Morgunblaðið - 07.03.1996, Qupperneq 52
m
<S>
AS/400 er...
...mest selda
fjölnotenda
viðskiptatölvan í dag
<o> NÝHERJI SKAFI
MORGUNBLAÐID, KRINGLAN I, 103 REYKJAVÍK, SÍMl 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBUSCENTRUM.IS / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTl 85
FIMMTUDAGUR 7. MARZ 1996
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Kjörinn staðurtil
að byggja vamargarð
Hagnaður Flugleiða
um 656 milljónir
Rúmfatalag-
erinn opnað-
ur í Kanada
JÁKUB Jacobsen, eigandi Rúmfata-
lagersins, opnaði verslun í Vancou-
ver í Kanada 10. febrúar undir heit-
inu Jysk Linenen Furniture. Versl-
unin er um 1.700 fermetrar að flat-
armáli. Þar eru á boðstólum sam-
bærilegar vörur og hér á landi.
„Ég fór að líta í kringum mig í
Kanada og komst að raun um að
þar væri mjög spennandi markað-
ur,“ sagði Jákub. „Þar er mikið af
fólki sem ættað er frá Skandinavíu
og íslandi. Þá hafa margir Kínveijar
frá Hong Kong flust til Vancouver
og þeir virðast hafa smekk fyrir
skandinavískum vörum. Við ætlum
að reka þessa búð í tvö ár til
reynslu."
■ Rúmfatalagerinn/2B
HÓPUR sérfræðinga á vegum
Ofanflóðasjóðs skoðaði í gær að-
stæður á Flateyri vegna undir-
búnings fyrirhugaðra varnar-
virkja snjóflóða. Karsten Lie frá
norsku jarðtæknistofnuninni
(NGI) segir að svæðið ofan við
byggðina sé hentugt til gerð snjó-
flóðavarnagarða og jarðefnin nýt-
anleg.
Magnús Már Magnússon snjó-
flóðavarnasérfræðingur segir að
unnið sé að frumathugun snjó-
flóðavarna. Hópurinn er á vegum
umhverfisráðuneytisins og skoð-
aði aðstæður eftir snjóflóðið í
Tungudal á Isafirði áður en hann
hélt til Flateyrar. Magnús segir
að nú verði hafist handa við hönn-
un varnarvirkja. Áætlað er að
hefja framkvæmdir í sumar og
verður allt kapp lagt á að ljúka
verkinu fyrir veturinn, að sögn
Magnúsar. Varnargarðarnir
verða mikil mannvirki, eins og
fram hefur komið.
Karsten Lie frá NGI kom til
Flateyrar í janúar og segir hann
að sorglegt hafi verið að sjá af-
leiðingar snjóflóðsins. Telur hann
þörf á öflugum snjóflóðavörnum
á svæðinu, stóra varnargarða sem
standist snjóflóð. Telur hann Flat-
eyri kjörinn stað til að byggja
varnargarða.
Eftir að hafa skoðað aðstæður
tóku verkfræðingarnir frá VST
jarðvegssýni en þeir munu hanna
garðana og er áætlað að halda
fund með íbúum Flateyrarhrepps
í apríl eða maí nk. og kynna þeim
niðurstöðurnar.
HEILDARHAGNAÐUR Flugleiða
hf. á síðasta ári nam alls 656
milljónum króna samanborið við
um 624 milljónir árið 1994. Þar
af var söluhagnaður í fyrra um
359 milljónir en var 320 milljónir
árið 1994. Á aðalfundi félagsins á
fimmtudag þann 14. mars mun
stjórn þess leggja til að greiddur
verði 7% arður og að hlutafé verði
aukið um 250 milljónir að nafn-
virði.
Afkoma félagsins á síðasta ári
er sú besta frá árinu 1988. Veltan
var rösklega 15,8 milljarðar króna
og jókst um 8%. Flutti félagið
1.132.127 farþega á árinu og
hafa þeir aldrei verið fleiri.
Sigurður Helgason, forstjóri
Flugleiða, sagðist í samtali við
Morgunblaðið vera tiltölulega sátt-
ur við afkomu félagsins á síðasta
ári enda þótt heildarmarkmið
varðandi hagnað af rekstrinum
hefðu ekki náðst. „Síðasta ár ein-
kenndist af undirbúningi fyrir
ýmis framtíðarverkefni sem hafði
í för með sér töluverðan kostnað.
Við tókum ákvörðun að leigja við-
bótarflugvél, hefja flug til Halifax
og Boston og stækka um leið Evr-
ópunetið."
