Morgunblaðið - 06.03.1996, Síða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 6. MARZ 1996
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Kristján
Embætti sýslu-
mannsins
Auglýst
laust til
umsóknar
EMBÆTTI sýslumannsins á Ak-
ureyri hefur verið auglýst laust
til umsóknar og er umsóknarfrest-
ur til 18. mars nk.
Elías I. Elíasson, núverandi
sýslumaður lætur af störfum inn-
an tíðar vegna aldurs. Hann verð-
ur sjötugur þann 10. apríl nk. og
samkvæmt reglum þarf hann að
láta af embætti í kringum þau
tímamót. Elías hefur starfað við
embættið á Akureyri frá 15. ág-
úst 1980 en áður var hann bæjar-
fógeti á Siglufírði í tæp 14 ár.
Kjarasamningar í Slippstöðinni Odda hf. felldir
Allir hópar samþykktu
nema málmiðnaðarmenn
KJARASAMNINGUR Slippstöðv-
arinnar Odda hf. og starfsmanna
fyrirtækisins, sem undirritaður var
sl. föstudag, var felldur í atkvæða-
greiðslu starfsmanna í gærmorgun.
Aðeins félagsmenn í Félagi málmiðn-
aðarmanna felldu samninginn en það
þýðir að hann mun ekki taka gildi.
Ingi Bjömsson, framkvæmdastjóri
Slippstöðvarinnar Odda hf. sagði í
samtali við Morgunblaðið, að með
þessum nýja samningi hafi verið
gerð tilraun tii að breyta ýmsu í
þeim samningi sem er í gildi. „Til-
gangurinn var að gera fyrirtækið
samkeppnishæfara en einnig voru í
samningnum kjarabætur fyrir starfs-
menn. Þessu hefur verið hafnað
þannig að áfram verður unnið sam-
kvæmt þeim samningi sem fyrir var.“
Allir starfsmenn Slippstöðvarinnar
stóðu að samningnum að verkstjór-
um undanskildum og greiddi hver
hópur starfsmanna atkvæði fyrir sig,
þ.e. málmiðnaðarmenn, bygginga-
menn, rafvirkjar, verslunarmenn og
verkamenn. Allir hóparnir þurftu að
samþykkja samninginn til að hann
tæki gildi. Aðrir en málmiðnaðar-
menn samþykktu samninginn en hjá
málmiðnðarmönnum voru 29 á móti,
25 með samningnum og 1 skilaði
auðu.
Allir 35 félagsmenn Einingar sem
greiddu atkvæði samþykktu samn-
inginn og einnig þeir 3 rafvirkjar sem
greiddu atkvæði, svo og 4 bygginga-
menn. 6 verslunarmenn samþykktu
samninginn en 3 skiluðu auðu. Alls
greiddu 106 starfsmenn atkvæði, 73
samþykktu samninginn, 29 voru á
móti og 4 skiluðu auðu.
Breytingar á vaktavinnu-
fyrirkomulagi stóðu í mönnum
í samningnum var m.a. verið að
gera breytingar á vaktavinnufyrir-
komulagi en greitt var 40% álag á
allar vaktir. I' nýja samningum var
vaktavinnuálag á dagvinnutímabili
fellt út, álag á kvöldvakt fór í 35%
og álag á næturvakt í 55%. Þá var
samið um 4% kauphækkun frá und-
irritun samningsins og 2% til viðbót-
ar frá 1. janúar 1997 og er þessi
hækkun umfram það sem samið var
um á almennum markaði.
Jóhann Bjami Júlíusson, trúnað-
armaður málmiðnaðarmanna, sem
jafnframt átti sæti í samninganefnd,
sagði að fyrirhugaðar breytingar á
vaktavinnuálagi hafí helst staðið í
málmiðnaðarmönnum. „Ég vissi að
atkvæðagreiðslan yrði tvísýn en átti
von á að samningurinn yrði sam-
þykktur. Við munum nú hugsa málið
í rólegheitunum og leita leiða til
breytinga," sagði Jóhann Bjarni.
Skipulagsnefnd
Endurbætur á
göngugötu en
umferð ekki leyfð
SKIPULAGSDEILD Akureyrarbæj-
ar leggur til að göngugatan í Hafn-
arstræti verði áfram göngugata en
gerðar verði á henni nokkrar endur-
bætur. Verslunareigendur og hags-
munaaðilar í miðbænum fóru fram
á það síðasta sumar að akstur yrði
leyfður um götuna í tilraunaskyni.
