Morgunblaðið - 06.03.1996, Side 38

Morgunblaðið - 06.03.1996, Side 38
38 MIÐVIKUDAGUR 6. MARZ 1996 I DAG MORGUNBLAÐIÐ Morðfirðingar Árhátíð félagsins verður haldin í félagsheimili Kópavogs laugardaginn 9. mars. Forsala aðgöngumiða á sama stað fimmtudaginn 7. mars frá kl. 17-19. Miðaverð aðeins kr. 2.900,Vísa og Euro. Upplýsingar í síma 565 8121 og 554 4453. Stjórnin. í Þingstofu A, Hótel Sögu, og hefst kl, 16.00 , Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 2. tl 4. gr. • samþykkta félagsins. 2. Breytingar á samþykktum félagsins. 3. Önnur mál, löglega upp borin. Tillögur frá hluthöfum, sem bera á fram á aðalfundi, skulu vera komnar skriflega í hendur stjórnarinnar eigi síðar en sjö dögum fyrir aðalfund. Dagskrá, endanlega tillögur og reikningar félagsins munu liggja frammi á skrifstofu félagsins hluthöfum til sýnis 7 dögum fyrir aðalfund. Aðgöngumiðar, atkvæðaseðlar og fundargögn verða afhent á skrifstofu félagsins Grensásvegi 11, 2. hæð, frá og með 13. mars, fram að hádegi fundardags. Stjórn Jarðborana hf. dls JARÐBORANIR HF Auglýsing um framlagningu skattskrár 1995 og virðisaukaskattskrá fyrir rekstrarárið 1994 í samræmi við 2. mgr. 98. gr. laga nr. 75/1981 um tekjuskatt og eignarskatt er hér með auglýst að álagningu skatta og kærumeðferð er lokið á alla aðila sem skattskyldir eru skv. framangreindum lögum, sbr. 1. kafla laga nr. 75/1981. í samræmi við 46. gr. laga nr. 50/1988, með síðari breytingum, um virðisaukaskatt, er hér með auglýst að virðisaukaskattsskrá fyrir rekstrarárið 1994 liggur frammi, en í henni er tilgreindur ákvarðaður virðisaukaskattur eða endurgreiddur virðisaukaskattur hvers skattskylds aðila. Skattskrár og virðisaukaskattskrár verða lagðar fram í öllum skatta- umdæmum miðvikudaginn 6. mars 1995 og liggja frammi hjá skattstjórum í hveiju umdæmi og hjá umboðsmönnum skattstjóra fyrir hvert sveitarfélag dagana 6. til 19. mars að báðum dögum meðtöldum. 6. mars 1996 Skattstjórinn í Reykjcivík. Gestur Stein/iórsson. Skattstjórinn í Vesturlandsuniclœmi. Stefún Skjaldarson. Skattstjórinn í Vestjja rða umdcemi. Pétur Ólqfsson. Skattstjórinn í Norðurlandsumdcemi vestra. Bogi Sigurbjömsson. Skattstjórinn í Norðurlandsumdæmi eystra. Gunnar Karlsson. Skattstjórinn íAusturlandsumdœmi. Karl Lauritzson. Skattstjórinn í Suðurlandsumdœmi. Hreinn Sveinsson. Skcittstjórinn í Vestmannaeyjum. Ingi T. Bjömsson. Skattstjórinn í Reykjanesumdœmi. Sigmundur Stefdnsson. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags Netfang: lauga@mbl.is íslandsmótið í knattspyrnu 1912 ÁRIÐ 1912 var háð fyrsta íslandsmót í knattspyrnu. Aðeins tvö lið kepptu, KR og lið Vestmannaeyinga. Frímann Helgason íþrótta- fréttaritari Þjóðviljans til margra ára, hafði eitt sinn viðtal við Ársæl Sveinsson útgerðarmann í Vest- mannaeyjum um íslands- mótið 1912. Getur nokkur upplýst mig um, í hvaða tölublaði Þjóðviljans þetta var. Leifur