Morgunblaðið - 06.03.1996, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 6. MARZ 1996 21
LISTIR
KVIKMYNDIR
Bíöhöllin
HÁÐFUGLARNIR
„Funny Bones“ ★ ★ ★
Leikstjóri: Peter Chelsom. Aðalhlutverk: OIi-
ver Platt, Lee Evans, Jerry Lewis, Leslie Car-
on, Ian McNeice,"Richard Griffiths og Oliver
Reed. Buena Vista. 1995.
Vaka-
Helgafell
stofnar
tónlistar-
klúbb
UTGAFUFYRIRTÆKIÐ Vaka-
Helgafell, sem undanfarin ár hefur
rekið klúbba, er boðið hafa félögum
bækur og tímarit, hyggst nú hasla
sér völl á nýju sviði með stofnun
tónlistarklúbbs. Þar verður í fyrstu
boðið safn geisladiska sem hlotið
hefur heitið „Meistarar sígildrar tón-
listar“.
Félagar í Tónlistarklúbbi Vöku-
Helgafells fá sendan heim í mánuði
hveijum geisladisk með verkum tón-
skálda sem sagan hefur skipað í
fremstu röð og má þar nefna Moz-
art, Bach, Beethoven, Vivaldi, Bizet
og Schubert. Hveijum geisladiski
fylgja upplýsingar á íslensku um
verkin og höfunda þeirra.
I kynningy segir: „Kannanir sýna
að áhugi á verkum gömlu meistar-
anna er mikill hér á landi, og virðist
hann hafa farið vaxandi á liðnum
árum. Samkvæmt nýlegri skoðana-
könnun Hagvangs segjast 70% þjóð-
arinar hafa áhuga á sígildri tónlist.
Tónlistarklúbbi Vöku-Helgafells er
ætlað að mæta þessum auknu vin-
sældum klassískrar tónlistar með því
að senda félögum heim í mánuði
hveijum geisladisk með tónverkum
sem sætt hafa tíðindum í tónlistar-
sögunni og notið hafa mikillar hylli
í tímans rás.
Vaka-Helgafell hefur um nokk-
urra missera skeið leitað að geisla-
plötum með vönduðum upptökum á
lágu verði til að setja á stofn klúbb
af þessu tagi ;svo heimur sígildrar
tónlistar yrði íslendingum sem að-
gengilegastur. Fyrir skömmu tókust
samningar við bresk-svissneska fyr-
irtækið Masterton'e Multimeda um
að Vaka-Helgafell fengi söluumboð
fyrir geisladiska fyrirtækisins hér á
landi en þeir verða grunnur þeirrar
tónlistar sem boðin verður í Tónlist-
arklúbbi Vöku-Helgafells. Sígilda
tónlistin hefur verið tekin upp á veg-
um dótturfyrirtækis Mastertone í
Sviss, Point Classics, víðs vegar í
Evrópu. Um er að ræða DDD upp-
tökur (stafræn upptaka, stafræn
hljóðblöndun og stafræn afspilun).
Tónlistin er flutt af tónlistarmönnum
víðs vegar að úr Evrópu og má þar
nefna Royal Philharmonic Orc-
hestra, The London Festival Orc-
hestra, Vienna Volksoper Orchestra
og Mozart Festival Orchestra. Meðal
hljómsveitarstjóra er Austurríkis-
maðurinn Alfred Scholz en hann
hefur stjórnað hljómsveitum víða um
heim, þar á meðal The London Phil-
harmonic Orchestra.
Engar kvaðir eru lagðar á félags-
menn í Tónlistarklúbbi Vöku-Helga-
fells sem hyggjast safna „Meisturum
sígildrar tónlistar“ og þurfa þeir því
ekki að kaupa fleiri geislaplötur en
þeir vilja og geta sagt sig úr klúbbn-
um þegar þeir óska.“
Brandarakarlar
í Blackpool
EIN kyndugasta og um leið skemmtilegasta
myndin á kvikmyndahátíðinni í Sambíóunum
er Háðfuglarnir eftir Peter Chelsom („Hear
My Song“). Hún fjallar um skrautlegt sirkuslið
í bresku sumarleyfisparadísinni Blackpool og
amerískan skemmtikraft sem ætlar að kaupa
af því hugmyndir fyrir sína eigin skemmtidag-
skrá. Annars fer sagan út um hvippinn og
hvappinn og kynnir hið skrautlegasta safn af
persónum í furðulegustu erindagjörðum.
Ameríkaninn finnur hálfbróður sinn, sem
sjálfur er óborganlegur skemmtikraftur en
með morð á samviskunni; franskir duggarar
flækjast á land og hafa viðbjóð á öllu því sem
breskt er og við sögu koma spilltar breskar
löggur sem hafa viðbjóð á öllu frönsku. „Þetta
er allt að verða heldur franskt, og ég kann
ekki við það“ er ein af bestu setningum
myndarinnar og kemur á hárréttu augna-
bliki. Heimsfrægum amerískum skemmti-
krafti, sem stolið hefur sínu frægasta atriði
í Blackpool, skolar þar á land aftur eftir
mörg frægðarár og bláfátækir sirkusbræður,
sem eru eins og klipptir út úr „Delicatess-
en“, komast aftur í sviðsljósið. Háðfuglarnir
er skondin naglasúpa, rík af bætiefnum og
bragðgóð og því meira sem sett er út í hana
því kræsilegri verður hún.
