Morgunblaðið - 06.03.1996, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 6. MARZ 1996 31
+ Björn Bjarnar-
son fæddist á
Sauðafelli í Dölum
14. maí 1918. Hann
lést í Hjúkrunar-
heimilinu Eir 25.
febrúar síðastliðinn
og fór útför hans
fram frá Dómkirkj-
unni í Reykjavík 5.
mars.
BJÖRN Bjarnarson
lést á hjúkrunarheimil-
inu Eir 25. febrúar eft-
ir langvarandi veikindi.
Mig langar að minnast
þessa mæta manns og vinar með
nokkrum orðum. Fyrstu kynni okk-
ar urðu í fæðingarsveit okkar Mið-
dölum í Dalasýslu, sem nú heitir
Dalabyggð. Þar lékum við okkur
stundum saman sem ungir drengir
að Hamraendum hjá ömmu hans
og afa. Ég man eftir atviki og orð-
um lífsreyndrar konu, Önnu Guð-
mundsdóttur, sem var þar til heimil-
is, þegar hún eitt sinn þurfti að
skerast í leikinn, „þið eigið nú eftir
að eiga samleið síðar á ævinni“. Á
góðum stundum minntumst við
Björn oft orða þessarar góðu konu,
sem reyndist svona forspá.
Björn fæddist á Sauðafelli þar
sem föðurforeldrar hans höfðu búið,
Björn Bjarnarson sýslumaður og
alþingismaður og kona hans Guðný
Jónsdóttir. Foreldrar Björns fluttu
að Svínhóli í Miðdölum 1919, en
fluttust árið eftir til Reykjavíkur
og bjuggu þá fyrst í Héðinshöfða
eða Höfða eins og húsið er kallað
í dag. Björn dvaldi á sumrin hjá
móðurforeldrum sínum á Hamra-
endum til 16 ára aldurs og voru
þau honum afar kær og Hamra-
endaheimilið æ síðan.
Björn stundaði nám í Mennta-
skólanum í Reykjavík, en þaðan lá
leiðin í Bændaskólann á Hvanneyri
1936 og árið 1938 hóf hann nám
við Landbúnaðarháskólann í Kaup-
mannahöfn, þaðan sem hann braut-
skráðist sem búfræðikandidat
1941. Vegna heimsstyijaldarinnar
varð hann að dvelja áfram í Dan-
mörku og starfaði þar m.a. sem
ráðunautur hjá Búnaðarsamband-
inu í Ringsted, en kom heim til ís-
lands 1946 ásamt eiginkonu sinni,
Ritu, sem hann hafði kynnst í Dan-
mörku, og var þá ráðinn til Búnað-
arfélags íslands sem jarðræktar-
ráðunautur.
Eftir að Bjöm kom
frá Danmörku höfðum
við lítið hist, ég vissi
þó að hann var giftur.
En þá bar það til að
við hittumst snemma
vors 1955 af tilviljun í
strætisvagni. Meðal
annars sagði hann mér
að hann væri búinn að
fá lóð vestur á Högum
með kunningja sínum,
en jafnframt gæti verið
að sá hætti við. Ég bjó
þá í Eskihlíðinni og
hafði hug_ á að stækka
við mig. Ég sagði hon-
um að ég væri til í að sækja um
lóðina á móti honum ef hinn aðilinn
hætti við. Og það fór þannig að
hinn hætti við og ég sótti um lóðina
og fékk hana. X þessu ári eru 40
ár liðin síðan við fluttum inn í hús-
ið Hagamel 34 og hér hefur okkur'
líkað vel að búa og aldrei borið
skugga á sambýli okkar.
Það er svo margt sem kemur í
hugann þegar góður vinur og sam-
ferðamaður er kvaddur. Ég og fjöl-
skylda mín þökkum honum sam-
fylgdina í gegnum árin og biðjum
honum Guðsblessunar. Minningin
lifir um góðan dreng.
Innilegar samúðarkveðjur til Ritu
og barnanna og fjölskyldna þeirra.
Víglundur Sigurjónsson.
Okkur langar með nokkrum orð-
um að þakka afa fyrir samveru-
stundimar sem við áttum með hon-
um þegar við vorum yngri. Því mið-
ur fækkaði þeim stundum eftir því
sem við urðum eldri vegna veikinda
afa, en kannski gerðum við okkur
ekki grein fyrir því hve erfitt hann
átti með að tjá sig og aldrei kvart-
aði hann.
Alltaf tók afi Björn vel á móti
okkur er við komum í heimsókn og
altaf átti hann eitthvert góðgæti
handa okkur, og honum fannst
gaman þegar við komum í hádegis-
mat og vildi hann helst að við fengj-
um allan besta matinn.
