Morgunblaðið - 09.03.1996, Qupperneq 4
4 LAUGARDAGUR 9. MARZ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Héraðsdómur
Norðurlands
Karlmaður
dæmdur
fyrir kyn-
ferðisbrot
KARLMAÐUR á fimmtugs-
aldri hefur í Héraðsdómi Norð-
urlands eystra verið dæmdur
í 30 daga fangelsi skilorðs-
bundið í tvö ár og til að greiða
ungum pilti 70 þúsund krónur
í miskabætur fyrir kynferðis-
brot. Til viðbótar var hann
dæmdur til að greiða allan
sakarkostnað.
Maðurinn var ákærður fyrir
að hafa með lostugu athæfi
sært blygðunarsemi piltsins og
sýnt honum kynferðislega
áreitni. Atburðurinn átti sér
stað á gistiheimili á Akureyri
síðastliðið haust.
Fyrir dómi neitaði ákærði
sakargiftum, en viðurkenndi
að hafa í tvígang farið inn í
herbergi piltsins umræddan
dag og einnig að hafa átt
frumkvæði að umræðum um
kynlíf svo og um tiltekinn leik,
en horfið frá því er honum var
ljóst að slíkt var piltinum ekki
geðfellt.
-----»-♦ ♦---
Öflug ammoníaks-
sprenging á
Fáskrúðsfirði
Morgunblaðið/Albert Kemp
BOTN ammoníakstanks-
ins sprakk út frá suðu
og rifnaði um þriðjungur
hans frá.
Starfsfólk
rétt ókomið
til vinnu
Fáskrúðsfírði. Morgunblaðið.
ENGIN slys urðu á fólki og
litlar á eignum þegar öflug
sprenging varð í frystihúsi
Goðaborgar hf. á Fáskrúðs-
firði í gærmorgun. Ammon-
íakstankur sprakk og lak efnið
um húsið án þess að komast
í frystiklefa eða hráefnis-
geymslu.
Tankurinn var fullur og lok-
að fyrir en talið er ammoníak
sem sett var í hann kalt hafi
þanist við hita og að lokum
sprent tankinn. Enginn örygg-
isloki var á tankinum. Við
sprenginguna brotnuðu rúður
á vélahúsinu og laust fag
þeyttist yfir götuna.
Sprengingin varð fyrir
klukkan átta í gærmorgun og
var starfsfólkið ókomið til
vinnu, nema Sigurður Vil-
hjálmsson einn af eigendum
Goðaborgar hf. sem var ann-
ars staðar í húsinu. Vel gekk
að loftræsa húsið.
Framhaldsskólanemar fylgjast með þætti um unglinga og eiturlyf
Morgunblaðið/Kristinn
NEMENDUR í MenntaskólanumviðHamrahlíð fylgdust í gærdag af miklum áhuga með sjónvarpsþætti um unglinga og fíkniefni.
ILMUR, Stefán Ingi, Anna og Sigrún Birta.
Alvarleg og þögul
þegar móðir lýsti
sonarmissinum
Eftir að sýningunni Iauk tók
Morgunblaðið fjóra unglinga tali,
þau Ilm Kristjánsdóttur, Stefán
Inga Stefánsson, Önnu Hjartar-
dóttur og Sigrúnu Birtu Þrastar-
dóttur. Þau voru sammála um að
þátturinn væri gagnlegur.
Sigrún Birna sagði að ótrúlega
margir unglingar hefðu prófað
fíkniefni. Hún hefði farið á
skemmtistað fyrir stuttu og þá
hefði bláókunnug stelpa spurt
hana hvort hún gæti selt sér E-
töflu. Hin tóku undir þau orð
hennar að þau yrðu öll vör við
neyslu í einhverri mynd. Þegar
þau voru innt eftir því hvað pau
myndu gera, byijuðu vinir þeirra
„ÞAÐ var áhrifarikast að hlusta
á mömmuna, sem missti son sinn
vegna eiturlyfjaneyslu. Svoleiðis
viðtöl koma við mann. Hann var
líka góður, strákurinn frá Dalvík
sem sagði sína sögu. Maður trúði
honum alveg. Annars vita ungl-
ingar alveg hvað fíkniefni eru
hættuleg og svona þáttur er
kannski frekar svo foreldrar átti
sig á stöðunni.“
Þetta var meðal þess sem nem-
endur Menntaskólans í Hamra-
hlíð höfðu að segja eftir að hafa
horft á sjónvarpsþátt um ungl-
inga og eiturlyf. Þátturinn, sem
er liður í Jafningjafræðslu Félags
framhaldsskólanema, var sýndur
kl. 13 í gær og endursýndur kl.
22.30 í gærkvöldi. í honum var
ítrekað að fikt með fíkniefni yrði
fljótt að neyslu.
