Morgunblaðið - 07.03.1996, Qupperneq 6
6 • ÆIM&T-UÐAGUR 7.-MARZ 1996 .-......——............-----
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Erfítt og
blautt færi
ERFITT og blautt færi var í
Bláfjöllum í gær en skóla-
krakkar í skíðaferð létu það
ekki á sig fá. Þeirra á meðal
voru krakkar frá Grindavík.
Séra Geir Waage
Alyktun
ekkigegn
biskupi
SR. GEIR Waage, formaður Presta-
félags íslands, segir það fráleitt að
drög að ályktun sem hann lagði fram
á síðasta fundi Prestafélags íslands
hafi beinst gegn biskupi, eins og
Ragnar Aðalsteinsson lögmaður
biskups hefur sagt.
„Biskup er hvergi nefndur í þessu
áliti,“ sagði sr. Geir. „í álitsgerðinni
var ég að reyna að nálgast þann sið-
ferðilega vanda sem snýr að okkur
prestum. Vegna þess að við eigum
allt undir trúnaði og tiltrú fólks, þá
getur ósannaður áburður bæði valdið
og viðhaldið efasemdum um trúverð-
ugleika prests í starfí. Þetta er ein-
faldlega staðreynd, þótt hún fari
augljóslega mjög í bága við þá rétt-
arfarsreglu að maður skuli vera sak-
laus uns sekt hans er sönnuð. Með
því að benda á þetta taldi ég mig
vera að bera fram vöm fyrir okkur
presta og sérstaklega þann prest sem
nú liggur undir hvað þyngstum
áburði af þessum toga.“
Ber vott um úrræðaleysi
Ragnar Aðalsteinsson sagði einnig
að fyrmefnd drög að ályktun væru
liður í valdabaráttu í kirkjunni. Geir
telur að með því hafí Ragnar verið
í raun að gefa í skyn að mál biskups
verði ekki útkljáð eftir lögfræðilegum
leiðum. Þess vegna hafí Ragnar ver-
ið að færa málið yfír á hið pólitíska
svið þar sem deilur og átök em yfir-
leitt útkljáð. „í kjölfarið á þessari
yfírlýsingu lögmannsins spruttu upp
sögur um hvers kyns um samsæri,
það fínnst mér vont, en ég tek mark
á þessu af því að þetta ber vott um
úrræðaleysið og angistina sem liggur
á fólki," sagði sr. Geir.
Aðeins uppbót a
lífeyri lækkaði
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi frá Tryggingastofnun
ríkisjns:
„Á síðu 2 í Morgunblaðinu mið-
vikudag er frétt með yfirskriftinni
„Hörð gagnrýni á lækkun umönn-
unarbóta". Þar er ruglað saman fjór-
um bótaflokkum en í raun lækkaði
aðeins uppbót á lífeyri þann 1. mars.
Hvorki umönnunarbætur, heimilis-
Morgunblaðið/RAX
Fáskrúðsfjörður
Innbrot í
Heilsugæslu-
stöðina
Fáskrúðsfirði. Morgunblaðið.
BROTIST var inn í Heilsu-
gæslustöðina á Fáskrúðsfirði
aðfaranótt miðvikudagsins og
þaðan inn í apótek staðarins.
Þaðan var stolið nokkuð af
svefnlyfjum ásamt fleiri lyfum
að verðmæti 50 þús. krónur.
Nokkrar skemmdir voru unnar
á húsnæðinu við innbrotið en
ekki er búið að meta tjónið.
Lögreglan á Fáskrúðsfirði
ásamt rannsóknarlögreglunni á
Eskifirði hefur upplýst málið
að fullu en innbrotsþjófurinn
var handtekinn við komuna til
Reykjavíkur með flugi frá Eg-
ilsstöðum.
uppbót né sérstök heimilisuppbót
hafa hins vegar lækkað.
