Morgunblaðið - 07.03.1996, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 7. MARZ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Skipting úthafskarfans á Reykjaneshrygg
NEAFC-fundur í
London í dag
FUNDUR Norðaustur-Atlantshafs-
fískveiðinefndarinnar (NEAFC) um
skiptingu úthafskarfastofnsins á
Reykjaneshrygg hefst í London í
dag. Rætt hefur verið um að boða
formlegan aukaársfund NEAFC um
miðjan mánuðinn, náist samkomulag
um kvótaskiptingu áður, til þess að
ákveða kvóta áður en karfavertíðin
hefst. Skammur tími er því til stefnu
fyrir aðildarríki NEAFC að ná sam-
komulagi.
Fyrir fundinum liggja þrjár tillög-
ur, sem komu fram á síðasta fundi
NEAFC. í fyrsta lagi er um að ræða
sameiginlega tillögu íslands, Fær-
eyja og Grænlands, sem byggist
meðal annars á dreiflngu karfa-
stofnsins á milli lögsagna íslands,
Grænlands og úthafsins, veiði úr
stofninum á liðnum árum, því hversu
Umræður utan
dagskrár
Meðferð-
arheimilið
verður
rekið
áfram
MEÐFERÐARHEIMILI bama
við Kleifarveg í Reykjavík
verður rekið áfram þrátt fyrir
að Sjúkrahús Reykjavíkur
muni hætta rekstri heimilisins
1. júní.
Þetta sagði Ingibjörg
Pálmadóttir heilbrigðisráð-
herra á Alþingi í gær, í um-
ræðu utan dagskrár um mál-
efni heimilisins. Ingibjörg
sagðist hafa rætt þessi mál
við borgarstjóra Reykjavíkur
og þær væra sammála um að
leggja fram tillögur um fram-
tíð heimilisins fyrir næstu
mánaðamót.
Meðferðarheimilið við Kleif-
arveg hefur verið rekið í
tengslum við geðdeild Sjúkra-
húss Reykjavíkur en sjúkra-
húsyfírvöld ætla að hætta
þátttöku í rekstrinum í spam-
aðarskyni. Heilbrigðisráðherra
sagði starfsemi heimilisins á
mörkum heilbrigðisþjónustu
og félagslegrar þjónustu en
ekki stæði til að flytja hana
til félagsmálaráðuneytis. Hún
sagði að m.a. væri verið að
athuga hvort flytja ætti heim-
ilið undir geðdeild Landspítal-
ans.
Óvissa um framtíð
Rannveig Guðmundsdóttir,
þingmaður Alþýðuflokksins,
hóf umræðuna og gagnrýndi
hvemig staðið hefði verið að
því að kynna ákvörðun um að
Sjúkrahús Reykjavíkur hætti
rekstrinum, og í kjölfarið væra
boðaðar viðræður um hvort
félagsmála- eða fræðsluyfir-
völd taki við rekstrinum að
einhveiju leyti.
Hún sagði að þetta skapaði
óvissu um framtíð þeirra bama
sem eiga heimili við Kleifar-
veg. Rannveig sagði að þar
væra vistuð átta böm og helm-
ingurinn byggi þar. Þessi börn
hefðu átt í miklum erfiðleikum
og þyrftu á mikilli aðstoð sam-
félagsins að halda.
háð einstök lönd eru veiðunum og
vísindafrámlagi einstakra ríkja. Þessi
tillaga gerir ráð fyrir 150.000 tonna
heildarkvóta og að af honum kæmu
59.000 tonn í hlut íslands, 57.000
tonn í hlút Færeyja og Grænlands
sameiginlega, Evrópusambandið
fengi 6.000 tonn, Rússland 17.000
tonn, Noregur 4.000 tonn og önnur
ríki um 7.000 tonn.
Rússar vijja miða við
veiðireynsluna eingöngu
Titlaga Rússa gerir ráð fyrir að
eingöngu verði miðað við veiði-
reynslu undanfarinna ára og kemur
slíkt Rússum mun betur, en íslend-
ingum verr. Samkvæmt tillögunni
yrði heildarkvótinn svipaður, en af
honum fengi Rússland 65.000 kvóta
en ísland aðeins 27.000 tonn.
