Morgunblaðið - 29.02.1996, Page 1
80 SIÐUR B/C/D
50. TBL. 84. ÁRG.
FIMMTUDAGUR 29. FEBRÚAR 1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Reuter
Lamberto Dini boðar
„Italska endurnýjun“
LAMBERTO Dini, forsætisráð-
herra bráðabirgðastjórnar Italíu,
afhjúpaði í gær tákn nýs flokks
síns og tilkynnti að hann ætti að
heita Itölsk endurnýjun. Dini sór
þess eið að hann mundi vinna að
stöðugu og skilvirku stjórnarfari
á Italíu. Dini er fyrrum banka-
maður og hafði verið óflokks-
bundinn þar til hann tilkynnti að
hann hygðist stofna eigin sljórn-
málaflokk á föstudag.
Dini hefur lýst yfir því að utan-
flokkssljórn sín muni ekki hafa
afskipti af kosningunum, en emb-
ættisstaða hans mun óneitanlega
veita honum sérstöðu í kosninga-
baráttunni.
Itölsk endurreisn snýst um
Dini, enda nafn hans sýnu meira
áberandi á tákni flokksins en
flokksheitið. Dini var gagnrýnd-
ur harkalega í gær fyrir að
steypa sér út í pólitík.
Major og Bruton á fundi í London
Allslierjar friðarvið-
ræður heíjist 10. júní
London. Reuter.
JOHN Major, forsætisráðherra,
Bretlands og John Bruton, forsæt-
isráðherra Irlands, ákváðu í gær
að allsherjarviðræður um framtíð
Norður-írlands ættu að hefjast 10.
júní.
Major og Bruton ræddust við í
þrjár klukkustundir í gær og að
fundi þeirra loknum var gefin út
ályktun þar sem meðal annars
kom fram að frá 4. til 13. mars
yrðu haldnar viðræður til að
ákveða hveijir yrðu fulltrúar
stjórnvalda og stjórnmálaflokka í
allsherj arviðræðunum.
Það hefur löngum verið krafa
Sinn Fein, stjórnmálaarms írska
lýðveldishersins (IRA), að ákveðið
yrði hvenær allsheijai’viðræður
hæfust. IRA hefur þótt bresk
stjórnvöld draga lappirnar í þessu
máli og fyrr í þessum mánuði
bundu samtökin enda á 17 mánaða
vopnahlé með tveimur sprenging-
um í London.
Krefjast endurnýjunar
vopnahlés
Major og Bruton hótuðu því að
leiðtogar Sinn Fein yrðu snið-
gengnir í friðarviðræðunum nema
IRA endurnýjaði vopnahléið.
Gerry Adams, leiðtogi Sinn
Fein, sem hefur verið hunsaður í
viðræðum síðan fyrri sprengjan
sprakk, sagði að hér væri um að
ræða nauðsynlegan þátt í friðar-
ferlinu, en „gífurlegir erfiðleikar"
blöstu enn við þeim, sem hygðust
leiða mál Norður-írlands til lykta.
Major og Bruton vísuðu því á
bug á blaðamannafundi eftir við-
ræðurnar að tilkynningin fæli í sér
að IRA hefði tekist að knýja sér
leið að samningaborðinu með
sprengjuna að vopni.
Viðræður án skilyrða
Major hafði áður krafist þess
að IRA léti af hendi vopn áður en
Sinn Fein yrði hleypt að samninga-
borðinu, en í sameiginlegri yfirlýs-
ingu hans og Brutons sagði að
viðræður myndu hefjast „beint og
án skilyrða". í upphafi viðræðna
yrðu samningsaðiljar hins vegar
að skuldbinda sig til þess að virða
grundvallaratriði lýðræðis og
hafna ofbeldi eins og alþjóðleg
nefnd undir forystu Georges Mitc-
hells, fyrrverandi öldungadeildar-
þingmanns frá Bandaríkjunum,
hefði mælt með. Einnig ætti IRA
smám saman að afvopnast meðan
á viðræðum stæði eins og nefndin
hefði gert ráð fyrir. Lýðveldisher-
inn hefur krafist þess að fá að
halda öllum vopnum þar til endan-
legt samkomulag hefur verið und-
irritað.
Bill Clinton Bandaríkjaforseti
fagnaði samkomulaginu í gær og
skoraði á þá, sem „hafa gripið til
ofbeldis að hlýða rödd fólksins og
láta af ógnarherferðinni".
Tyrkland
Rússar ganga í Evrópuráðið og undirrita mannréttindasáttmála Evrópu
Samstarfs-
horfur á
hægri væng
Ankara. Reuter.
LEIÐTOGAR hægri flokkanna
tveggja í Tyrklandi komust í gær að
samkomulagi um drög að stjórn-
arsáttmála, sem myndi útloka að sig-
urvegari þingkosninganna, flokkur
múslima, kæmist til valda.
„Það gleður mig að tilkynna að
við höfum náð samkomulagi um
megindrætti samsteypustjórnar,"
sagði Tansu Ciller, forsætisráðherra
og leiðtogi Sannleiksstígsins, eftir
viðræður við Mesut Yilmaz, leiðtoga
Föðurlandsflokksins.