Sveinsson, sími 5513224 Tjarnargötu 36, Rvík. Ný silkihúfa í Garðabæ BÆJARSTJÓRN hefur leigt til 10 ára 1300 fm gamalt timburhús, áður Sjöfn, undir bílaverkstæði og sumrstöð, aðeins 18 metra frá næstu íbúðar- húsum. Er það framtíðin að setja siíka starfsemi inn í íbúðarhverfi? ■Ólafur G. Einarsson, fyrrverandi bæjarstjóri, vildi setjja bensínstöð í Silf- urtún þegar hann ríkti, en íbúarnir mótmælu því með látum og kröfugöngum. Nú ætlar bæjarstjórn að taka upp sömu stefnu og Ólafur G. forðum. Þeir sem sinna umhverfismálum ættu að skoða þetta. B.Á. Tapað/fundið Gleraugu fundust GLERAUGU í gylltri um- gjörð fundust fyrir utan Kolaportið sl. sunnudag. Upplýsingar í síma 555-4979. Veski tapaðist HVÍTT seðlaveski merkt Landsbankanum tapaðist í vagni 140 á leiðinni frá Lækjartorgi inn í Garðabæ sl. föstudag á milli kl. 19 og 19.30. I veskinu voru skilríki og kort, persónu- legir munir og töluvert af peningum. Sá sem veit um veskið er vinsamlega beð- inn að hringja í síma 565-6526. Fundarlaun. Taska fannst í Breiðholti BLEIK leikskólataska með úlpu, pollagalla og fleiru fannst í Seljahverfi sl. sunnudag. Eigandi getur vitjað hennar í síma 567- 0956. Myndir töpuðust MYNDIR töpuðust töluvert fyrir síðustu jól, líklega á göngu í Fossvoginum. Ef einhver hefur fundið mynd- imar er hann vinsamlegast beðinn að hringja í síma 568- 9195. Veski tapaðist SÓLVEIG Gunnarsdóttir hringdi og sagðist hafa orðið fyrir því óláni að tapa brúna seðlaveskinu sínu, sem rrierkt er nafninu hennar, sl. sunnudagskvöld í Sóltúni 3. í veskinu eru skilríki ýmisskonar sem hún þarf nauðsynlega að fá og biður skilvísan finnanda að hafa samband í síma 553-0673 og heitir fundarlaunum. Þá vildi Sólveig koma á framfæri að um miðjan júnímánuð hefði hún tapað gullarm- bandi með múrsteina- munstri í austurbænum um miðjan janúarmánuð og biður sömuleiðis skilvísan finnanda að hringja í sama síma. Gæludýr Týndur köttur KOLSVARTUR fresskött- ur fór að heiman frá sér sl. laugardagskvöld, frá Eggertsgötu 22, og síðan hefur ekkert til hans spurst. Hann er ekki vanur að vera úti. Hafi einhver orðið ferða hans var er hann beðinn að hringja í síma 561-6788. SKAK Umsj&n Margcir Pétursson Svartur leikur og vinnur STAÐAN kom upp í ann- arri umferð Reykjavíkur- skákmótsins. Sigurður Daði Sigfússon (2.245) var með hvítt, en Ólafur B. Þórsson (2.160) var með svart og átti leik. Hvítur lék síðast 32. Dfl-dl? í erfiðri •stöðu, en betra var 32. Dal. 32. - Dc2! 