Morgunblaðið - 01.03.1996, Síða 1

Morgunblaðið - 01.03.1996, Síða 1
104 SIÐUR B/C/D 51.TBL. 84.ÁRG. FÖSTUDAGUR 1. MARZ 1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Hyggjast stöðva tolla- bandalag Aþenu. Reuter. COSTAS Simitis, forsætisráðherra Grikklands, sagði í gær að Grikkir myndu koma í veg fyrir að tolla- bandalag Evrópusambandsins og Tyrklands tæki gildi á meðan „árás- arstefna Tyrkja væri enn við lýði“. „Það væri heimska af Grikkjum að halda áfram líkt og ekkert hefði í skorist á meðan Tyrkir hóta stríðs- átökum," sagði Simitis. í brýnu sló milli ríkjanna í janúar vegna deilu um yfirráð á nokkrum smáeyjum í Eyjahafi. Simitis sagði Grikki hafa greint samstarfsríkjum sínum frá þessari afstöðu og að þessari stefnu yrðj framfylgt á næstu mánuðum. „í samningnum um tollabandalag er tekið fram að Tyrkland eigi að eiga vinsamleg samskipti við Evrópusam- bandsríkin og Tyrkir fara ekki eftir því ákvæði," sagði forsætisráðherr- ann. Hann fór ásamt Theodor Pangalos utanríkisráðherra í heimsókn til nokkurra Evrópusambandsríkja í síðustu viku til að afla málstað Grikkja stuðnings en fékk fremur kaldar móttökur. Beitið ekki ESB Tansu Ciller, starfandi forsætis- ráðherra Tyrklands, hvatti Grikki í gær til þess að fallast á tvíhliða við- ræður um ágreiningsefni ríkjanna í stað þess að beita Evrópusamband- inu -fyrir sig í deilunni. „Grikkir kunna að vera aðildarríki ESB. En með því að beita aðild sinni gegn Tyrkjum draga þeir einungis úr framlagi Tyrkja til umheimsins ... Evrópusambandið myndi tapa á því,“ sagði Ciller en tyrkneska stjórnin reynir nú að teija Evrópu- sambandsríki á að taka ekki málstað Grikkja. Lítið fylgi Dinis Róm. Rcutcr. FLOKKABANDALAG Silvios Berlusconis nýtur mests fylgis meðal italskra kjósenda sam- kvæmt skoðanakönnun Abac- us-stofnunarinnar, sem birt var í gær. Frelsisfylking Berlusconis fær þó þremur prósentustigum minna fylgi en í síðustu könnun. Því hafði verið spáð að flokkabandalag miðjumanna myndi njóta góðs af stuðningi við hinn nýja flokk Lambertos Dinis forsætisráðherra, ítölsk endurnýjun. Miðjufylkingin hefur hins vegar einungis bætt við sig tveimur prósentustigum frá því að Dini myndaði flokk sinn fyr- ir viku. Alls fékk Itölsk endurnýjun 6,5% fylgi í könnuninni en greining á fylginu bendir til þess að um sé að ræða kjósend- ur sem hvort sem er hefðu kosið flokk í miðjubandalaginu. Reuter. ALDRAÐIR ættingjar þiggja veitingar við minningarathöfn um Majdi Abu Wardeh, sem lét lífið er hann kom sprengju fyrir í strætisvagni í Jerúsalem á sunnudag. IRA tekur dræmt í áskorun um vopnahlé Belfast, Dublin. Reuter. LEIÐTOGAR þjóðernissinna á Norð- ur-írlandi funduðu í gær á laun með forystu írska lýðveldishersins (IRA) til að ræða nýtt vopnahlé, en tókst ekki að knýja fram neinar skuldbind- ingar. Þessar viðræður voru ákveðnar eftir að John Major, forsætisráð- herra Bretlands, og John Bruton, forsætisráðherra írlands, greindu á miðvikudag frá því að allsheijarfrið- arviðræður ættu að hefjast 10. júní með aðild IRA ef samtökin féllust á nýtt vopnahlé. Gerry Adams, leiðtogi Sinn Fein, stjórnmálaarms IRA, og írski þjóð- ernissinninn John Hume, sem báðir eru fulltrúar katólskra þjóðernis- sinna á Norður-írlandi, sátu fundinn með IRA. „Þið vitið hvaða skoðanir ég hef,“ sagði Hume í viðtali við breska rík- isútvarpið, BBC. „Þeir veittu mér engar skuldbindingar af neinu tagi.