■ Tillaga/IB
Bakkagerðis-
kirkja ónýt?
Borgarfiröi eystra. Morgunblaðið.
ÚTLIT er fyrir að Bakkagerðis-
kirkja á Borgarfirði eystra sé
ónýt vegna fúa. Kirkjan er frið-
uð samkvæmt húsfriðunarlög-
um og er ráðgert að fulltrúi frá
húsfriðunarsjóði fari austur til
skrafs og ráðagerða.
Bakkagerðiskirkja er frá því
um síðustu aldamót, vígð 1901.
Hún er meðal annars þekkt
fyrir altaristöflu sem er eftir
Jóhannes Kjarval og kvenfélag-
ið á staðnum gaf 1914. Kirkjan
var byggð úr timbri og síðar
múruð að utan til að veija hana
betur fyrir stórviðrum.
Lengi hefur staðið til að gera
við kirkjuna en ekki orðið úr
fyrr en nú. Þegar farið var að
hreyfa við kirkjunni vegna við-
gerðanna kom í ljós að innviðir
eru allir orðnir svo fúnir og illa
farnir að ekki er talið svara
kostnaði að gera við húsið og
ef til vill ómögulegt. Talið er
að múrhúðun kirkjunnar á sín-
um tíma hafi flýtt mjög fyrir
skemmdum á henni.
Morguhblaðið/Egill Egilsson
AÐSTÆÐUR skoðaðar í hlíðinni neðan við Skojlahvilft þar sem ekki sést snjór á miðri góu, Flateyri
í baksýn: Þorsteinn Sæmundsson, Veðurstofu íslands, Oddur Pétursson, Veðurstofu íslands, Frode
Sandersen, norsku jarðtæknistofnuninni (NGI), Atli Hauksson, Hnit, Anne Choque, Veðurstofu ís-
lands, Árni Jónsson, Verkfræðistofunni Hnit, Gunnar Guðni Tómasson, VST, Karsten Lie, NGI og
Magnús Már Magnússon snjóflóðavarnasérfræðingur Veðurstofu íslands.
Tillögur í fjármálaráðuneytinu um vörugjöld vegna kæru ESA
Vörugjaldskerfið einfaldað
og magntollar teknir upp
SAMKVÆMT tillögum sem unnar
hafa verið í fjármálaráðuneytinu um
breytingar á vörugjöldum vegna
kæru Eftirlitsstofnunar EFTA
(ESA) er gert ráð fyrir að vörugjald-
skerfið verði einfaldað og leggist á
verð vöru kominnar hingað til lands,
en hætt verði að áætla 25% heild-
söluálagningu í tolli eins og hingað
til hefur verið. Þá verða vörugjöld
felld niður af sumum vörum, en
magntollar verða lagðir á sælgæti,
öl og matvörur sem hafa borið vöru-
gjöld. Samtals er áætlað að tekjutap
ríkissjóðs vegna þessara breytinga
verði 350-400 milljónir króna og er
því mætt með þriðjungs lækkun á
endurgreiðslu virðisaukaskatts
vegna vinnu iðnaðarmanna á bygg-
ingarstað.
Samkvæmt tillögunum verður
vörugjaldsflokkunum fækkað úr sex
í þtjá og verða þeir 15%, 20% og
25%. Þá verður hætt að leggja vöru-
gjöld á nokkrar vörutegundir, svo
sem á málningarvörur, einangrunar-
efni, plastvörur, ritföng, sjampó,
filmur, myndavélar, hjólbarða og
smærri bílavarahluti, en gjald á
stærri varahluti verður hækkað, auk
þess sem samræmt 25% vörugjald
verður lagt á rafmagnstæki. Við
álagningu magngjalds á gosdrykki,
sælgæti og matvörur verður við það
miðað að það leiði til 10-15% verð-
lækkunar í það heila tekið, nema
vörugjald á sykri verður hækkað frá
því sem nú er.
Komið til móts við
kröfur ESA
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins er talið að með þessu sé
komið til móts við þær kröfur ESA
að hætt verði að áætla 25% heild-
söluálagningu innfluttrar vöru í tolli
við útreikning vörugjalds í stað þess
að miða við raunverulegt verð, eins
og gert er við innlenda vöru. Hins
vegar er með þessum tillögum að
mestu horfið frá tillögum nefndar
sem skipuð var fulltrúum fjármála-
ráðuneytis, skattyfirvalda og hags-
munaaðila, en þar var lagt til í aðal-
atriðum að vörugjaldskerfið yrði lagt
niður í núverandi mynd, magntollar
teknir upp þar sem þeir ættu við og
tekjutapi ríkissjóðs vegna þessara
breytinga mætt með hækkun á
lægra þrepi virðisaukaskatts úr 14%
í 15% og því hærra úr 24,5% í 25%.
