Morgunblaðið - 06.03.1996, Síða 25

Morgunblaðið - 06.03.1996, Síða 25
24 MIÐVIKUDAGUR 6. MARZ 1996 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. MARZ 1996 25 STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. VARASAMT DAÐ- UR VIÐ OFSATRÚ FRAMKVÆMD Dayton-samkomulagsins um frið í fyrrver- andi Júgóslavíu gengur að mörgu leyti vonum framar. Blóðsúthellingunum hefur linnt, Sarajevo er ekki lengur umset- in borg og líf stríðshijáðra íbúa í Bosníu er hægt og hægt að færast í eðlilegri skorður samhliða því sem enduruppbygging landsins er að hefjast. Vonandi verður friðurinn varanlegur. Margar vísbendingar má þó sjá um að friðurinn gæti reynst brothættur og jafnvel skammvinnur. Þannig virðist ekki ætla að takast að sameina þjóðir Bosníu á ný. Serbar hafa flúið hverfi sín í Sarajevo og svo virðist sem landið sé að skiptast upp í einingar er byggjast á hinum ólíku þjóðarbrotum. Það eykur hættuna á endanlegum klofningi Bosníu og átökum samfara því. Ekki síður uggvekjandi eru fregnir af samvinnu Bosníustjórn- ar og klerkastjórnarinnar í íran. Framan af átökunum var í gangi þrálátur orðrómur um að sveitir heittrúaðra mujaheddin- skæruliða berðust með bosnískum múslimum. Þær hafa nú verið staðfestar og sveitir Atlantshafsbandalagsins í Bosníu meðal annars afhjúpað hryðjuverkahreiður, þar sem hermenn voru þjálfaðir í hermdarverkum gegn óbreyttum borgurum. Um helgina greindi svo bandaríska dagblaðið The New York Times frá því að hundruð bosnískra hermanna hefðu verið send til þjálfunar í íran. 011 trúarbrögð geta tekið á sig misfagrar myndir og mörg af helstu grimmdarverkum mannkynssögunnar má rekja til trúarofstækis af einhverju tagi. Ofsafengið afbrigði af múham- eðstrú hefur á síðustu árum verið að ryðja sér til rúms í Norð- ur-Afríku og Mið-Austurlöndum. Tugir þúsunda hafa látið lífið í borgarastyijöld í Alsír og klerkastjórnin í íran hefur ekki einungis kúgað þegna sína heldur sömuleiðis ýtt undir heittrúar- menn og hryðjuverkahópa í öðrum ríkjum. Bosnískir múslimar hafa ávallt státað sig af því að vera frjálslyndir og lausir við öfgar. Að vissu leyti er skiljanlegt að þeir hafi þegið alla þá hernaðarlegu aðstoð er þeim bauðst meðan allar aðrar bjargir voru bannaðar. Daður við ofsatrú getur hins vegar reynst afdrifaríkt. Blóðvöllur á borð við Bosn- íu síðustu ára er kjörin gróðrarstía fyrir öfgastefnur er nærast á hatri og heift. Nái íslömsk ofsatrú að valda brúarsporð í Evrópu gæti það reynst hættulegt til lengri tíma litið. SPÆNSKT LÝÐRÆÐI AF NIÐURSTÖÐU kosninganna á Spáni, sem fram fóru um seinustu helgi, má draga ýmsa lærdóma um þær miklu breytingar, sem hafa orðið á Spáni á þeim tveimur áratugum, sem liðnir eru frá andláti Francos einræðisherra. Í fyrsta lagi eru úrslitin athyglisverð fyrir þær sakir að þetta er í fyrsta sinn frá því að línur tóku að skýrast í spænskum stjórnmálum eftir ringulreiðina, sem ríkti eftir fall Francos, að'hægrimenn vinna sigur í þingkosningum á Spáni. Þjóðar- flokknum, sem á meðal annars rætur á meðal gamalla stuðn- ingsmanna