Morgunblaðið - 06.03.1996, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 6. MARZ 1996 35
FRÉTTIR
Kristniboðið kynnir
starf sitt á Akranesi
Málþing um velferð barna í Mosfellsbæ
Ahersla á þátttöku
barna og ungmenna
KYNNINGARDAGAR kristniboðsins
á Akranesi hefjast með föstuguðs-
þjónustu í Akraneskirkju að kvöldi
miðvikudagsins 6. mars. Sr. Kjartan
, Jónsson kristniboði predikar og þjón-
ar fyrir altari. Síðan verða almennar
samkomur næstu þijú kvöld kl. 20.30
| í húsi KFUM og KFUK við Garða-
braut. Öll kvöldin verða fluttir þætt-
ir um kristniboð í Afríku og Kína svo
og hugleiðing. Ung söngkona, Helga
Magnúsdóttir, syngur einsöng á
laugardagskvöld.
Sunnudaginn 10. mars kl. 14 verð-
ur messa í kirkjunni. Sr. Björn Jóns-
Erindi um
j hljóðkerfis-
fræði og staf-
setningu
FÉLA.G íslenskra fræða boðar til
fundar með Guðvarði Má Gunnlaugs-
syni í Skólabæ við Suðurgötu í kvöld,
, miðvikudagskvöldið 6. mars, kl.
20.30.
Guðvarður Már Gunnlaugsson er
j málfræðingur og starfar sem sér-
son sóknarprestur þjónar fyrir altari
en Friðrik Hilmarsson, starfsmaður
Kristniboðssambandsins, predikar.
Nú eru 11 manns að störfum í
Eþíópíu og Kenýu á vegum Kristni-
boðssambandsins. Flestir eru starfs-
menn lúthersku kirknanna í þessum
löndum. Hjón, sem verið hafa heima
í leyfi í tæpt ár, búa sig undir að
fara aftur til Eþíópíu í sumar. Áætl-
að er að starfið þurfi um 18 milljón-
ir á þessu ári.
Yfirskrift samverustundanna á
Akranesi er: Hvers vegna Jesús?
Allir eru velkomnir.
fræðingur á Stofnun Árna Magnús-
sonar. Hann nefnir erindi sitt Villir
stafsetningin um fyrir okkur? Vanga-
veltur um framgómmælt og uppgóm-
mælt lokhljóð í íslensku. I erindinu
verður m.a. fjallað um kenningar um
framgómun í íslensku og varpað
fram þeirri spumingu hvort stafsetn-
ing orða eins og kær, kör og kjör
hafi afvegaleitt hljóðkerfisfræðinga
við greiningu á gómmæltum lok-
hljóðsfónönum.
Eftir framsögu Guðvarðar gefst
mönnum kostur á léttum veitingum
áður en almennar umræður hefjast.
Fundurinn er öllum opinn.
Rauðrar
Lödu leitað
RANNSÓKNADEILD lögreglunnar
í Reykjavík óskar eftir að ná tali af
ökumanni rauðrar Lödu-station bif-
reiðar sem varð vitni að aftaná-
keyrslu á mótum Reykjanesbrautar
og Stekkjarbakka um klukkan 13
síðastliðinn föstudag.
Bifreiðin er með gömul skráning-
arnúmer og byrjar númerið á
R-10.... Ökumaður bifreiðarinnar
hringdi að talið er á lögreglu eftir
óhappið en talið er hugsanlegt að
bíll hans hafi skemmst lítilsháttar
við það. Lögreglan sækist eftir fram-
burði mannsins vegna ágreinings
annarra sem í hlut áttu um hvernig
óhappið bar að höndum.'
Víkingaskipið
skoðað í gönguferð
HAFNARGÖNGUHÓPURINN ætlar
umhverfis Seltjamarnes hið forna í
miðvikudagsgöngu sinni 6. mars.
Farið verður frá Hafnarhúsinu kl.
20 vestur í Ánanaust og litið inn hjá
Gunnari víkingaskipasmið þar sem
hann er að leggja síðustu hönd á
smíði víkingaskipsins og fræðst um
siglingar á landnámsöid.
Að því búnu verður gengið með
ströndinni inn í Sundahöfn á kjör-
gönguhraða hvers og eins. Allir eru
velkomnir.
