Morgunblaðið - 29.02.1996, Síða 1
IÐNAÐUR
Steinullarverk-
smiöan í sókn /4
TÖLVUR
Fimmtugt
ferliki/6
______TORGIP
Nýtt skeiö á verö-
bréfamarkaöi/8
Lánasýsla
Meðalávöxtun á 10 og 20 ára
spariskírteinum ríkissjóðs lækk-
aði nokkuð í útboði Lánsýslu rík-
isins í gær. Meðalávöxtun 10 ára
bréfa í útboðinu var 5,72% og
hafði þá lækkað um 0,17% frá því
í síðasta útboði. Alls var tekið til-
boðum að fjárhæð 115 milljónir
króna í bréfin. Þá var tekið tilboð-
um að fjárhæð 422 milljónir krónf
í 20 ára spariskírteini í útboðinu.
Meðalávöxtun bréfanna var -
5,67%.
Hlutabréf
Gengi hlutabréfa í Síldarvinnsl-
unni hf. hækkaði um tæplega 11%
í viðskiptum á Verðbréfaþingi í
gær og var lokagengi bréfanna
skráð 5,10. Þá hækkuðu hlutabréf
í Hraðfrystihúsi Eskifjarðar hf.
um rúm 7% í 3,0.
Ráðstefna
Landsbréf efna í dag til ráðstefnu
um leið fyrirtækja inn á hluta-
bréfamarkað. Meðal annars verð-
ur fjailað um þýðingu skráningar
á hlutabréfamarkaði fyrir fyrir-
tæki auk þeirra skilyrða sem þau
þurfi að uppfylla. Ráðstefnan er
haldin að Hótel Loftleiðum frá
14-17.
SÖLUGENGI DOLLARS
GENGI NOKKURRA
GJALDMIÐLA
frá 1. febrúar 1995
Kælismiðjan Frost hf. á leið á
hlutabréfamarkað
Ársvelta stefnir í
hálfan milljarð
STERLINGSPUND
-0,03% breyting
frá áramótum
KÆLISMIÐJAN Frost hf. velti á
síðasta ári um 417 milljónum króna
sem er liðlega 60% aukning frá
árinu 1994. A þessu ári er gert
ráð fyrir að veltan nemi tæpum
500 milljónum. Mikill uppgangur
hefur einkennt reksturinn frá
stofnun félagsins fyrir tveimur
árum og er nú svo komið að hlut-
hafar þess binda vonir að það geti
átt svipaða möguleika og Marel
hf. fyrir tilstyrk mikillar sérþekk-
ingar á kælikerfum í matvæla-
vinnslu. Kælismiðjan Frost var
stofnuð í lok ársins 1993 og bygg-
ir á grunni lítils fyrirtækis frá
Kópavogi, SJ Frosts og kæiideildar
Slippstöðvarinnar Odda. Stofnaðil-
ar voru fyrrum eigendur SJ Frosts,
Eignarhaldsfélagið Alþýðubankinn
og nokkrir fyrrum starfsmenn
Slippstöðvarinnar Odda. Fyrirtæk-
ið hefur aðsetur við Fiskislóð í
Reykjavík en starfrækir deild á
Akureyri sem framleiðir kælikúta
og einangrun.
„Þetta hefur verið gríðarlegur
vöxtur því starfsmönnum hefur
Ijölgað úr 24 í 46 á tveimur árum.
sagði Páll Halldórsson, stjómarfor-
maður, í samtali við Morgunblaðið.
„Við höfum fengið nokkur stór
verkefni eins og t.d. smíði og upp-
setningu á kælikerfi fyrir frysti-
geymslur Eimskips í Sundahöfn.
Þá fengum við verkefni hjá fyrir-
tæki íslenskra sjávarafurða hf. í
Namibíu, Seaflower, bæði í skipi
þess og í landi. Síðan höfum við
fengið verkefni hjá Mjólkursamsöl-
unni, Fiskiðjusamlagi Húsavíkur og
í frystitogurum. Við urðum fyrsta
fyrirtækið hér á landi til að taka
að okkur að skipta út freon-efnun
í kælikerfum fyrir umhverfisvænni
efni og skiptum m.a. út efnum í
eldhúsinu í Flugstöð Leifs Eiríks-
sonar.
Kröfuharður markaður
Páll segir að hjá fyrirtækinu sé
samankomin mikil tækniþékking.
Fyrirtækið framleiði ekki sjálfa
hluta kælikerfanna heldur hafi sér-
hæft sig í að hanna og setja sam-
an ákveðnar lausnir. „Við njótum
góðs af nálægð við gífurlega kröfu-
harðan markað og starfsmenn okk-
ar hafa langa reynslu. Ég tel að
við ættum að geta haslað okkur
völl á þessu sviði erlendis ekkert
síður en innanlands. Hins vegar
höfum við ekki farið í beina mark-
aðssókn erlendis heldur reynum
að hanga í pilsfaldinum á öðrum
íslenskum fyrirtækjum. Á þessu
ári ætlum við að einbeita okkur
að því að styrkja innviðina. Hins
vegar gerum við ráð fyrir að það
hægi á veltuaukningunni og að
veltan verði um 470 milljónir."
Til að fjármagna aukinn vöxt
var hlutafé félagsins aukið í des-
ember á síðasta ári og seldust þá
bréf að nafnvirði 17 milljónir á
genginu 1,15. Hafa bréfin verið
skráð á Opna tilboðsmarkaðnum.
Afkoma síðasta árs var í járnum
sem skýrist af miklum kostnaði
við uppbyggingu en fyrirtækið
flutti í nýtt húsnæði bæði á Akur-
eyri og í Reykjavík.