Frá því við fæddumst bar afi allt-
af hag okkar fyrir bijósti. í hvert
sinn er barnabarn fæddist kom nýr
sparibaukur upp á hilluna hjá afa
og hann skipti smápeningum sínum
bróðurlega á milli þeirra. Þegar við
komumst til vits og ára eða höfðum
náð tilhlýðilegum þroska að mati
afa, fengum við bankabókina af-
MIIMNINGAR
henta með þeim formerkjum að
ekki mætti eyða þessu „í neina vit-
leysu“. En hann hafði hugsað sér
að peningum þessum væri best var-
ið til menntunar. Afí var alltaf mik-
ill áhugamaður um frímerkjasöfnun
og vorum við ung að árum þegar
hann gaf okkur fyrstu frímerkja-
bókina.
Einnig var nú gaman þegar við
systkinin, Davíð og Sara, laumuð-
umst á þríhjólunum okkar í heim-
sókn til afa á Hagamel. Alltaf feng-
um við góðar viðtökur og eitthvert
góðgæti og oftast tyggjó, sem eng-
inn annar hafði vit á að gefa okk-
ur. Síðan brunuðum við heim svo
mamma færi ekki að undrast um
okkur, en oftst kom tyggjóið upp
um okkur.
Ánægjulegustu stundir æskuár-
anna voru að sjálfsögðu jólin hjá
afa og ömmu á Hagamelnum þar
sem fjölskyldan kom saman á að-
fangadagskvöld. Þar var alltaf al-
veg sérstakur hátíðleiki yfír borð-
haldinu sem var á slaginu klukkan
sex, allt var gert í réttri röð og
biðin oft löng eftir pökkunum.
Margt annað kemur upp í hugann
á kveðjustund og minningarnar
munu lifa með okkur. Elsku afí,
þakka þér fyrir allt sem þú gerðir
fyrir okkur. Við munum sakna þín.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Davíð Björn, Sara Margrét
og Sunna Birna.
Björn Bjamarson landsráðunaut-
ur hóf feril sinn hjá Búnaðarfélagi
íslands 17 ára gamall, sem aðstoð-
armaður við landmælingar fjögur
sumur árin 1935-38. Hann var
gagnfræðingur og búfræðingur frá
Bændaskólanum á Hvanneyri.
Björn vildi afla sér frekari mennt-
unar í búvísindum og hélt til Dan-
merkur, þangað sem íslendingar
leituðu á þeim tíma til háskólanáms
í búvísindum. Hann lauk kandídats-
prófí við Búnaðarháskólann í Kaup-
mannahöfn árið 1941. Næstu ár
vann hann þar í landi. Þegar Björn
sneri heim, réðst hann þegar sem
ráðunautur í jarðrækt til Búnaðar-
BJORN
BJARNARSON
ft
StyrKtarfélag KrabbamelnssiJíUu'a barna
Minningarkort Styrktarfélags
Krabbameinssjúkra barna fást
hjá félaginu í síma 588 7555.
Ennfremur í Garðsapóteki
sími 568 0990 og
Reykjavíkurapóteki
sími 551 1760.
Vönduð þjónusta
Góðar veitingar
Rúmgóð salarkynni
Næg bílastæði
FÉLAGSHEIMILIÐ
SELTiARNARNESI
Simi 561-6030 ---1
Ástkær eiginmaður minn, fafiir okkar
og afi,
GUÐMUNDUR SIGURÐSSON
verkstjóri
hjá Jarðborunum hf.,
Víghólastíg 9,
Kópavogi,
sem lést 28. febrúar sl., verður jarð-
sunginn frá Digraneskirkju föstudaginn
8. mars kl. 13.30.
Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim,
er bent á Hjartavernd.
sem vildu minnast hans,
Hulda Daníelsdóttir,
Sigurður A. Guðmundsson,
Anna H. Guðmundsdóttir,
Hans Erik Dyrlie.
Í
Ástkær móðursystir mín og systir,
BJARNGERÐUR ÓLAFSDÓTTIR
frá Heiði,
Vestmannaeyjum,
sem lést 29. febrúar sl., verður jarð-
sungin frá Fossvogskapellu föstudag-
inn 8. mars nk. kl. 13.30.
Sólrún Gestsdóttir,
Anna Ólafsdóttir.
félagsins, þar sem hann starfaði
síðan. Þá var nýlega hafin fram-
ræsla lands og ræktun með stór-
virkum vinnuvélum. í þeirri miklu
sókn unnu jarðræktarráðunautar
Búnaðarfélagsins, þeir Björn og
Ásgeir L. Jónsson, stórbrotið starf,
ekki sízt í framræslumálum. Hafði
Björn áður verið aðstoðarmaður
Ásgeirs. Verk þeirra tveggja á þess-
um árum hygg ég að telja megi til
afreka.
