Morgunblaðið - 07.03.1996, Síða 18

Morgunblaðið - 07.03.1996, Síða 18
18 FIMMTUDAGUR 7. MARZ 1996 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Línur skýrast í forkosningunum í Bandaríkjunum „Tilnefning Doles virð- ist óhjákvæmileg“ Washington. Reuter. BOB Dole, leiðtogi meirihluta repú- blikana í öldungadeild Bandaríkja- þings, fór langt með að tryggja sér tilnefningu flokks síns sem forseta- efni hans þegar hann sigraði í for- kosningum í átta ríkjum á þriðjudag og sagði hægri sinnaði sjónvarps- maðurinn Pat Buchanan að sigur Doles virtist „óhjákvæmilegur". Dole sigraði í Colorado, Georgíu, Maryland og fimm ríkjum Nýja Englands, Connecticut, Maine, Massachusetts, Rhode Island og Vermont. Hann hefur nú 276 full- trúa, en þarf 996 til að verða til- nefndur á flokksþingi repúblikana í San Diego í sumar. Næstur kemur Steve Forbes, auðkýfíngur og útgef- andi, með 60 fulltrúa og þá Pat Buchanan með 37 fulltrúa. Dole sigurviss „Dole, Dole, ’96,“ kyrjuðu sam- heijar Doles á sigurfundi í Wash- ington á þriðjudagskvöld og frambjóðandinn brosti út að eyr- um. Dole var kokhraustur á fund- inum: „í kvöld höfum við sýnt fram á að sérfræðingarnir höfðu rangt fyrir sér. í kvöld höfum við sýnt fram á að Repúblikana- flokkurinn er ekki að liðast í sundur heldur ná saman. Brátt munum við sameinast til að ná einu markmiði og það er að sigra Bill Clinton í nóvember 1996.“ Fréttaskýrendur héldu því fram fyrir viku að kosningaherferð Doles væri að fara úr böndunum, en nú hefur dæmið snúist við. Hægri sinnaði sjónvarpsmaður- inn Pat Buchanan kvaðst þó ekki af baki dottinn. Hann sagðisf*ætla að halda áfram að etja kappi við Dole, þótt hann teldi að öldunga- deildarþingmaðurinn frá Kansas yrði fulltrúi repúblikana í baráttunni Pat Buchanan hyggst ekki láta staðar numið þótt á móti blási Reuter BOB Dole öldungadeildarþingmaður fagnar sigri í forkosningum í átta ríkjum á þriðjudagskvöld. Honum á vinstri hönd er Alp- honse D’Amato, öldungadeildarþingmaður frá New York. gegn Bill Clinton í forsetakosning- unum 5. nóvember. „Tilnefning Doles öldungadeild- arþingmanns virðist óhjákvæmileg," sagði Buchanan í morgunþætti sjón- varpsstöðvarinnar NBC í gær. Dole fékk rúmlega 50% atkvæða í Connecticut og Maryland og 67% í Rhode Island, þar sem Buchanan og auðkýfíngurinn Steve Forbes voru ekki í framboði. Dole fékk minnst 40% fylgi í Georgíu. Buchan- an fékk flest atkvæði í Georgíu, 31%, og var alls staðar í öðru sæti nema í Connecticut, þar sem Forbes hafði betur. Forbes tókst hins vegar hvergi að komast yfir 20% múrinn. Andstæðingum fækkar Annar frambjóðandi, sem ekki hefur náð miklum árangri til þessa, Alan Keyes, hygg^t halda ótrauður áfram, en tveir aðrir, þeir Robert Doman, þingmaður úr fulltrúadeild Bandaríkjaþings, og kaupsýslumað- urinn Morry Taylor virðast hafa dregið sig út úr kosningabaráttunni án þess að tilkynna það. Buchanan segir nú að barátta sín snúist um að ná völdum í kepúblik- anaflokknum úr höndum auðmanna og fyrirtækja og færa í hendur bandarískri millistétt. „Ég vil breyttan Repbúblikanaflokk," sagði Buchanan. „Við verðum á flokks- þinginu í San Diego.