Morgunblaðið - 06.03.1996, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ
LAPdDIÐ
MIÐVIKUDAGUR 6. MARZ 1996 13
Morgunblaðið/Egill Egilsson
Þ AÐ var mikill áhugi á námskeiðinu i gerð steindra glugga.
Námskeið í gerð steindra
glugga í Brynjubæ
Garðyrkju verði tryggð
bætt rekstrarskilyrði
Morgunblaðið/Aldís Hafsteinsdóttir
GUÐMUNDUR Bjarnason landbúnaðarráðherra, Sveinbjörn Eyj-
ólfsson og Ólafur Friðriksson frá landbúnaðarráðuneyti. ísólfur
Gylfi Pálmason og Guðjón Guðmundsson alþingismenn kynna
skýrslu starfsskilyrðanefndar garðyrkju.
Flateyri - Dagana 21.-24. febrúar
var haldið námskeið í hönnun og
gerð steindra glugga á vegum
Sigríðar Ásgeirsdóttur myndlist-
armanns. Námskeiðið var haldið
í Brynjubæ, handverksmiðstöð
Flateyringa.
Þegar fréttaritari leit inn voru
bæði menn og konur á fullu við
að koma hugmyndum sinum í
mótanlegt form undir leiðsögn
Sigríðar. Áhuginn var slíkur að
menn vissu varla af fréttaritara.
I stuttu spjalli við Sigríði kom
fram að hún kennir ekki að stað-
aldri, hún sinnir eingöngu list
sinni. Hvað varðar námskeiðið
hafi sig langað til að kenna hér
fyrir vestan sökum fólksins og
umhverfisins. Hún hafi gaman
af því að koma á staði eins og
Flateyri og víðar, því þar eigi
hin eiginlega menning sér stað.
Þar sé fólk á kafi í leiklist, mynd-
list, ritlist og margt fleira. Hér
skapi fólk sjálft sína menningu
og geri það með tilþrifum. I
Reykjavík eigi sér stað alltof
mikil einangruð list, þar sem
menn eru neytendur en ekki þeir
sem skapa listina.
Að lokum má geta þess að
verk eftir Sigríði prýða kapellu
Sjúkrahússins á Isafirði.
Hveragerði - Starfsskilyrðanefnd
um garðyrkju kynnti lokaskýrslu
um störf sín á fundi sem haldinn
var í Garðyrkjuskóla ríkisins að
Reykjum í Ölfusi síðastliðinn
fimmtudag.
í nóvember síðastliðnum skipaði
landbúnaðarráðherra nefnd sem
skyldi hafa það hlutverk að kanna
starfsumhverfi og samkeppnisstöðu
garðyrkju í landinu. Nefndina skipa
Sveinbjörn Eyjólfsson og Ólafur
Friðriksson frá landbúnaðarráðu-
neyti, ísólfur Gylfi Pálmason og
Guðjón Guðmundsson alþingismenn
og Kjartan Ólafsson og Sigurður
Þráinsson garðyrkjubændur.
Á fundinum að Reykjum fjallaði
Guðmundur Bjarnason landbún-
aðarráðherra ýtarlega um skýrsl-
una og kynnti einstaka efnisþætti
hennar. Ennfremur sátu nefndar-
menn fyrir svörum og kynntu sjón-
armið sín.
í skýrslu nefndarinnar kemur
fram að garðyrkjan sé sú grein ís-
lensks landbúnaðar sem notið hefur
einna minnstrar verndar stjórn-
valda. Greinin nýtur engra beinna
styrkja eða niðurgreiðslna og verð-
myndun afurða ræðst af framboði
og eftirspurn. Innflutningur á garð-
Ný verslun á
Reykhólum
Miðhúsum - Nýir eigendur
opnuðu nýja sælgætis- og al-
hliða verslun á Reykhólum sl.
sunnudag. Eigendur eru hjón-
in Bergljót Bjarnadóttir, Jónas
Samúelsson, Steingerður
Hilmarsdóttir og Bjarni P.
Magnússon.
Verslunin verður með 4 til
5 vöruflokka á sama verði og
Bónus í Reykjavík og stefnt
er að því að lækka verð vöru-
flokka. Einnig er þar bensín-
og olíusala og áformað er að
brydda upp á nýjungum í við-
skiptum. Verslunin verður op-
in alla daga vikunnar.
yrkjuafurðum hefur verið heimilað-
ur allt árið um kring en hins vegar
nýtur íslensk framleiðsla verndar
með magntollum samkvæmt lögum.
