Morgunblaðið - 28.02.1996, Page 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
Reuter
1996
MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRÚAR
BLAÐ
ISHOKKI
Caiyun bætti
metið í stöng
SUN Caiyun, frjálsíþróttakona frá Kina, bætti
eigið heimsmet í stangarstökki kvenna innan-
húss á alþjóðlegu móti í Kína í gær. Hún stökk
4,28 metra og bætti eldra metið um einn sentí-
metra. Þetta var í fjórða sinn sem Caiyun bætir
heimsmetið.
Til samauburðar má geta þess að Norður-
landamet Völu Flosadóttur i greininni er 4,11
metrar.
Sigurjónenn
undir pari
SIGURJÓN Amarsson, kylfingur úr GR, heldur
áfram keppni í Tommy Armour mótaröðinni í
Bandarílgunum og tók hann þátt í tveimur mót-
um fyrir og um helgina. Bæði mótin fóru fram
á Mission Inn golfvellinum sem er par 72 og SSS
73. Fyrra mótið var tveggja daga og lék Sigur-
jón á 71 og 72 höggum eða 143 höggum, sem
er eitt högg undir pari, og vai'ð í 45. sæti af 137
keppendum en sigurvegarinn lék á 130 höggum,
eða 14 höggum undir parinu. Síðara mótið var
einn hringur og þá lék Sigurjón á 73 höggum
og varð í 18. sæti af 65 keppendum.
Becker keppir
ekki í Atlanta
ÞÝSKI tenniskappinn Boris Becker ætlar ekki
að taka þátt í Ólympíuleikunum í Atlanta í sum-
ar og segir hann ástæðuna vera fjölskylduna.
„Ég er ekki einn í heiminum lengur. Ég á fjöl-
skyldu og þar sem Ólympíuleikarnir eru á milli
Wimbledon mótsins og Opna bandaríska er þetta
ekki hægt. Ég get ekki verið að heiman í átta
vikur samfellt, ég er ekki 18 ára lengur,“ sagði
Becker í vikunni þegar hann tilkynnti ákvörðun
sína. Becker sigraði í tvíliðaleik ásamt Michael
Stich á leikunum í Barcelona 1992. „Það var
frábær reynsla, en ég þarf ekki að upplifa hana
aftur. Ef ég á að vera alveg hreinskilinn þá
held ég að Ölympíuleikarnir séu ekki eins mikil-
vægir fyrir tennisleikara og þeir eru fyrir flesta
aðra íþróttamenn,“ sagði Becker.
Tvöfalt hjá Dönum
DANIR unnu tvöfaldan sigur í heimsmeistara-
keppni landsliða í badminton í Prag í Tékk-
landi. Danska karlalandsliðið vann það sænska
í úrslitum 4:1 og dönsku stúlkurnar lögðu stöll-
ur sínar frá Rússlandi 5:0.
Kaiserslautern í úrslit
KAISERSLAUTERN vann Bayer Leverkusen 1:0
í undanúrslitum þýsku bikarkeppninnar í gær-
kvöidi og leikur til úrslita í annað sinn í sögu
félagsins. Karlsruhe og Diisseldorf leika í undan-
úrslitum í kvöld.
Gretzky vill
leika í betra liði
BADMINTON
Elsa INIielsen nálgast sæti á
Ólympíuleikunum í Atlanta
WAYNE Gretzky, besti íshokkí-
maður allra tíma að margra
mati, er ekki sáttur við gang
mála hjá Los Angeles Kings og
sagði eftir 4:3 tap í Winnipeg
í Manitoba-fylki í Kanada í
fyrrinótt að eitthvað gerðist í
sinum málum næstu daga. „Það
gerist eitthvað en ég veit ekki
hvað,“ sagði kappinn sem vill
vera í verðlaunaliði og hefur
verið orðaður við St. Louis Blu-
es. Gretzky, sem fer hér fram-
hjá Alexei Zhamnov, lagði upp
fyrsta mark Kings en Zhamnov
var með tvær stoðsendingar
fyrir Jets.
Elsa Nielsen, badmintonkona úr
TBR, er mjög nærri því að
tryggja sér rétt til keppni í einliða-
leik á Ólympíuleikunum í Atlanta
í sumar. Þegar síðasti listi var
gefinn út, 30. janúar, var hún í
62. sæti og hafði þá unnið sig upp
um 12 sæti frá listanum þar á
undan. Það verða 36 keppendur í
einliðaleik kvenna og 16 efstu þjóð-
irnar mega senda þijá keppendur
og aðrar þjóðir tvo, að því tilskildu
að viðkomandi séu á listanum.
Þegar búið er að renna yfir listann
kemur í ljós að Elsa er í 38. sæti,
aðeins tveimur^ sætum frá því að
komast inn á Ól. Síðan þessi listi
var gefinn út hefur Elsa keppt á
móti og vonir standa til að þegar
næsti listi kemur út verði Elsa
búin að tryggja sér sæti á Ólympíu-
leikunum.
Broddi Kristjánsson og Árni Þór
Hallgrímsson stefna einnig að því
að komast á Ólympíuleikana í tví-
liðaleik og á fyrrnefndum lista
voru þeir í 42. sæti og höfðu færst
upp um sex sæti. Um tuttugu pör
komast á leikana og gilda svipaðar
reglur og um einliðaleikinn þannig
að í raun voru þeir félagar í kring-
um 30. sætið. Þeir stóðu sig vel á
móti í síðustu viku og vonast til
að hafa færst eitthvað nær sætinu.
Badmintonfólkið er statt í Sviss
þar sem það tekur þátt í Opna
svissneska mótinu. Keppnin hefst
í dag og búist er við að íslensku
keppendurnir komi heim á föstu-
daginn.
SMÁÞJÓDALEIKARNIR: EKKISKYNSAMLEGT AÐ LOKA ÖLLUM DYRUM / C2