Morgunblaðið - 07.03.1996, Page 46
-Annef i
46
.FIMMTUDAGUR 7. MARZ 1996
HASKOLABIO
SÍMI 552 2140
Háskólabíó
STÆRSTA BÍÓIÐ.
ALLIR SALIR ERU
FYRSTA FLOKKS.
SPILAVITIÐ
Robert Sharon Joe
DEHIRO STONE PESCI
★ ★★ */
S ÓSKASSVfRÐLAUNA- \
f mWFNING 1
BESTA LEIKKONAN
SIGURVEGARI
GOLDEN GLOBE
VHARON STONE >
MYND EFTIR MARTIN SCORSESE
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. B.i. i6ára.
FRUMSYNING: SVÍTA 16
PETE POSTLETHWAITE
~ 1»WEL LEIKÍnTsTE^K
^OGTVIERK" \
★★★®,H.T. Rás 2A
Sá sem selur
líkama sinn
selur einnig
sálu sína
FRUMSYND A MORGUN
Richard Dreyfuss
Stórleikarinn Pete Postlethwaite (In the Name of The Father, Usual
Suspects) í geggjaðri mynd frá hinum athyglisverða leikstjóra Dominique
Deruddere (Crazy Love). Forríkur en fatlaður maður fær ungan mann,
sem er á flótta undan réttvísinni til að framkvæma það sem hann er ekki
fær um sjálfur og fylgist með gegnum falda myndavél. Dimmur og
erótiskur þriller þar sem að baki allra svikanna býr undarleg ást.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.10. Bönnuð innan 16 ára.
M R
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.10.
A A A
A Ð V Ö R U IU
*
I kjölfar Næturvarðarins kemur
ný ógnvekjandi spennumynd.
Frumsýnd um næstu helgi!
Það snýst ekki um
leiðina sem þú
velur.
Það snýst um
leiðina sem þú vísar.
Einstaka sinnum koma myndir sem
almennigur hreinlega gerir að sinni eign.
Ópus herra Hollands er einstök mynd
sem hefur sannarlega slegið í gegn vest-
anhafs og Richard Dreyfuss er tilnefndur
til Óskarsverðlauna fyrir
magnaðan leik sinn.
F^jölhæf
söngkona
► SHERYL Crow, söngkonan og
Igitarleikkonan fræga, sýndi fjöl-
hæfni sina þegar hún spilaði á
5 harmoníku með hljómsveit leik-
) arans Bruce Willis nýlega. Af svip
j hennar að dæma naut hún þess
til hins itrasta.
THE
SPECIALIST
Þrumumynd á
sölumynabandi
í næstu búð!
■ FÓGETINN Á fimmtudagskvöld
mun hljómsveitin Spur leika en hún
var stofnuð í júní á síðasta ári.
Hljómsveitin er skipuð ungu og efni-
legu tóniistarfóiki en þau eru Telma
sem sér um söng, Helgi trommur,
Gunnar, gítar og Aki bassi.
■ SPORT heldur sína fyrstu tón-
leika á fimmtudagskvöld á neðri hæð
Ingólfscafé. Húsið opnar kl. 21 með
léttu „dinner trip hoppi“ frá DJ.
Daða. Sport leikur breskt gítarrokk
og hljómsveitina skipa: Otto Tynes,
söngur, Stebbi Már, gítar, Þórir
Viðar, bassi og Palli trommur. Að-
gangur er ókeypis og fríar veitingar.
■ TVEIR VINIR Á fimmtudags-
kvöid leika Englarnir en í fremri
sal leika blues-dúett sem skipaður
er þeim Einari og Bögga. Á föstu-
dagskvöld er dansleikur með
Funkstrasse og á laugardagskvöld
er FM-dansIeikur með hljómsveit-
inni Sólstrandagæjarnir. Á sunnu-
dagskvöld rokkar svo hljómsveitin
Dog day afternoon í fremri sal.
■ ÞJÓÐLEIKHÚSKJALLARINN
Hljómsveitin Stjómin leikur á föstu-
dags- og laugardagskvöld en bæði
kvöldin er framreiddur matur frá
kl. 18 fyrir leikhúsgesti. Helginni í
Þjóðleikhúskjailaranum lýkur á
mánudagskvöid en þá heldur tónlist-
armaðurinn KK órafmagnaða tón-
leika í Listaklúbbnum. Til liðs við
sig hefur hann fengið Guðmund
Pétursson á gítar og Jóhann Ás-
mundsson á bassa. Dagskráin hefst
kl. 20.30.
■ BORGARKJALLARINN Á
föstudagskvöld og laugardagskvöid
teikur hljómsveitin Hunang fyrir
dansi. Húsið opnar kl. 23 föstudags-
kvöld en á laugardagskvöld
skemmta leikaramir Hilmir Snær
og Benni matargestum. Snyrtilegs
klæðnaðar er krafist og er aldurstak-
mark 25 ára.
■ ÓÐAL Um helgina leikur hljóm-
sveitin Hafrót á miðhæðinni en á
jarðhæðinni leika þeir Ómar og
Jón. Diskó er svo leikið á efstu
hæðinni. Veitingahúsið er opið föstu-
dags- og laugardagskvöld frá kl.
18-3 og virka daga frá kl. 18-1.