Framtíðin liggur
í raflýsingu
Aukin samkeppni kallar á ný-
sköpun í garðyrkju og felst nýsköp-
unin helst í aukinni raflýsingu í
gróðurhúsum. Nefndin leggur
áherslu á að greininni verði tryggð
skilyrði til eðlilegrar samkeppni
með hagstæðu raforkuverði.
Garðyrkjubændur hafa lengi ver-
ið óánægðir með þá þjónustu og
það verð sem þeim er búið af raf-
orkusölum og því ljóst að til að
rafmagnsmál greinarinnar komist í
viðunandi horf þurfa að koma til
víðtækir samningar við raforkusala
í landinu.
Viðræðunefnd
í skýrslu nefndarinnar kemur
fram að stjórn Landsvirkjunnar tel-
ur lagaheimild ekki vera fyrir hendi
til að hægt sé að veita garðyrkj-
unni sérkjör á raforku framyfir
aðra raforkukaupendur. Nefndin
leggur því til að sett verði á laggirn-
ar viðræðu-/samninganefnd sem
hafi það hlutverk að ganga frá lang-
tímasamningum um raforkuverð og
að auka skilning milli aðila.
Rannsóknamiðstöð í
garðyrkju að Reykjum
Starfskilyrðanefnd vill efla
menntun, rannsóknir og leiðbein-
ingar í greininni. Til að tryggja slíkt
leggur hún til að komið verði upp
garðyrkjumiðstöð í tengslum við
Garðyrkjuskólann að Reykjum og
að ráðunautaþjónusta sú sem rekin
hefur verið fyrir greinina á vegum
Bændassamtakanna verði flutt
þangað. Ennfremur að tilraunir í
garðyrkju verði stórauknar að
Reykjum. Nefndin telur eðlilegt að
auknar rannsóknir verði íjármagn-
aðar með þeim auknu tekjum sem
til eru komnar vegna innflutnings
landbúnaðarvara í kjölfar GATT-
samningsins.
Aðrir þættir skýrslunnar lúta að
almennum starfsskilyrðum greinar-
innar svo sem áhrifum breyttrar
löggjafar í kjölfar GATT og mikil-
vægi þess að greininni sé gert kleift
að aðlagast opnara starfsumhverfi.
Því er lögð rík áhersla á að ekki
verði hreyft við þeirri vernd sem
nú gildir og ennfremur að eftirlit
með innflutningi garðyrkjuafurða
verði bætt.
Morgunblaðið/Pétur Kristjánsson
FRÁ opna húsinu í Tónlistarskóla Seyðisfjarðar.
Opið hús hjá Tónlistar-
skóla Seyðisfjarðar
Seyðisfirði - Dagur Tónlistarskól-
anna var haldinn laugardaginn 24.
febrúar. Á Seyðisfirði var ákveðið
að hafa opið hús í Tónlistarskólan-
um þennan dag. Straumur af fólki
hélt út og inn um dyr Tónlistarskól-
ans með hléum allan daginn, en
aldrei stórir hópar í einu svo varla
voru hljómleikar eða hvað? Margir
skólar voru með tónleika. Hvers
vegna ekki hér?
Einar Bragi Bragason skóla-
stjóri verður fyrir svörum: „Við
ákváðum að sleppa tónleikum. Við
búum á Austurlandi og loðnuvert-
íðin er í fullum gangi. Það var
ekki víst að fólk hefði tíma einmitt
þegar tónleikarnir yrðu. Betra var
að það gæti litið inn í kaffi þegar
það er búið í vinnunni.“ Einar sagði
að tilgangurinn væri að bjóða fólki
að skoða skólann og hljóðfærin og
jafnvel að prófa hljóðfærin. „Líka
að fá fólk hingað sem sést sjaldan
eða aldrei. Skólinn er í mjög merku
gömlu húsi. Fólk þekkir húsið vel
að utan en ekki hafa allir komið
hingað inn. Þó er nemendafjöldinn
að ég held með því besta sem ger-
ist á landinu. Nú eru um 70 nem-
endur í skólanum, eða rúmlega 8%
íbúanna.“
Allan tímann sem fréttaritari
staldraði við mátti heyra tóna úr
alls kyns hljóðfærum úr öllum her-
bergjum hússins. Ný synfónía var
að mótast sem ekki yrði endurtek-
in. Hvernig stendur á þessum
skrítnu frumsömdu lögum hér um
allt hús?
