Morgunblaðið - 07.03.1996, Page 22
22 FIMMTUDAGUR 7. MARZ 1996
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Um fjarveru
viðfang'sefnisins
KRISTINN E. Hrafnsson opnar sýningu á skúlptúrum
og lágmyndum í Galleríi Ingólfsstræti 8 í dag. Krist-
inn sagði í samtali við Morgunblaðið að á sýningunni
væru einungis ný verk sem hann hefði verið að vinna
að undanfarið. „Þessi verk eru hvort tveggja í senn
róttæk breyting og beint framhaid af því sem ég hef
verið að gera undanfarin ár.“
Kristinn segir verkin vera náttúrutengd eins og
fyrri verk sín. „En ég er búinn að færa mig yfir á
dálítið önnur svið. Ég er ekki að vinna beint með
náttúruna heldur með þau öfl sem móta hlutina og þá
á ég við rýmistengda hluti eins og umbúðir. Ég tek
tómar umbúðir, svo sem kassa utan um tölvur, og
fylli af einhverju öðru. Þannig verða tómar umbúðim-
ar að hinu mótandi afli; umbúðirnar móta. Verkin fjalla
þannig í raun um fjarveru viðfangsefnisins, vélanna
í þessu tilfelli."
Lágmyndimar á sýningunni segir Kristinn að séu
sandblásnar teikningar í granít. „Þær fjalla um nátt-
úruöflin sem móta línuna, svo sem ströndina og árfar-
veginn. Hér em það sem sagt fjöllin og náttúran sem
móta yfirborð vatnsins eða árinnar.
Bæði skúlptúrarnir og lágmyndirnar fjalla því um
sama hlutinn, bara á yfirfærðan hátt. Það er eitt-
hvert utanaðkomandi afl sem mótar þá og gefur þeim
sitt endanlega form; umbúðirnar eru mótaðar af ein-
hverju praktísku gildi eða rými, en þegar hluturinn
er fjarlægður úr þeim má velta því fyrir sér hvað
verði um hið raunverulega rými og hvað hvað verði
um merkingu þess. Ég prófa að fylla það aftur ein-
hverri nýrri merkingu.11
Sýningin stendur til 28. mars.
Morgunblaðið/Sverrir
KRISTINN E. Hrafnsson
Feigðarflan
fyrirsætunnar
KVIKMYNPIR
Bíóborgin / Bíóhöllin
„FAIR GAME" ★
Leikstjóri: Andrew Sipes. Framleið-
andi: Joei Silver. Aðalhlutverk: Cindy
Crawford, William Baldwin, Steven
Berkoff. Wamer Bros. 1995.
FYRSTA bíómyndin sem ofur-
fyrirsætan Sindí Crawford leikur í
sannar a.m.k. einn hlut. Sindí er
ekki leikkona. Hún er ekki einu sinni
efni í leikkonu. Hún getur kallað
það lán í óláni að hún kaus að byija
leikferil sinn í hasarmynd frá Holly-
woodframleiðandanum Joel Silver.
í myndum hans þarftu miklu fremur
að geta hlaupið sannfærandi undan
sprengi- og kúlnaregni en leikið.
Það litla sem þarf af leikhæfileikum
er Sindí þó um megn. Hún á ekki
í neinum vandræðum með að setja
sig í stellingar. Þar nýtur hún ára-
langrar þjálfunar í sviðsframkomu.
En um leið og hún þarf að setja sig
í stellingar og segja eitthvað fer
giæsiieikinn af henni. Það má kenna
handritinu að vissu leyti um pínleg-
an leik Sindíar. Gáfulegustu sam-
ræður í Silvermyndum eru einhvem
veginn á þessa lund (án allra fokk-
orðanna):
-Ég skal sprengja þig í tætlur,
bannsettur þijóturinn þinn.
-Reyndu það ef þú þorir, auming-
inn þinn.
Þannig má segja Sindí til vor-
kunnar að handritið býður ekki uppá
mikil tilþrif vilji hún á annað borð
sýna hvað í henni býr. Og það þolir
ekki mikla nærskoðun. I myndinni
þarf Sindí að fást við mestu úrvals-
sveit hryðjuverkamanna í heiminum
sem búin er nýtísku vopna- og tölvu-
búnaði en ég hætti að teija þegar
ég var kominn upp í sjö misheppnað-
ar tilraunir sveitarinnar til að ráða
Sindí af dögum. Bara að alvöru
skæruliðar væru jafn einstaklega
miklir hálfvitar. Sindí hefur sér til
halds og trausts lögreglumann sem
William Baldwin leikur. Nægir að
segja um samleik þeirra að hann
er með eindæmum plebbalegur þeg-
ar hann á að vera hvað svalastur.
