Morgunblaðið - 06.03.1996, Síða 48

Morgunblaðið - 06.03.1996, Síða 48
^YHNDAl Hátækni til framfara m Tæknival Skeifunni17 • Sími 568-1665 MORGUNBLADID, KRINGLAN I, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, mSTHÓLF 3040, NETFANG MBLfa’CENTR UM. IS / AKUREYRl: HAFNARSTRÆTl 85 MIÐVIKUDAGUR 6. MARZ 1996 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Þorskaflahámark 130tonna viðbót til Suðureyrar SMÁBÁTAR sem gerðir eru út frá Suðureyri fá mesta viðbót við þorsk- aflahámark sitt, eða 131 tonn sem skiptist á 14 báta, samkvæmt ákvörðun stjórnar Byggðastofnunar frá því í gær. Lauk þá úthlutun þess þorskaflahámarks sem Byggða- stofnun var falið að úthluta til báta á stöðum sem háðastir eru útgerð smábáta. Þegar Alþingi samþykkti síðast breytingar á lögum um stjórnun fisk- veiða og gerði breytingar á reglum um veiðar smábáta var tekinn frá 500 tonna kvóti sem Byggðastofnun var falið að úthluta sem viðbót á smábáta í þeim byggðarlögum sem taiin eru aigerlega háð útgerð smá- báta. Niðurstaða Byggðastofnunar var að sjö sveitarfélög væru talin næst því að falla undir þessa skil- greiningu. Tvö þeirra féllu út vegna þess að bátar voru seldir í burtu en eitt bættist við vegna þess að togari staðarins fór annað. Hámark 10 tonn á bát Ákveðið var að nota kvótann til að auka þorskaflahámark báta á "'þessum stöðum um 25%, þó að há- marki 10 tonn á bát. Alls fengu 50 bátar úthlutun fyrir þetta fiskveiði- ár, samtals 438 tonn. Mest fer til Suðureyrar þar sem íjórtán bátar fá samtals 131 tonn. Tólf bátar á Tálknafirði fá 119 tonn, sjö bátar í Grímsey skipta á milli sín 66 tonn- um, tíu bátar á Bakkafirði fá 64 tonn, fimm bátar á Borgarfirði eystra fá samtals 43 tonn og loks fá tveir bátar á Breiðdalsvík 15 tonna viðbót við þorskaflahámark. Sigurður Guðmundsson, forstöðu- maður þróunarsviðs Byggðastofnun- ar, segir að við meðferð málsins hafi komið í ljós einstök dæmi þar sem bátar væru gerðir út frá stöðun- -um þó að eigendur þeirra væru flutt- ir þaðan. Stjórn stofnunarinnar hefði ákveðið að úthluta þessum bátum með sama hætti og öðrum enda væri útgerð þeirra hluti af atvinnu- lífi staðarins að mati viðkomandi sveitarstjóma. Fiskistofa sendir við- komandi útgerðarmönnum tilkynn- ingu um úthlutunina. SÍB óskar endurskoðunar á launalið samninga Astæðan að samanburðarhópar í BSRB og BHMR hafa hækkað meira SAMBAND íslenskra bankamanna hefur óskað endurskoðunar á launa- lið kjarasamnings síns við bánkana sem undirritaður var 8. júní í fyrra og gildir til næstu áramóta og hefur fyrsti samningafundurinn vegna þessa verið boðaður á mánudaginn kemur. Ástæðumar eru að saman- burður við helstu viðmiðunarhópa félaga í SÍB innan Bandalags starfs- manna ríkis og bæja og Bandalags háskólamenntaðra ríkisstarfsmanna hefur leitt í ljós að þessir hópar sömdu um meiri hækkanir en SÍB á síðasta ári. Endurskoðunin byggir á 4. grein samkomulags um kjarasamninga SÍB, en þar segir að „óski annar hvor aðila, að gefnu tilefni, endur- skoðunar á launalið kjarasamnings á samningstímanum, skulu aðilar þegar í stað hefja viðræður. Náist ekki samkomulag innan þijátíu daga skal ágreiningsatriðum skotið til úrlausnar gerðardóms.“ Gerðardómurinn hefur einnig einn mánuð til að komast að niður- stöðu nema aðilar komi sér saman um lengri tíma. Hann skal skipa einum fulltrúa hvors aðila, auk oddamanns sem aðilar koma sér saman um og tveimur til viðbótar sem oddamaður tilnefnir. „Skal úr- skurðurinn taka tillit til starfskjara og þróunar þeirra við sambærileg störf á vinnumarkaði almennt, hvort sem er hjá atvinnufyrirtækjum eða ríki, ríkisstofnunum, sveitarfélögum og stofnunum þeirra.