Morgunblaðið - 06.03.1996, Page 14
14 MIÐVIKUDAGUR 6. MARZ 1996
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
-
Grandi hf. jók hagnað í fyrra
Bætt afkoma
vegna lægri fjár-
magnskostnaðar
REKSTRARHAGNAÐUR Granda
hf. áður en tekið hefur verið tillit til
fjármagnsliða varð um 123 millj-
ónum króna minni á síðasta ári en
árið á undan. Þar á móti kom hins
vegar um 180 milljóna lækkun á fjár-
magnskostnaði sem skilaði sér í því
að endanlegur hagnaður varð 223
milljónir eða 70 milljónum hærri en
árið á undan. Þetta sést nánar í
meðfylgjandi töflu.
Þessa hagstæðu útkomu fjár-
magnsliða má m.a. rekja til þess að
félagið tók lán í japönskum jenum á
síðasta ári hjá Norræna fjárfesting-
arbankanum í Finnlandi. Gengi jens-
ins hefur farið lækkandi allar götur
síðan og því skapast umtalsverður
gengishagnaður. Skýrir það að ein-
hverju leyti lægri fjármagnskostnað.
Rekstrartekjur félagsins í fyrra
námu 3.512 milljónum og er það 3%
samdráttur frá árinu áður. I fyrra
var dróst heildaraflinn saman um
16% eða úr um 37.148 tonnum í
31.083 tonni sem stafar m.a. af
minni aflaheimildum og sjómanna-
verkfallinu. Var veiði togara félags-
ins á úthafskarfa um fimm þúsund
tonnum minni en áætlað hafði verið
vegna verkfallsins.
Hlutafé félagsins nam alls um
1.195 milljónum í árslok og hefur
hækkað um 100 milijónir vegna sölu
nýrra hluta. Hluthafar voru 793 um
áramót og hafði fjölgað um 93 á
milli ára.
Eigið fé var alls 1.961 milljónir.
Arðsemi eigin fjár var 14% saman-
borið við 10% árið áður.
PRANDI HF
Rekstrarreikningur Miiijónir króna 1995 1994 Breyt.
Rekstrartekjur 3.512 3.631 -3,3%
Rekstrargjöld 3.274 3.270 +0,1%
Rekstrarhagnaður 238 361 -34,1%
Hreinn fjármagnskostnaður 43 223 -80,7%
Hagnaður af reglulegri starfsemi 195 138 +41,3%
Aðrar tekjur og gjöld 28 15 +86.7%
Hagnaður ársins 223 153 +45,8%
Efnahagsreikningur 31. des.: 1995 1994 Breyt.
I Eignir: \ Milljónir króna
Veltufjármunir 667 733 -9,0%
Fastafjármunir 4.473 3.979 +12,4%
Eignir samtals 5.140 4.712 +9,1%
i SkuiOir 00 eigið fé: \ Milljónir króna
Skammtímaskuldir 660 651 +1,4%
Langtímaskuldir 2.519 2.458 +2,5%
Eigið fé 1.961 1.603 +22.3%
Skuldir og eigiö fé samtals |. 5.140 4.712 +9,1%
Kennitölur 1995 1994
Eiginfjárhlutfall 38,2% 34,0%
Veltufjárhlutfall 1,01 1,13
Veltufé frá rekstri Milljónir króna 528 577
Samkeppnisráð úrskurðar um nafn Félags löggiltra fasteignasala
Gengurgegn sam-
keppnislögum
Kaiserféll
frá tilboði
í Alunmx
Houston.
KAISER Aluminium er hætt við til-
raun sína til að komast yfir Alum-
axálfyrirtækið og hefur dregið til
baka 2.2 milljarða dollara tilboð, sem
Alumax hafnaði í febrúar.
í staðinn mun Kaiser reyna að
afla eigna og stofna til fyrirtækja-
samvinnu annars staðar að sögn
George Haymakers forstjóra, en
önnur sameignarfyrirtæki verða
ekki eins umsvifamikil og það sem
stofnað hefði verið ef Alumax hefði
verið keypt.
