Morgunblaðið - 06.03.1996, Blaðsíða 1
<
SÉRBLAÐ UM SJÁVARÚTVEG
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS MIÐVIKUDAGUR 6. MARZ 1996
BLAD
f
i-
3 Ástand humar-
stofnsins við
ísland
Aflabrögð
: | Aflayfirlit og
staðsetning
fiskiskipanna
Markaðsmál
g Kóngakrabbi úr
Kyrrahafi að
breiðast út við
Noreg
Greínar
7 Valdimar Samú-
elsson útgerðar-
maður
GOLÞORSKUNUM HAMPAÐ
• THEODÓR Erlingsson á ís-
landsbersa HF hampar hér
tveimur vænum golþorskum.
Hann rær á bátnum ásamt Þór-
Morgunblaðið/Birgir Þórbjarnarson
ólfi Kristjánssyni. Þeir eru á
netum og hafa verið að mok-
fiska, voru til dæmis með 9 tonn
i fyrradag.
Fréttir Markaðir
Troll með flugi
til Kamtsjatka
• HAMPIÐJAN hefur nú
sent eitt fullbúið gloriu-troll
austur til Kamtsjatka í Rúss-
landi. Trollið var sent með
flugi til Pusan í Kóreu og
fer þaðan með birgðaskipi
út á miðin og um borð í
rússneskt veiðiskip. Þetta
er fyrsta trollið frá Hamp-
iðjunni, sem fer þangað
austur, en 4 til 5 togarar frá
Murmansk tóku troll frá
Hamiðjunni í fyrra. Nú er
gert ráð fyrir frekari sölu
þangað, en á Kamtsjatka
bíða menn átekta./2
Humarkvótinn
1.500 tonn?
• HAFRANNSÓKNA-
STOFNUN hefur lagt til við
sjávarútvegsráðuneytið, að
humarkvóti á næstu vertíð,
sem hefst í vor, verði 1.500
tonn. Það er sami kvóti og
ákveðinn var til bráðabirgða
á síðasta sumri, en vertíðin
þá var ein sú lélegasta í sög-
unni. Kvóti var þá 2.200 tonn
aðeins rúmlega 1.000 tonn
veiddust. Ráðuneytið hefur
ekki tekið endanlega
ákvörðun um humarkvót-
ann, en líklegast er að farið
verði að ráleggingum Haf-
rannsóknastofnunar./3
Verð á laxi
hærra en í fyrra
• VERÐ á norskum eldislaxi
hefur verið nokkuð stöðugt
síðustu vikur, eftir töluverða
Jægt um áramótin. Verðið er
þó nokkru hærra nú en á
sama tíma í fyrra og munar
það allt að 60 krónum á hvert
kíló. Það sem af er þessu ári
hafa Norðmenn flutt út um
24.000 tonn af laxi og er
megnið af því ferskur fiskur.
Nokkrar sviptingar eru nú í
norska laxeldinu vegna mik-
illar framleiðslu og kröfu um
takmarkaða fóðrun til að
halda vexti laxins niðri svo
framboð verði ekki of mikið
og verð falli. Meðalverð það,
sem af er ári, er um 280
krónur á hvert kíló.
Mikið framboð af frystum
ýsuflökum á lágu verði
Fersku ýsuflökin mun
dýrari en þau frystu
VERÐ á frystum ýsuflökum
í stórmörkuðum er nú með
lægsta móti eða allt niður í
299 krónur kílóið. Verð á
ferskum flökum er hins veg-
ar mun hærra eða vel yfir 500 krónur kílóið. Lágt verð á frystum ýsuflökum
endurspeglar lágt afurðaverð og erfileika við sölu á erlendúm mörkuðum vegna
vaxandi framboðs. Fjölmargir framleiðendur, stórir og smáir bjóða nú fryst
ýsuflök í stórmörkuðunum og á Akureyri býður Útgerðarfélag Ákureyringa
upp á heimsendingu á ýsuflökum við vægu verði. Verð á ýsu á fiskmörkuðum
lækkaði í fyrra um 18% að meðaltali miðað við árið áður.
