Morgunblaðið - 07.03.1996, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 7. MARZ 1996 35
MINNINGAR
á besta veg alltaf fyrir hendi. Því
var það reiðarslag og vonbrigði þeg-
ar fregnin af láti hans barst okkur
til eyrna. í grein sem þessari er reynt
að varpa ljósi á nokkur minninga-
brot. Þó er ljóst að það sem máli
skiptir er ósagt og verður kannski
aldrei sagt. Við hjónin vottum Her-
dísi og fjölskyldu Ámunda okkar
dýpstu samúð. Huggunarorðin eru
fá.
Ámunda þótti vænt um Borgar-
fjörðinn og var bundinn honum á
margan hátt. Því enda ég þessi skrif
á síðustu erindum kvæðisins Harmur
eftir Borgfirðinginn Sveinbjöm Bein-
teinsson:
Á meðan dægrin döpur litum breyta
og dimmir að í hugans þagnarborg
skal þreyttur andi lífs og vonar leita
í ljósi þess sem býr í dýpstu sorg.
Að harmsins boði horfna gleðistundin
við hljóða kyrrð í tómi sorgarlags
í nýrri mynd er minningunni bundin
og merkt í svip og línur þessa dags.
Snorri Bjarnason.
Kveðja frá Kiwanis-
klúbbnum Vífli
Allir menn eru félagsverur. Þess
vegna er þörfin á að koma á skipu-
lögðum félagsskap þar sem menn
koma saman til ánægju eða athafna
meðfædd og samofin tilveru okkar.
Vegna þessarar þarfar varð Kiwan-
ishreyfingin til. Hver félagi í klúbbi
setur mark sitt á klúbbinn og hefur
áhrif á hvernig hann mótast og þró-
ast. Nú stöndum við Vífilsfélagar
yfir moldum félaga okkar og minn-
ingarnar hrannast upp. Ámundi
Ámundason var svo sannarlega fé-
lagi sem setti jákvæðan og skemmti-
legan svip á klúbbinn okkar. Hann
tók þátt í fundarstörfum af krafti
og lét sér fátt óviðkomandi. í mál-
flutningi var hann hreinskiptinn og
heiðarlegur en undirtónninn var ætíð
ERFIDRYKKJUR
velvilji. Hann var duglegur og ötull
í fjáröflunum styrktarsjóðs, vann af
krafti við þau verkefni sem klúbbur-
inn fól honum og unni sér ekki hvíld-
ar fyrr en þau voru af hendi leyst.
Hann var hrókur alls fagnaðar á
ferðalögum og skemmtunum klúbbs-
ins. Greip þá gjarnan til harmoni-
kunnar og leyfði okkur félögum að
njóta kunnáttu sinnar og iistrænna
hæfileika.
Við félagar í klúbbnum minnumst
Ámunda félaga okkar með þakklæti,
söknuði og eftirsjá. Skarð er fyrir
skildi sem ekki verður fyllt. Á þess-
ari sorgarstundu er hugur okkar hjá
fjölskyldu Ámunda en hennar er
missirinn mestur. Við félagarnir vott-
um Herdísi og börnum Ámunda og
fjölskyldunni allri okkar dýpstu sam-
úð. Guð blessi minningu góðs drengs.
F.h. klúbbsins,
Ari H. Jónsson.
Með ótímabæru fráfalli Ámunda
Ámundasonar hefur Félag blikk-
smiðjueigenda misst einn sinn besta
félaga. Undir hans stjórn var Blikk-
smiðja Austurbæjar hf. ein virtasta
smiðja í faginu og eru fjölmörg verk
til vitnis um það. En Ámundi var
ekki einasta ágætur fagmaður heldur
góður félagsmaður, sem hrósaði því
sem vel var gert og benti hiklaust á
það sem betur mátti fara. Þannig
var hann eins konar samviska stétt-
arinnar, kom sér hiklaust að kjarna
hvers máls og lét hvorki laust né
fast fyrr en hann taldi að allt sem
máli skipti hefði komist til skila.
Lagði hann síðan sitt af mörkum til
þess að komast að sameiginlegri
niðurstöðu. Slíkir menn eru dýrmæt-
ir í öllu félagsstarfi, ekki síst ef það
starf snýst um að efla virta atvinnu-
grein og auka virðingu hennar.
Ámundi Ámundason var þvílíkur
maður og því er hans sárt saknað.
Félag biikksmiðjueigenda þakkar
honum starf hans fyrir blikkgreinina
og vottar aðstandendum hans dýpstu
samúð.
Félag blikksmiðjueigenda.
t
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem
sýndu okkur samúð, vináttu og hlýhug
við andlát og útför eiginkonu minnar,
móður okkar, tengdamóður og ömmu,
ÓLAFARBERNHARÐSDÓTTUR
frá Grafargili,
Vogatungu 11,
Kópavogi.
Guðmundur Hallgrímsson,
Hallgrímur A. Guðmundsson, Erla Friðleifsdóttir,
Garðar H. Guðmundsson, Gun Guðmundsson,
Aðalsteinn Snævar Guðmundsson, Hrönn Kristjánsdóttir,
Kristfn Salóme Guðmundsdóttir, Magnús Harðarson
og barnabörn.
Lokað
í dag milli kl. 12.30 og 16.00 vegna jarðarfarar
ÁMUNDAÁMUNDASONAR, blikksmíðameistara.
Fiskbúðin,
Sundlaugavegi 12.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
ÁGÚST H. PÉTURSSON
fyrrv. sveitarstjóri,
Patreksfirði,
Hjallabraut 33,
Hafnarfirði,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju
föstudaginn 8. mars kl. 15.00.
