Morgunblaðið - 07.03.1996, Síða 1

Morgunblaðið - 07.03.1996, Síða 1
SJÁVflRÚTVEGUR Þormóður Rammi á uppleið /4 flUGLÝSINCAR Athyglisverðasta auglýsingin /6 ptagtmlifafcto __________i i nrs /n STJÓRNUN Aukin fræðsla stjórnenda /12 VIÐSKIFn MVINNUUF PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS FIMMTUDAGUR 7. MARZ 1996 BLAÐ Flugleiðir hf. Úr reikningum 1995 ■ |r Rekstrarreikningur Miiijómr króna 1995 ' 1994 Breyt. Rekstrartekjur 15.927 14.748 +8% Rekstrargjöld 14.904 13.558 +10% Rekstrarhagnaður 1.023 1.190 -14% Hreinn Ijármagnsgjöid 761 944 -19% Hagnaður af reglulegri starfsemi 262 246 +7% Hagnaðuraf sölu eigna 359 320 +12% Áhrii dótturfélaga 59 67 -12% Hagnaður ársins 656 624 +5% Efnahagsreikningur 31. des.: 1995 1994 Breyt. Veltufjármunir 4.940 5.949 -17% Fastafjármunir 15.051 16.174 -7% Eignir samtals 19.991 22.123 -10% I Skuldir oo eiuiO 16:1 Milliónir króna Skammtímaskuldir 3.937 4.949 -20% Langtímaskuldir 10.762 12.546 -14% Eigið fé 5.292 4.628 +14% Skuldir og eigið fé samtals 19.991 22.123 -10% Kennitölur 1995 1994 Eiginfjárhlutfall 26% 21% Veltutjárhlutfall 1,25 1,20 Handbært fé frá rekstri Miiij. króna I 2.113 1.993 Aðalfundur Eimskips í dag Allir sijómar- menn íkjöri Hagnaður Flugleiða um 656 milljónir Tillaga um 250 milljóna hluta- fjáraukningu Hlutabréf Hlutabréf héldu áfram að hækka í verði á hlutabréfamarkaði í gær. Mest varð hækkunin á hluta- bréfum í Tollvörugeymslunni, rúm 9% en einnig hækkuðu hluta- bréf talsvert í íslenskum sjávaraf- urðum, Hampiðjunni, Olís og SR- mjöli. Þingvísitala hlutabréfa hækkaði um tæp 0,8% í gær og hefur hún þá hækkað um tæp 18% frá upphafi árs. Seðlabanki Gjaldeyrisstaða Seðlabankans styrktist um 3,4 milljarða króna í febrúar og hefur hún þá styrkst um tæpa 4 milljarða frá áramót- um. Bankinn endurgreiddi hins vegar skammtímalán að fjárhæð 4,9 milljarða króna og því minnk- aði gjaldeyrisforði bankans um 1,5 milljarða. Sænskir dagar Sænska sendiráðið hér á landi hyggst standa fyrir sænskum dög- um í apríl í samvinnu við íslensk fyrirtæki sem flylja inn og dreifa sænskum vörum hér á landi. Munu dagarnir hefjastþann 17. apríl og fara fram í Kringlunni og öðrum verslunum í Reykjavík. Reiknað er með að um 40 fyrir- tæki muni taka þátt. SÖLUGENGI DOLLARS Kr. 69,00 68.50 68,00 67.50 67,00 i 66.50 66,00 65.50 65,00 64.50 64,00 7. Síðustu fjórar vikur V ^ i i » t • 1 1 I 1 I feb. 14. 21. 28. 6. mar. BÚIST er við að allir stjórnarmenn Eimskips muni gefa kost á sér til endurkjörs á aðalfundi félagsins sem haldinn verður í dag. Á aðalfundi Eimskips á síðasta ári var stjórnarkjörinu hagað þann- ig í fyrsta sinn að kosið var um alla stjórnarmennina til eins árs. Áður var kosið um fjögur eða fímm sæti á hverjum aðalfundi til tveggja ára. í fyrra voru endurkjörnir í stjóm- ina Gunnar Ragnars, Kristinn Bjömsson, Jón Ingvarsson, Jón H. Bergs, Indriði Pálsson, Garðar Hall- dórsson, Hjalti Geir Kristjánsson, Benedikt Sveinsson og Baldur Guð- laugsson. HEILDARHAGNAÐUR Flugleiða hf. á síðasta ári nam alls 656 millj- ónum króna samanborið við um 624 milljónir árið 1994. Þar af var sölu- hagnaður í fyrra um 359 milljónir en var 320 milljónir