Kaiser, sem er undir stjórn Maxx-
am Inc., féll frá tilboði upp á 30-45
dollara á hlutabréf og sagði 2. marz
að fyrirtækið mundi ekki reyna að
ná yfirhöndinni í stjórn Alumax. Slík
barátta hefði getað dregizt á lang-
inn, þar sem aðeins verður kosið um
þrj á af tíu framkvæmdastjórum Al-
umax á þessu ári.
Árlegur hluthafafundur Alumax
verður haldinn í maí og frestur til
að skila tillögum til umræðu á fund-
inum rann út á laugardag.
Kaiser reyndi að komast yfir Al-
umax, þótt Alumax sé stærrra og
arðbærara álfyrirtæki. Ef félögin
hefðu sameinazt hefði sala hins sam-
einaða fyrirtækis numið rúmlega 5
milljörðum dollara. Þar með hefði
það orðið fjórða stærsta álfyrirtæki
Bandaríkjanna, næst á eftir Alumi-
nium Co. of America, Alcan Alumi-
nium Ltd. og Reynolds Metals Co.
„Að sjálfsögðu teljum við að hér
hafi mikilvægt tækifæri farið for-
görðum,“ sagði Haymaker.
------»44-------
Morgun verðar-
fundur um SH
FÉLAG viðskipta- og hagfræðinga
efnir til morgunverðarfundar í dag
kl. 8-9.30 um markaðsstarfsemi
Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna.
Fundurinn verður haldinn samtímis
á Hótel Sögu og í SH-húsinu á Akur-
eyri og verða fundarstaðirnir tengdir
gegnum Ijósleiðara.
Frummælendur verða þeir Friðrik
Pálsson, forstjóri SH, og Gylfi Þór
Magnússon, framkvæmdastjóri
markaðsmála og forstöðumaður á
skrifstofu SH á Akureyri. Á fund-
inum verður m.a. fjallað um sölunet
SH, ólíka markaði og samkeppni á
erlendum markaði. Þá verður því
jafnframt lýst hvernig unnt sé að
reka fyrirtækið þrátt fyrir miklar
fjarlægðir milli starfsmanna.
FÉLAGSMÖNNUM Félags löggiltra
fasteignasala er óheimilt að nota
auðkennið „Félag löggiltra fast-
eignasala“ í atvinnustarfsemi sinni.
Þetta er niðurstaða Samkeppnisráðs
samkvæmt ákvörðunarorði þess,
sem kveðið var upp fyrir skömmu.
Merki félaganna voru hins vegar
talin svo ólík,- að ekki yrði séð, að
þau gæti valdið misskilningi.
í desember sl. sendi Félag fast-
eignasala Samkeppnisráði kvörtun
yfir notkun á félagsheitinu Félag
löggiltra fasteignasala og var hún
rökstudd með því, að hafn og merki
félagsins brytu í bága við ákvæði
samkeppnislaga.
í ákvörðun Samkeppnisráðs kem-
ur m.a. fram að bæði þessi félög
hafi hagsmuni fasteignasala að leið-
arljósi. Félagsmenn beggja noti
merki þeirra talsvert í starfsemi
sinni og því sé hætta á því að villst
verði á auðkennum félaganna í ljósi
þess að sömu orð komi þar fyrir.
„Einnig skiptir hér máli, að auðkenn-
EIGNARLEIGUFYRIRTÆKIÐ
Lýsing hf. skilaði alls tæplega 37
milljóna króna hagnaði á síðasta
árið borið saman við 33 milljóna
hagnað árið áður. Umsvif félagsins
jukust verulega á árinu þar sem
fjárhæð nýrra samninga nam um
1.758 milljónum en var 1.340 millj-
ónir árið áður. Dreifðust þeir nokk-
uð jafnt á einstaka vöruflokka og
atvinnugreinar, en fyrirtækið skipt-
ir eingöngu við atvinnulífið í landi.
Á árinu var samið um endurfjár-
mögnun á hluta erlendra lána fyrir
milligöngu The Royal Bank of Scot-
land. Lánið var að fjárhæð 6 millj-
ónir dollara og 11 milljónir þýskra
marka. Jafnframt var tekið lán á
innlendum markaði að fjárhæð 490
milljónir og greiddir -upp eldri
ið „Félag löggiltra fasteignasala"
vísar til þess, að félagar séu einvörð-
ungu löggiltir fasteignasalar. sbr.