Ýsuflök með beinum og roði í neyt-
endapakkningunum „200 mílur“ frá
Vinnslustöðinni hf. í Vestamannaeyj-
um hafa verið seld í Nóatúni á 299
krónur, en beinlaus og roðlaus ýsuflök
á 349 krónur. Aðspurður um þetta
lága verð segir Þorbergur Aðalsteins-
son, markaðsstjóri Vinnslustöðvarinn-
ar hf., að ýsuverð hafi verið tiltölulega
lágt á tímabili og nýtingin yfir 50%,
þannig að ekki þurfi neina stærðfræði-
kunnáttu til að sjá að hægt sé að
keyra á þessum verðum.
„Þegar keyrt er á nýjum flökum í
fiskbúðum má alltaf búast við afföll-
um, sem eru ekki eins mikil þegar um
frysta vöru er að ræða,“ segir hann.
„Það er auðsjáanlegt að við erum ekki
þeir einu á markaðinum sem bjóðum
ýsuflök á svona lágu verði. Ýsuverð
fer mjög lækkandi um þessar mundir."
Ýsan dýr á mörkuðum
Hann segir að orsökin sé meðal
annars sú að einhveijar birgðir séu til
í landinu og það hafi ekki gengið eins
vel að selja erlendis og áður. „Þetta
verð er miðað við það magn sem við
náðum í á markaði og við fylgjum
bara markaðsverðinu," segir hann.
„Ýsan er búin að vera mjög dýr á
mörkuðum undanfarnar tvær til þijár
vikur,“ segir Ásgeir Baldursson,
starfsmaður hjá fiskbúðinni Vör. Hann
segir að verðið hafi lítið farið niður
eftir stórviðrið sem hafi gengið yfir
landið fyrir nokkru síðan.
„Það hefur vantað fisk í útflutning
og menn hafa verið að kaupa þann
fisk á háu verði vegna þess að þeir
þurfa að standa við gerða samninga,"
segir Ásgeir og bætir því við að hann
vonist til þess að verðið fari að lækka
aftur. „Fisksalar hafa ekki haft mikið
upp úr sölu á ýsuflökum undanfarið,
en þau eru seld á 530 krónur."
Áðspurður um lágt verð á frystum
ýsuflökum segir hann að það sé stór
munur á því livað hægt sé að selja í
neytendapakkningum samanborið við
fiskbúðir. „Það getur verið netafiskur
í pakkningunum sem er ekki eins fall-
egur,“ segir hann. „Hann myndi ekki
seljast út í búð hjá mér, en það er
allt annað mál að selja hann í pakkn-
ingum í stórmarkaði. Þá gerir fólk
ekki eins miklar kröfur."
Mikið fé í
kynningu á laxi
• NORSKA útflutningsráð-
ið fyrir fiskafurðir ætlar að
verja næstum 500 milljónum
ísl. kr. á þessu ári til að
markaðssetja lax og urriða
en það er rúmlega 42 mil\j.
kr. aukning frá síðasta ári.
Verður mest áhersla lögð á
Frakkland en mikil kynning
verður einnig í Þýskalandi,
Spáni og Japan./5
Útflutningsráð
fyrir fiskinn?
• PÉTUR Bjarnason, fram-
kvæmdastjóri Félags rækju-
og hörpudiskframleiðenda,
segir að nauðsynlegt sé að
auka áherzlu á almenna
markaðssetningu íslenzkra
sjávarafurða. „Annaðhvort
á að stofna sérstaka deild
innan Útflutningsráðs ís-
lands eða stofna sérstakt
útflutningsráð fyrir fisk
eins og Norðmenn hafa gert.
Starfseminni yrði markaður
tekjustofn af útflutnings-
gjaldi á sjávarafurðir," seg-
ir Pétur í samtali við Ver-
ið./8
Beitukóngurinn
skilar meiru
Beitukóngi landað í Bret-
landi 1982-94 (valin ár)
Verð, pund/kg
2,49
2’31 9,17/
3.300
2.672
Tonn með
kuðungl
1.643 1.630
II
'82 '85 '87 '92 '94
• VEIÐAR og vinnsla á
beitukóngi hafa aukizt veru-
lega við Bretland undanfarin
ár. Frá árinu 1982 hafa þess-
ar veiðar tvöfaldazt og verð-
mæti aflans aukizt enn
meira. 1982 komu 1.643 tonn
af beitukóngi á land og var
verðmæti aflans þá um 38
milljónir króna á gengi í
dag, en árið 1994 var aflinn
3.300 tonn að verðmæti um
90 milljónir króna. Markaðir
eru víða um heim, en Bret-
arnir hafa selt mikið af beitu-
kónginum til meginlands
Evrópu.