Morgunblaðið - 07.03.1996, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 7. MARZ 1996 19
LISTIR
I aldanna eldi
reynslunnar
TONUST
Borgarlcikhúsid
SAMSÖNGUR
Hanna Dóra Sturludóttir, Ingveldur
Ýr Jónsdóttir, Gunnar Guðbjörnsson,
og Sigurður Skagfjöró Steingríms-
son sungu aríur og samsöngsatriði
úr óperum eftir Mozart, Beethoven,
Massenet, Bizet, Gounod, Donizetti,
Puccini, Tsjaikovskij og Verdi.Sam-
leikari var Jónas Ingimundarson og
kynnir Kristinn Hallsson. Þriðjudag-
urinn 5. mars, 1996.
ÞETTA var mikil söngveisla, þar
sem ungir söngvarar lögðu með sér
sitt lítið af hverju úr því mikla safni
er kallast einu nafni óperutónmennt
Evrópu og hófu þau tónleikana á
kvartett úr Fidelio eftir Beethoven.
Þessi fallegi kvartett er í kanonformi
og var hann sérlega fallega fluttur.
Næst komu þijú atriði úr Cosi fan
tutte, eftir Mozart og var það Hanna
Dóra er söng Come scogíio, en hún
hefur nýlokið námi erlendis, er um
það að heíja störf við óperuhús í
Þýskalandi og lofar söngur hennar
góðu, að þar sé á ferðinni vel kunn-
andi og efnileg söngkona.Ingveldur
Ýr kom til liðs við Hönnu Dóru og
sungu þær dúettinn Prendero quel
brunetto en Ingveldur starfar við
óperuna í Lyon. Dúettinn var fallega
fluttur og sama má segja um tríóið
Soave sia il vento en þá bættist í
hópinn Sigurður S. Steingrímsson
og þar með lauk hlut Mozarts í þess-
ari veislu.
Síðustu viðfangsefnin fyrir hlé
voru úr óperunni Werther, eftir
Massenet og þar fóru á kostum
Ingveldur Ýr og Gunnar Guðbjöms-
son en þó alveg sérstaklega í dúett-
inum. Eftir hlé sungu Gunnar og
Sigurður dúett úr ópemnni Perlu-
kafamir, eftir Bizet og þá tók
Hanna Dóra við og söng gimsteina-
aríuna, Ah, je ris de me voir, úr
Faust eftir Gounod, er hún söng
sérlega vel. Una furtiva lagrima,
úr Ástardrykknum, eftir Donizetti,
er líklega ein frægasta bel-canto
aría allra tíma og þessa ljúfu tón-
list söng Gunnar af gíæsibrag.
Dúett félaganna úr La bohéme, eft-
ir Puccini var fallega flutt af Gunn-
ari og Sigurði og sama má segja
um aríu úr Eugen Onegin, eftir
Tsjaikovskij, er Sigurður söng mjög
vel, við íslenska þýðingu Þorsteins
Gylfasonar. Hanna Dóra og Gunnar
sungu Parigi o cara, úr La traviata,
eftir Verdi með þeim innileik og
ástúð sem er aðalmerki lokaþáttar
þessarar um margt sérstæðu ópera
Verdis. Ingveldur Ýr söng „Haban-
erana" eftir Bizet og þar var margt
vel gert, bæði er varðar söng og
leik. Tónleikunum lauk með glæsi-
legum söng félaganna í kvartettin-
um fræga, Un di, si ben Rammert-
omi, úr Rigoletto eftir Verdi.