“ Tvívegis áður Helga Jónsdóttir, varaformaður SÍB, segir að þau hafi ákveðið að beita þessu ákvæði í framhaldi af því að hafa skoðað samanburð frá Þjóðhagsstofnun á samningum sem gerðir voru á opinberum markaði. Bankamenn teldu sig hafa borið minna úr býtum en ríkisstarfsmenn samkvæmt þessum . samanburði. Samningar þeirra væru metnir til 8,5-8,6% hækkunar á samnings- tíma, en mat á samningum opin- berra starfsmanna væri allt upp í 20% ef miðað væri við þá hækkun sem kennarar hefðu fengið. Helga sagði að þessu ákvæði hefði verið beitt tvívegis áður, síð- ast árið 1985. Morgunblaðið/Knstinn Asigling utan við Sandgerði MANNBJÖRG varð þegar Reykja- borg RE 25 sigldi á Einar KE 52 í Sundinu utan við Sandgerðis- höfn kl. 19.35 í gærkvöldi. Einn maður var á Einari KE og var honuni bjargað um borð í Reykja- borgina. Björgunarskipið Hannes Þ. Hafstein sótti síðan Einar KE þar sem hann maraði í hálfu kafi á Sundinu og dró hann til hafnar. Samkvæmt upplýsingnm frá lögreglunni voru bátarnir á leið til hafnar í Sandgerði. Reykja- borg RE, sem er 28 brúttórúm- lesta eikarbátur, sigldi uppi Einar KE, 5,7 brúttórúmlesta trefja- plastbát, og lenti á stjórnborðshlið hans. Við það brotnaði Einar og fylltist af sjó. Báturinn maraði í hálfu kafi og flaut líklega á lofti sem lokaðist inni i stefni. Skip- verjinn á Einari KE biotnaði upp að mitti. Ein kvennanna dregnr mál gegn biskupi til baka EIN þeirra kvenna, sem opinberlega hafa ásakað biskup íslands fyrir kynferðislega áreitni, sendi í gær frá sér yfirlýsingu þar sem hún dregur mál sitt gegn herra Ólafi Skúlasyni, biskupi Islands, til baka. Þá hefur siðanefnd Prestafélags ís- lands borist bréf frá systur annarrar konu, sem einnig hefur ásakað bisk- up um áreitni, þar sem hún segist enga endurminningu hafa um þetta atvik. „Ég lýsi því yfír að ég dreg mál mitt á hendur Ólafi Skúlasyni til baka er varðar samskipti okkar á veitingastað í Kaupmannahöfn. Við hjónin höfum náð sáttum við þjóð- kirkjuna og hörmum mjög að þetta viðkvæma mál skyldi fara í fjöl- miðla og þann sársauka sem það hefur valdið,“ segir í yfirlýsingu fyrrnefndrar konu. Siðanefnd prestafélagsins og lög- mönnum biskups barst í gær bréf frá systur konunnar, sem sakað hefur biskup um kynferðislega áreitni á sundnámskeiði á Laugum í Aðaldal. í frásögn konunnar í fjöl- miðlum segir að hún og systir henn- ar hafi verið á námskeiðinu og orð- ið fyrir áreitni biskups. „Samkvæmt þessum fréttum eigum við systUr að hafa verið saman í sundlauginni á Laugum og hafi Ólafur Skúlason þá komið til okkar og haft í frammi við okkur óviðurkvæmilegt tal um líkamsvöxt okkar og þroska og far- ið um okkur höndum. Af þessu tilefni vil ég lýsa yfir eftirfarandi: Ég kannast ekki við þennan atburð og hef enga endur- minningu um hann. Ekki minnist ég þess heldur að um þennan at- burð eða þessu líkan hafi verið talað á æskuheimili mínu né heldur um persónu Ólafs Skúlasonar í neinu því líku samhengi.“ Sigrún Pálína Ingvarsdóttir, sem ásakað hefur biskup um nauðgun- artilraun og er sú eina sem hefur komið fram undir nafni, segir þetta engin áhrif hafa á sitt mál. Hún hafi greint satt og rétt frá og myndi standa við þær yfirlýsingar sem hún hafi gefið um það sem gerðist í Bústaðakirkju árið 1979. Valdabarátta Þá segir Ragnar Aðalsteinsson, lögmaður biskups íslands, að drög að ályktun, sem Geir Waage, for- maður Prestafélags íslands, lagði fram á stjórnarfundi í fyrradag hafi haft þann eina tilgang að vega að biskupnum. Þetta sé liður í valda- baráttu innan kirkjunnar. Sam- kvæmt heimildum Morgunblaðsins er óánægja innan stjórnar Prestafé- lagsins með drögin og vinnubrögð Geirs Waage. ■ Þáttur í valdabaráttu/6 Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Gulrótarupp- skera á góu ÞAÐ MA segja að óvenjulegt sé að menn taki upp gulrætur á miðri góu, en það gerði þó Stefán Gunnarsson, bóndi á Dyrhólum. Um er að ræða líf- rækt ræktaðar gulrætur og hefur Stefán þegar fengið vottun vottunarstöðvarinnar Tún fyrir gæði uppskerunnar. Gulræturnar eru ræktaðar undir plastdúk. Reykjavíkur- skákmótið Agdestein efstur með 4 vinninga SIMEN Agdestein er efstur á Reykjavíkurskákmótinu, með 4 vinninga eftir 4 umferðir. Agdestein sigraði Nicolic í gær. í 2.-4. sæti með 3'A vinn- ing eru Hannes Hiífar Stefáns- son, Jonathan Tisdall og Rune Djurhus. í gær vann Hannes Hlífar sigur á Margeir Péturssyni, Helgi Ólafsson vann Heini 01- sen, Helgi Áss Grétarsson vann Braga Halldórsson, Benedikt Jónasson sigraði David Bronstein. Þröstur Þór- hallsson gerði jafntefli við Curt Hansen og Magnús Örn Úlfarsson gerði jafntefli við Jonny Hector. ■ Skákþáttur/33

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.