33. Bb3 (Eða 33. Dxc2 - Hel+ 334. Kf2 - Hfl mát) 33. — Dxdl+ 34. Bxdl — Hel+ og hvít- ur gafst upp því hann er óveij- andi mát í næsta leik. Fimmta um- ferð Reykjavík- urskákmótsins er tefld í dag í Skákmiðstöðinni Faxafeni 12 og hefst taflið klukk- an 17. Tefldar eru níu umferðir á mótinu og hefjast þær allar á sama tíma, nema síðasta umferð- in á sunnudaginn, en þá er byijað klukkan 13. Að- gangur er ókeypis fyrir áhorfendur, í dag í boði Flugleiða, innanlands. HÖGNIHREKKVÍSI Víkverji skrifar... ANÆGJULEGT er að fylgjast með velgengni íslenskra kvikmynda á erlendri grund um| þessar mundir. Fyrir skömmu völdu áhorfendur á kvikmyndahá- tíðinni í Gautaborg Tár úr steini bestu kvikmynd hátíðarinnar. Kvikmyndin Ágnes fékk góðar undirtektir á kvikmyndahátíðinni í Berlín og nú um helgina bárust þær fregnir frá Rússlandi að ís- lensk kvikmyndahátíð í tveimur borgum rússneskum, Moskvu og Pétursborg, hefði kallað fram glæsilegar viðtökur. Þar eru sýnd- ar sex íslenskar kvikmyndir, nýjar og gamlar, Tár úr steini eftir Hilm- ar Oddsson, Hin helgu vé eftir Hrafn Gunnlaugsson, Veggfóður, Á köldum klaka, Sódóma Reykja- vík og Hrafninn flýgur. Það er Rússneska kvikmyndaráðið í sam- vinnu við sendiráð íslands í Moskvu sem stendur fyrir þessari kvik- myndahátíð. Loks hafa borist hing- að til lands þau tíðindi að framleið- endur kvikmyndarinnar Á köldum klaka, með Friðrik Þór í farar- broddi, hafi náð sýningarsamningi við um fimmtíu kvikmyndahús í Bandaríkjunum. Allt eru þetta ótví- ræð merki um að íslensk kvik- myndargerðarlist standi nú með miklum blóma. Mikilvægt er því að hvika í engu af markaðri braut og halda áfram því metnaðarfulla starfi við framleiðslu íslenskra kvikmynda, sem óneitanlega stóð með hvað mestum blóma á liðnu ári. XXX N LISTALÍFIÐ er blómlegt hér á landi á fleiri sviðum en kvikmyndagerðarinnar. Flestir landsmenn hafa sjálfsagt fyllst miklu stolti yfir frammistöðu Sin- fóníuhljómsveitar íslands í jómfr- úrferð hennar til Bandaríkjanna. Hljómsveitin kom hingað til lands eftir frægðarför snemma í morgun og ugglaust hefur henni verið fagnað á viðeigandi hátt við kom- una til iandsins. Árangur hennar vár auðvitað stórglæsilegur og dómurinn sem Alex Ross, tónlistar- gagnrýnandi bandaríska stórblaðs- ins The New York Times, ritaði í blaðið eftir að hafa hlýtt á tónleika hljómsveitarinnar fyrir réttri viku í Carnegie Hall verður ugglaust lengi í minnum hafður, enda kom það fram hér í blaðinu í gær, haft eftir Helgu Hauksdóttur tóníeika- stjóra Sinfóníuhljómsveitar ís- lands, að hljómsveitin hefði leikið fyrir fullu húsi í Daytona Beach, eða um tvöþúsund manns um helg- ina og að dómsins hefði verið getið í frétt á forsíðu eins dagblaðanna þar í borg. xxx ÞAÐ ÞARF svo sem ekki að fara út fyrir landsteinana, til þess að verða var við gróskuna í íslensku tónlistarlífi. Glæsilegir fulltrúar íslensks tónlistarlífs, eins- konar ný kynslóð óperusöngvara, leiddu saman hesta sína á fjölum Borgarleikhússins í gærkveldi, við undirleik Jónasar Ingimundarson- ar píanóleikara. Þetta voru Hanna Dóra Sturludóttir sópran, Ingveld- ur Ýr Jónsdóttir mezzósópran, Gunnar Guðbjörnsson tenór og Sigurður Skagfjörð Steingrímsson bassabaritón. Ugglaust hefur þar verið boðið upp á enn eina tónlist- arveisluna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.