Morgunblaðið - 03.03.1996, Síða 1
HONDA ACCORD REYNSL UEKIÐ - NYRMINI
VÆNTANLEG UR - VESTURLANDS VEG UR BREIKK-
AÐUR - RENA ULTNEXT TVINNBÍLLINN
Sölumenn
bifreiðaumboðanna
y annast útvegun
lánsins á 15 mínútum
Giitnlrlif
DÓTTURFYRIRTÆKI ÍSLANDSBANKA
SUNNUDAGUR 3. MARZ
1996
BLAÐ
Skoda Felicia
Aðeins kr,. 849.000,
1®Oi
fllAMTlOIN BYCCISTÁ HCfOINNI
Tryggðu þér nýjan
fjölskyldubíl núna.
Þýsk gæði á ótrúlega
lágu verði.
1946-1996
Nýbýlavegur 2
Sfml: 554 2600
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
LITILL markaður er fyrir breytta, notaða jeppa segir Egill Jóhannsson framkvæmdastjóri
Brimborgar. Fyrirtækið tekur ekki breytta jeppa sem greiðslu upp í nýja bíla.
Brimborg tekur ekki
breytta bíla upp í nýja
BRIMBORG hf., umboðsaðili Ford,
Volvo, Daihatsu og Citroén, er hætt
að taka breytta, notaða jeppa af
dýrari gerðum sem greiðslu upp í
nýja bíla. Egill Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri Brimborgar, segir að
þetta sé gert vegna sölutregðu á
breyttum jeppum. Brimborg ráðlegg-
ur viðskiptavinum að láta ekki breyta
jeppum sínum. Ingvar Helgason hf.
og Bílheimar taka hins vegar gjarnan
breytta bíla upp í nýja og segir Júl-
íus Vífill Ingvarsson framkvæmda-
stjóri að talsvert hafi selst af slíkum
bílum.
„Við erum dálítið harðir í uppítök-
um svo það verði ekki vandræði
seinna á eftirmarkaði. Jeppamark-
aðurinn er tregur núna. Það hefur
greinilega dregið úr jeppaæðinu sem
hér var. Bílkaupendur kaupa jeppa
núna á miklu heilbrigðari nótum og
upphækkunaræðið er liðin tíð. Við
tökum ekki upphækkaða jeppa upp
í nýja og við ráðleggjum mönnum
að láta ekki hækka upp nýja jeppa.
Að sjálfsögðu eru þeir til sem þurfa
á slíkum bílum að halda en það er
náttúrulega orðin algjör della að
nánast hver einasti jeppi í landinu
hafi verið hækkaður upp. Ford Expl-
orer seljum við hins á vegar 31
tommu dekkjum sem við teljum ekki
vera breytingu enda er bíllinn ekkert
hækkaður," segir Egill.
Július Vífill segir að yfirleitt sé
ekki mikið af uppítökum á bílum sem
er breytt umfram 35 tommu hjól-
barða. „Við sláum þó ekki hendinni
á móti bílum sem vel er breytt. Þessi
markaður hefur breyst á þann veg
að bílum er betur breytt en áður.
Vitaskuld tökum við ekki bíla sem
við teljum hættulega og sem hefur
verið breytt á frumstæðan hátt.
Margir af þeim bílum sem við höfum
umboð fyrir er oft breytt mikið og
mjög vel. Nissan Patrol bílarnir eru
margir notaðir til fjalla og meirihluti
Isuzu Crew Cab pallbílanna er seldur
á 35 tommu dekkjum. 33-35 tommu
dekk eru mjög algeng á Patrol og
31 tomma og upp í 33 tommur er
eiginlega orðið „standard" á Terrano
II. Við tökum slíka bíla upp í nýja
og þeir seljast ágætlega," sagði Júl-
íus Vífill.
Bílaumboðin eru almennt hætt að
taka tjónabíla upp í nýja. ■
Fólksbifreiðasala bílaumboðanna 1991-1995
1991 1992 1993 1994 1995
1991 1992 1993 1994 1995
Nýr Opel Astra
ÞRÁTT fyrir að enn séu tvö ár hylli frá því hann kom breyttur á
þar til nýjum Opel Astra verður markað á síðasta ári. Heyrst hefur
hleypt af stokkunum eru þegar að líklegt þyki að minnsti bíllinn
hafnar prófanir á bílnum. Þessi í Saturn-línunni verði byggður á
teikning af frumgerð bílsins sýnir nýja Astra bílnum. General Motors
að framendinn og afturendinn á stærstanhlutíbáðumfyrirtækjun-
draga dám af stóra bróður, Vectra, um, en Astra er söluhæsti bíll GM.
sem hefur notið mikillar ■
Höggdeyfar
®] Stilling
BILAHORNIÐ
varahlutaverslun HafnarfiarOar
Reykjavlkurvegi 50 • SÍMI: 555 1019