■ GARÐAKRÁIN í GARÐABÆ
Á föstudags- og laugardagskvöld
Skemmtanir
HLJÓMSVEITIN Spur leikur á Fógetanum fimmtudagskvöld.
leikur Tríó Önnu
Vilhjálms hressa
danstónlist. Tríóið
er skipað þeim Sig-
urði Má Ágústs-
syni, hljómborð,
Ingvari Valgeirs-
syni, gítar og söng-
ur og Onnu Vil-
hjálms sem sér um
söng. l
■ HÓTEL SAGA
Á Mímisbar sjá
þeir Ragnar
Bjarnason og Stef-
án Jökulsson um
fjörið föstudágs- og
laugardagskvöid. I
Súlnasal laugar-
dagskvöld verður
létt stemmning
þegar Borgardætur flytja mörg vin-
sælustu laga sinna. Með þeim koma
fram Ragnar Bjarnason og stór-
hijómsveit undir stjóm Eyþórs
Gunnarssonar. Þriggja rétta kvöld-
verður með vali á milli rétta,
skemmtun og dansleikur með Saga
Klass á 4.800 kr. Verð á dansleik
850 kr.
■ HÓTEL ÍSLAND Á föstudags-
kvöld er lokað vegna einkasam-
kvæmis í aðalsal. Spánveijmn
Gabriel Garcia skemmtir í Ás-
byrgi. Á laugardagskvöld heldur
sýningin Bítlaárin 1960-1970
áfram. Þar koma
fram söngvaranir
Björgvin Hall-
dórsson, Bjarni
Arason, Ari Jóns-
son, Pálmi Gunn-
arsson ásamt
Söngsystrum.
Stórhljómsveit und-
ir stjóm Gunnars
Þórðarsonar leik-
ur. Að lokinni sýn-
ingu leikur Bítla-
vinafélagið fyrir
dansi til kl. 3. Eng-
inn aðgangseyrir á
dansleik.
■ BLÚSBARINN
Á fimmtudagskvöld
verður leikin tónlist
fyrir matargesti frá kl. 19-22 og
að því loknu leikur hljómsveitin X-
Youth til kl. 1. Á föstudagskvöld
leika félagamir Rúnar Júlíusson
og Tryggvi Hiibner. Á laugardags-
kvöld leikur svo Jasstríó Krisljáns
Guðmundssonar.
■ DANSHÚSIÐ GLÆSIBÆ Á
föstudags- og laugardagskvöld verð-
ur skagfirsk sveifla með Geirmundi
Valtýs. Húsið verður opnar kl. 22
og er aðgangseyrir 500 kr.
■ RÁIN KEFLAVÍK Hljómsveitin
Tríó Bene leikur föstudags- og
laugardagskvöld.
SPORT heldur sína fyrstu
tónleika á fimmtudags-
kvöld í Ingólfscafé.
■ CAFÉ OSCAR er kaffíhús sem
staðsett er í Miðbæ Hafnarfjarðar.
Boðið er upp á lifandi tónlist um
helgar og föstudags- og laugardags-
kvöld leikur J.J. Soul Band. Á
sunnudagskvöldum er boðið upp á
gömlu dansana með lifandi tónlist
frá kl. 21. Staðurinn er opinn til kl.
3 um helgar. Boðið er upp á kaffí-
hlaðborð laugardaga og sunnudaga.
■ HANA-STÉL KÓPAVOGI býð-
ur upp á lifandi tónlist alla laugar-
daga. Næstkomandi laugardag leik-
ur hljómsveitin Ásar. Veitingastað-
urinn er staðsettur á Nýbýlavegi 22
og er opinn alla virka daga frá kl.
11 um morgunin til kl. 1 og föstu-
daga og laugardaga til kl. 3.
■ MILLJÓNAMÆRINGARNIR
og STEFAN HILMARZ leika
fimmtuagskvöld á dansleik hjá
Tækniskólanum og föstudagskvöld
á dansleik á Fjölbrautaskóla Akra-
ness. Hljómsveitina skipa Ástvaldur
Traustason, hljómborð, Steingrím-
ur Guðmundsson, trommur og slag-
verk, Jóel Pálsson, saxófónn og
Birgir Bragason, bassi.
■ KAFFIREYKJAVÍK Á fímmtu-
dagskvöld leika Snæfríður og Stub-
barnir en á föstudags- og laugar-
dagskvöld hljómsveitin Sól Dögg.
Hljómsveitin er um þessar mundir
að kynna frumsamið iag og ætlar
að því tilefni að bjóða til kokteil-
veislu frá kl. 21. Á sunnudagskvöld
ieika Grétar Örvarsson og Bjarni
Arason en á mánudagskvöld leika
Eyjólfur Kristjánsson og Ingi
Gunnar.
■ RÚNAR ÞÓR leikur fimmtu-
dags-, föstudags- og laugardags-
kvöld í Kjallaranum Akureyri.
■ NÆTURGALINN Á föstudags-
og laugardagskvöld leikur dúettinn
KOS sem skipaður er þeim Sigurði
Dagbjartssyni og Kristjáni Ósk-
arssyni á Hótel Islandi. Á laugar-
dagskvöidinu bætist svo söngkonan
Eva Ásrún i hópinn.
■ SIXTIES leikur laugardagskvöld
á Langasandi, Akranesi. Hljóm-
sveitin er komin á fulla ferð eftir
vetrarfrí og þess má geta að félag-
arnir eru byijaðir á upptökum á
nýrri plötu sem enn hefur ekki hlot-
ið nafn. Nýja platan kemur út í sum-
ar.