Morgunblaðið - 06.03.1996, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 06.03.1996, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. MARZ 1996 15 FRÉTTIR:EVRÓPA ERLEIMT Hver verða áhrif spænsku kosninganna? Reuter MEÐ Felipe Gonzalez hverfur enn einn þeirra stjórnmálamanna af sviði evrópskra stjórnmála, sem verið hafa hvað mest áber- andi síðustu árin. Brussel. Reuter. ÚRSLIT kosning- anna á Spáni þýða að mati margra að enn einn baráttu- maðurinn fyrir aukn- um Evrópusamruna sé horfinn af sjónar- sviðinu. Felipe Gonz- alez, sem verið hefur forsætisráðherra Spánar frá árinu 1982, beið ósigur fyr- ir Þjóðarflokki José Maria Aznars í kosn- ingum á sunnudag. Evrópskir stjórn- arerindrekar og embættismenn hjá Evrópusambandinu benda á að Gonzalez hafi gegnt lykilhlut- verki í samrunaferli síðasta ára- tugar, meðal annars varðandi áformin um peningalegan sam- runa. Auk hans hafi einnig horfið af vettvangi síðustu misserin þeir Francois Mitterrand, fyrrverandi Frakklandsforseti, og Jaeques Del- ors, fyrrum forseti framkvæmda- stjórnarinnar. Evrópustefna Aznars liggur ekki alveg ljós fyrir og því enn óvist hversu mikla breytingu í Evrópu- málum valdaskiptin munu hafa í för með sér þegar upp er staðið. Sumir spá því að stefnan muni í raun ekki breytast mikið og nefna tvennt í því sambandi. Spánveijar hafí reynt að tengjast ESB sem sterkustum böndum til að treysta lýðræði í landinu eftir fráfall Franc- iscos Francos einræðisherra. Þá séu stórir hlutar landsins mjög háðir framlögum úr byggðasjóðum sam- bandsins. „Spánveijar verða að vera áfram í innsta kjarna hins evrópska sam- runa. Þeir hafa ekki efni á því að fara út í hugmyndafræðilegan slag,“ sagði diplómat frá ESB. Annar benti á að Aznar yrði að treysta á stuðning svæðisbundinna flokka frá héruðum er ættu mikið undir ESB-stuðningi Ekki jafnáhrifamikill og Gonzalez Flestir eru hins vegar sammála um að Aznar muni ekki gegna jafn- mikilvægu hlutverki og Gonzalez gerði. „Það er alltaf rætt um fransk- þýska bandalagið. Það kom hins vegar einnig þriðji aðilinn þar við sögu,“ sagði embættismaður hjá framkvæmdastjórninni. Talið er að þann góða árangur er náðist á leiðtogafundinum í Madrid í fyrra megi ekki síst rekja til þess hversu vel þeir Kohl og Gonzalez náðu saman við lausn erf- iðra ágreiningsmála. Það veldur þeim elnnig áhyggj- um, sem eru mjög áfram um frek- ari samruna, að þegar helstu bar- áttumenn Evrópusambandsins hafa látið af völdum hafa tekið við ann- aðhvort efasemdamenn eða kraft- minni leiðtogar. Þannig má nefna að Jacques Chirac tók við af Mitt- errand, Jacques Santer af Delors og nú Aznar af Gonzalez. EMU-ummæli Clarkes vekja reiði London. Reuter. KENNETH Clarke, fjármálaráð- herra Bretlands, olli miklu upp- námi á Bretlandi á mánudag er hann lýsti því yfir stuðningi við áform Evrópusambandsins um efnahagslegan og peningalegan samruna Evrópuríkja, EMU. Er mikil andstæða við EMU innan íhaldsflokksins. í viðtali við The Daily Telegraph sagðist Clarke vera jákvæður í garð EMU og yrði af hinum pen- ingalega samruna myndi það skipta miklu máli fyrir Breta hvort að þeir tækju þátt eða ekki. „Ég held að þetta mál muni halda áfram að koma á dagskrá innan Evrópusambandsins og að Bretar ættu að fylgja straumnum í evrópskum stjórnmálum,“ sagði Clarke, sem tók þó ekki skrefið til fulls í viðtalinu með því að lýsa því yfir að hann teldi Breta eiga að sækjast eftir aðild. Bill Cash, einn þeirra átta þing- manna íhaldsflokksins, sem var tímabundið vísað úr flokknum í fyrra vegna Evrópuandstöðu sinn- ar, sagði að Clarke ætti að „íhuga stöðu sína sem fjármálaráðherra". John Redwood, sem bauð sig fram sem flokksleiðtogi gegn John Major í fyrra, sagði í viðtali við BBC að sameiginlegur gjaldmiðill myndi veikja breskt efnahagslíf og vera pólitískt mjög skaðlegur. Gordon Brown, talsmaður Verkamannaflokksins í efnahags- málum, sagði við SAy-sjónvarps- stöðina að Ihaldsflokkurinn væri klofinn enda á mili í Evrópumál- um. Major væri farinn að gefa í skyn áð hann vildi hugsanlega