Morgunblaðið - 27.02.1996, Page 1

Morgunblaðið - 27.02.1996, Page 1
64 SIÐUR B 48. TBL. 84. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Hafna kröfu Sinn Fein Mikill öryggisviðbúnaður 1 London Belfast. Reuter. FULLTRÚI Sinn Fein, stjórnmála- arms írska lýðveldishersins (IRA), hóf viðræður við breskan embætt- ismann í gær, í fyrsta sinn frá því IRA batt enda á 17 mánaða vopna- hlé sitt með sprengjutilræðum í London fyrir þremur vikum. Mart- in McGuinness, samningamaður Sinn Fein, kvaðst hafa orðið fyrir „miklum vonbrigðum" með svar Breta við kröfu flokksins um að ákveðið yrði hvenær viðræður allra flokka um framtíð Norður-írlands ættu að hefjast. McGuinness sagði að breska stjórnin hefði neitað að verða við kröfunni. „Ég er hræddur um að breska stjórnin sé ekki enn tilbúin að taka áhættu í þágu friðar,“ sagði hann eftir tæplega tveggja stunda fund með Quentin Thomas, háttsettum embættismanni í Norð- ur-írlandsmálaráðuneyti bresku stjórnarinnar. „Ég tel að ástandið sé mjög alvarlegt.“ Vopnahlé sem skilyrði Breska stjórnin hefur neitað að efna til viðræðna milli Norður- írlandsmálaráðherra Bretlands og fulltrúa Sinn Fein fyrr en IRA lýsi yfir vopnahléi að nýju eftir sprengjutilræðin sem hófust í London 9. febrúar. Sinn Fein seg- ir að IRA lýsi ekki yfir vopnahléi fyrr en breska stjórnin ákveði hve- nær viðræðurnar um framtíð Norður-írlands eigi að hefjast. Breskir embættismenn sögðu að Thomas hefði ekki haft umboð til að semja við Sinn Fein en hon- um væri ætlað að kynna sér við- horf flokksins og koma þeim á framfæri við stjórnina. Oryggisviðbúnaður í London Tugir vopnaðra lögreglumanna og hermenn, vopnaðir rifflum, voru á verði við Buckingham-höll í London í gær vegna hugsan- legra árása IRA á bresku kon- ungsfjölskylduna. Lögreglan vildi þó ekki staðfesta fréttir þess efn- is að við leit á heimili IRA-manns í London hefðu fundist gögn sem sýndu að IRA hefði skipulagt morðtilræði við Elísabet Breta- drottningu. ■ Óttast árás IRA/18 Reuter BRESKIR hermenn, vopnaðir rifflum og klæddir búningum í felu- litum, voru á verði við Buckingham-höll í gær. Bannað að selja með tapi París. Reuter. FRANSKA stjórnin samþykkti í gær að leggja fyrir þingið frumvarp til laga um bann við því, að verslanir selji vörur með tapi. Er frumvarpinu beint gegn svokölluðum „tilboðum" stórmarkaðanna og jafnframt ætlað að standa vörð um litlar verslanir og framleiðendur. Stórmarkaðir í Frakklandi og víð- ar laða til sín viðskiptavini með sér- stökum tilboðum, til dæmis með því að bjóða nautasteikina á 60 til 70 ísl. kr. kílóið í tiltekinn tíma, og vegna þess hve stórir þeir eru á markaðinum þá geta þeir ráðið miklu gagnvart framleiðendum. Telja sum- ir, að þeir hafi stundum misnotað það vald sitt. Verðlagseftirlit Talsmenn stórverslananna segja, að verði frumvarpið að lögum muni það óhjákvæmilega verða til að hækka verðlag og með því sé einfald- Iega verið að taka upp verðlagseftir- lit á ný. „Við erum að sjálfsögðu andvígir því að selja vörur með tapi en við viljum beijast gegn þessari frönsku tilhneigingu til ofstjórnunar. Það væri miklu nær, að lögunum væri ætlað að koma í veg fyrir mis- notkun, sem kemur auðvitað upp öðru hveiju,“ sagði Jerome Bedler, formaður í samtökum smásölu- verslunarinnar. Peres hót- ar Hamas hörðu SHIMON Peres, forsætisráð- herra ísraels, hét í gær allsherj- arstríði gegn liðsmönnum í Ham- as-hreyfingnnni en skoðana- kannanir sýna, að vinsældir hans hafa dvínað vegna hermd- arverksins á sunnudag. Þá létust 25 í