Ciller og Yilmaz höfðu ekki getað
náð samkomulagi um það hvort
þeirra fengi forsætisráðuneytið og
um tíma virtist sem Föðurlandsflokk-
urinn mundi mynda stjórn með ísl-
amska Velferðarflokknum.
í samkomulagi hægri flokkanna
er kveðið á um að leiðtogar þeirra
verði forsætisráðherrar til skiptis.
Stjórnarmyndun er þó ekki frágengin
og Ciller og Yilmaz munu ræðast við
á morgun.
------♦ ♦ ♦-----
Díanasam-
þykkir skilnað
London. Reuter.
DÍANA prinsessa af Wales hefur
samþykkt ósk manns síns, Karls
Bretaprins, um skilnað að því er tals-
maður hennar sagði í gær.
Haft var eftir talsmanninum að
Díana mundi eiga þátt í ákvörðunum
um syni hennar og búa áfram í Kens-
ington-höll í Ixmdon. Einnig mundi
hún halda prinsessunafnbótinni.
Reuter
JEVGENÍJ Prímakov, utanríkisráðherra Rússlands, (t.h.) og
Daniel Tarschys, framkvæmdastjóri Evrópuráðsins, undirrita
skjöl um aðild Rússlands að ráðinu í Strassborg í gær.
Dóminikanska lýðveldið
Svarta kassanum
náð af hafsbotni
Santo Domingo. Reuter.
LEITARMENN fundu í gær
svarta kassann úr farþegavélinni
af gerðinni Boeing 757, sem
hrapaði skömmu eftir flugtak frá
Puerto Plata í Dóminikanska lýð-
veldinu 6. febt'úar sl., að því er
haft var eftir talsmanni í banda-
riska sendiráðinu í Santo Dom-
ingo í gærkvöldi.
Skipveijar úr björgunarskipi
bandaríska sjóhersins fundu
kassann á 2.195 metra dýpi í
braki um átta km frá Puerto
Plata. Vélin var í leiguflugi fyrir
tyrknesku ferðaskrifstofuna
Birgenair.
Ekki er vitað hvers vegna vélin
fórst en talið er að svarti kass-
inn, sem inniheldur upplýsingar
um flugið og upptöku af samræð-
um í flugstjórnarklefa, geymi vís-
bendingar um það hvað gerðist.
Jeltsin hvetur
lýðræðissinna
tíl sameiningar
Strassborg. Reuter.
RÚSSLAND fékk formlega aðild
að Evrópuráðinu í gæi' og er því
39. aðildarríki ráðsins. Jevgeníj
Prímakov, utanríkisráðherra Rúss-
lands, sagði að með aðildinni hæf-
ist nýtt tímabil í sögu Rússlands,
Evrópuráðsins og álfunnar í heild.
Þetta væri risavaxið skref í átt að
sameiningu álfunnar. Talið er að
Borís Jeltsín Rússlandsforseti muni
njóta góðs af aðildinni að Evrópu-
ráðinu og í gær hvatti hann lýðræð-
issinna til að sameinast um fram-
boð sitt til að afstýra því að konim-
únistar nái völdum í forsetakosn-
ingum í júní. Annar kostur væri
ekki í boði.
Rússar sóttu um aðild að ráðinu
árið 1992 og var umsóknin sam-
þykkt í síðasta mánuði, þrátt fyrir
harða andstöðu margra þing-
manna. Það varð hins vegar niður-
staða ráðsins að hyggilegra væri
að eiga samstarf við Rússa en að
einangra þá, þrátt fyrir bágt
ástand mannréttindamála og
Tsjetsjníjudeiluna.
Prímakov undirritaði í gær
Mannréttindasáttmála Evrópu og
verður þing Rússlands að staðfesta
hann innan árs. Sérstök nefnd á
vegum ráðsins mun fylgjast með
ástandinu í Tsjetsjníju og sérfra>ð-
ingahópur gefa skýrslu á hálfs árs
fresti um livort Rússar standi við
skuldbindingar sínar. Er sú regla
viðhöfð um öll ný aðildarríki.
„Við gerum okkur grein fyrir
því að með aðild að Evrópuráðinu
erum við að axla alvarlegar skuld-
bindingai'," sagði Prímakov og
bætti við að með aðild væri verið
að tryggja frekari lýðræðisþróun í
Rússlandi.
Talsmaður rússneska utanríkis-
ráðuneytisins neitaði því í gær að
gert hefði verið samkomulag um
að Rússar myndu slaka á andstöðu
sinni við stækkun NATO gegn því
að fá aðild að Evrópuráðinu.
Sækjast eftir sameiningu
Jeltsín sagði blaðamönnum að á
fundi sínum og Alexanders Lúkasj-
enkós, forseta Hvíta-Rússlands, í
gær, hefðu þeir tekið skref í átt
að sameiningu ríkjanna. „Við get-
um sagt að markmið okkar sé hugs-
anleg sameining eftir að mikill
samruni hafi átt sér stað . . . Það
er hægt að ná því markmiði," sagði
Jeltsín.
Hvíta-Rússland hefur verið sjálf-
stætt ríki í fjögur ár og sagðist
Lúkasjenkó vera sammála túlkun
Jeltsíns á fundi þeirra. Hvorugur
þeirra vildi þó fara nánar út í livað
þ.eir ættu við með sameiningu né
hvernig framtíðavsambandi ríkj-
anna kynni að verða háttað.