Starfsmannaráð Heilsugæslustöðv-
arinnar mótmælti eindregið þeirri
hugmynd.
Miklar umræður urðu um tillögu
skipulagsnefndar á fundi bæjar-
stjórnar Akureyrar í gær. Gísli Bragi
Hjartarson formaður skipulags-
nefndar kynnti hugmyndir deildar-
innar, sem felast m.a. i því að
þrengja götuna, breyta lýsingu og
hellulögn og auka gróður. Breyting-
in miðaði m.a. að því að ef menn
vildu síðar leyfa akstur um götuna
yrði það hægt. Nefndi hann að end-
Tikktakk
í Deiglunni
NÚ stendur yfir í Deiglunni sýning
á einum hlut og þremur myndröðum
eftir Jón Laxdal Halldórsson. Sýn-
ingin ber yfirskriftina „Tikk takk“
og er eins konar tiiraun um tíma.
Deiglan er opin daglega milli kl.
14 og 18. Sýningunni lýkur fimmtu-
daginn 14. mars næstkomandi.
urbætur gætu kostað um 8 milljónir
króna.
Skipulagsnefnd hefur falið skipu-
lagsdeild að auglýsa eftir hugmynd-
um bæjarbúa um nýtingu og út-
færslu Skátagils og tengsl þess við
göngugötuna og Ráðhústorgið og
hefur bæjarráð óskað eftir að hug-
myndum um endurbætur á götunni
sem og nýtingu lóðanna Hafnar-
stræti 103 og 105 verði hraðað.
Takmörkuð
umferð til reynslu
Tveir bæjarfulltrúar Framsókn-
arflokks, Guðmundur Stefánsson og
Þórarinn E. Sveinsson, nefndu í
umræðum um málið að sjálfsagt
væri að taka tillit til óska verslun-
areigenda.og leyfa akstur um götuna
til reynslu en bæjarstjórn hefði lengi
vikist undan að taka afstöðu. Ekki
þyrfti að kosta miklu til í byrjun.
Heimir Ingimarsson, Alþýðu-
bandalagi, taldi einnig óhætt að
hleypa takmarkaðri umferð um göt-
una til reynslu, en betra væri að
skoða aðra kosti fyrst. Ásta Sigurð-
ardóttir, Framsóknarflokki, taldi
einnig heppiiegt að haida opnum
möguleika á bílaumferð um götuna,
en hún benti á að ný hellulögn væri
fokdýr aðgerð. Sigurður J. Sigurðs-
son, Sjálfstæðisflokki kvaðst ekki
mótfallinn því að takmörkuð umferð
yrði leyfð um götuna, en gera þyrfti
á henni breytingar áður.
Morgunblaðið/Kristján
HERMANN Sigtryggsson sýndi Eiríki Bj. Björgvinssyni, sem
tekur við starfi hans, ný húsakynni við Glerárgötu.
Nýr íþrótta- og æskulýðsfulltrúi
Bíður spenntur eftir að byija
„MÉR líst mjög vel á mig hérna
og bíð spenntur eftir að hefja
störf,“ sagði Eiríkur Bj. Björg-
vinsson nýráðinn íþrótta- og æsku-
lýðsfulltrúi á Akureyri en hann
kom og ræddi við Hermann Sig-
tryggsson forvera sinn í starfi í
vikunni og skoðaði þá jafnframt
nýja skrifstofu fulltrúans við Gler-
árgötu 26.
Eiríkur er fæddur í Reykjavík
6. september 1966, hann er
íþróttakennari frá íþróttakenn-
araskóianum að Laugavatni og
stundaði síðan framhaldsnám í
íþróttafræðum við íþróttaháskól-
ann í Köln í Þýskalandi. Því námi
lauk hann vorið 1994. Þá um sum-
arið flutti hann fyrirlestra um
evrópska knattspyrnu við háskól-
ann í Suður-Karólína í Bandarikj-
unum í tengslum við heimsmeist-
aramótið í knattspyrnu. Eiríkur
hóf störf sem æskulýðs- og
íþróttafulltrúi á Egilsstöðum
haustið 1994 og hefur gegnt þeirri
stöðu síðan. Hann tekur til starfa
á Akureyri um næstu mánaðamót.