Francos, hefur tekizt að standa undir nafni og vinna hylli almennings. í öðru lagi bera viðbrögð í öðrum vestrænum ríkjum því vitni að Felipe Gonzalez, fráfarandi forsætisráðherra, nýtur mikillar virðingar á alþjóðavettvangi. Undir stjórn Gonzalez hefur Spánn fest rætur í samfélagi vestrænna lýðræðisríkja og gerzt aðildar- ríki bæði Evrópusambandsins og NATO. Á síðari hluta sein- asta árs stýrðu Spánveijar ESB með góðum árangri og Spán- verji situr nú í stóli framkvæmdastjóra NATO. Enginn efast lengur um að Spánn eigi heima í hópi hinna fijálslyndu lýðræð- isríkja. Þó eru ekki öll vandamál S.pánar leyst. Ekki hefur til að mynda verið bundinn endi á þjóðernisátökin innan spænska ríkisins. Reynslan sýnir að hefðbundin lýðræðisþróun slær ekki á þjóðernistilfinningar, þar verður meira að koma til. Sjálf- stjórn minnihlutaþjóðanna þriggja á Spáni, Katalóna, Baska og Galisíumanna, sem var staðfest með stjórnarskránni 1978, hefur farið vaxandi með árunum en þessar þjóðir telja þó ekki nóg að gert. Margir hafa talið hættu á að þróuninni í átt til spænsks sambandsríkis yrði snúið við, kæmist Þjóðarflokkurinn til valda. Hugsanlegt stjórnarsamstarf Þjóðarflokksins og flokks katalónskra þjóðernissinna, sem á margt sameiginiegt með þjóð- arflokksmönnum í efnahagsmálum, getur orðið til mótvægis við tilhneigingar Þjóðarflokksins til að viðhalda kastilískri mið- stýringu á Spáni. Nýrrar ríkisstjórnar á Spáni bíða mörg erfið verkefni, til dæmis niðurskurður í ríkisfjármálum, sem er óhjákvæmilegur til þess að uppfylla skilyrði Maastricht-sáttmálans fyrir þátt- töku í myntbandalagi Evrópuríkja. Sennilegt er að næstu ár einkennist af tíðum samningaviðræðum og málamiðlunum milli stjórnmálaflokkanna og óvíst er hversu lengi ný ríkisstjórn getur stjórnað við þær aðstæður. Kjósendur í Astralíu víkja Verkamannaflokknum frá eftir 13 ára valdasetu Norrænu ráðherrarnir kynna stefnu fyrir ríkjaráðstefnu ESB K ’ OSNINGABANDALAG hægri flokkanna vann stórsigur í kosningunum í Ástralíu á laugardag og sagði eitt ástralskt dagblað að hér væri um „söguleg úrslit" að ræða. Verkamannaflokkurinn hefur verið hrakinn frá eftir 13 ára setu við völd og má búast við að hann verði minnst sex ár í stjórnarandstöðu. Hægri flokkarnir tveir, Frjálslyndí flokkur- inn og Þjóðarflokkurinn, hafa dijúg- an meirihluta í fulltrúadeild þingsins, en þeir náðu ekki meirihluta í öld- ungadeildinni og verða að fara var- lega í að framfylgja stefnu sinni í vinnumarkaðsmálum því að stéttar- félög eru í vígahug. Howard hyggst leggja mikla áherslu á fyrstu hundrað dagana í embætti. Fyrir honum vakir að bæta samskipti í iðnaði, draga úr atvinnu- leysi ungs fólks og minnka skriffinnsku, sem ríkið leggur á lítil fyrirtæki, um helming. Búist er við að hann muni auka markaðsfrelsi, draga úr höftum á erlend- um Ijárfestingum, endurskoða lög um eign á ijölmiðlum og bönkum og einka- væða ríkisfyrirtæki af krafti. Efnahagur á uppleið Howard mun njóta góðs af því að efnahagurinn er á uppleið, þjóðarfram- leiðsla eykst um rúma þijá af hundr- aði á ársvísu