Morgunblaðið - 06.03.1996, Page 17

Morgunblaðið - 06.03.1996, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ ERLENT MIÐVIKUDAGUR 6. MARZ 1996 17 Reuter Þingmenn í verkfalli ÞINGMENN Shinshinto, helsta stjórnarandstöðuflokksins í Jap- an, hafa verið í setuverkfalli í þinghúsinu í tvo daga til að mót- mæla umdeildu stjórnarfrum- varpi. Samkvæmt því mun ríkið eða skattgreiðendur í landinu koma illa stöddum lánastofnun- um til hjálpar með gífurlegu fjár- framlagi. I gær var reynt að finna einhverja málamiðlun í deilunni. The New York Times Hermenn Bosníustjórnar þjálfaðir í íran New York. Reuter. RÍKISSTJÓRN Bosníu hefur sent ijölda hermanna til þjálfunar í íran til að efla her sinn, samkvæmt heimildum bandaríska dagblaðsins The New York Times. Blaðið hefur eftir tveimur ónafngreindum embættismönn- um Bosníustjórnar að bcjsnískir hermenn séu í þjálfun í íran en þeir neituðu að greina frá því hversu margir hefðu verið sendir þangað og hvenær. Að mati erindreka Evrópuríkja með sendiráð í íran, sem New York Times ræddi við hafa „nokk- ur hundruð" Bosníumenn verið við þjálfun í íran eða eru enn. Haft er eftir háttsettum evr- ópskum hernaðarsérfræðingi í Vín að utanríkisráðuneyti hans hafí borist stöðugar fregnir af Bosníumönnum á leið til Iran til þjálfunar án þess þó að áþreifan- legar tölur hafi verið nefndar. „Það sem veldur okkur áhyggj- um er ekki sú hernaðarlega þjálf- un sem þessir menn fá í íran heldur sú innræting af íslamskri hugmyndafræði sem er jafnframt hluti þjálfunarinnar,“ sagði emb- ættismaðurinn. Að auki er talið að allt að 200 íranska hermenn sé að finna í sjálfri Bosníu. Erlendir hermenn voru skyldaðir til að yfirgefa Bosníu samkvæmt Dayton-sam- komulaginu. Vera bosnískra hermanna í íran er hins vegar ekki brot á friðarsamkomulaginu en gæti að mati blaðsins orðið til að torvelda samskipti Bosníu- og Bandaríkja- stjórnar. Blaðið hefur heimildir fyrir því að bandarískir embættismenn hafí varað Bosníustjórn við því að hverfí hermenn frá ríkjum múhameðstrúarmanna ekki á brott frá Bosníu gæti það stefnt áformum Bandaríkjastjórnar um hemaðaraðstoð við Bosníu í hættu. Vísað á bug íranska dagblaðið Tehran Tim- es hafði í gær eftir „upplýstum heimildarmanni" í íranska utan- ríkisráðuneytinu að frétt New York Times ætti ekki við nein rök að styðjast. Meginmarkmið „ástæðulausrar áróðursherferð- ar“ Bandaríkjanna gegn íran væri að draga úr mannúðarstuðn- ingi landsins við Bosníu. Einnig var haft eftir Omer Behmen, sendiherra Bosníu í íran: „Eftir því sem ég veit best eru engir bosnískir hermenn í íran.“ Tölvuþjálfun Windows • Word • Excel Það er aldrei of seint að byrja! 60 stunda námskeið þar sem þátttakendur kynnast grundvallarþáttum tölvuvinnslu og fá hagnýta þjálfun. Vönduð kennslubók innifalin í verði. Innritun stendur yfir. Fjarfestu í framtíðinnil Tölvuskóli íslands Höfðabakka 9 • Sími 567 1466 FLUGLEIDIR Aðalfundur Flugleiða hf. Aðalfundur Flugleiða hf. verðurhaldinnfimmtudaginn 14. mars 1996 íEfriþingsölum Scandic Hótels Lofileiða og hefstkl 14.00. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 10. gr. samþykkta félagsins. 2. Tillaga um breytingu á 4. gr. samþykkta félagsins um heimiid til stjórnar til að hækka hlutafé með sölu nýrra hluta. 