Birm voru falin ýmis störf um
ævina í tengslum við verksvið sitt.
Hann var lengi í vélanefnd, í verk-
færanefnd ríkisins og matsnefnd
eignarnámsbóta. Hann var oftsinnis
kvaddur_ til í sambandi við land-
skipti. Ég hygg, að mannkostir
Björns hafi hvað gleggst komið
fram á þessu sviði og tillögur hans,
byggðar á réttsýni og velvilja, hafi
leyst marga deiluna.
Björn var hollráður. Um það get-
um við hjónin borið vitni. Hann
hafði staðið í húsbyggingu, áður
en við réðumst í framkvæmd af því
tagi, og leiðbeindi okkur af reynslu
sinni í þeim málum og fleirum. Við
vorum vinnufélagar í Búnaðarfélagi
íslands í áratugi.
Þegar Björn fluttist aftur til ís-
lands eftir heimsstytjöldina, hafði
hann kvænzt ungri, danskri konu,
Ritu Jensen. Hún kom nú til fram-
andi lands og bjó fjölskyldan í
þröngu húsnæði fyrstu árin. Rita
var kjarkmikil og ákveðin í að laga
sig að aðstæðum. Siðar byggðu þau
yfír sig á Hagamel 34. Þau hjón
eignuðust tvær dætur og einn son,
sem síðan hafa eignazt eigin fjöl-
skyldur, allt myndarfólk.
Heimili þeirra Ritu og Björns við
Hagamel var frá öndverðu aðlað-
andi, og prýða þar málverk veggi,
enda bæði listfeng. í augum aðkom-
andi var þó persónulegt viðmót
húsráðenda mest um vert, enda
báðum eiginleg gestrisni og hlýja.
Það virðist einsætt, að Björn
hafí sótt sitthvað af lishneigð sinni
til föðurafa síns og alnafna, Björns
Bjamarsonar, sýslumanns Dala-
manna. Hann hafði numið lögfræði
í Kaupmannahöfn og var þá upp-
hafsmaður að og stofnandi mál-
verkasafns árið 1885, er varð fyrsti
vísir að Listasafni ríkisins. Björn
sýslumaður bjó á Sauðafelli, og þar
fæddist sonarsonur hans fyrir nær
78 árum.
Bjöm jarðræktarráðunautur var í
fullu starfí hjá Búnaðarfélagi íslands
til 1. ágúst 1986, þ.e. í 40 ár. Síðan
var hann lausráðinn í hlutastarfi
fram á árið 1988 og hafði m.a. með
höndum útboð á framræslu.
Um alllangt skeið hafði Björn
ekki gengið heill til skógar, enda
gengizt undir flóknar skurðaðgerð-
ir. Hann var hins vegar einn þeirra
manna, er gekk beinn í baki meðan
mátti. Svo fór þó að lokum, að
hann þurfti það mikillar hjúkrunar
við, að hana var ekki hægt að veita
í heimahúsum. Síðustu árin dvaldist
hann á hjúkrunarstofnunum.
Við Þórunn sendum Ritu, bömum
þeirra Björns og ijölskyldum sam-
úðarkveðjur.
Ólafur E. Stefánsson.
+
Systir okkar,
UNNUR JAKOBSDÓTTIR,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Eir 4. þessa mánaðar.
Klara J. Hall,
Helga Jakobsdóttir,
Margrét J. Fredreksen,
Guðrún Jakobsdóttir.
+
Föðurbróðir okkar,
AÐALSTEINN SIGURJÓNSSON
frá Litla hólmi
í Leiru,
lést á dvalarheimili aldraðra, Garðvangi, þann 3. mars sl.
Jarðarförin auglýst síðar.
Frændsystkinin.
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
HANS SIGURBERG
DANILfUSSON
frá Hellissandi,
til heimilis
á Sunnubraut 12,
Keflavík,
lóst á heimili sínu að morgni 5. mars.
Sólveig B. Guðmundsdóttir,
Sveindís Hansdóttir, Ómar Sigtryggsson,
Brynjar Hansson, Rut Lárusdóttir,
Sumarrós Hansdóttir,
Vigdís Kristjánsdóttir,
Bára Hansdóttir, Guðmundur Pétursson,
Danilíus Hansson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
JÓHANNA ALBERTSDÓTTIR
frá Syðra Hóli,
er andaðist í Héraðssjúkrahúsinu á
Blönduósi sunnudaginn 3. mars sl.,
verður jarðsungin frá Höskuldsstaða-
kirkju laugardaginn 9. mars 1996
kl. 14.00.
Hólmfríður Magnúsdóttir,
María Magnúsdóttir,
Björn Magnússon, Ingunn Hjaltadóttir,
Ásdis Magnúsdóttir, Gunnlaugur Bragason,
barnabörn og barnabarnabörn.