Ingveldur Magnúsdóttir,
Helgi Ágústsson, Hervör Jónasdóttir,
Hafsteinn Sigurðsson, Guðbjörg Gunnarsdóttir,
Emil Ágústsson, Bryndfs G. Jónsdóttir,
Ásgerður Ágústsdóttir, Guðmundur Bergsveinsson,
Ásthildur Ágústsdóttir, Gunnar Ragnarsson,
Magnús Friðriksson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
MARSIBIL BERNHARÐSDÓTTIR
kaupkona
frá Kirkjubóli,
Valþjófsdal,
verður jarðsungin frá Áskirkju föstudag-
inn 8. mars kl. 13.30.
Helga Hjörvar, Úlfur Hjörvar,
Birgir Hjaltalfn, Helga Sigurðardóttir,
Bernharð Hjaltalín,
Gerður Hjaltalín, Vilberg Sigtryggsson,
Torfi Hjaltalfn,
Anna Hjaltalín, Stefán Jósafatsson,
Stefán Hjaltalfn, Svanhvít Jakobsdóttir,
barnabörn og langömmubörn.
Lokað
Blikksmiða Austurbæjar verður lokuð í dag, fimmtu-
daginn 7. mars, frá kl. 12 vegna jarðarfarar
ÁMUNDA ÁMUNDASONAR, blikksmíðameistara.
Blikksmiðja Austurbæjar,
Borgartúni 25.
HAM>AUGL YSINGAR
Alvöru „bisness“
Til sölu í hjarta borgarinnar stórgóður veit-
ingastaður sem þrífst best á áfengissölu.
Til greina kemur að taka uppí lítinn veitinga-
stað.
Upplýsingar sendist á afgreiðslu Mbl., merkt-
ar: „Alvöru Bisness - 15422“, fyrir 12. mars.
FUNDIR - MANNFAGNAÐUR
Opið hús
Stangaveiðifélag Reykjavíkur heldur opið hús
á morgun, föstudaginn 8. mars, kl. 20.30 í
sal félagsins á Hálaeitisbraut.
Dagskrá:
1. Veiðileiðsögn um eina af perlum
Borgarfjarðar, Hítará.
Umsjón: Steinar Friðgeirsson.
2. Sérstök kynning á dorgveiði í umsjá
Óskars Pálssonar.
3. „Fluguráðgjafinn" verður á staðnum með
græjurnar, gefur góð ráð og aðstoðar þá
sem vilja.
4. Happdrætti.
Félagar fjölmennið og takið með ykkur gesti.
Góða skemmtun!
Nefndin.
Fundarboð
föstudaginn 8. mars kl. 12.00-13.30
Guðmundur Bjarnason,
umhverfisráðherra og
Aðalheiður Jóhannsdóttir,
framkvstjóri Náttúruverndarráðs
Nýskipan
Náttúruverndarmála
Hádegisfundur verður haldinn um nýskipan
náttúruverndarmála, en þar eru í undirbún-
ingi veigamiklar breytingar. Guðmundur
Bjarnason, umhverfisráðherra, og Aðalheið-
ur Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Náttúru-
verndarráðs, flytja erindi á fundinum, en að
þeim loknum svara þau spurningum.
Fundarstjóri verður Ólafur Örn Haraldsson,
alþingismaður.
Fundurinn verður í Skála (tengibygging) á
2. hæð á Hótel Sögu kl. 12.00-13.30. Borinn
verður fram hádegisverður á hóflegu verði.
Fundurinn er öllum opinn og vona ég að sjá
ykkur sem flest.
Bestu kveðjur.
Ólafur Örn Haraldsson.
TIIKYNNINGAR
TÆKI 06 BÚNAftUR í FMB
FMB, ný frceðslu- og þjónustumiöstöð fyrir bflgreinar, tekur til starfa
n.k. haust í nýju glœsilegu húsnceöi.
IFMB mun fara fram kennsla í iðn- og meistaranómi bifvélavirkja,
bifreiðasmiöa og bflamálara og að auki eftirmenntun og stuttar
starfsbrautir fyrir aðrar starfsgreinar bflgreina.
FMB mun einnig bjóða fyrirtœkjum í bflgreinum margvíslega
þjónustu m.a. í formi upplýsingaþjónustu, aðstoðar við
námskeiðahald og aðstöðu fyrir eigin kynningar og námskeiö.
FMB stefnir aö því að bjóða 1. flokks aðstöðu og búnað sem getur
verið fyrirtœkjum og einstaklingum til fyrirmyndar. Flúsnœðið er fyrir
hendi en tœkjabúnað vantar.
Þelr Innllytjendur eða umboðsmenn búnaðar (verkfceri,
taeki. efnl) fyrir bílgrelnar sem áhuga hafa á að
vlðkomandi búnaður verði í skólanum, sendl efHrtarandi
upplýslngar tll FMB fyrir 10. mars 96:
° NAFN FYRIRTÆKIS
1 SÍMA- oe FAXNÚMER
° NAFN TEN6ILI6S
° TE6UND BÚNABAR (lýsing)
FMB, SuSurlandsbraut 30, Fax: 581-3208
Til stendur aö halda kynnlngarfundi um FMB og samstarfs viö
fyrirtœki vegna búnaöar.
Gert er ráö fyrir aö FMB taki til starfa 1. ágúst 96 og aö byrjaö veröi
aö koma búnaöi fyrir í júní n.k.
FMB, iem er hluti Borgarholtsskóla, cr tilraunaverkefni
menntamálaráSuneytisins annars vegar og Bílgreinasambandsins og
BliiSnafélagsins hins vegar.