„Ætli megi ekki segja að ég sé
alinn upp i Framheimilinu," sagði
Eiríkur sem æfði ýmsar íþrótta-
greinar með félaginu á yngri
árum en snéri sér alfarið að knatt-
spyrnunni á unglingsárum, lék
m.a. 15 landsleiki með unglinga-
landsliðinu. Þá lék hann með Völs-
ungi á Iiúsavík á árunum I986-’88
og einnig hefur hann leikið með
Hetti á Egilsstöðum.
„Hermann hefur sinnt þessu
starfi í áratugi og gert það vel,
ég hlakka mjög til að taka við af
honurn," sagði Eiríkur. Hann benti
á að æskulýðsmálin væru afar
mikilvæg og nauðsynlegt að sinna
þeim þætti af kostgæfni. Öflugt
íþrótta- og æskulýðsstarf hefði
áhrif til góðs og gæti spornað
gegn því að unglingar leiddust út
í notkun fíkniefna.
Félagsmála-
nefnd Al-
þingis í
kynnisferð
FÉLAGSMÁLANEFND Alþing-
is var í kynnisferð á Akureyri í
vikunni og kynntu nefndarmenn
sér starfsemi bæjarins á sviði
félagsmála. Einnig áttu nefnd-
armenn fund með bæjarfulltrú-
um, þar sem var rætt um
reynslusveitarfélagsverkefnið
og fleira. Listasafn Akureyrar
var heimsótt, svo og vinnustofur
handverkafólks og listamanna.
Á myndinni sem tekin var í tóm-
stundamiðstöðinni Punktinum á
Gleráreyrum, sýnir Jóhanna
Daðadóttir hvernig hún ber sig
að á vefstólnum. F.v. Hafdís
Ólafsdóttir ritari nefndarinnar,
Magnús Stefánsson, Svanfríður
Jónasdóttir, Kristín Ástgeirs-
dóttir, Rannveig Guðmundsdótt-
ir og Bryndís Hlöðversdóttir.
----------*■■■-*- *-
Heimahjúkrun
Heilsugæslunnar
Engin
þjónusta
á kvöldin
ENGIN kvöldþjónusta hefur verið
veitt á vegum heimahjúkrunar
Heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri
og einungi’s bráðnauðsynleg þjón-
usta er í boði fyrri hluta dags um
helgar.
Konný K. Kristjánsdóttir hjúkr-
unarforstjóri Heilsugæslustöðvar-
innar á Akureyri sagði að barist
væri fyrir hverri krónu og á meðan
stöðinni væri sífellt gert að spara
frá ári til árs væri fyrirsjáanlegt að
ekki yrði hægt að bjóða upp á kvöld-
þjónustu á næstunni eða auka þjón-
ustu við skjólstæðinga heimahjúkr-
unar um helgar.
Heilsugæslustöðinni er gert að
spara 5,5 milljónir króna á þessu
ári miðað við framlög ársins á undan
og tók stjórnin nýverið ákvörðun um
að leggja niður krabbameinsleit,
hætta að dreifa flúortöflum ókeypis
í ungbarnaverndinni, hætta að
greiða kostnað vegna komu sérfræð-
ings í heila- og taugasjúkdómum auk
þess sem þijár bifreiðar heimahjúkr-
unar verða seldar.
AIls hefur heimahjúkrunin yfir sjö
bifreiðum að ráða og sagði Konny
að nú yrðu elstu bílarnir seldir. Það
skipti ekki sköpum varðandi þjón-
ustuna, brýnna væri að fá viður-
kennd tvö stöðugildi til viðbótar við
heimahjúkrunina til að hægt yrði
að sinna kvöld- og helgidagaþjón-
ustu. Slík þjónusta var lögð niður í
desember árið 1994 í sparnaðar-
skyni. Nú eru fimm stöðugildi hjúkr-
unarfræðinga og sjö stöðugildi
sjúkraliða við heimahjúkrunina.
----------».♦ ♦----
• »
Oll laus
sumarstörf
auglýst
BÆJARRÁÐ Akureyrar hefur sam-
þykkt að auglýsa öll laus sumarstörf
fyrir 17 ára og eldri hjá deilduin og
stofnunum bæjarins og munu ráðn-
ingar fara fram í samráði við starfs-
mannadeild.
Jafnframt ákvað bæjarráð að 16
ára unglingum, fæddum 1980, verði
gefinn kostur á 6 vikna vinnu í sum-
ar, 7 tíma á dag eða samtals 210
vinnustundir. Vinna 14 og 15 ára
unglinga verður með sama hætti og
á síðasta ári.