Krakkarnir, sem sátu í kring-
um sjónvarpið í MH og fylgdust
með þættinum, voru ýmist alvar-
legir, eða skelltu upp úr. Það
gerðu þeir til dæmis þegar þrír
unglingar, sem virtust halda til á
Hlemmi, lýstu eigin neyslu. Hlát-
urinn var greinilega ekki vegna
þess að neysian væri sniðug, held-
ur þóttu neyslusögurnar „aula-
legar“, eins og viðmælendur
Morgunblaðsins orðuðu það.
Þeim var hins vegar ekki hlátur
i hug þegar móðir sagði frá þvi
að 16 ára sonur hennar hefði
framið sjálfsmorð eftir neyslu
fíkniefna. Þá hefði mátt heyra
saumnál detta í salnum.
í neyslu, voru þau sammála um
að þau myndu reyna að grípa í
taumana með einhveijum hætti.
„Ég myndi segja honum álit mitt
og fá hann til að horfast í augu
við það sem hann væri að gera.
Það verður að taka upplýsta
ákvörðun, gera sér grein fyrir
út í hvað menn eru að fara,“ sagði
Stefán Ingi og Ilmur bætti því
við að allir hugsuðu sem svo, að
það kæmi ekkert slæmt fyrir þá.
Anna sagði að unglingar yrðu
ekki fyrir beinum þrýstingi frá
vinum um að drekka eða nota
eiturlyf og þau voru sammála um
að neyslusögur, þar sem menn
hreykja sér af vímunni, væru
aulalegar. Stefán Ingi sagði að í
hans vinahópi væri einn strákur
sem aldrei bragðaði áfengi, hvað
þá annað, og hann væri flottast-
ur, af því að hann gæti staðið
einn.
Þau lýstu áhyggjum yfir því
að mikil umfjöllun um fíkniefni
gæti haft öfug áhrif, þ.e. gert
unglinga forvitna; svo þeir færu
frekar að prófa. Aður hefði E-
taflan verið í þröngum hópi, en
nú hefði neysla hennar breiðst
út. Yngri krakkar væru að prófa
og undir þetta væri ýtt með text-
um danslaga, þar sem E-taflan
væri dásömuð og vörumerki
tískufatnaðar miðuðu að því
sama, eins og E-legal. f kjölfar
umræðu um E-töflu virtist amfet-
amín einnig hafa orðið vinsælla
en áður.
Níutíu manns hafa nú greinst með sýkingu af völdum salmonellu
Mesta hópsýking í 34 ár
TÍU einstaklingar greindust f gær með sýkingu
af völdum salmonella enteritidis og er þá fjöldi
sýktra kominn upp í níutíu manns. Karl G.
Kristinsson, sérfræðingur í sýklafræði á
Landspítala, segir ljóst að um sé að ræða
mestu hópsýkingu sem orðið hefur hérlendis
síðan 1962, eða í 34 ár.
Hann segir líklegt að fleiri greinist með
salmonellasýkingu á næstu dögum og að fjöldi
þeirra fari yfir hundrað, miðað við núverandi
niðurstöður. Sýkingin er rakin til rjómabolla
frá Samsölubakaríi og borðaði þorri þeirra sem
hafa sýkst þær 19. febrúar sl., en í örfáum
tilvikum leikur einhver vafi á að bolluát sé
orsök sýkingar, auk þess sem í 1-2 tilvikum
er sennilega um að ræða sýkingu af öðrum
ástæðum. Tíu manns fyrir utan Ríkisspítala
hafa sýkst.
Kostnaðarsöm
sýnaræktun
Karl segir líklegra að sýkillinn hafi borist
með hráefni í bollumar en fólki og þótt hafi
ekki fundist salmonella í þeim eggjum sem
rannsökuð hafa verið, sé ekki hægt að útiloka
þau að fullu. Tekin eru sýni úr öllu starfsmönn-
um Samsölubakarís sem koma að vinnslu en
þeir eru um 70 talsins.
Mikið álag hefur verið á sýkladeild Landspít-
ala að undanfömu vegna salmonellusýkingar-
innar og hefur ræktun saursýna haft forgang
á önnur verkefni. Ríflega hundrað sýni hafa
borist á dag og er nú búið að rækta hátt í
þúsund sýni að sögn Karls. Kostnaður við sýna-
ræktun er talsverður, eða allt upp í um 2.000
krónur á sýni ef það geymir sýkingu.
Skaðabótaskylda könnuð?
„Landspítalinn mun væntanlega gera meiri
kröfur til þeirra matvæla sem keypt eru tilbú-
in eða .endurskoða þau innkaup á einhvern
hátt,“ segir Karl og kveðst þeirrar skoðunar
að ekki sé óeðlilegt að Ríkisspítalar kanni stöðu
sína með tilliti til skaðabótaskyldu framleið-
enda ijómabollanna.