og at- vinnuleysi er að minnka. Enn er ekki komið í ljós hversu mikið svigrúm hin nýja stjórn, sem þarf að skila sínum fyrstu ijárlögum í ágúst, mun hafa í fjármál- um. Fráfarandi stjórn hélt því fram í kosningabaráttunni að það yrði 3,4 millj- arða ástralskra doll- ara (um 170 millj- arða íslenskra króna) afgangur á fjárlögum þessa árs, en hagfræðingar halda því fram að hin nýja stjórn muni þurfa að glíma við milli þriggja og sex milljarða dollara (milli 150 og 300 milljarða íslenskra króna) halla. Howard er þeirrar hyggju að hrindi hann stefnu sinni í framkvæmd með hraði muni kjósendur sýna gagnger- um umbótum meira umburðarlyndi en ella. Howard birti á mánudag grein undir fyrirsögninni „Framtíðarsýn fyrir Ástralíu" og sagði þar að aðal hinnar nýju stjórnar yrði að ráðast á „raunveruleg vandamál landsins og setja skýr markmið, sem hægt verður að nota til að meta frammi- stöðu stjórnarinnar eftir þijú ár“. „Áhrifaríkt umboð“ Þótt Howard hafi lagt áherslu á að hann myndi hafa hraðar hendur eftir að hann tæki við var greinilegt á sigurræðu hans á laug- --------- ardagskvöld að hann hyggst gefa gaum að því með hvaða hætti stefnu hans verður framfylgt. Hann sagði að hægri flokkarnir hefðu fengið „áhrifaríkt umboð“ og —■ bætti við: „Þótt ég muni ætíð leita eftir einingu og málamiðlun höfum við ekki verið kosnir til að vera að- eins daufur endurómur af stjórninni, sem við leysum af hólmi.“ Stjóm Verkamannaflokksins gerði sáttmála við forystu stéttarfélaga um að þau myndu sætta sig við aðhald í launamálum og stuðla að stöð- ugleika á vinnumarkaði. Margir gagnrýndu þetta á þeirri forsendu Röðin er komin að hægrimönmim Bandalag tveggja hægri flokka undir forystu John Howards vann ------------^;----------------~- stórsigur í kosningunum í Astralíu um helgina. Karl Blöndal greinir frá því hvað hin nýja stjóm hyggst fyrir og hverjar eru framtíðarhorf- ur Verkamannaflokksins, sem hafði verið við völd í 13 ár. JOHN Howard, verðandi forsætisráðherra Ástralíu, greinir frá stefnu sinni á fyrsta blaðamannafundi sínum eftir sigur bandalags Frjálslynda flokksins og Þjóðarflokksins í kosningunum, sem haldnar voru á laugardag. Verkamanna- flokkurinn minnst tvö kjörtímabil frá völdum að stéttarfélög, sem aðeins höfðu helming vinnuafls á sínum snærum þegar Verkamannaflokkurinn komst til valda og þriðjung nú, skyldu fá slík völd. Sáttmáli ekki framlengdur Howard hyggst ekki reyna að framlengja sáttmálann, en hann hef- ur lýst yfir því að hann muni hafa samráð við stéttarfélögin og sagt að forystumenn þeirra verði að starfa með þeim, sem haldi um valdataum- ana. Honum er mjög í mun að sýna forystumönnum stéttarfélaga fram á að það gæti steypt efnahagslífi þjóð- arinnar í voða að segja nú skilið við hefð hófsemi. Það er hins vegar ekki útlit fyrir að stéttarfélögin verði Howard leiðitöm. --------- Einn helsti leiðtogi þeirra, Bill Kelty, sagði á mánudag af sér sæti í stjórn Seðlabanka Ástralíu á þeirri forsendu að vaxta- stefna hinnar nýju stjórnar myndi ekki samræmast “ þeirri ábyrgð, sem hann