Uppbót á lífeyri er greidd til lífeyr-
isþega sem bera kostnað vegna lyija,
umönnunar eða húsaleigu. Henni
má ekki rugla saman við umönnun-
arbætur en það eru þær bætur kall-
aðar sem greiddar eru foreldrum
fatlaðra og sjúkra barna.
Uppbót á lífeyri er mishá eftir
aðstæðum fólks. Þeir, sem hafa
heimilisuppbót og sérstaka heimilis-
uppbót, geta fengið frekari uppbót
á lífeyri að ákveðnu hámarki. Þetta
þak á frekari uppbótinni lækkaði nú
1. mars. Sjálf heimilisuppbótin lækk-
aði ekki enda er þar um annan bóta-
flokk að ræða.
Samkvæmt reglugerð heilbrigðis-
og tryggingamálaráðuneytisins
lækkar hámarksuppbót til lífeyris-
þega sem njóta umönnunar annarra
en maka úr 18.722 kr. í 16.048 kr.
á mánuði. Hámarksgreiðsla uppbót-
ar til þeirra sem hafa heimilisuppbót
lækkar úr 10.698 kr. í 9.361 kr. á
mánuði en hámarksuppbót til þeirra
sem hafa sérstaka heimilisuppbót
lækkar úr 5.349 kr. í 4.681 kr. á
mánuði.
Loks lækkar hámarksuppbót til
lífeyrisþega sem eru giftir eða i
óvíðgri sambúð úr 13.373 kr. í
12.036 kr. á mánuði. í heild hefur
þessi lækkun áhrif á greiðslur til
rúmlega 1.800 lífeyrisþega sem fá
greidda uppbót á lífeyri, en gert er
ráð fyrir að hún spari ríkissjóði um
tvær milljónir á mánuði.“
Hörð vlðbrögð samtaka fatlaðra við niðurskurði heimildaruppbóta öryrkja
Sjálfsbjörg með mótmælastöðu
SJALFSBJÖRG, félag fatlaðra í
Reykjavík og nágrenni, og Sjálfs-
björg, landssamband fatlaðra, efna
til mótmælastöðu við heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytið fimmtu-
daginn 7. mars kl. 12.30.
I fréttatilkynningu þessara aðila
segir m.a: „Sjálfsbjörg, landssam-
band fatlaðra, og Sjálfsbjörg, félag
fatlaðra í Reykjavík og nágrenni,
mótmæla harðlega enn einni aðför-
inni að öryrkjum. Það er einn gang-
inn enn ráðist á kjör fatlaðra og þá
einna helst þeirra sem minnst hafa.
Heimildaruppbót er skorin niður um
10-20% sem er allt upp í 2.675 kr.
á mánuði eða rúmar 32 þúsund
krónur á ári.
Það er viðurkennt við úthlutun
að þeir sem fá greidda heimilisupp-
bót v. lyfja-, sjúkrakostnaðar eða
umönnunar er það fólk sem ekki
getur lifað af tryggingabótum sín-
um nema að þessi heimildaruppbót
komi til. Öryrkjar eru með fjárhags-
skuldbindingar eins og aðrir þjóðfé-
lagsþegnar og munar þá um hveija
krónu sem bætur þeirra skerðast.
Þessar breytingar eiga að spara
ríkissjóði tvær milljónir króna á
mánuði sem nær ekki þeirri upphæð
sem þingmenn skenktu sjálfum sér
er þeir gáfu sér 40 þúsund ofan á
mánaðarkaup sitt (40 þús. x 63
þús. = 2.420 millj.).“ Öryrkjabanda-
lag Islands hefur sent heilbrigðis-
og tryggingaráðherra bréf og sent
samrit til forsætisráðherra þar sem
mótmælt er enn einu sinni harðlega
þeirri lækkun heimildabóta lífeyris-
þega sem nú er komin til fram-
kvæmda „enda mun gjörð þessi
hafa mikil áhrif á kjör ijölmargra
lífeyrisþega.
Oryrkjabandalag íslands mun
með öllum tiltækum ráðum vinna
að því að þessari gjörð vérði hrund-
ið svo miídu sem hún skiptir fynr
lífsviðurværi ótalinna öryrkja."
