Morgunblaðið - 29.02.1996, Blaðsíða 44
44 FIMMTUDAGUR 29. FEBRÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
/m/íavha I//AÓ afejöl (HÚN OHL AÐBG ) J" '06 E/Nm TfþBGAf>\
AO ÉGNOT/ SA/OB>- 1 /ö MITT *l/0A/4 / \H/ETT/ VJÐ þAÐ! FAR/MN A& / \tCUUNA 'A þASlJ J
AV<1£>. y
(oJf o J .
s ©1»1 Tribune Media Servlce*. Inc All Aights Reaerved | 9-2
Grettir
ÓGNAIZST3ÓRN KATTAf?-
, ÖRBF7VMS HELPUR 'AF(3AM!
iJííA. FAVfí) /!Z
Tommi og Jenni
Ljóska
Ferdinand
Smáfólk
IF VOU UÍANT TO
BE KIN6,HERE'5 WHAT
YOU COULP DO
-^5
STAND U)AV UP ON A TELEPHOWE
WIRE,AND5H0UTT0THE
U)ORLD," I AMTHE KIN6Í"
tiítíí
Ef þig langar til að
verða konungur, þá
skaltu gera eitt...
Stilltu þér upp á símavír og
hrópaðu út í heiminn: „Ég er
konungurinn!“
Þá það, finndu þér þá
einhvern sem er ekki
svona hátt uppi...
BREF
HL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329
• Netfang:lauga@mbl.is
Sólstrandagæjam-
ir standa ekki við
gefinloforð
Sviku okkur
í tvígang
Frá Árselsráði:
25. OKTÓBER héldum við ungl-
ingarnir í félagsmiðstöðinni Árseli
stórfund þar sem við kusum að fá
hljómsveitina Sólstrandagæjana til
þess að spila á jólaballi Ársels og
Árbæjarskóla. Strax eftir kosning-
una pöntuðum við hljómsveitina
og samþykkti hún að koma.
Þegar ballið nálgaðist var
hringt í Sólstrandagæjana þar
sem starfsmenn fréttu af algjörri
tilviljun að þeir væru bókaðir ann-
arsstaðar. I framhaldi af því til-
kynntu þeir okkur það 3 dögum
fyrir ballið að þeir ætluðu ekki
að mæta. Þar sem fyrirvarinn var
svo stuttur var erfitt að fá aðra
hljómsveit. Sem betur fer fengum
við hið frábæra Sniglaband og
spiluðu þeir fyrir okkur. Þar sem
allir unglingarnir voru mjög
svekktir út í Sólstrandagæjana
fyrir að ganga á bak orða sinna,
lofuðu þeir okkur að bæta þetta
upp með því að spila frítt á árshá-
tíðinni. Um 20. janúar hringdum
við og létum þá vita hvenær árshá-
tíðin væri. Þá var allt í góðu lagi
og þeir lofuðu að mæta. 13. febr-
úar hringdi starfsmaður félags-
miðstöðvarinnar í þá aftur, bara
svona til þess að og minna á okk-
ur, því árshátíðin var 17. feb. Þá
sögðu þeir að þeir væru búnir að
bóka sig annars staðar aftur og
þeir myndu ekki mæta nema þeir
fengju 120.000 eða 40.000 meira
en við ætluðum að borga þeim
fyrir jólaballið (góðir gæjar þetta).
Fyrir utan það voru þeir búnir að
lofa að spila frítt á árshátíðinni.
Og aftur lendum við í því að þurfa
að finna aðra hljómsveit með
svona stuttum fyrirvara. Þessu
björguðu frábærir starfsmenn og
stofnuðu bara sína eigin hljóm-
sveit og slógu í gegn.
Við erum sár, svekkt og reið út
í Sólstrandagæjana því þeir sviku
okkur ekki bara einu sinni heldur
tvisvar. Þeir halda kannski að ein-
hverjir krakkar uppi í Árbæ skipti
engu máli og það er greinilegt að
peningar eru allt fyrir þeim. En
þeir gera sér ekki grein fyrir því
að þeir eru búnir að missa 500
aðdáendur, bara í Árbæjarskóla.
Auk þess erum við í Árseli og aðr-
ar félagsmiðstöðvar búin að setja
þá í bann. Þeir fá sem sagt ekki
að spila framar á böllum hjá félags-
miðstöðvum í Reykjavík.
Við viljum vara alla við að fá
þessa hljómsveit á böll, því henni
er ekki treystandi. Því höfum við
kynnst. Við höfum aðeins eitt að
segja að lokum: Berið þið enga
virðingu fyrir unglingum?
Fyrir hönd unglinganna í Ár-
bænum.
LILLÝ V. PÉTURSDÓTTIR,
GYÐA VALTÝSDÓTTIR,
Árselsráði.
Svar til Herborgar
og Hörpu
Frá Jónatan Garðarssyni:
OKKUR í framkvæmdanefnd ís-
lensku tónlistarverðlaunanna þótti
einkar áhugavert að lesa bréf
ykkar sem birtist í Velvakanda
Morgunblaðsins 22. febrúar síð-
astliðinn. Undanfarin þijú ár höf-
um við verið að vinna að fram-
gangi íslensku tónlistarverðlaun-
anna og móta með hvaða hætti
hentugast væri að standa að þeim.
Með hveiju árinu færumst við nær
því takmarki okkar að gera þetta
að veglegum viðburði í tónlistar-
lífi landsmanna. Við höfum hins-
vegar ekki ennþá náð að fullmóta
verðlaunahátíðina og þess vegna
eru allar ábendingar vel þegnar.
Áhugi ykkar á íslensku tónlistar-
verðlaununum gleður okkur mjög
og sýnir að við erum á réttri leið,
þó svo að við séum ekki enn búin
að finna verðlaununum endanleg-
an farveg.
Eins og þið vitið eflaust, býr
tónlistarfólk landsins við ákaflega
þröngan kost hvað húsnæði varð-
ar. Enn höfum við íslendingar ekki
borið gæfu til að reisa tónlistar-
hús, en það er álit framkvæmda-
nefndarinnar að slíkt hús væri hinn
rétti vettvangur fyrir verðlaunahá-
tíð sem þessa. Á meðan slíkt hús-
næði er ekki fyrir hendi treystum
við á velvilja veitingamanna, enda
er þeim málið nokkuð skylt, því
flestir tónlistarmenn starfa að
miklu leyti innan veggja veitinga-
húsa landsins. Á undanförnum
þremur árum hefur hátiðin verið
haldin á jafnmörgum stöðum, þ.e.
Hótel Sögu, Hótel íslandi og nú
síðast í Borgarkjallaranum. í öllum
tilfellum hefur okkur verið vel tek-
ið af rekstraraðilum þessara staða
og starfsfólki þeirra og á það fólk
allt þakkir skildar fyrir.
Hvernig staðið verður að hátíð-
inni á næsta ári er með öllu óráð-
ið. Þessa dagana er framkvæmda-
nefndin að fara yfir málin og ráða
ráðum sínum og verða allar ábend-
ingar skoðaðar gaumgæfilega.
JÓNATAN GARÐARSSON,
formaður framkvæmdanefndar ís-
lensku tónlistarverðlaunanna.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í
upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það-
an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu
efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.