist lík-
amsþunginn rétt á alla ilina og það
veldur því, að álagið, sem áður var á
ýmsa liði og vöðva, minnkar og jafn-
ast. Hefur nýja innlegið dregið veru-
lega úr þjáningum gigtarsjúklinga og
mörg dæmi eru um, að íþróttafólk, sem
ekki gat stundað íþróttina lengur
vegna meiðsla, sé aftur komið á stjá.
Kosið í Delaware
Dole vonast
eftir sigri
Wilmington. Reuter.
KJÓSENDUR í Delaware-ríki í
Bandaríkjunum gengu að kjörborðinu
í gær til að velja sér frambjóðanda í
forsetakosningunum í haust. Sam-
kvæmt skoðanakönnunum gat Bob
Dole gert sér vonir um að vinna sinn
fyrsta sigur í forkosningum repúblik-
ana en kannanirnar eru misvísandi
og hugsanlegt, að Steve Forbes velgi
honum undir uggum.
Frambjóðendur repúblikana, að
Forbes undanskildum, létu lítið til sín
taka í Delaware vegna þess, að flokks-
bræður þeirra í New Hampshire höfðu
farið fram á það. Þeir krefjast þess,
að stöðu New Hampshire sem fyrsta
forkosningaríkisins verði ekki ógnað
og vika að minnsta kosti líði þar til
kosið verði í öðru ríki. Forkosningarn-
ar í Delaware eru aðeins fjórum dög-
um á eftir kosningunum í New Hamps-
hire.
A síðustu dögum hafa birst tvær
skoðanakannanir um stöðu frambjóð-
pnda og samkvæmt annarri fær Dole
32% atkvæða, Pat Buchanan 21%,
Forbes 19% og Lamar Alexander 16%.
Hin spáir Dole 28%, Forbes 27%, Buc-
hanan 22% og Alexander 14%.
HRIKTIR
ÍKIRKJUSKIPINU
vssnmammít
ÁSUNNUDEGI
24
Svigrúm skortir
í skólakerfið