FORVARNARNEFND og forvam-
arhópur um málefni barna og ung-
menna í Mosfellsbæ efna til mál-
þings um velferð barna í Mosfellsbæ
í Hlégarði milli kl. 13 og 16 laugar-
daginn 9. mars. Við skipulagningu
dagskrár hefur verið lögð áhersla
á þátttöku barna og ungmenna.
Auk þess verða pallborðsumræður
þar sem meginþema verður „Hvert
er hlutverk mitt og hvað get ég
lagt að mörkum?“. Málþingið er
öllum opið.
í fréttatilkynningu frá félags-
málastjóra Mosfellsbæjar kemur
fram að málþinginu sé ætlað að
vekja fólk til umhugsunar um vel-
ferð barna og ungmenna á grunn-
skólaaldri og samstilla krafta þeirra
sem vinna með börnum og ung-
mennum. í andyri Hlégarðs verður
haldin sýning á efni sem tengt er
málefninu auk þess sem gefið verð-
ur út blað um málefni barna í Mos-
fellsbæ, unnið af börnum. Á mál-
þinginu segir umboðsmaður barna
frá störfum sínum og framkvæmda-
stjóri samtakanna Barnaheill kynn-
ir barnasáttmála Sameinuðu þjóð-
anna.
Félagsmálaráð/barnaverndar-
nefnd Mosfellsbæjar boðaði fulltrúa
úr nemendaráði Gagnfræðaskólans
í Mosfellsbæ til fundar 27. febrúar
sl. Á fundinum var samþykkt að
bjóða nemendum Gagnfræðaskól-
ans á fund félagsmálaráðs/barna-
verndarnefndar árlega. Tilgangur-
inn er að efla tengsl við unglinga*'*-
og gefa þeim kost á að koma sínum
óskum og þörfum á framfæri.
Forvarnarnefnd
Forvarnamefnd var stofnuð í
september árið 1994 og hefur hún
kallað til liðs við sig forvarnarhóp
sem í eiga sæti fulltrúar þeirra að-
ila sem vinna með börnum og ungl-
ingum í bæjarfélaginu og hittist
hópurinn fjórum sinnum á ári. Til-
gangurinn með stofnun forvarnar-
nefndar og forvarnarhóps er að
bæta forvarnir m.a. með því að
auka samstarf og skapa þannig
umræðuvettvang um málefni barna
og unglinga.
ATVIN NUAUGIÝSINGAR
Bifvélavirki
óskast strax.
Upplýsingar hjá Sigurjóni eða Bjarna
I á staðnum, ekki í síma.
AB bílar ehf.,
Stapahrauni 8, Hafnarfirði.
Frá
Borgarholtsskóla
Umsóknarfrestur um áður auglýst störf við
Borgarholtsskóla er hér með framlengdur til
24. mars 1996.
Menntamálanáðuneytið,
5. mars 1996.
Vélstjórar
Yfirvélstjóra og 1. vélstjóra vantar nú þegar
á Hring SH 535 (áður Hrímbak EA 306),
vélarstærð 2.200 hö (1.618 kw), sem gerður
verður út frá Grundarfirði.
Upplýsingar um borð í skipinu, sem er í slipp
í Stálsmiðjunni, og í síma 892 0735, 852 2656
og 438 6759.
smá
Kvöld og helgarvinna
Sölufólk óskast til að selja fyrir gott
málefni. Góð laun í boði.
Upplýsingar í síma 562 3550 í kvöld og
næstu kvöld frá kl. 19.00-22.00.
Lítill hvolpur
óskar eftir fullorðinni, rólegri manneskju til
að passa sig þrjá virka daga í viku frá kl. 9
til 18. Gæti hentað manneskju sem er kom-
in á eftirlaun. Dagmömmutaxti.
Upplýsingar í síma 568 7266, Biggi og
581 1843 (símsvari).
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSID
A AKUREYRI
Aðstoðar-
eða deildarlækni
vantar nú þegar til afleysinga.
Um vinnu fram á sumar gæti verið að ræða.
Nánari upplýsingar veitir fræðslustjóri
unglækna á FSA, Michael Clausen,
í síma 463 0100.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.
iglýsingar
Atvinnu-
og ferðamálafulltrúi
Laus er til umsóknar staða atvinnu- og ferða-
málafulltrúa Vestmannaeyjabæjar.