Myndin er grátbroslegur óður til glataðra
snillinga skemmtibransans í druslulegri
„sumarleyfisparadís“ þar sem parísarhjólið
snýst að eilífu og sirkusinn er opinn allan
sólarhringinn og allir eru trúðar. Lífið sjálft
er aðeins enn eitt sirkusatriðið og þú ert sí-
fellt að fá framan í þig tertu.
Chelsom nýtur krafta afbragðs leikhóps.
Oliver Platt er ungi ameríski brandarakarlinn
sem er eins og milljóneri í bláfátækri Blackpo-
ol og hefur flúið þangað eftir að hafa „drep-
ist“ á sviði í Las Vegas (það hló enginn að
honum). Jerry Lewis er frábær í enn einu
smáhlutverki föður hans, sem tekst alltaf að
skyggja á son sinn. Leslie Caron er gömul
sirkusdama og Oliver Reed og Richard Grif-
fiths auka enn á gamanið. Fremstur allra er
þó Lee Evans í hlutverki hálfbróðurins sem
býr yfir mestu hæfileikunum og er hjartað
og sálin í myndinni enda í hlutverki sorg-
mædda trúðsins. í gegnum hann upplifum við
galdur sirkussins því það besta við myndina
er einmitt hvernig Chelsom, Evans og öllum
hinum tekst að sameina lífíð og listina að
skemmta. Hvernig sem allt velkist ertu hólp-
inn ef þú færð fólk til að hlæja. Það er tak-
mark sem þessi mynd nær.
Arnaldur Indriðason
Bókaðu þig á íjármálanámskeið
Búnaðarbankans!
Það er hægt að ná miklum árangri í að lækka útgjöldin
án þess að neita sér um alla ánægjulega hluti, ef fólk lætur
skynsemina ráða I fjármálunum.
Búnaðarbankinn mun standa fyrir röð af námskeiðum um
fjármál fyrir alla aldurshópa. Þátttakendur fá vandaðar fjár-
málahandbækur sem hafa verið samdar sérstaklega fyrir
hvern aldurshóp.
Athugið
að panta
timanli
því
* ;eið
ifa verið
fullbókuð!
=3®
sjj;
rí
■ -Mi
-M-i
«#;»*' MK «í«dtittSM « ÖX* Ít4**4 X*.* bfli
........
HKIMlUSLfNAN
Fjármál heimilisins
4 fc
fjAttMAlAHAXOIlO*:
ÖÖBeNABABBANKINN
-TtvtuJur
Fjármál heimilisins
Þar er fjallað um ýmis atriði sem tengj-
ast heimilisrekstri. Hvernig spara má í
útgjöldum, lánamöguleika, ávöxtunarleið-
ir, heimilisbókhald, áætlanagerð, skatta-
mál, húsnæðislán, kaup á íbúð o.fl.
Verð 2000 kr. (3000 kr. fyrir hjón).
Innifalin er vegleg fjármálahandbók og
veitingar.
Fjármál ungafólksins
Nýtt námskeið sem er sérstaklega
ætlað fólki á aldrinum 16 - 26 ára.
Tekið er á flestum þáttum fjármála
sem geta komið upp hjá ungu fólki í
námi og starfi.
Verð 1000 kr. Innifalin er
Fjármálahandbók fyrir ungt fólk og
veitingar.
Fjármál unglinga
Fjármálanámskeiðið er fyrir unglinga á
aldrinum 12 -15 ára. Þar er leiðbeint
um hvernig hægt er að láta peningana
endast betur, hvað hlutirnir kosta og
ýmislegt varðandi fjármál sem ungling-
ar hafa áhuga á að vita. Þátttakendur
fá vandaða fjármálahandbók.
Ath! Ekkert þátttökugjald. Veitingar.
Næstu námskeið:
Fimmtudag 29. febrúar
Þriöjudag 5. mars
Fimmtudag 7. mars
Fimmtudag 7. mars
Þriðjudag 12. mars
Fjármál heimilisins
Fjármál heimilisins
Fjármál unglinga
Fjármál heimilisins
kl.18 -22 Fullbókað
kl. 18 - 22
kl. 15 -18
kl. 18 - 22
Fjármál unga fólksins kl. 18 - 22
Ath! Búnaðarbankinn í Hafnarfirði:
Fimmtudag 14. mars Fjármál heimilisins kl. 18 - 22
Nánari upplýsingar um námskeiðin og skráning eru í síma 525 6343.
BÚNAÐARBANKINN
-traustur banki!