Eins og fyrr segir var þetta mik-
il söngveisla og var frammistaða
söngvaranna í einu orði sagt glæsi-
leg og þrátt fyrir sérstæðar radd-
gerðir, var samsöngur þeirra sér-
lega vel samstæður, hvort sem um
var að ræða einsöng, dúetta, tríó
eða kvartetta. Hanna Dóra Sturlu-
dóttir er efnileg söngkona og tekur
sér stöðu með bestu söngvuram
okkar. Mestu reynsluna hefur
Gunnar Guðbjörnsson, enda má
merkja, að hann hefur mikið þrosk-
ast í túlkun tilfmninga. Yngveldur
Ýr Jónsdóttir heldur í við Gunnar
og er leikræn túlkun hennar sér-
grein. Sigurður Skagflörð Stein-
grímsson þarf að hleypa heimdrag-
anum og takast á við heiminn, því
þar skírast menn í aldanna eldi
reynslunnar, eins og félagar hans
á þessum tónleikum hafa gert. Þrátt
fyrir glæsilega frammistöðu allra,
er þó mikilvægt að hafa í huga, að
enn eiga þessir listamenn eftir að
þroskast í list sinni og bæta miklu
við það sem þegar hefur áunnist.
Svona „gala“ tónleika mætti
halda oftar, því þá er hægt að koma
víða við í óperabókmenntunum og
bjóða upp á margbreytilegan söng,
bæði glæsileg einsöngs- og sam-
söngsatriði, til mannbætandi upp-
rifjunar fyrir hlustendur.
Jónas Ingimundarson píanóleik-
ari stóð sína vakt við flygilinn og
var þar eigi til kotungssætis vísað
en á milli söngatriða kynnti Kristinn
Hallsson bæði söngvara og rakti
stuttlega efni óperaverkanna, hvar
í verkinu viðkomandi söngatriði átti
heima og skóp með í raun þá sam-
heldni er einkenndi tónleikana í
heild.
Jón Ásgeirsson
Málverkauppboð
á Hótel Sögu
MYND eftir færeyska málarann SJ. Mikines
verður boðin upp á málverkauppboðinu á Sðgu.
GALLERÍ Borg
heldur mál-
verkauppboð á
Hótel Sögu
sunnudaginn
10. mars kl.
20.30.
Boðin verða
um 80 verk, nær
öll eftir gömlu
meistarana. Má
þar nefnatiu
verk eftir J.S.
Kjarval, þijú
eftir Jón Stef-
ánsson, tvömál-
verk eftir Ás-
grím Jónsson, stórt málverk eftir
Jóhann Briem, lítið olíuverk frá
1901 eftir Þórarin B. Þorláksson,
verk eftir Gunnlaug Blöndal, Jón
Engilberts, Nínu Tryggvadóttur,
Finn Jónsson, Freymóð Jóhann-
esson, Gunnlaug Scheving, Svav-
ar Guðnason, Júlíönu Sveinsdótt-
ur, Sverri Haraldsson og Ágúst
Petersen. Af yngri liöfundum
má nefna Erró, Hring Jóhannes-
son, Karólínu Lárusdóttur, Tolla
og Tryggva Ólafsson.
Þá verður boðin upp mynd
eftir hinn þekkta færeyska mál-
ara S.J. Mikines, stórt olíuverk
sem sýnir grindardráp. Einnig
verður boðin upp blýantsteikning
frá árinu 1891 eftir Jón Helgason
biskup, myndin sýnir kirkjuna á
Eyrarbakka og er gerð eftir ijós-
mynd frú Lefoli, kaupmannsfrú-
ar á Eyrarbakka.
Sýning uppboðsverka stendur
ylir daglega frá kl. 12-18 alla
daga fram að uppboði.
Nú er upplagt
að fá sér miða
og vera með
á föstudag
Mundu...
...að skila afrifunni af Happ í Hendi
miðanum á næsta sölustað ef þú
færð þrjú merki Sjónvarpsins.
Þá áttu möguleika á fjölda vinninga
í þættinum hjá Hemma og hver
veit nema þú takir þátt í risaskafinu
og vinnir
milljón króna.
Fylgstu með Happ í Hendi leiknum
á Rás 2 alla virka daga milli kl. 11 og 12
Þar áttu líka kost á vinningum.
liilli;
Mapp i Henai ýatst i jjoppu
og á bensínstóóvum um lanó alit.
Skafðu fyrst og horfðu svo!