“ IRA vantreystir Bretum Adams sagði í viðtali við írska ríkisútvarpið, RTE, að liðsmenn lýð- veldishersins treystu ekki breskum stjórnvöldum vegna þess að þau hefðu misnotað aðstöðu sína meðan á 17 mánaða vopnahiéinu, sem var rofið með sprengjutilræði 9. febrúar, stóð. Ráðgert er að tíu daga viðræður milli breskra og írskra stjórnvalda og stjórnmálaafla á Norður-írlandi hefjist á mánudag til að undirbúa allshetjarviðræðurnar. Þar mun Sinn Fein ekki standa jafnfætis öðrum viðræðuaðiljum og fær aðeins að- gang að embættismönnum en ekki ráðherrum, nema IRA lýsi yfir vopnahléi á ný. Adams kvartaði í gær yfir því að þetta væri ranglátt gagnvart flokki hans. Lyktir fundar Adams og Hume með IRA þykja benda til þess að lýðveldisherinn muni ekki endurnýja vopnahléið sjálfkrafa þótt í tillögum Brutons og Majors hafi verið gengið að þeirri meginkröfu IRA að samtök- in fengju að setjast að samninga- borði án þess að afvopnast fyrst. Hamas-samtökin Vilja hætta hryðju- verkum Jerúsalem. Reuter. HAMAS, samtök heittrúaðra Pal- estínumanna, sögðust í gær reiðu- búin að hætta hryðjuverkum gegn ísraelum að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Samtökin segjast vera reiðubúin að hætta „öllum hernaðaraðgerðum gegn óbreyttum gyðingum“ ef ísra- elsstjórn hætti að sama skapi „skipu- lögðum hryðjuverkum“ gegn Hamas og Qassam, hernaðararmi samtak- anna, léti af ofbeldisaðgerðum gegn óbreyttum Palestínumönnum á hern- umdu svæðunum og léti alla fangels- aða Hamas-félaga lausa. Ekki fyrsta tilboðið Áþekk tilboð hafa áður borist frá Hamas en samkvæmt palestínskum heimildarmönnum er þetta í fyrsta skipti sem jafnt hinn pólitíski og hernaðarlegi armur samtakanna leggja fram sameiginlegt tilboð. Sögðu Hamas þetta vera kjörið tækifæri fyrir ísraela til að binda enda á ofbeldi og stríðshættu. Uri Dromi, talsmaður ísraelsku stjórnarinnar, sagði að þetta væri ekki í fyrsta skipti sem Hamas kæmi með tilboð af þessu tagi, ekki síst þegar samtökin væru undir þrýst- ingi. Hamas hefur veitt frest til 8. mars til að svara tilboðinu. Samtökin hafa lýst yfir ábyrgð á tveimur sprengjutilræðum í ísrael um síðustu helgi og segja að með þeim hafi þau viljað hefna dauða sprengjusérfræðings síns, sem ísra- elar réðu af dögum fyrr á árinu. Reuter. Skrautlegar skyrtur HELMUT Kohl kanslari Þýska- lands á spjalli við Li Peng forsæt- isráðherra Kína við upphaf hátíð- arkvöldverðar í Bangkok í Tæ- landi í tilefni af leiðtogafundi Evr- ópusambands- og Asíurílga. Leið- togamir mættu allir til veislunnar íklæddir litrikum tælenskum silki- skyrtum sem Banharn Silpa-acha, forsætisráðherra Tælands, gaf þeim. Li kættist lítt yfir sinni því hún reyndist eldrauð. Taldi hann að landsmenn hans myndu halda hann vera að vanvirða kínverska fánann ef hann sæist í skyrtunni í sjónvarpi. Mistökin við litavalið vom skrifuð á kínverska sendiráð- ið í Bangkok. Þrátt fyrir þau mætti Li til veislunnar í rauðu skyrtunni. Rússar mótmæla heræfingum NATO Njósnaskip send að strönd Noregs Ósló. Morvunblaðið. TVO RUSSNESK njósnaskip hafa verið send að strönd Norður-Noregs til að fylgjast með heræfingum sem eru fyrirhugaðar þar í næstu viku með þátttöku 15.000 hermanna frá átta aðildarríkjum Atlantshafs- bandalagsins. Talsmaður Borís Jeltsíns Rússlandsforseta hefur mót- mælt heræfingunum. Heimildarmenn í norska utanrík- isráðuneytinu sögðu að sér hefði komið á óvart hversu hörð viðbrögð Rússa væru. „Noregur er greinilega að verða peð í síharðnandi kosninga- baráttu í Rússlandi," sagði embætt- ismaður í ráðuneytinu. „Þátttaka erlendra ríkja í heræf- ingum nálægt lándamærum okkar eflir ekki samskiptin," sagði tals- maður Jeltsíns. Áður hafði rússneski hershöfðinginn Vladímír Semjonov sagt að „stríðsæfingar NATO“ ógn- uðu öryggi Rússlands. Norski sjóliðsforinginn Dag Isak- sen, sem starfar við fjölmiðlamiðstöð NATO í Harstad, sagði að tvö rúss- nesk njósnaskip væru rétt utan við landhelgina til að afla sem mestra upplýsinga um heræfingarnar. Rúss- ar höfðu áður afþakkað boð Norð- manna um að senda rússneska emb- ættismenn til að fylgjast með heræf- ingunum á staðnum. Rússar hafa einnig gagnrýnt þátt- töku 18 bandarískra hermanna í her- æfingum í Finnmörku, nyrsta fylki Noregs, í janúar. Þetta er í fyrsta sinn sem hermenn á vegurn NATO taka þátt í heræfingum í fylkinu þar sem norsk stjórnvöld hafa hingað til haft þá stefnu að takmarka heræf- ingarnar í Norður-Noregi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.