Miðstjórn ASÍ samþykkti ályktun
í gær þar sem mótmælt er harðlega
„nýjustu atlögu heilbrigðisráðherra
að kjörum elli- og örorkulífeyris-
þega“. Miðstjórnin skoraði á allt
almennt launafólk að fjölmenna á
mótmælafundinn í dag.
Siðanefnd Prestafélagsins fjallar um tengsl sr. Flóka Kristinssonar við Sigrúnu Pálínu Ingvarsdóttur
Ekkí rök fyrir því að
Flóki tengist málinu
SIÐANEFND Prestafélagsins hefur
komist að jieirri niðurstöðu að þau
orð herra Olafs Skúlasonar, biskups
Islands, að Sigrún Pálína Ingvars-
dóttir, sem sakað hefur biskup um
nauðgunartilraun, hafí verið í við-
tölum hjá séra Flóka Kristinssyni í
allan vetur eigi ekki við rök að styðj-
ast. Starfsfólk Langholtskirkju stað-
festir að séra Flóki og Sigrún Pálína
hafí átt fund í Langholtskirkju 8. jan-
úar 1996. Sigrún Pálína segir að á
fundinum hafi mál hennar gegn bisk-
upi ekki verið til umræðu.
„Siðanefnd hefur fjallað um kvört-
un séra Flóka Kristinssonar vegna
ummæla biskups íslands, herra Ólafs
Skúlasonar, um að Sigrún Pálína
„væri búin að vera í viðtölum hjá
séra Flóka Kristinssyni í allan vet-
ur“. Séra Flóki Kristinsson telur
þessi ummæli algerlega úr lausu lofti
gripin og ekki sæmandi að halda
fram slíkri ósannaðri .staðhæfingu.
Staðfestir séra Flóki einarðlega fyrir
siðanefnd að hann hafí engin af-
skipti haft af málatilbúnaði þeirra
kvenna. Siðanefnd tekur fyrir sitt
leyti undir þetta álit séra Flóka,“
segir í áliti siðanefndar.
Fundur með séra Flóka
Fjórir starfsmenn Langholts-
kirkjusafnaðar, þau Guðmundur E.
Pálsson, Jón Stefánsson, Margrét
Leósdóttir og Sigurbjörg Hjörleifs-
dóttir, sendu AP-Iögmönnum, sem
gæta hagsmuna biskups í þéssu
máli, í gær frá sér yfirlýsingu vegna
þessa máls. í henni segir: „Við und-
irrituð staðfestum og getum vottað
að Sigrún Pálína Ingvarsdóttir ásamt
sambýlismanni sínum, átti langt við-
tal við séra Flóka Kristinsson á skrif-
stofu hans hinn 9. janúar 1996.“
Vegna þessarar yfirlýsingar sendi
Sigrún Pálína Ingvarsdóttir frá sér
yfirlýsingu. í henni segir: „Það er
með ólíkindum hvaða aðferðum er
beitt til að fela sannleikann um ásak-
anir þær sem á biskup eru bornar.
Á fundí mínum með séra Flóka Krist-
inssyni var eingöngu fjallað um mál
það sem ein kvennanna bar á biskup
að hefði gerst á matsölustað í Kaup-
mannahöfn og var það gert til að
styðja hennar frásögn. Sú kona er
sóknarbarn séra Flóka og vildi að
hann þekkti sögu sína þar sem hann
ætti að ferma son hennar nú í vor.
Er þetta í eina skiptið sem ég og
unnusti minn höfum hitt séra Flóka.
Aðdróttanir Jóns Stefánssonar, org-
anista í Langholtskirkju, og Guð-
mundar Pálssonar, formanns sókríar-
nefndar í sömu kirkju, um að séra
Flóki standi að einhveiju leyti á bak
við þessar ásakanir á hendur biskupi
eru með öllu siðlausar og ósannar."
