Morgunblaðið - 07.03.1996, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 7. MARZ 1996 41
BRÉF TIL BLAÐSIIMS
FRÁ vinstri: Sigríður, Margrét, Nína-Margrét og Vibeke.
FRÁ vinstri: Njörður Winnan, Kornelíus, Elín Pálsson og Inga.
Er fiski hent
í sjóinn?
Frá Júlíusi Ingibergssyni:
HVERNIG er umgengnin um auð-
lindina okkar? Er allt í lagi? Ég held
ekki. Við skulum fyrst tala um togar-
ana sem frysta og vinna allan afla
um borð. Þama kemur fyrsta flokks
fiskur (flök) frá vinnslunni. Þegar
búið er að flaka fiskinn, er lítill áhugi
fyrir lifur, hrognum, hausum og bein-
um, þessu er hent, þetta er um
65-70% af fískinum.
Þetta eru mikil auðæfi sem hægt
er að nýta. Og er ekki nokkuð mikið
um að smáfíski sé hent í sjóinn, og
fer stóri fískurinn í gegnum vélamar?
Netabátar stunda netaveiði á vet-
urna og geta ekki alltaf farið á sjó
vegna veðurs. Við þær aðstæður
skemmist fískur í netum og er ekki
hæfur til vinnslu. Þá gerist það að
þessum skemmda físki er hent í sjó-
inn vegna þess að hann mundi drag-
ast frá kvótanum. Þennan físk á að
hirða og setja í bræðslu og ekki drag-
ast frá kvðta. Vegna þess hvað auð-
lindin, sem þjóðin á, er takmörkuð
verðum við að umgangast fiskistofn-
ana af skynsemi, þetta er banki þjóð-
arinnar og þar verða vextir að vera
réttir.
JÚLÍUS INGIBERGSSON,
Glaðheimum 12, Reykjavík.
- kjarni máhins!
Með þessu stórkostlega fyrir-
komulagi næst hámarksnýting
á lagersvæði. Mjög hentugt
kerfi og sveigjanlegt við mis-
munandi aðstæður. Greiður
aðgangur fyrir lyftara og vöru-
vagna.
Ávallt fyrirliggjandi.
Leitið upplýsinga.
UMBOÐS- OG HEILDVERSLUN
!£r
SMIÐJUVEGt 70, KÚP. • SÍMI564 4711 • FAX 564 4725
Tónlistarkvöld
í New York
Frá Eddu S. Magnússon:
HINN 1. febrúar sl. var haldið tón-
listarkvöld í New York. Tilgangurinn
með því var tvíþættur. Þar kom fram
íslenskt tónlistarfólk og einnig var
þetta kveðjusamsæti fyrir aðalræðis-
manninn í New York, Kornelíus Sig-
mundsson og konu hans Ingu Her-
steinsdóttir. Kvöldið hófst með tón-
leikum Nínu-Margrétar Grímsdóttur
(píanó), Margrétar Hjaltested (lág-
fíðla) og Sigríðar Jónsdóttur (mezzó-
sópran) og tókust þeir mjög vel.
Tónverk kvöldsins voru norræn og
klassísk sem gáfu til kynna hæfni
þeirra og var flutningi á öllum verk-
unum vel fagnað. Þessar ungu konur
eru glæsilegir fulltrúar íslands og
var framkoma þeirra ljúf og fáguð
í alla staði. Tækni og fimi Nínu-
Margrétar í einleiksverkum var
framúrskarandi og vakti mikla hrifn-
ingu allra. Sigríður vakti athygli og
fékk góðar undirtektir áheyrenda
með sérlega hljómfögrum söng á
norrænum og þýskum lögum. Leikni
Margrétar var frábær og gaf til
kynna öryggi í samspili strengja lág-
fíðlunnar og bogans. Listrænir hæfí-
leikar hennar hrifu áheyrendur.
Nína-Margrét sem var á sviðinu allt
kvöldið er frábær einleikari og greini-
lega jafnvíg sem undirleikari.
Seinna um kvöldið voru fluttar
þakkir og kveðjur til Komelíusar og
Ingu, en þau hafa starfað í New
York síðastliðin 5 ár. Komelíus er
heiðursfélagi í American Scandina-
vian Society í New York og ómetan-
legur stuðningsmaður í starfsemi
félagsins. Formaður félagsins færði
þeim að gjöf bók um New York til
að minna þau á dvölina og góðan
áttavita til að fínna leiðina til vest-
urs aftur. Kornelíus þakkaði og sagði
að þau hjónin hefðu átt ánægjulegar
samverustundir með félagsmönnum.
Um 150 manns tóku þátt í þess-
ari vel heppnuðu samkomu. Þær
Ingibjörg, Edith og Edda sáu um
undirbúning kvöldsins og vom veit-
ingar með hefðbundnum íslenskum
hætti.
EDDA S. MAGNÚSSON,
10 Windsor Place,
Montclair, NJ 07043.
Grunnskóli verði áfram
í Miðbæjarskólanum
Skólayfirvöld eiga
að læra af því sem
vel er gert
í MIÐBÆJARSKÓLANUM hefur
verið starfræktur grunnskóli fyrir 9
ára börn og eldri síðustu fjögur ár.
I þessum skóla, Miðskólanum, á ég
börn sem hafa áður verið í hverfis-
skóla. Ég get ekki hugsað mér að
missa af þeirri þjónustu sem börnin
mín fá núna. Ég veit að kennarar í
öðrum skólum eru víða að vinna
góða hluti. En í Miðskólanum er,
hvað sem öðru líður, verið að byggja
upp alveg sérstakt skólastarf. Þetta
er heilsdagsskóli, sem allir foreldrar
hafa verið að biðja um árum saman.
Ég vil því nota þetta tækifæri til
að hvetja skólayfirvöld til að hlúa
að þessum nýgræðingi og hætta að
ógna tilveru skólans með því að vísa
honum á dyr. Það kostar án efa
mikið að breyta Miðbæjarskólanum
í skrifstofur en það kostar þjóðfélag-
ið ennþá meira að bíjóta niður skóla-
starf eins og það sem nú fer fram
í þessu gamla skólahúsi. Þessi skóli
ætti að vera öðrum til fyrirmyndar.
Ég treysti því að þeir sem nú fara
með stjórn borgarinnar sýni þessu
máli skilning og falli frá hugmynd-
inni að breyta Miðbæjarskólanum í
skrifstofur.
HELGA R. ÓSKARSDÓTTIR,
húsmóðir,
Klapparstíg 17, Reykjavík.
Stórhöfða 17, við Gullinbró,
sími 567 4844
'jr
■; .< '<ÚiIHi