hefði axlað í forystu verkamanna. Stjómmálaskýrendur sögðu að afsögn Keltys bæri því vitni að stéttarfélögin hygðust ekki aðeins beita sér gegn umbótum Howards, heldur einnig hefja baráttu fyrir hærri launum þeg- ar sáttmálinn er allur. Sigur Howards er áfall fyrir þá, sem vilja skera á tengslin við bresku krúnuna og taka þess í stað upp embætti forseta. Paul Keating, frá- farandi forsætisráðherra, lýsti yfir því þegar hann kom úr opinberri heimsókn til Bretlands árið 1993 að hann hygðist gera Ástralíu að lýð- veldi árið 2001 og hefði flokkur hans sigraði hefði verið haldin þjóðarat- kvæðagreiðsla um það hvort Ástralar vildu forseta innan tólf mánaða. Howard er drottningarsinni og vill halda „þjóðarráðstefnu" til að kanna vilja Ástrala til breytinga. Afgerandi meirihluti í fulltrúadeild Howard verður með að minnsta kosti 36 sæta og jafnvel rúmlega 40 sæta meirihluta í fulltrúadeild ástr- alska þingsins eftir kosningarnar. Flokkurinn hafði tryggt sér minnst 92 sæti af 148 í deildinni, en hafði 66 áður. Verkamannaflokkurinn get- ur mest fengið 46 sæti, en hafði áður 79. Fimm óháðir verða á þingi og ekki er ljóst um fimm sæti. Það er því ljóst að hægri flokkarn- ir verða með tögl og hagldir í fulltrúa- deildinni. Róðurinn verður hins vegar þyngri í öldungadeildinni, sem getur átt frumkvæði að, staðið í vegi fyrir og hafnað lagasetningu. Þar er taln- ingu ekki lokið, en búist er við að kosningabandalagið fái 37 sæti í öld- ungadeildinni, Verkamannaflokkur- inn 29, flokkur ástralskra demókrata sjö eða átta og aðrir tvö til þijú sæti. Hægri flokkana vantar tvö sæti til að ná hreinum meirihluta, en 76 sæti eru í deildinni. Demó- kratar yrðu því í oddastöðu og þeir hafa til dæmis þegar lýst yfir því að þeir muni leggjast gegn því að ástr- alski síminn, Telstra Corp., verði einkavæddur að hluta. Þrautseigja Howards Howard hefur reynst mjög lífseig- ur í áströlskum stjórnmálum. Hann hefur orðið fyrir mörgum áföllum, en alltaf risið á ný. Hann er sagður mjög þijóskur, en konu hans, Jan- ette, er einnig eignaður heiður af velgengni hans. Howard er úr Fijálslynda flokkn- um og varð leiðtogi stjórnarandstöð- unnar 1985. Hann var í forystu í kosningabaráttunni gegn Verka- mannaflokknum með Bob Hawke, þáverandi forsætisráðherra, í broddi fylkingar og tapaði. Flokkurinn ákvað að láta Howard róa --------- og hann féll í ónáð. Fijáls- lyndir virtu hann ekki einu sinni viðlits þegar útlitið var hvað svartast. Þrauta- göngu Howards lauk í jan- úar árið 1995 þegar Alex- ander Downer sagði af sér . forystu í flokknum eftir að hafa að- eins gegnt formennsku í átta mánuði og hann tók við. Sagt er að kona hans hafi hvatt hann til dáða og aldr- ei misst sjónar á forsætisráðherrabú- staðnum í Canberra. Howard er nú að velja ráðherra. Hann hefur ekki sagt mikið um vænt- anlega ráðherra, utan hvað Tim Fischer, leiðtogi Þjóðarflokksins, verður aðstoðarforsætis- og við- skiptaráðherra og Peter Costello, varaformaður Fijálslynda flokksins, fjármálaráðherra. Talið er að Alex- ander Downer verði