1. gr. Íaga nr. 34/1986. Gagnvart
Félagi fasteignasala getur því auð-
kennið „Félag löggiltra fasteigna-
sala“ valdið þeim misskilningi, að í
Félagi löggiltra fasteignasala séu
einungis löggiltir fasteignasalar en
í Félagi fasteignasala séu fasteigna-
salar, sem ekki eru löggiltir," segir
í ákvörðun Samkeppnisráðs.
í ljósi þessa er það mat Sam-
keppnisráðs, að notkun félagsmanna
Félags löggiltra fasteignasala á auð-
kenninu „Félag löggiltra fasteigna-
sala“ í atvinnustarfsemi fari gegn
25. gr. samkeppnislaga nr. 8/1933.
og sé þvi óheimil.
Engin afstaða verið tekin
til framhaldsins
Lovísa Kristjánsdóttir, formaður
Félags löggiltra fasteignasala, sagði
í samtali við Morgunblaðið í gær að
enn hefði ekki verið tekin ákvörðun
skuldabréfaflokkar að fjárhæð 310
milljónir.
Lýsing á 30% hlut í Steini hf. sem
fjármagnaði húsnæði og innrétting-
ar veitingastaðarins Hard Rock
Café í Kringlunni á sínum tíma.
Jafnframt á félagið 5% hlut í Lyng-
hálsi hf. sem annaðist fjármögnun
á myndlyklakerfi íslenska útvarps-
félagsins hf.
Lýsing er að bjóða út skuldabréf
að fjárhæð 500 milljónir króna um
þessar mundir til að greiða niður
eldri lán og mæta fyrirsjáanlegri
aukningu. Hafa þegar selst um 80
milljónir af bréfunum.
í árslok 1995 námu útlán og
eignarleigusamningar félagsins
tæplega 4 milljörðum króna og
höfðu aukist úr liðlega 3,6 milljörð-
um hvert framhaldið yrði. Fundur
var boðaður í félaginu í gærkveldi
tii þess að ræða þetta mál en niður-
staða hans var ekki ljós þegar blað-
ið fór í prentun.
Lovísa sagði hins vegar ljóst að
félagið stæði frammi fyrir tveimur
kostum, annars vegar að breyta
nafni félagsins í samræmi við úr-
skurð Samkeppnisráðs eða áfrýja
honum. Hún sagðist annars undrast
þessi hörðu viðbrögð sem stofnun
félagsins hefði vakið. „Það var aldr-
ei ætlunin að troða Félagi fasteigna-
sala um tær á neinn hátt. Félag lögg-
iltra fasteignasala var fyrst og
fremst stofnað þar sem ekki stóð
öllum til boða að komast inn í Félag'
fasteignasala. Síðan veit ég til þess
að þeir hafa rýmkað inntökureglur
töluvert þannig að þó svo að þetta
félag okkar verði ekki til neins ann-
ars þá hefur það ekki til einskins
verið, en við erum hins vegar alls
ekki að leggja upp laupana."
um frá árinu á undan. Eigið fé var
tæpar 368 milljónir og var arðsemi
eiginfjár 10,9%.
Á aðalfundi Lýsingar hf. á
fimmtudag var samþykkt að auka
hlutafé um 50 milljónir króna til
að mæta auknum umsvifum. Jafn-
framt var samþykkt að greiða 10%
arð til hluthafa, þ.e. Landsbankans,
Búnaðarbanka, Sjóvár-Almennra
trygginga hf. og Vátryggingafélags
íslands hf.
í stjórn voru kjörnir þeir Sverrir
Hermannsson, Brynjólfur Helga-
son, Jón Adólf Guðjónsson, Sólon
R. Sigurðsson, Einar Sveinsson og
Ingi R. Helgason. Einar kemur í
stað Siguijóns Péturssonar sem lét
af störfum hjá Sjóvá-Almennum á
sl. ári.