Siðanefnd var kunnugt
um fundinn
Séra Úlfar Guðmundsson, formað-
ur siðanefndar, sagði að siðanefnd
hefði verið kunnugt um þennan fund
Sigrúnar Pálínu og séra Flóka. Sr.
Flóki hefði staðfastlega mótmælt því
að hann ætti þátt í áburði kvennanna
á biskup. Nefndin hefði ekkert í
höndunum sem sannaði annað en að
Flóki færi með rétt mál.
Úlfar sagði að Sigrún Pálína hefði
gefíð siðanefnd Prestafélagsins þá
skýringu á því hvers vegna hún
kæmi fram með þetta mál núna, að
sr. Vigfús Þór Árnason hefði í fjöl-
miðlum lýst yfír opinberum stuðningi
við biskupinn. Hún hefði sagt að
henni hefði verið misboðið þar sem
sr. Vigfús Þór hefði búið yfir vitn-
eskju um þær sakir sem á biskup
væru bornar.
Sigrún Pálína sagði í samtali við
Morgunblaðið að hún hefði í sam-
tölum við siðanefnd Prestafélagsins
vegna máls síns gegn séra Vigfúsi
Þór Árnasyni greint nefndinni frá
fundi sínum og séra Flóka 9. janúar
sl. Hún sagðist ennfremur hafa hitt
Jón Stefánsson og Guðmund Pálsson
fyrir utan kirkjuna eftir fundinn og
heilsað þeim, enda væru þeir sér vel
kunnugir. Þessi fundur hefði ekki
farið leynt, enda engu að leyna.
Morgunblaðið hefur heimildir fyrir
því að séra Karl Sigurbjörnsson og
séra Hjálmar Jónsson hafí reynt að
koma á sáttum milli Sigrúnar Pálínu
Ingvarsdóttur og biskups. Þeir munu
einnig hafa átt fund með konunni
sem dró mál sitt gegn biskupi til
baka í fyrradag.
Systkini einnar kvennanna
kannast ekki við meinta áreitni
Síðdegis í gær sendu AP-lögmenn
frá sér bréf sem bróðir konunnar,
sem ásakað hefur biskup um kyn-
ferðislégá áteitni við sig á sundnátn-
skeiði á Laugum í Reykjadal, skrif-
aði biskupi Islands í fyrradag.
í bréfinu segir: „Svo sem þér mun
kunnugt, [er ég] bróðir einnar þeirra
þriggja kvenna sem að undanfömu
hafa haft uppi klögumál á hendur
þér. Þegar ég heyrði frásögn hennar
nú nýverið, spurðist ég fyrir meðal
skyldmenna okkar og meðal annarra
þeirra sem mér gat til hugar komið
að gætu staðfest þennan framburð
eða að líklegt væri að móðir okkar
hefði leitað til að fá upplýst „hver
hann væri þessi æskulýðsprestur .
Rekur engan minni til að hafa nokkru
sinni heyrt þetta mál nefnt fyrr en
nú. Ég hef alið nánast allan minn
aldur í foreldrahúsum og í sainbýh
með þeim og tel fráleitt að mér hefði
ekki borist til eyma ávæningur at
þessum atburðum, verið frá þeim
sagt, eða að þeir hefðu yfirleitt verið
látnir liggja í láginni, ef þeir hetðu
raunverulega átt sér stað.
Að þessu athuguðu og með hhð-
sjón af ýmsum aðstæðum systui
minnar, svo sem ég þekki þær, er
ég fullkomlega sannfærður um að
þessi frásögn sé með öllu tilhælu-
laus. Ég harma mjög að fjölskylda
mín skuli nefnd til mála af þessum
toga og með þessum hætti. Þvi þotti
mér óhjákvæmilegt að gera þér þessa
grein fyrir áliti mínu.“
Sem kunnugt er hefur systir kon-
unnar lýst því yfir að hún hafi enga
vitneskju um málið og það hafi aldr-
ei verið rætt á æskuheimili hennar.