Morgunblaðið - 06.03.1996, Síða 1

Morgunblaðið - 06.03.1996, Síða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA BLAK 1996 MIDVUCUDAGUR 6. MARZ BLAD deildar- meistarar í fýrsta sinn HK-stúlkur tryggðu sér sinn fyrsta deildarmeistaratitill í Digranesi í gærkvöldi. Það var þó enginn glæsileikur sem HK-stúlkur sýndu en liðið tapaði í þremur hrinum gegn einni og liðið verpti eggi í lokahrinunni sem stúdínur unnu 15:0!. Urslitin í einstökum hrinum voru sem hér segir, 13:15,15:4 og 15:13. „Við vorum einfaldlega lélegar þrátt fyrir að við byrjuðum ágætlega í leikn- um. Uppspilið var ómögu- legt frá mér allan timann og það kom niður á leik liðs- ins. Nú er bara að einbeita sér að úrslitakeppninni og gleyma hinu,“ sagði Anna G. Einarsdóttir, uppspilari og fyrirliði HK eftir leikinn. Elva Rut Helgadóttir lék best fyrir HK en hún var sú eina sem stúdínur áttu í erf- iðleikum með. Lið stúdína virkaði mjög frískt þótt skammt væri síðan liðið hampaði bikarmeistaratitl- inum á laugardaginn og það veit vonandi á gott í fram- haldinu. MBL/Kristinn ANIMA G. Einarsdóttir, fyrirliði HK, hampar fyrsta deildarmeistaratitli HK í kvennablakinu. KNATTSPYRNA Kvennalandsliðið til Portúgals Kristinn Björnsson, landsliðsþjálfari kvenna í knattspyrnu, hefur valið landsliðshópinn sem tekur þátt í alþjóðlegu móti í Portúgal 11. - 17. mars. Leikið verð- ur gegn Finnum (11. mars), Dönum (13. mars) og Svíum (15. mars). Hópurinn er þannig skipaður: Markverðir: Birna Björnsdóttir, Val og Sig- fríður Sophusdóttir, Breiðabliki. Aðrir Ieikmenn: Asgerður Ingibergsdóttir, Guðrún Sæmundsdóttir, Hjördís Símonar- dóttir, Kristbjörg Ingadóttir og Ragna Lóa Stefánsdóttir, allar úr Val. Blikastúlkurnar; Ásthildur Helgadóttir, Helga Ósk Hannes- dóttir, Erla Hendriksdóttir, Katrín Jónsdótt- ir, Margrét Olafsdóttir og Vanda Sigurgeirs- dóttir. Guðlaug Jónsdóttir, Olga Færseth og Ásdís Þorgilsdóttir úr KR og Ingibjörg H. Ólafsdóttir úr ÍA. Jón Arnar efstur á Evr- ópulistanum JÓN Arnar Magnússon, tugþrautarmaður frá Sauðárkróki, er efstur á lista yfir evrópska sjö- þrautarmenn, en listinn var gefinn út 26. febr- úar. Jón Arnar hefur fengið 6.110 stig í sjö- þraut á þessu ári, á sænska meistaramótinu í byrjun febrúar. Jón Arnar keppir I sjöþraut á Evrópumeistaramótinu innanhúss um helgina, en mótið fer fram í Stokkhólmi. Þrír aðrir ís- lendingar keppa á mótinu, Geirlaug B. Geir- laugsdóttir og Sunna Gestsdóttir í 60 metra hlaupi og Vala Flosadóttir I stangarstökki. Vala keppir á föstudaginn en Geirlaug og Sunna á laugardaginn. Sjöþrautin lijá Jóni stendur hins vegar bæði á laugardag og sunnudag. Leó Örn Þorleifsson meiddur LEÓ Örn Þorleifsson, línumaður KA-manna, meiddist í leiknum gegn Víkingum sl. sunnu- dag. Hann fékk högg á annað hnéð í leiknum og það bólgnaði mjög. Eftir leikinn fór hann í sjúkrahús og þar var tappað af hnénu um 100 millilítrum af blóði. Ekki er enn vitað hversu hnémeiðsli hans eru alvarleg en það verður metið af lækni eftir viku þegar mesta bólgan er farin úr. En ljóst er að hann leikur ekki með KA gegn ÍBV í Eyjum I kvöld. Reynir Reynisson, markvörður Víkings verð- ur líklegast ekki með liði sínu í kvöld gegn Val að sögn Péturs Steins Guðmundssonar, formanns handknattleiksdeildar Víkings. Hann sagði hins vegar miklar líkur á að það tækist að tjasla þeim Rúnari Sigtryggsson og Árna Friðleifssyni saman fyrir kvöldið, en þessir þrír meiddust einnig í umræddum leik. Reynir tognaði í hné, Rúnar í baki og Árni á kálfa. Sparisjóðurinn á Seltjarnarnesi, aðal- styrktaraðili Gróttu, hefur ákveðið að bjóða öllum sem vilja á leik Gróttu og KR. Halldór vann bronsverðlaun HALLDÓR Svavarsson, ný- ráðinn landsliðs- þjálfari, varð í þriðja sæti í 4-65 kg flokki á Opna skandinavíska meistaramótinu í karate sem fram fór í Sví- þjóð um helgina. Þetta er eitt sterkasta mót sem haldið er í Evrópu og segir það mikið um árangur Hall- dórs. Þetta er besti árangur hans síðan 1989 er hann varð Norðurlandameistari. Sigurvegarinn er frá Júgóslavíu. Auk Halldórs keppti Edda Lovísa Blöndal, sem er aðeins 19 ára, og varð hún 14. sæti í +60 kg flokki og er það besti árangur hennar á alþjóðlegu móti til þessa. Hún varð einnig í 6. sæti í Kata. Það gekk ekki eins vel hjá Ól- afi Nielsen og Ingólfi Snorrasyni, enda ungir að árum og voru þarna aðallega tii að fá reynslu. 370 keppendur tóku þátt í mótinu sem eins og áður segir er með því allra sterkasta sem fer fram í Evrópu. KNATTSPYRNA: EIÐUR SMÁRIGUÐJOHNSEN LÉK GEGN BARCELONA / 04

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.