Þriðja tillagan er komin frá Evr-
ópusambandinu og gerir ráð fyrir að
30% heildarkvótans, eða um 45.000
tonn, skiptust jafnt á milli íslands,
Grænlands og Færeyja, en afgangin-
um yrði skipt í hlutfalli við veiði-
reynslu síðasta árs. Samkvæmt
heimildum blaðsins verður kvótatal-
an samkvæmt þessari tillögu hag-
stæðari fyrir ísland en ef farið væri
eftir tillögu Rússa, en íslenzk stjóm-
völd vilja ekki fallast á röksemdir
ESB fyrir þessari úthlutunaraðferð.
Nokkur ágreiningur er á milli ríkja
NEAFC um það hver hafí verið raun-
veraleg veiðireynsla hvers þeirra um
sig á liðnum árum og þurfa ríkin að
byija á að koma sér saman um töl-
umar til þess að geta náð samkomu-
lagi um kvótaskiptingu, sem byggist
meðal annars á þeim.
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
ÞEIR félagarnir Gunnar Þór Grétarsson sem er til vinstri á
myndinni og Guðlaugur Guðmundsson á Skarfakletti GK 3, 5,9
tonna plastbáti, fengu óvæntan drátt á línuna á svokallaðri
Strumpaslóð í gær þegar þeir fengu gamalt akkeri sem Gunnar
Þór Grétarsson heldur á ásamt sýnishomi af aflanum.
Morgunblaðið/Benedikt
LOKIÐ skall á bílnum farþegamegin og lyfti honum upp, segir
Magnús Stefánsson bæjarstarfsmaður á Eskifirði.
Bæj arverkstjórinn
slapp með naumindum
BETUR fór en á horfðist þegar
um 40 kg plastlok af vatnstanki
ofan við Eskifjörð þeyttist upp í
loftið og lenti farþegamegin á bíl
bæjarverkstjórans í 60 til 80 m
fjarlægð um kl. 14 á þriðjudag.
Krislján Ragnarsson, bæjarverk-
stjóri, sat bílstjóramegin og slapp
ómeiddur. Hins veger urðu tölu-
verðar skemmdir á bílnum.
Kristján og fleiri bæjarstarfs-
menn ætluðu að fylla fimm vatns-
tanka fyrir ofan bæinn af vatni
til að fá meiri þrýsting á vatnið
niður í bæinn. Ekki reyndist hins
vegar unnt að fylla einn tankanna
og plastlok ofan á honum þeyttist
skyndilega upp f loftið.
„Við gerðum okkur eiginlega
Byggja þarf
allt að 537
skólastofur
BYGGJA þarf 376 til 537 almennar
kennslustofur í skólum landsins til
að fullnægja ákvæðum grunnskóla-
laga um samfelldan skóladagog ein-
setinn skóla. Þetta kemur fram í
svari menntamálaráðherra á Alþingi
við fyrirspum Ragnars Amalds.
Nú era 128 grunnskólar einsetnir
eða tæplega 65% skóla og er áætlað
að 376 bekkjardeildir séu eftir há-
degi í tvísetnum skólum. Segir í
svarinu að ef sú forsenda sé notuð
þurfí að byggja 376 skólastofur til
að einsetja skólana.
Samband íslenskra sveitarfélaga
kannaði á síðasta ári hversu margar
skólastofur þyrfti að byggja til að
einsetja alla skóla og samkvæmt
svöranum þarf að byggja 537
kennslustofur.
ekki gprein fyrir því að lokið hefði
farið í loftið fyrr en það skall á
bílnum farþegamegin og lyfti
honum upp. Krislján sat í bílstjó-
rasætinu og slapp ómeiddur en
við vorum allir í losti yfir þessu,“
sagði Magnús Stefánsson, véla-
maður, um atburðinn. Hann sagði
að bíllinn væri nánast ónýtur.
Tankurinn var tekinn úr sam-
bandi og steypuklossi settur fyrir
opið. Ekki er vitað hvernig stóð
á því að lokið þeyttist af tanknum
og fer rannsókn fram í dag.
Lokið var boltað niður á tank-
inn. Tankarnir eru niðurgrafnir
og aðeins efsti hlutinn stendur
upp úr jörðinni.
Sá guli kem-
ur í kjölfar
loðnunnar
Keflavík. Morgunblaðið.