árið 1994. Á aðalfundi félagsins nk. fimmtudag þann 14. mars mun stjórn þess Ieggja til að greiddur verði 7% arður og að hlutafé verði aukið um 250 milljónir að nafnvirði. Afkoman á síðasta ári er sú besta frá árinu 1988, að því er segir í frétt. Veltan var rösklega 15,8 millj- arðar króna og jókst um 8%. Flutti félagið 1.132.127 farþega á árinu og hafa þeir aldrei verið fleiri. Rekstrarhagnaður án fjármagns- liða og skatta var alls 1.023 milljón- ir en var 1.190 milljónir á árinu 1994. Lakari rekstrarafkoma skýr- ist af nokkrum tilflutningi á rekstr- arkostnaði miili liða í rekstrarreikn- ingi vegna sölu og endurleigu tveggja Boeing-véla félagsins sl. tvö ár. Bein rekstrargjöld hækka vegna leigugjalda fyrir vélarnar. Á móti kemur að fjármagnsgjöld og af- skriftir lækka. Hagnaður af reglulegri starf- semi, þ.e. að teknu tilliti til fjár- magnsliða, var alls 262 milljónir í fyrra en 246 milljónir árið áður. Áuk söluhagnaðar bætist við 59 milljóna hlutdeild í hagnaði dóttur- félaga en hún nam 67 milljónum árið 1994. Handbært fé frá rekstri var alls 2.113 milljónir á síðasta ári samanborið við 1.993 milljónir árið á undan. Haldið áfram að lækka skuldir Sigurður Helgason, forstjóri Flugleiða, sagðist í samtali við Morgunblaðið vera tiltölulega sáttur við afkomu félagsins á síðasta ári enda þótt heildarmarkmið varðandi hagnað af rekstrinum hefðu ekki náðst. „Síðasta ár einkenndist af undirbúningi fyrir ýmis framtíð- arverkefni sem hafði í för með sér töluverðan kostnað. Við tókum ákvörðun að leigja viðbótarflugvél, hefja flug til Halifax og Boston og stækka um leið Evrópunetið “ Heildarskuldir námu alls 14.699 milljónum en voru 17.495 milljónir í árslok 1994. Þessi lækkun um lið- lega 3 milljarða endurspeglar upp- greiðslu lána í kjölfar sölu flugvéla. Eiginfjárhlutfall var 26% saman- borið við 21% árið 1994. Innra virði hlutafjár var 2,57 í árslok en var 2,25 árið 1994. Arðsemi eigin fjár var 14,2% en var 15,8% 1994. Tillaga um hlutafjáraukningu að nafnvirði 250 milljónir miðar að því að styrkja eiginfjárstöðu félagsins. Miðað við núverandi markaðsgengi bréfanna yrði hér um að ræða a.m.k. 600 milljónir. „Eiginfjárhlutfallið er núna komið í 26% en við teljum æskilegt að styrkja það ennfrekar. Við myndum ráðstafa nýju hlutafé til að halda áfram að lækka skuld- irnar. Á síðasta ári borguðum við niður skuldir um 700 milljónir um- fram lánin sem hvfldu á vélunum. Það hefur hins vegar engin ákvörð- un verið tekin um hvenær ráðist yrði í hlutafjárútboðið." aðhugsa um að §ó-Xfesta? Haföu samband og fáðu upplýsingar um flýtifyrningar, skattfrestun og hvernig þú losnar viö aö binda rekstrarfé í tækjakosti. Glitnir sérhæfir sig í fjármögnun atvinnutækja. Með Kjörleiðum Glitnis bjóðast þér fjórar ólíkar leiðir til fjárfestingar í atvinnutækjum. Glitnirhf dótturfyrirtæki íslandsbanka Kirkjusandi, 155 Reykjavík Sími 560 88 00 og 560 88 20. Myndsími 560 88 10. Út er komið upplýsingarit um Kjörleiðir Glitnis. Þar er á einfaldan hátt fjallað um ólikar gerðir fjármögnunar. Hringdu og fáðu eintak eða líttu inn og spjallaðu við ráðgjafa okkar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.