sprengingu í strætisvagni í Jerúsalem. Peres, sem hefur boðað til þingkosninga 29. maí næstkom- andi, lagði þó áherslu á, að stað- ið yrði við friðarsamningana við Palestínúmenn. Peres hafði 15 prósentustiga forskot á helsta keppinaut sinn, Benjamin Net- anyahu, leiðtoga Likudflokksins, á föstudag en í gær var það kom- ið niður í þrjú prósentustig. Atburður, hugsanlega slys, sem varð í Jerúsalem í gær, þyk- ir sýna vel hvaða áhrif sprengju- tilræði Hamas-hreyfingarinnar hafa haft á ísraela. Þá missti Bandaríkjamaður af palestínsk- um ættum, sem var í heimsókn í ísrael, stjórn á bíl sínum með þeim afleiðingum að tveir menn létust. Nærstaddir menn skutu hann óðara til bana og særðu að minnsta kosti annan vegfaranda. Myndin var tekin við útför her- foringja sem lést í sprengingunni á sunnudag. ■ 25 farast/17 Kúbustjórn fordæmd fyrir að láta skjóta niður tvær óvopnaðar flugvélar Bandaríkjastjóm boðar harðari refsiaðgerðir Washington. Reuter. BILL Clinton, forseti Bandaríkjanna, tilkynnti í gær, að efnahagslegar refsiaðgerðir gegn Kúbustjórn yrðu hertar eftir að kúbönsk herflugvél skaut niður tvær bandarískar einkaflugvélar á laugardag. Hefur atburð- urinn verið fordæmdur viða um lönd en Kúbustjórn heldur því fram, að vélarnar hafi verið í kúbanskri lofthelgi. Á blaðamannafundi í Hvíta húsinu í gær sagði Clinton, að stjórn Fidels Castro bæri alla ábyrgð á því, að tvær bandarískar einkaflugvélar, sem Kúbustjórn hefði vitað, að væru óvopnaðar, hefðu verið skotnar niður. Með þeim hefðu hugsan- lega farist fjórir menn. „Hér var um að ræða skýlaust brot á alþjóðalög- um og Bandaríkjastjórn ætlar ekki að láta það viðgangast óhegnt,“ sagði Clinton og rakti síðan þær aðgerðirnar. Eru þær í sex liðum. Rcuter Bandaríkjastjórn krefst þess, að Sameinuðu þjóðirnar fordæmi atburðinn og hyggst takmarka ferðafrelsi kúbanskra sendi- manna í Bandaríkjunum. Clinton ætlar að hafa um það samráð við Bandaríkjaþing, að núgildandi viðskiptabann á Kúbu verði hert og sjái Kúbustjórn ekki til þess að greiða ættingjum flugmann- anna bætur, þá verði þær greidd- ar af inneignum Kúbustjórnar í Bandaríkjunum, sem hafa verið frystar. Auk þessa verður starfsemi Radio Marti, útvarpsstöðvar, sem beinir sendingum sínum til Kúbu, aukin og bann lagt við leiguflugi frá Bandaríkjunum til landsins. Clinton tók þessa ákvörðun eft- ir að hafa ráðfært sig við öryggis- ráðgjafa sína og fulltrúa fólks af kúbönskum ættum í Bandaríkjun- um en sumir þeirra síðarnefndu vildu grípa til miklu harkalegri aðgerða. Evrópusambandið og ríkis- stjórnir víða um heim hafa for- dæmt þennan atburð og krafist tafarlausrar rannsóknar á honum en Kúbustjórn heldur því fram, að vélarnar hafi verið innan kúb- anskrar lofthelgi. Segist hún geta sannað það. Repúblikanar gagnrýna Clinton Repúblikanar og einkum fram- bjöðendur þeirra í forkosningunum kröfðust þess í gær, að Kúbustjórn yrði sýnt í tvo heimana og Bob Dole sagði, að atburðurinn væri til marks um veikleikana í utan- ríkisstefnu Clintons. Madelaine Albright, sendiherra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum, krafðist þess í gær í öryggisráðinu, að það fordæmdi atburðinn en fulltrúi Kúbu fór fram á, að beðið yrði þar til utan- ríkisráðherra Kúbu kærni til New York í dag. Kúbustjórn tilkynnti í gær, að hún hefði á sínu valdi flugmann úr samtökunum Bræðrum til bjargar, sem áttu flugvélarnar, en ekki er talið, að hann sé einn þeirra, sem er saknað. ■ Kúbustjórn fordæmd/18

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.