„Þetta er fólk sem er að prófa
hljóðfæri skólans. Það sem vekur
mest kátínu hjá yngra liðinu er,
eins og þú heyrir, harmóníkan.
Reyndar gaf Harmóníkufélag
Seyðisfjarðar okkur harmóníku
fyrir tveimur dögum. Menn hafa
líka verið mikið að fikta í tólistar-
tölvu skólans. Nemendurnir hafa
greinilega gaman af því að koma
í dag og fikta í öllu öðru en þvi
sem þeir eru að gera í sínum venju-
legum tímum. Þeir eru kannski
búnir að horfa á eitthvert hljóð-
færi uppi í hillu langa lengi og
hafa langað að prófa."
Að læra á hljóðfæri kostar níu
þúsund á önn. Þá er innifalið tvisv-
ar sinnum hálftími í einkatíma á
viku og svo bóklegt fag. Við skól-
ann er starfandi lúðrasveit og í
bænum er starfandi barnakór. Að
sjálfsögðu er kirkjukór og karlakór
svona yfirleitt. Þannig að þeir sem
eru í tónskólanum hafa úr ýmsu
að moða. Þrír kennarar starfa við
skólann. Auk Einars eru það Mar-
ía Gaskell og Aðalheiður Borgþórs-
dóttir. Skipting milli hljóðfæra er
nokkuð jöfn og hefur píanónám
heldur verið að aukast undanfarið.
Einar Bragi segir frá: „Fyrir
nokkrum árúm var píanónámið al-
veg týnt héma í bænum. Fyrir
tveimur árum þegar María Gaskell
kom hingað átti ég í vandræðum
með að finna nemendur í píanón-
ám. En nú er orðið fullt á píanó,
en María kennir reyndar á klari-
nett einnig þótt hún sé fyrst og
fremst píanókennari."
. Um tónlistarlífíð í bænum segir
Einar Bragi að lokum: „Margir
héldu að það yrði ansi gott fall
eftir afmælisárið, en svo hefur
ekki verið. Tónleikar hafa verið vel
sóttir í vetur, þótt þeir hefðu mátt
vera fleiri. Það fækkar heldur ekk-
ert í skólanum, enda styður bæjar-
félagið vel við bakið á tónlistar-
skólanum sínum. Mér fundust vera
furðu fáar unglingahljómsveitir í
fyrra, en þeim fer fjölgandi núna.
Gítarinn hefur reyndar bætt á sig
í vetur. Það eru margir litlir KKar
og Bubbar á ferðinni þessa dag-
anna. Og það er óvíða sem maður
sér lúðrasveit spila fyrir utan búð-
ir bæjarins í 15 stiga frosti.“
HÓTEL ÍSLAIMD KYIMIMIR EIIMA BESTU TÓIMLISTAROABSKRA ALLRA TÍMA:
60
'70
O
'EB KYIMSLOÐIIM
SKEMMTIR SÉR
BESTU LÓB ÁRATUBARIIMS í FRÁBÆRUM FLUTXIIMEI SÓIMBVARA.
OAIMSARA OB W IHAIMIMA HLJÓMSVEITAR BUIMIMARS ÞÓRBARSOIMAR
íhe Searchers
Soiik> aiar:
líjöifii in I lalldórsson
l’alini Gimnarssnn
Ari .liinssou
lljarni \rasnn
Siingsxslnr.
I lansarar
K> nnir:
I>ni'fíiAr AsUiiTilsm>11
I lailllril. lillil nf>' IriL
lijörn (i. Björnsson
Opið í Ásbyrgi
"’l kvöld.
Næslu sýningar. Söngvarinn og
mars: 9., 15., 23. og 30. hljóinborðslcikarinn
apríl: 13., 20. og 27. Gabriel Garcia
San Salvador
Forréttun
Kóngasveppasúpa
Aðalréttur:
EldsteiktuT lambavoóvi með gljáðu gTænmeti,
ofnsteiktum jarðeplum og sólbcTjasósu.
Eftirréttur:
Ferskjuís i brauðkörfu með heitii .
karamellusósu.
< <
BÍTLAVINAFÉLACIÐ
Leikur fyrir dansi eltir sýiiinguna
ATH: Enginn nðgangseyrir
a dansleik!
Verð krónur 4.800,
Sýningarverð kr. 2J200,-
HÓTETj jÁUAND
Vinsamlegast hafið samband, sími: 568 7111
Sértilboð á hótelgistingu, sími 568 8999
Salir, með og án veitinga við öll tækifæri!