þjóðaratkvæðagreiðslu um sam- eiginlegan gjaldmiðil en Clarke væri andvígur þeirri hugmynd. Ekki skattalækkanir í viðtalinu við Daily Telegraph vísaði Clarke því á bug að til greina kæmi að kynna skatta- lækkanir í fjárlagafrumvarpi haustsins til að auðvelda íhalds- mönnum kosningabaráttuna á næsta ári. „Það að reyna að múta með skattalækkunum væri móðg- un við dómgreind kjósenda," sagði fjármálaráðherrann. Margir íhaldsmenn eru þeirrar skoðunar að skattalækkanir séu eina leiðin fyrir flokkinn til að halda áfram völdum. Ihaldsmenn hafa verið í stjórn frá árinu 1979 og eru nú 30 prósentustigum á eftir Verkamannaflokknum í skoð- anakönnunum. Ný bók um ævi Howard Hughes Geðveiki sögð stafa af sárasótt New York. Reuter. BANDARISKI auðkýfingurinn Howard Hughes var í raun alvarlega geðveikur og rætur geðveiki hans má að öllu líkindum rekja til sára- sóttar er aldrei tókst að lækna og réðst að lokum á heila og miðtauga- kerfi. Kemur þetta fram í grein í tímaritinu Vanity Fair á mánudag. Tímaritið birtir kafla úr nýrri bók um ævi Howard Hughes, sem ber titilinn „Sagan sem ekki hefur verið sögð“ (Howard Hughes: The Untold Story). Hughes þótti einstaklega sérvitur maður og eru í bókinni færð rök fyrir því að það megi skýra með sárasóttarsýkingunni. Sérviska hans lýsti sér meðal annars í því að hann lét annað fólk ávallt standa í ákveð- inni fjarlægð frá sér af ótta við bakt- eríur. Þá þjáðist hann af ofsóknar- æði á árunum 1957 og 1958. Ótti við bakteríur Þegar Hughes var 41 árs að aldri hætti hann að tala við vini sína og samstarfsmenn í símS af ótta við að bakteríur gætu borist um síma- leiðslur, að sögn bókarhöfundanna Peter Harry Brown og Pat Broeske. Hann krafðist þess einnig af starfsfólki sínu að það klæddist hvít- um hönskum er það ritaði minnisblöð fyrir hann og hann lét gera áætlanir um hvemig hægt væri að byggja upp bakteríulaust umhverfi. Einnig skrif- aði hann leiðbeiningar um það hvem- ig færa ætti honum fatnað þannig að engin hætta væri á að bakteríur kæmust á „hans hreinu föt“. Pússaði síma Hughes lét hlera síma þeirra kvenna er hann átti í ástarsambandi við og lét veita þeim eftirför. Er hann giftist leikkonunni Jean Peters árið 1957 lét hann tvo nánustu sam- starfsmenn sína klæðast búningum andaveiðimanna. Á þessum tíma bjó hann í myrkvuðu einbýlishúsi sem átti að vera laust við bakteríur. Eftir ellefu mánaða hjónaband segja höfundamir að Hughes hafi fengið taugaáfall og hafðist fyrir í kvikmyndasýningasal í fimm mán- uði. Þar var hans gætt allan sólar- hringinn af vörðum á meðan hann pússaði síma með rykþurrkum. Ritsafn Gaddafis á útsölu Kaíró. Reuter. EGYPTAR eiga nú kost á að kaupa allt ritsafn Muammars Gaddafis, leiðtoga Líbýu, fyr- ir jafnvirði 18 króna. I kaup- bæti fá þeir veggspjald með áritun leiðtogans. Meira en 100.000 eintök af ritum Gaddafis hafa verið send á bókastefnuna í Kaíró og bækurnar rennu út eins og heitar lummur, að sögn egypskra embættismanna. Boðar afturhvarf til náttúrunnar Meðal ritanna er smá- sagnasafn Gaddafis, „Þorpið, þorpið, jörðin, jörðin og sjálfs- morð geimfarans". Egypskir og líbýskir ritdómarar hafa lofað sögurnar í hástert og nokkrir þeirra segja að lífsýn Gaddafis minni á franska heimspekinginn Jean-Jacques Rousseau. I verkunum dregur Gaddafi upp dökka mynd af borgum nútímans og vill aft- urhvarf til náttúrunnar og sveitalífsins. SUZUKI~ afl o g öryggi Þægindi, öryggi og kraftur Einstaklega vandaður og vel búinn fjölskyldubíll Aflmikil 16 ventla vél/86 hestöfl • vökvastýri • veltistýri • samlæsingar • rafdrifnar rúðuvindur • rafstýrðir útispeglar • rúmgóð farangursgeymsla • einstaklega rúmgott og hljóðlátt farþegarými • útvarp/segulband 4 hátalarar • upphituð framsæti Öryggisbúnaður í sérflokki 2 öryggisloftpúðar (airbags) • hliðarárekstrarvörn « hæðarstilling á öryggisbeltum • krumpsvæði framan og aftan • rafstýrð hæðarstilling á framljósum $ SUZUKI ----------------- SUZUKI BÍLAR HF Skeifunni 17 - 108 Reykjavík - sími: 568 5100

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.