Morgunblaðið - 06.03.1996, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 06.03.1996, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. MARZ 1996 11 FRÉTTIR Ríkisendurskoðun skoðar rekstur sjö sjúkrahúsa ÚTTEKT Ríkisendurskoðunar á rekstri sjö sjúkrahúsa á lands- byggðinni sýnir að talsverður mis- munur er á kostnaði við rekstur þeirra. Stofnunin telur að upplýs- ingarnar bendi eindregið til þess að með breyttu skipulagi geti náðst verulegur sparnaður í heilbrigðisút- gjöldum og hvetur heilbrigðisyfir- völd til að vinna skipulega að því að greina ástæður fyrir mismun- andi kostnaði þessara einstöku þátta heilbrigðiskerfisins með það í huga að ná fram sparnaði með breyttu verklagi. Sjúkrahúsin sjö eru í Keflavík, ísafirði, Sauðárkróki, Húsavík, Neskaupstað, Selfossi og Vest- mannaeyjum. Öll sjúkrahúsin voru rekin með tapi á árinu 1994 nema sjúkrahúsið á Sauðárkróki sem skil- aði rúmlega 4 milljóna króna tekju- afgangi. Stærð og umfang þeirrar þjónustu sem sjúkrahúsin veita er nokkuð mismunandi. Ríkisendur- skoðun segir ljóst að rekstur minni sjúkrahúsanna sé eðli málsins sam- kvæmt óhagkvæmur. Því minna sem sjúkrahúsið’ sé því verr nýtist Hægt að ná sparnaði með betra skipulagi fjármunirnir og það starfsfólk sem það hafi yfir að ráða. Minni sjúkra- húsin þjóni hins vegar í talsverðum mæli sjúklingum úr öðrum byggð- arlögum. Framkvæmdir utan fjárheimilda Heildarkostnaður við heilbrigðis- þjónustu á hvern íbúa er lægstur á sjúkrahúsinu í Keflavík 75 þúsund krónur. Næst á eftir kemur Selfoss með 78 þúsund, þá Vestmannaeyjar og Ísafjörður með 100 þúsund, Sauðárkrókur með 101 þúsund, Húsavík með 107 og hæstur er kostnaðurinn á sjúkrahúsinu á Nes- kaupstað eða rúmlega 114 þúsund á íbúa. Vert er að geta þess að ald- ursdreifing íbúa á þessum stöðum er mismunandi og eins sækja sjúkl- ingar úr nágrannahéruðum í mun meira mæli þjónustu til minni sjúkrahúsanna en til sjúkrahúsanna á Selfossi og í Keflavík. Ríkisendurskoðun gagnrýnir stjórnendur sjúkrahúsanna í skýrslu sinni fyrir að hefja framkvæmdir sem ekki séu fjárheimildir fyrir. Framkvæmdirnar séu fjármagnað- ar af almennu rekstrarfé sjúkrahús- anna. Þetta sé ámælisvert því að þar með séu sjúkrahúsin að ganga á almennt rekstrarfé og þar með að skerða þá þjónustu sem þau eigi að veita. Stofnunin gagnrýnir þetta ekki síst í ljósi slæms fjárhags sjúkrahúsanna. Ríkisendurskoðun segir að þrátt fyrir að kenna megi ómarkvissri stjórnun og ónógri aðhaldssemi að einhverju leyti um slæma afkomu sjúkrahúsanna vegi þau atriði ekki það þungt að þau skýri allan halla- rekstur sjúkrahusanna. Stofnunin teiur tímabært að stjórnvöld horfist í augu við það hvað kostar að reka slíka starfsemi sem veitt er á sjúkrahúsum á landsbyggðinni eða taki þá ákvörðun að þessari þjón- ustu sé betur fyrir komið annars staðar eða með öðrum hætti. Sértilboð til Kanarí um páskana .,,59.832 Aðeins 6 íbúðir 3. apríl -18 n»tur Við bjóðum nú einstakt tilboð um páskana á einn okkar vinsælasta gististað, Los Salmones, sem er frábærlega staðsettur í hjarta ensku strandarinnar. Kanaríeyjar eru vinsælasti áfangastaður íslendinga um páskana vegna hins frábæra veðurfars og þjónustu íslenskra fararstjóra okkar meðan á dvöl þinni stendur. Falleg smáhýsi eða fbúðir með einu svefnherbergi, baði, eldhúsi, stofu og svölum - móttaka og veitingastaður í hótelinu. Bókaðu strax - síðustu sætin 13. mars - síðustu sætin Verð kr. 49.930 M.v. hjón með 2 böm, 13. mars, 3 vikur. Verð kr. 59.960 M.v. 2 fullorðna í húsi, 13. mars, 3 vikur. Skattar inrtifaldir, ekki foifallagjald kr. 1.200 cq Aðeins kr. %✓ S 9 %/ Étá Hjón með 2 böm, Sonnenland. 3. apríl. Verð með sköttum. 69.960 Kr. 2 í íbúð, Los Salmones. -3. aprfl. Verð með sköttum. HEIMSFERÐIR Austurstræti 17,2. hæð. Sími 562 4600. Léttar og skemmtilegar Macintosh - eins og hugur mannsl é.Apple-umboðiö Skipholti 21 • Sítni 511 5111 Heimasíðan: bttp://www. apple. is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.