3. Önnur mál, löglega upp borin. Tillögur ffá hluthöfum, 'sem bera á fram á aðalfundi, skulu vera komnar í hendur stjómarinnar eigi síöar en 7 dögum fyrir aðalfund. Tævanssljórn mótmælir aðgerðum stjórnvalda í Peking Eldflaugatilraunir sagð- ar „óþolandi ögrun“ Taipei, Pekinff. Reuter. STJORNVOLD á Tævan mótmæltu í gær kröftuglega fyrirhugðum eld- flaugaskotum Kínverja á hafsvæði í grennd við eyríkið dagana 8. til 15. mars. Ljóst þykir að eldflauga- tilraununum sé ætlað að hræða Tævanbúa sem kjósa sér forseta 23. mars. Stjórnarandstæðingar á Tævan saka Lee Teng-hui forseta um að eiga sök á deilunum með stefnu sinni en röksemdirnar fyrir þeim ásökunum eru ólíkar. Áætlaður lendingarstaður sumra eldflauganna er aðeins um 20 kíló- metra frá strönd Tævans og ekki bætir úr skák að oft hafa orðið slys í tengslum við tilraunir Kínveija. Skotin hafa geigað og óttast því margir að flaug gæti lent á byggð. Tævanska utanríkisráðuneytið sendi frá sér yfirlýsingu þar sem tilraunirnar voru sagðar „óþolandi ögrun“ og þjóðir heims hvattar til að fordæma þær. Kommúnistastjórn Kína viður- kennir ekki rétt Tævana til að stjórna sér sjálfir og segist reiðubúin að beita valdi til að hindra sjálfstæðisyfirlýsingu ef til hennar komi. Hafa hótanirnar ásamt eldflaugatilraununum valdið ókyrrð á fjármálamörkuðum á Tævan og stjórnmálaskýrendur hafa leitt að því rök að markmið Kínveija sé að þvinga Tævana með þessum hætti til að hverfa endan- lega frá öllum sjálfstæðishug- myndum. Er kommúnistar sigruðu í borg- arastríðinu 1949 hrökklaðist fyrr- verandi ríkisstjórn landsins ásamt hluta heija sinna til Tævan sem er að nafninu til enn hluti Kína. Li Peng, forsætisráðherra Kína, sak- aði í gær Bandaríkjamenn um að hafa skaðað mjög sambúð ríkjanna með stuðningi sínum við Tævana en Bandaríkin hafa selt eyríkinu nýtísku vopn af ýmsu tagi. Einnig vakti það mikla reiði Kínvetja er Lee Tævansforseti fékk að heim- sækja Bandaríkin í fyrra en stjóm- völd í Washington viðurkenna stjórnina í Peking, ekki Tævans- stjórn. Chen Li-an, fyrrverandi flokksfé- lagi Lee forseta, býður sig nú fram gegn honum í forsetakosningunum. Chen sagði í gær að Lee hefði hag- að sér hvatvíslega og ögrað Kína- stjórn á ýmsan hátt með stefnu sinni. „Með því að styðja Lee Teng-hui er fólk að kjósa stríð," sagði Chen. Annað forsetaefni, Peng Ming- min, sem vill sjálfstæði, sagði að Lee og flokkur hans ættu sök á ástandinu. Kína teldi sig geta leyft sér allt á grundvelli þess að Tæv- ansstjórn væri sammála Peking- stjórninni um að eyjan væri eftir sem áður hluti af Kína. Dagskrá, endaniegar tillögur, svo og reikningar félagsins nrunu liggja franinri á skrifstofu félagsins hluthöfum til sýnis 7 dögum fyrir aðalfund. Aðgöngumiðar, atkvæðaseðlar og fundargögn verða aihent á aðalskrifstofu félagsins, Reykjavrkurflugvelii, hlutabréfadeild á 2. hæðfrá og með 8. mars M. 14:00. Dagana 11. til 13. mars verða gögn afgreiddfrá kl 09:00 til 17:00 og fundardag til kl. 12:00. Hluthafar eru vinsamlegast beðnir að vitja fundargagna sinna fyrir kl. 12:00 áfundardegi. Stjónr Flugleiða hf. ★ JAMES BURN INTERNATIONAl Efni og tæki fyrir IMÍVQ*€l járngorma innbindingu. J. ÁSTVfllDSSON HF. SKIPHOIII33,105 REYKJAVÍK, SÍMI552 3580 Stretsbuxur kr. 2.900 Konubuxur kr. 1.490 Mikið úrval af allskonar buxum Opiö á laugardögum <!#**/*# kæliskápar án frystis * <J#**/*#kæliskápar með frysti * <f#**/*#innbyggingarskápar * G#*wfrystiskápar * <S#M>*#frystikistur Fullkomið pró-GRÁM: Við bjóðum 20 gerðir GRAM kæliskápa, t.d. þessar 10, sem hér eru sýndar. €it*AAt gerð »»»> Kælir + frystir Itr. Br./Dýpt/Hæð í mm Verð: Keypt m/afb. Staðgr. -5% KS 240 KS 300 E KS 350 E KS 400 E KF 184 KF 232 T KF 263 KF 245 E KF 355 E KF 345 E 240 + 0 271 + 0 323 +0 377 + 0 139 + 33 186 + 33 197 + 55 168 + 62 272 + 62 190+133 550/601/1265 595/601/1342 595/601/1542 595/601/1742 550/601/1065 550/601/1285 550/601/1465 595/601/1342 595/601/1742 595/601/1742 57.850,- 63.150,- 72.600,- 79.990,- 52.620,- 59.980,- • 63.150,- 66.300,- 84.200,- 92.600,- 54.960,- 59.990,- 68.970,- 75.990,- 49.990,- 56.980,- 59.990,- 62.990,- 79.990,- 87.970,- Q#ZAA#kæliskápar ■+• H*9AJ%w frystikistur (Jjrw+r frystiskápar fyrsta flokks frá JFQniX HATUNI 6A S: 552 4420

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.