Morgunblaðið - 07.03.1996, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ
LAIMDIÐ
FIMMTUDAGUR 7. MARZ 1996 13
Morgunblaðið/Egill Egilsson
MENN létii líða úr sér í heita pottinum eftir vatnsleikfimina.
Vatnsleikfimi fyrir alla
Flateyri - Fyrir skemmstu hafði
fréttaritari spurnir af því að í
sundlaug Flateyrarhrepps færu
fram hinar undarlegustu athafnir
í formi æfinga sem í rauninni
minntu á leikfimi í fljótandi
formi. Þetta reyndist rétt þegar
betur var að gáð, hér var um að
ræða vatnsleikfimi undir dyggri
stjórn og handleiðslu Sigrúnar
Gerðu Gísladóttur hjúkrunar-
fræðings.
Sigrún Gerða lærði vatnsleik-
fimi á sinum tíma af Irisi Grön-
feld íþróttakennara og einnig hjá
Grensásdeildinni. Að hennar
sögn er vatnsleikfimi heppileg
því að vatnið hjálpar fólki að
hreyfa sig meira um leið og mót-
spyrna og uppstreymi í vatninu
styrkir viðkomandi í æfingunum.
Sigrún Gerða segist byggja þetta
upp á upphitunum, teygjuæfing-
um og erfiðum æfingum sem ekki
er hægt að stunda í leikfimisal.
Þetta sé mjög góð æfing því að
maður geti erfiðað meira án þess
að blóðþrýstingurinn hækki. Sig-
rún Gerða vildi meina að þetta
væri leikfimi fyrir alla, ekki ein-
göngu eldra fólk, því að hér væri
um að ræða þrekleikfimi, og um
leið væri þetta forvarnastarf því
þetta losaði um streitu og aðra
kvilla. Leikfimistimana hjá henni
sækti fólk úr nálægum fjörðum,
Onundarfirði og víðar. Að lokum
skellti hópurinn sér í heita pott-
inn og slakaði ærlega á eftir þess-
ar æfingar.
Sameig’inlegl vinstra framboð á Vestfjörðum
Alþýðuflokksmenn
draga sig til baka
ísafirði - Aiþýðuflokksmenn í vænt-
anlegu sameinuðu sveitarfélagi á
norðanverðum Vestfjörðum ákváðu
á fundi sínum á sunnudag að hætta
frekari viðræðum um sameiginlegt
framboð félagshyggjuflokkanna fyr-
ir komandi sveitarstjórnarkosningar,
og hefur stefnan verið tekin á sér-
framboð flokksins. Þeir sem eftir eru
í viðræðunum, þ.e. Alþýðubandalag-
ið, Kvennalistinn og óháðir, hafa
ákveðið að halda viðræðum áfram
og bendir því allt tii að a.m.k. fjórir
iistar verði í kjöri hinn 11. maí nk.
„Eg verð að gangast við því að
við séum hættir frekari viðræðum.
Ástæðurnar eru þær að eftir að
framsóknarmenn og Pétur Bjarna-
son fóru út, voru allar forsendur
breyttar og því ekki lengur grund-
völlur fyrir að mynda nýjan meiri-
hluta fyrirfram. Annað atriðið er
að lokakrafa hinna aðilanna um
uppröðun á lista var að okkar mati
óaðgengileg, þ.e. ,að fyrsti maður
Alþýðuflokksins yrði í þriðja sæti
listans og annar maður okkar í
fimmta sæti. Það gátum við ekki
sætt okkur við,“ sagði Björn Haf-
berg, einn fulitrúa Alþýðuflokksins
í viðræðunum.
„Þriðja atriðið sem við gátum
ekki sætt okkur við var í raun ítrek-
un á öðru atriðinu. Við gátum ekki
sætt okkur við þá kröfu hinna aðil-
anna að Sigurði Ólafssyni, formanni
Sjómannafélags ísfirðinga, yrði ekki
stillt upp í forystusæti á þessum
sameiginlega lista. Afskipti þeirra
af vali okkar á Sigurði gefa ekki
fyrirheit um nógu gott samstarf í
væntanlegri bæjarstjórn og því er
ekki um annað að ræða en að hætta
frekari viðræðum og fara að vinna
að eigin framboði okkar flokks,“
sagði Björn.
Björn Hafberg hefur unnið einna
mest að framangreindu framboði
og hefur verið talinn arkitektinn að
sameiginlegu framboði félags-
hyggjumanna. Eru það honum ekki
mikil vonbrigði að svona skuli nú
vera komið?
„Jú, auðvitað eru það mikil von-
brigði fyrir okkur sem teljum okkur
vera félagshyggjufólk að standa
frammi fyrir þessu. Þetta er eigin-
lega skipbrot og öll sundrung hjá
okkur styrkir tvímælalaust mótheij-
ana,“ sagði Björn. Samkvæmt upp-
lýsingum blaðsins var ráðgert að
Smári Haraldsson og Jóna Valgerð-
ur Kristjánsdóttir skipuðu tvö efstu
sæti listans, Sigurður Ólafsson yrði
í því þriðja, Bergur Torfason á Felli
í Mýrahreppi í fjórða, Björn Hafberg
í fimmta og Lilja Rafney Magnús-
dóttir í því sjötta.
Fiskar á þurru landi á
Kirkjubæjarklaustri
LEIKDEILD UMF Ármanns á
Kirkjubæjarklausty frumsýnir
föstudaginn 8. mars leikritið Fiskar
á þurru landi eftir Árna Ibsen í Fé-
lagsheimilinu Kirkjuhvoli.
Verkið var frumflutt á Alþjóðiegri
listahátíð í Hafnarfirði 1993. Leik-
endur eru aðeins fjórir og er leik-
stjóri Þröstur Guðbjartsson. Alls
taka um 16 manns þátt í þessari
uppfærslu. Leikritið er „spaugilegur
ólíkindagamanleikur".
Um þessar mundir eru 30 ár síðan
leikfélagið Loftur var stofnað á
Kirkjubæjarklaustri. Fyrsta verkefni
þess var Galdra-Loftur en nokkrum
árum seinna sameinaðist leikfélagið
Loftur ungmennafélaginu Ármanni.
Fyrirhugaðar eru sýningar á verk-
inu að Skógum, Gunnarshólma, í
Bæjarbiói í Hafnarfirði, Vík í Mýr-
dal og Hofgarði í Öræfum. Lokasýn-
ing verður svo í Kirkjuhvoli þann
6. apríl.
AUKIÐ FRAMBOÐ, KALLAR Á LÆGRA VERÐ.
ÞETTA ERU LÖGMÁL MARKAÐARINS.
ÞESS VEGNA BÝÐST ÞÉR SVÍNAKJÖT
Á KYNNINGARAFSLÆTTI ÚT MARS.
NOTAÐU TÆKIFÆRIÐ OG KAUPTU
SVÍNAKJÖT Á BETRA VERÐI.
V
- svínvirkar á budduna!