„VIÐ vorum á svokallaðri
Strumpaslóð og vorum með
gamla síld sem við lögðum á
steinbítsmið en árangurinn var
ekkert sérstakur að þessu sinni,“
sagði Gunnar Þór Grétarsson á
Skarfakletti GK 3 þegar hann
var að landa í Sandgerði í gær.
Ágætur afli hefur verið hjá
Sandgerðisbátum að undanförnu
og á það við um öll veiðarfæri.
Sá guli kemur í kjölfar loðnunnar
og sem dæmi um afla í síðustu
viku var Ósk KE 5 með 77 tonn
í net, Haförn KE14 var með 72
tonn í dragnót og Hafborg KE
var með 47 tonn á línu, en þetta
eru allt minni bátar.
Sömu sögu er að segja í Kefla-
vík, en þar landaði Happasæll
KE 136 tonnum og Gunnar Há-
mundarson GK landaði 1031.
Norðmenn
í efstu
sætum
- - '-.,1
NORÐMENNIRNIR Simen
Agdestein og Jonathan Tisdall
eru efstir og jafnir með 4'/2
vinning á Reykjavíkurskákmót-
inu. Hannes Hlífar Stefánsson
stöðvaði sigurgöngu Agde-
steins í gær og varð jafntefli í
skák þeirra.
Hannes Hh'far, Helgi Áss
Grétarsson og Predrag Nikolic
eru með 4 vinninga, en Helgi
Áss sigraði enska stórmeistar-
ann Conquest í 5. umferð. Með-
al þeirra sem hlotið hafa 3‘/2
vinning era Margeir Pétursson,
Jóhann Hjartarson, Helgi Ól-
afsson og Þröstur Þórhallsson.
■ Agdestein/37
Kirkjumálaráðherra beðinn um að skipa úrskurðaraðila
Biskup víkur sæti
í Langholtsdeilu
HERRA Ólafur Skúlason biskup
ritaði í gær sr. Flóka Kristinssyni,
Jóni Stefánssyni organista og sókn-
amefnd Langholtskirkju og til-
kynnti að hann hefði ákveðið að
víkja sæti í Langholtsdeilu. Einnig
ritaði biskup kirkjumálaráðherra og
fór þess á leit að hann skipaði lög-
hæfan aðila til að úrskurða í deil-
unni.
Að sögn Eiríks Tómassonar, lög-
fræðilegs ráðgjafa biskups, tók
biskup það fram í bréfí sínu til
málsaðila að sr. Flóki Kristinsson
hefði upphaflega krafíst þess áð
biskup viki sæti í deilunni vegna
ástæðna sem lögmaður sr. Flóka
tiltók í sinni greinargerð. Ólafur tók
fram að hann teldi sig ekki vanhæf-
an vegna þeirra ástæðna sem þar
voru tilgreindar.
Hins vegar hefði það gerst að
sr. Flóki hefði borið fram kvörtun
við siðanefnd Prestafélags íslands,
vegna tiltekinna ummæla hr. Ólafs
í fjölmiðlum. Siðanefndin hefði
kveðið upp úrskurð í málinu og tek-
ið undir sjónarmið sr. Flóka, án
þess þó að leita álits hr. Ólafs á
þessari kvörtun. Af þessari ástæðu
teldi Ólafur nú rétt að hann viki
sæti í málinu með vísun til vanhæf-
isástæðna í stjórnsýslulögum þegar
svona væri komið.
Ólafur Skúlason lét þess getið í
bréfínu að hann hefði óskað eftir
því við kirkjumálaráðherra að annar
löghæfur maður yrði settur í sinn
stað til að úrskurða í þessu tiltekna
máli.
Biskup sendi og kirkjumálaráð-
herra bréf síðdegis í gær þar sem
hann greindi frá ákvörðun sinni og
óskaði eftir því að ráðherra setti
annan löghæfan mann til að úr-
skurða í málinu.
Löghæfir teljast þeir sem upp-
fylla skilyrði fyrir því að vera kjörn-
ir biskupar. Það eru guðfræðikandí-
datar, sem fullnægja skilyrðum til
þess að vera skipaðir prestar í þjóð-
kirkjunni. Þeir eru undanskildir sem
teljast vanhæfír til að koma að úr-
skurði í þessu tiltekna máli.