Nefndin skilaði af sér fyrir fáum
vikum eftir margra mánaða vinnu,
en fulltrúar verkalýðshreyfmgarinn-
ar lögðust eindregið gegn þessum
tillögum þegar þeim voru kynntar
þær og var því horfið frá þeim.
Vinnuveitendasamband íslands
hefur hins vegar einnig lagt fram
tillögur í þessum efnum sem eru
frábrugðnar framangreindum tillög-
um í nokkrum atriðum. Þar er helst
að telja að gerð er tillaga um að
virðisaukaskattur á gos og sælgæti
lækki úr 24,5% í 14% og tekjutapi
vegna þessa, sem' talið er nema um
900 milljónum króna sé mætt með
því að hækka almenna virðisauka-
skattsþrepið úr 24,5% í 25%. Það
er talið gefa um 785 milljónir króna
í auknar tekjur.
Talsvert liggur á að niðurstaða
fáist í þessu máli, enda hefur af-
greiðsla þess dregist mjög mikið og
ESA þegar kært málið til EFTA-
dómstólsins. íslensk stjórnvöld höfðu
frest til 26. febrúar að skila greinar-
gerð til dómstólsins, en sá frestur
hefur fengist framlengdur um einn
mánuð. Jafnvel er gert ráð fyrir að
frumvarp í þessum efnum verði
kynnt í ríkisstjórn á morgun.
73 sýktir af salmonellu
Starfsfólk
bakarísins
rannsakað
SJÖTÍU og þrír hafa nú greinst með
sýkingu af völdum salmonella enter-
itidis á sýklafræðideild Landspítala,
þar af fimm sem sýktust utan Rík-
isspítala og voru með talsvert alvar-
lega sýkingu. Þrír þeirra sem sýkt-
ust utan Ríkisspítala voru lagðir inn
á sjúkrahús. Um 45 þeirra sem sýkst
hafa voru sjúklingar spítalans og
starfsmenn. Talið er iíklegt að sýk-
ingin hafi leynst í ijómabollum frá
Samsölubakaríi.
Að sögn Karls G. Kristinssonar,
sérfræðings í sýklafræði, mega
starfsmenn ekki koma til vinnu sinn-
ar fyrr en einkenni eru horfin og á
það sérstaklega við um starfsmenn
á vökudeild, krabbameinsdeiid og í
eldhúsi. Byijað er að rannsaka
starfsmenn Samsölubakarís til að
kanna hvort einhver þeirra geti hafa
verið smitberi að sögn Karls og verða
þeir allir skoðaðir.
Grunur beinist að eggjum
Grunur leikur á að egg hafi borið
sýkinguna og Karl segir það alvar-
legt mál ef rétt reynist, því salmon-
ella enteritidis sýkir egg á annan
hátt en aðrar tegundir sýkilsins.
Salmonella enteritidis er algeng-
asta salmonellutegundin víðast hvar
í Evrópu en hefur ekki náð fótfestu
hérlendis til þessa, þó hún sé algeng
í íslenskum fórnarlömbum salmon-
ellu sem sýkjast flest erlendis. Salm-
onella typhimurium hefur hins vegar
verið ráðandi hér á landi og valdið
víðtækum faröldum áður fyrr.
Erlendur Magnússon, fram-
kvæmdastjóri Samsölubakarís, sagði
eitt sýni hafa fundist í bakaríinu sem
ástæða þyki til að rannsaka frekar,
en niðurstaða liggi ekki fyrir. Varð-
andi mögulega krossmengun ijóma
og til dæmis eggja sagði Erlendur
ómögulegt að segja hvort eða hvern-
ig það hefði getað gerst. Öll áhöld
séu þvegin í þvottavél á milli þess
sem þau eru notuð.
Einn starfsmaður Samsölubakarís
greindist með salmonellu í lok síð-
ustu viku. Sá var ekki að vinna á
bolludag og er frá vinnu. Bakaríið
notaði mikið af innfluttu geril-
sneyddu eggjadufti en við GATT-
samkomulagið voru lagðir á það háir
tollar. „Við sóttum um undanþágu
en fengum ekki,“ sagði Erlendur.
■ Um 100 tiIfelli/27