utanríkisráð- herra. Ætlunin er að William Deane, landstjóri og fulltrúi Elísabetar Bretadrottningar, láti nýju stjórnina sveija embættiseið á föstudag. Mesti ósigur Verkamanna- flokksins frá stríði Þetta er sagður mesti ósigur Verkamannaflokksins frá lokum heimsstyijaldarinnar síðari. Verkamannaflokkurinn er hvergi í stjórn í Ástralíu nema í Nýju Suður- Wales og hefur hann ekki staðið verr að vígi frá árinu 1970 þegar hann var í stjórnarandstöðu á þingi og í öllum ríkjum Ástralíu. Á síðasta ára- tug virtist hins vegar fátt geta hrund- ið veldi Verka- mannaflokksins. Flokkurinn komst til valda í kjölfar samdráttar í efna- hagsmálum árin 1982-83 og kreppan 1991-92 varð hon- um að falli. í Ástral- íu velta menn nú vöngum yfir því hvort Verkamanna- flokkurinn þurfi að ganga í gegnum alls- heijar endurhæf- ingu, eða geti skrifað tapið á reikning per- .sónulegs stíls Keat- ings í embætti. Keating tók við embætti forsætis- ráðherra árið 1992 af Bob Hawke, en hafði áhrif á allar veigamiklar ákvarð- anir, sem teknar voru í 13 ára valda- tíð flokksins. Keat- ing hefur engar yfir- lýsingar gefið um það hvort hann hyggist taka sæti á þingi þegar það kemur saman eftir páska, en kunnugir sögðu engan vafa leika á því að hann hygðist draga sig í hlé. Óviss framtíð Stjórnmálaskýr- endur telja nánast fullvíst að Verka- mannaflokkurinn verði minnst tvö kjör- tímabil frá völdum. Hann hefur misst nánast helming þing- sæta og að minnsta kosti níu ráðherr- ar féllu af þingi. Leitt hefur verið getum að því að Kim Beazley, fráfar- andi aðstoðarforsætisráðherra, verði næsti leiðtogi flokksins, en enn er ekki víst að hann hafi náð kjöri. Flokk- urinn hefur verið þurrkaður út í sveit- um landsins og talið er að hann muni eiga mjög erfítt með að vinna aftur mörg þeirra sæta, sem hann hefur misst. Flokkurinn hefur til þessa get- að bætt við meirihluta sinn með þing- mönnum í einmenningskjördæmum, sem hafa notið þar persónufylgis. Nú hefur það dæmi snúist við og það er segin saga að erfitt er að fella sitj- andi þingmann. Verkamannaflokkurinn hefur marga hæfileikamenn á sínum snær um, en spyija má hvort þeir þoli að -------- vera í pólitískri útlegð næstu kjörtímabil. Ef margir eru kallaðir gæti einnig komið til lýjandi innbyrðis átaka um for- ystu. Sú tilhugsun hlýtur að vekja hroll hjá stuðn- ingsmönnum Verka- mannaflokksins því að valdabarátta innan raða hægri manna átti snaran þátt í að pólitísk útlegð þeirra stóð í þrettán ár. Þeir skiptu tíu sinnum um leiðtoga á árunum 1983 til 1993 og í hvert skipti tröllriðu vangaveltur um klofning meðal þeirra pólitískri umfjöllun fjölmiðla. Heimildir: The International Herald Trib- une, Reuter og The Sydney Morning Herald. Reuter Vill skýran mælikvarða á frammi- stöðu stjórn- arinnar Halldór Ásgrímsson Poul Nyrup Rasmussen Paavo Lipponen Ingvar Carlsson Gro Harlem Brundtland íslensk áhersla á samstarf Evrópu og Bandaríkjanna Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra lagði meiri áherslu á tengsl Evrópu og Bandaríkj- anna en forsætisráðherrar hinnar