Lýsing hagnaðist
um 37 milljónir
Hlutafé aukið um 50 milljónir
Eignarhaldsfélagið
Alþýðubankinn hf.
Hagnaður
um 167
milljónir
HAGNAÐUR Eignarhaldsfélagsins
Alþýðubankans hf. nam um 167
milljónum króna á síðasta ári sem
er um 14 milljónum minni hagnaður
en árið 1994, skv. frétt frá félaginu.
Þessi afkoma skýrist að veruiegu
leyti af þeirri hækkun sem orðið
hefur á gengi hlutabréfa í eigu fé-
lagsins á árinu 1995. Þar vegur
þyngst hækkun á gengi hlutabréfa
í íslandsbanka en félagið er þar
stærsti hluthafinn með 12,5% hiut.
Nemur bókfært verð bréfanna um
655 milljónum. Félagið á jafnframt
hluti í 20 öðrum félögum sem eru
bókfærðir á 305 milljónir. Afkoma
þessara félaga er almennt góð og
hefur gengi þeirra bréfa sem skráð
eru á hlutabréfamarkaði hækkað
mjög.
Eignarhaldsfélagið fjárfesti í 5
óskráðum félögum á síðasta ári fyr-
ir 68,6 milljónir. Þannig voru keypt
bréf í Landssmiðjunni, Máka hf. á
Sauðárkróki, Softís hf., Taugagrein-
ingu og Skinnaiðnaði hf.
Eigið fé félagsins nam alls 1.153
milljónum í lok ársins og hlutafé
742 milljónum. Innra virði hluta-
bréfa í félaginu hækkaði úr 1,37 í
1,55 á árinu og eiginfjárhlutfall fór
úr 77% í 84%. Hluthafar í árslok
voru 1.127 og fjölgaði um 147 á
árinu.
Stjórn félagsins leggur til að
greiddur verði 7% arður til hluthafa
á árinu 1996 en það nemur um
4,5% af eigin fé í árslok. Aðalfund-
ur verður haldinn í Setrinu á Grand
Hótel Reykjavík fimmtudaginn 14.
mars nk. kl. 17.00.
-----444-------
Cunard
skipafélag-
ið til sölu
London. Reuter.
CUNARD skipafélagið, eigandi
Queen Elizabeth II og fleiri glæsi-
legra skemmtiferðaskipa, er til sölu,
þar sem móðurfyrirtækið Trafalgar
House hefur samþykkt að norski
verkfræðirisinn Kvaerner taki við
rekstri þess.
Kvaerner segir að nokkrir aðilar
hafi sýnt Cunard áhuga, þótt skip
félagsins séu gömul og það hafi
verið rekið með miklu tapi síðan
jólasigling QEII til New York fór
út um þúfur 1994. Ferðin kostaði
Cunard 7.5 milljóna punda skaða-
bótagreiðslur, þar sem unnið var
að miklum breytingum á QEII með-
an á siglingunni stóð og farþegar
urðu fyrir ýmsum óþægindum.
Sumum farþegum var vísað frá í
Southampton, þar sem endurbótum
á klefum þeirra var ekki lokið.
Metið á 219 millj.punda
Kvaerner, sem kaupir móðurfyr-
irtækið Trafalgar House fyrir 904
milljónir punda, metur Cunard á
219 milljónir punda og kveðst bú-
ast við að fá hærri upphæð fyrir
félagið vegna mikils áhuga á því.
Jólasiglingin 1994 var dæmigerð
fyrir hnignun Cunard-skipafélags-
ins, sem var stofnað 1878 og gegndi
lengi vel forystuhlutverki á sviði
skemmtisiglinga. Nokkur glæsileg-
ustu og hraðskreiðustu farþegaskip
heims voru í eigu félagsins, þar á
meðal Lusitania, sem þýzkur kaf-
bátur sökkti 1915 með þeim afleið-
ingum að 1200 létu lífið.
Nú eru aðeins átta skemmti-
ferðaskip í eigu Cunards og þau eru
ekki talin uppfylla þá nútímakröfu
til slíkra skipa að þau líkist sem
mest fljótandi hótelum.
I
I
>
I
\
I
í
>
I
I
I
t
I
I
I