Hlutverk hans er að vinna að atvinnuþróun,
atvinnuráðgjöf og framgangi ferðaþjónustu
í samvinnu við hagsmunaaðila
í Vestmannaeyjum.
Leitað er dugmikils einstaklings með frum-
kvæði, áræði og hæfileika til samskipta.
Við mat umsókna varðar mestu menntun og
reynsla á sviði markaðs- og þróunarmála,
auk almennrar þekkingar á atvinnumálum
og ferðaþjónustu.
Umsækjandi þarf að geta hafið störf
sem fyrst.
Skrifleg umsókn, er greini frá aldri, menntun
og fyrri störfum, sendist fyrir 10. mars nk.,
merkt: Bæjarstjórn Vestmannaeyja, v/at-
vinnu- og ferðamálafulltrúa, pósthólf 60,
902 Vestmannaeyjum.
Frekari upplýsingar veitir Guðjón Hjörleifs-
son, bæjarstjóri, í síma 481 1088.
Bæjarstjórn Vestmannaeyja.
I.O.O.F. 7 = 1770306872 = 9.0.
I.O.O.F. 9 = 17737872 =
□ GLITNIR 5996030619 I
□ HELGAFELL 5996030619 V11
RF.GLA MIISTERISRIDDARA
Hvítasunnukirkjan
Ffladeifía
Bænastund í kvöld kl. 20.30.
á Allir hjartanlega velkomnir.
Pýramídinn -
andleg
miðstöð
MMtun
Völva Austra
spáir i Pýramídanum laugardag-
inn 9. mars. Einkatímar, per-
sónumyndir, sígaunaspil, orku-
jöfnun, spurningum svarað.
Einnig venjuleg spil og bolli.
Á sunnudag: 2 klst. námskeið.
Hollenska leyndarmálið kynnt.
Málverk verða til sölu báða dag-
ana.
Verndandi myndir: Viljirðu vita
hvaða vættir og verur eru í fjall-
inu eða steinunum þínum, loft-
inu eða vatninu, komdu þá með
mynd eða póstkort og pantaðu
málverk.
Nlánari upplýsingar i simum
588 1415 og 588 2526.
Pýramídinn,
Dugguvogi 2.
SAMBAND ÍSLENZKRA
KRISTNIBOÐSFÉLAGA
Háaleitisbraut 58-60
Samkoma i kvöld kl. 20.30
í Kristniboðssalnum.
Ræðumaður: Friðrik Hilmars-
son. Helga St. Hróbjartsdóttir
segir frá ferð til Eþíópíu.
Allir velkomnir.
\T-^/
KFUM
V
Aðaldeild KFUM,
Holtavegi
Inntökufundur í morgun.
Fundurinn hefst með málsverði
kl. 19.00. Verð kr. 1.500.
Skráning á skrifstofu félaganna
í dag kl. 10.00-17.00.
Simi 588-8899.
| Hörgshlíð12
Bænastund í kvöld kl. 20.00.
i
Austurvegur ehf.
Námskeið í Reiki heilun
Næsta námskeið
í Reiki heilun I fer
fram dagana 9.
og 10. mars milli
kl. 10 til 17 báða
dagana. Kennsla
ferfram á Sjávar-
götu 28, Bessastaðahreppi, 10
mín. akstur frá Reykjavík í fallegu
umhverfi við sjóinn.
Kennari er Rafn Sigurbjörnsson,
viðurkenndur Reikimeistari inn-
an Reikisamtaka Islands, The
Reiki Association, The Reiki
Outreach International.
Upplýsingar og skráning fer
fram í síma 565 2309.
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN
FÉLAGSSTARF
íbúar í
Austurbæ-Norðurmýri,
Hlíða- og Holtahverfi
Sameiginlegur fundur Félaga sjálfstæðis-
manna í Austurbæ-Norðurmýri og Hlíða-
og Holtahverfi verður haldinn í Hótel Lind
i dag, miðvikudaginn 6. mars, kl. 17.15-
19.00.
Gestur furrdarins verður Guðrún Zoéga,
borgarfulltrúi, og mun hún ræða um skipu-
lagsmál, umferðarmál og fegrun umhverfis.
Allir velkomnir.
______________________________________________