Norðurland- anna í ákvarpi á Evrópuráðstefnu Norður- landaráðs í Kaupmannahöfn í gær. Sigrún Davíðsdóttir fylgist með ráðstefnunni. ÞAÐ KOM í hlut Halldórs Ásgrímssonar utanríkis- ráðherra að flytja íslenska ávarpið, þegar norrænu forsætisráðherrarnir ávörpuðu Evr- ópuráðstefnu Norðurlandaráðs í Kaupmannahöfn í gær, þar sem Davíð Oddsson forsætisráðherra var fjarverandi vegna veikinda. Halldóri varð tíðrætt um öryggis- og varnar- samstarf í Evrópu og lagði meiri áherslu á tengsl Evrópu og Banda- ríkjanna, en norrænu forsætiráð- herrarnir gerðu. í orði skortir ekki á að norrænu forsætisráðherrarnir lofi norræna samvinnu og gildi hennar. Á borði hafa hins vegar norrænu aðildar- löndin þijú valið að fara hvert sína leið í undirbúningi fyrir ríkjaráð- stefnu Evrópusambandsins, sem hefst í lok mánaðarins. í krafti al- menningsviðhorfsins í Finnlandi, sem er mun jákvæðara í garð ESB en í bæði Danmörku og Svíþjóð, voru Finnar áberandi minnst hikandi í afstöðu sinni til ESB, enda ganga þeir lengst á viðkvæmum sviðum eins og sameiginlegri utanríkis- og varnarstefnu ESB. Bandaríkjunum", einkum hvað varð- aði stefnu í öryggismálum. Halldór minnti á að Atlantshafsbandalagið hefði tryggt frið í Evrópu í hálfa öld og í skjóli tengsla yfir Atlants- hafið hefði bandalagið sigrað í kalda stríðinu. Til að viðhalda þessum tengslum væri mikilvægt að sam- band Vestur-Evrópusambandsins og ESB drægi ekki úr áhrifum Banda- ríkjanna á evrópska öryggisstefnu. Nú þegar bæði Mið- og Austur-Evr- ópulöndin stefndu á aðild að ESB og Atlantshafsbandalaginu væri það merki um áhuga þeirra á að styrkja varnarkerfi Nató vestur um haf og kerfið væri tryggt af öflugasta Nató-landinu, Bandaríkjunum. í ljósi þessa væri nauðsynlegt að styrkja tengslin vestur um haf, ekki aðeins vegna öryggissjónarmiða, heldur einnig í ljósi sameiginlegra hagsmuna á sviði fríverslunar, innra öryggis og sameiginlegs menningar- arfs. Óp og þunglyndi Stækkun ESB þýðir stækkun innri markaðarins Halldór hóf ræðu sína á að hnykkja á mikilvægi ríkjaráðstefn- unnar, því þar yrði tekin stefna, sem ekki yrði auðvelt að hverfa frá síð- ar. Hann minnti á umbyltingar í Evrópu undanfarin ár og alþjóða- væðingu, sem gæfi forsendu fyrir áður óþekktum stöðugleika í Evrópu og þar sem evrópskar ------------- stofnanir hefðu mikil- vægu hlutverki að gegna. Evrópusambandið væri ein þeirra og ísland væri bundið því með EES- samningnum. Fyrir ríkjaráðstefn- una væri stækkun ESB efst á blaði og stækkunin hefði líka í för með sér breytingar fyrir íslendinga, þar sem þær fælu í sér stækkun innri markaðarins, sem þeir væru aðilar að með EES-samningnum. Hvað öryggis- og varnarmál snerti sagði Halldór að í Vestur-Evr- ópu hefði sú skoðun löngum átt hljómgrunn að hún ætti að öðlast „svokallað sjálfstæði gagnvart Poul Nyrup Rasmussen, forsætis- ráðherra Dana, hélt hvatningarræðu um mikilvægi ESB og hvemig Norð- urlöndin gætu í sameiningu lagt sitt af mörkum til að þoka þróun þess í þá átt, sem þeim sýndist heppileg- ust. Löndin gætu staðið saman um að þrýsta á