“ Gengið verður til forkosninga í New York-ríki í dag. Samkvæmt skoðanakönnunum hefur Dole nú aukið fylgi sitt þar og er með 48,4%, en Forbes 18,7% og Buchanan 15,3%. Aðeins Dole og Forbes eru á blaði alls staðar í New York og hefur Buchanan haldið því fram að flóknar framboðsreglur þar hafi verið sérhannaðar til að hygla Dole. Mótmæla t •' 'í- tilraunum Kínverja STUÐNINGSMENN Græna- flokksins á Tævan mótmæltu í gær fyrirhuguðum eld- flaugatilraunum Kínverja á hafsvæði við eyna. Mótmælin fóru fram við byggingu varn- armálaráðuneytisins í Tæpei. Reuter Vísindamenn að einrækta sauðfé London. Reuter. BRESKIR vísindamenn greindu frá því í gær að þeim hefði með byltingarkenndri tækni tekist að einrækta sauðfé í fyrsta skipti. Segja þeir að þessi uppgötvun geti haft gífurleg áhrif á gripa- rækt. ; Með aðferð vísindamannanna er hægt að framleiða einstakl- inga sem eru eins að öllu leyti sem sagt er geta komið að góðum notum við kjöt- og mjólkurfram- leiðslu. Þetta er í fyrsta skipti sem aðferð af þessu tagi er beitt í spendýrarækt, en hún byggist á því að ræktaðar frumur eru færðar yfir í ófijóvgað egg. Ian Wilmut, fósturfræðingur við Edinborgarháskóla, sagði að þessi tækni gæti nýst vel við kjöt- framleiðslu. „Það er bændum í hag að hafa samleitan hóp dýra. Þau ná sláturþroska á sama tíma og einnig er hagkvæmara fyrir sláturhúsin að dýrin séu öll jafn- stór,“ sagði Wilmut. Wilmut og félagar hans við Edinborgarháskóla ræktuðu frumur úr lambsfóstri og fjar- lægðu erfðastofna, þar með talið litninga, úr ófijóvguðum eggjum. Frumunum var síðan komið fyrir 1 eggjunum með rafstraumi. „Það sem sæði gerir venjulega við fijóvgun er að bæta við þeim helming litninganna sem skortir og koma af stað vexti. Rafstraum- urinn festir frumuna við ófijóvg- aða eggið og kemur jafnframt vexti af stað,“ sagði Wilmut. Egginu er síðan komið fyrir i sauðkind, sem hefur verið búin undir sauðburð með hormónag- jöf. I grein í tímantinu Natuve segja vísindamennirnir að fimm velsk fjallalömb hafi verið borin eftir fijóvgun af þessu tagi en einungis tvö lifað lengur en tíu daga. Rannsóknir staðfestu að einrækt hefði í raun átt sér stað. Þúsundir einstaklinga Wilmut sagði að þegar aðferðin hefði verið þróuð frekar í fram- tiðinni yrði hugsanlega hægt að framleiða þúsundir einræktaðra einstaklinga í einu. David Solter við Max Planck- stofnunina í Freiburg fagnaði þessum áfanga í grein sem hann ritar í sama hefti Nature. Auk þess að vera líffræðilega mjög áhugaverður opni þessi árangur möguleika á því að eiga við erfða- bera fyrir klónun. Slíkt geti haft mikil áhrif á framþróun líftækni. Trevor Nunn Nunn tek- ur við þjóð- leikhúsi TREVOR Nunn var í gær ráð- inn þjóðleikhússtjóri í Bret- landi. Hann tekur þó ekki við starfi fyrr en á næsta ári er Richard Eyre dregur sig í hlé eftir níu ára starf. Nunn varð milljónamæringur á að setja upp ýmsa söngleiki, m.a. Cats og Les Miserables, eða Vesal- ingana. Hann var um tíma stjórnandi konunglega Sha- kespeare-leikhússins. Nunn er 56 ára og er ráðinn að þjóðleik- húsinu til fimm ára. Aðeins óspjallaðar fá inngöngn INDÓNESÍSK stjórnvöld hafa sett það sem skilyrði fyrir því að konur fái inngöngu í her landsins og lögreglusveitir, að þær geti sýnt fram á að þær séu óspjallaðar. Deng við góða heilsu? BRESKA lögreglan hefur fundið, að því að talið er, eina stærstu fíkniefnaverksmiðju Evrópu á sveitasetri í Norfolk. Afkastageta hennar var sex tonn af fíkniefnum á viku, þ. á m. 600 kíló af hreinu af- metamíni. Sprengjaítil- raunaskyni BANDARÍSKIR leyniþjón- ustumenn hafa komist yfír óyggjandi upplýsingar um, að Pakistanar muni gera sína fyrstu tilraun með kjarnorku- sprengju láti Indveijar verða af samskonar tilraun á næstu mánuðum, að sögn bandaríska blaðsins Wasliington Post. DENG Xiaoping, arkitekt efnahagsumbótanna í Kína, er við góða lík- amlega og andlega heilsu, að sögn dóttur hans, Xiao Rong. Um- mæli henn- ar stangast á við aðrar fregnir að undanförnu um versnandi heilsu Dengs. Hún sagði að þó svo hann sæti ekki yfir- standandi þing Kommúnista- flokksins sýndi hann störfum þess mikinn áhuga. Finna fíkni- Deng efnaverk- smiðju

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.