Sem tryllir er „Fair Game“ hin
ómerkilegasta formúluhasarmynd.
Hún er gersamlega laus við frum-
leika en er samansett úr gömlum
og þrautreyndum hugmyndum, sem
maður hélt jafnvel að væri ekki
hægt að útjaska öllu lengur. Hasar-
inn er víða mjög vel sviðsettur enda
kostaði myndin engan smápening
eða um 40 milljónir dollara. Það er
dýrasta tískusýning sem ég hef
heyrt um.
Arnaldur Indriðason
Garnhúsið, Suðurlandsbraut 52
v/Fákafen (bláu húsin),sími 568 8235.
NÝTT - NÝTT VOR
'Statt fan'fáta&tají
15% kynningarafsláttur af nýjum tegundum.
Merinoull - silki, angóra, mohair, viskose.... meiriháttar.
Fermingabama-
mótið í Aratungu
LEIKDEILD Ungmennafélags
Biskupstungna frumsýnir leikritið
Fermingabarnamótið í Aratungu
föstudagskvöldið 8. mars kl. 21.
Leikritið er eftir þau Ármann
Guðmundsson, Áma Hjartarson,
Hjördísi Hjartardóttur, Ingibjörgu
Hjartardóttur, Sigrúnu Óskarsdótt-
ur, Sævar Sigurgeirsson sog Þor-
geir Tryggvason, sem öll eru í
áhugaleikfélaginu Hugleik í Reykja-
vík og frumflutt var vorið 1992 í
Reykjavík.
Þetta er verk með léttum söngum
og dönsum.
Leikstjóri er Jón Stefán Kristjáns-
son en um tónlist sjá þeir Hilmar
Öm Agnarsson og Hjörtur Hjartar-
son.
í kynningu segir:
„Ungmennafélag Biskupstungna
var stofnað árið 1908 og talið er
að fyrsta verkið, Gamli-Toggi, hafí
verið sýnt árið 1910 og það hafí
Sumarliði Grímsson á Torfastöðum
samið upp úr danskri smásögu, og
eftir það voru sett á svið ýmis verk,
t.d. 1915-1916 Syndir annarra eft-
ir Einar Kvaran, 1917 voru settir
upp kaflar úr Nýársnótt eftir Indriða
Einarsson og 1923-1924 var sjón-
leikurinn Tengdamamma settur upþ.
Á þessum árum voru leikrit sýnt í
ýmsum húsum, gamla þinghúsinu á
Vatnsleysu og í heimahúsum.
Árið 1927 var Syndir annarra
sýnt í nýju samkomuhúsi félagsins
á Vatnsleysu og þá hafa aðstæður
batnað til muna hjá þessu áhuga-
sömu fólki.
Árið 1961 var félagsheimilið Ara-
tunga tekið í notkun og fyrsta verk-
ið sem sýnt var þar var Lénharður
fógeti eftir Einar Kvaran. Með til-
komu Aratungu batnaði öil aðstaða
til muna og auðveldara var að sýna
stærri verk.“
Þetta ér þriðja verk eftir Hug-
leikshópinn sem Ungmennafélagið
setur upp.
Onnur sýning verður í Aratungu
10. mars kl. 21.
Sýning Evu
og Ernu
framlengd
ÁÐUR auglýst málverkasýning
Evu G. Sigurðardóttur og Ernu
G. Sigurðardóttur í Listhúsi
Ófeigs, Skólavörðustíg 5, er fram-
lengd um eina viku og lýkur henni
laugardaginn 16. mars.
Sýningin er opin á almennum
verslunartíma, lokuð á sunnudög-
um.
----♦-------
Málverka-
sýning á
Café Oskar
S’YNING á málverkum Ástu Gústu
Halldórsdóttur á Café Oskar í
miðbæ Hafnarfjarðar hefur verið
opnuð. Ásta Gústa sýnir 16 olíu-
málverk. Sýningin stendur út
mars.