atvinnuskapandi aðgerð- ir ESB, en einnig til að stuðla að opnara og lýðræðislegra sambandi. Paavo Lipponen, forsætisráð- herra Finna, sagði að það færi ekki fram hjá sér þegar hann kæmi til Kaupmannahafnar að borgin væri ----------------- evrópskasta ----------- Stækkun ESB borg Norður- hefur áhrif á landa, en hins íslandi vegar hefðl ser ISlanal þótt norrænn tónn í nafni Enginn nor- rænn kjarni gegn öðrum strengjakvartettsins, sem spilaður var við afhendingu tónlistar- og bókmenntaverðlauna Norðurlahda- ráðs, „Óp og þunglyndi“ eftir verð- launahafann Bent Sörensen. Lipp- onon sagðist geta tekið undir orð Nyrups um Norðurlönd og norræna samvinnu. Löndin hefðu svo lík sjón- armið gagnvart ESB að dugað hefði að halda eina ræðu við þetta tæki- færi fyrir hönd forsætisráðherranna fimm. Lipponen fór hins vegar fljótt^- yfir sögu, því staðreyndin er að Finnar vilja ganga mun lengra til að styrkja ESB og færa því aukið yfirþjóðlegt vald en bæði Svíar og Danir geta hugsað sér. Lipponen undirstrikaði að nauðsynlegt væri að sýna sveigjanleika, til dæmis gagnvart þeim löndum, sem ekki uppfylla forsendur aðildar að evr- ópska myntsambandinu. Einnig minnti hann á að ríkjaráðstefnan væri mikilvægari en margir álitu, því með henni yrði slegið föstu hvert yrði valdahlutfall lítilla og stórra aðildarlanda. Ingvar Carlsson, forsætisráð- herra Svía, lagði aðaláherslu á að kynna tillögur Svía fyrir ríkjaráð- stefnuna um atvinnusköpun, en það er höfuðmál þeirra. Einnig hvatti hann til að Norðurlöndin hefðu með sér samráð fyrir ráðstefnuna, þar sem fulltrúar íslands og Noregs fylgdust með. Gro Harlem Brundtland, forsætis- ráðherra Norðmanna, varð tíðrætt um varnarsamstarf Evrópusam- bandsríkja, VES, rétt eins og Hall- dóri, og sagði Norðmenn fylgjast með framvindu VES af miklum áhuga. Hún kvað Norðmenn styðja þátttöku VES í friðargæslu og skyldum aðgerðum. Nató-aðild skipti Norðmenn sköpum og sömu- leiðis samvinnan vestur um haf, en um leið óskuðu Norðmenn eftir öflugri Evrópu. Öflugra samstarf um utanríkis- og öryggismál væri því óhjákvæmilegt, ef Evrópa ætti að geta axlað ábyrgð á friði og ör- yggi álfunnar. Engin norrænn kjarni gegn öðrum evrópskum kjörnum Þrátt fyrir yfirlýsingar undan- farin ár um samvinnu Norðurlanda innan ESB hafa löndin valið að leggja fram hvert sínar tillögur fyrir ríkjaráðstefnuna. Nyrup Rasmussen svaraði spurningu Morgunblaðsins í þessa veruna með því að löndin hefðu haft nána samvinnu sín á milli. Það breytir því þó ekki að engin formleg samvinna hefur verið. Meðal danskra og sænskra stjórnvalda virðist enginn áhugi á einhveijum norrænum kjárna innan ESB. Hins vegar auglýsti Ole Norr- back, norrænn samstarfsráð-herra og Evrópuráðherra Finna, eftir sterkari Evrópusamvinnu Norður- landanna. Og Gro Harlem Brundt- land sagðist ekkert sjá athugavert við norrænan kjama, sem ýmsir álitu varhugaverða, því Frakkland og Þýskaland hefðu lagt fram sam- eiginlegar tillögur fyrir ríkjaráð- stefnuna og sama gerðu Benelux-. löndin.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.