Morgunblaðið - 09.03.1996, Síða 10
10 LAUGARDAGUR 9. MARZ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
SAMNINGAR hafa tekist um að
breski tónlistarmaðurinn David
Bowie komi til landsins og haldi
tónleika í Laugardalshöll hinn
20. júní. Til upphitunar áþeim
verða íslenskir tónlistamenn, en
ekki hefur verið ákveðið hverjir
það verða.
Fyrirtækið Tin heldur tón-
leikana í samráði við
Listahátíð í Reykja-
vík. Ingvar H. Þórð-
arson, einn aðstand-
enda þess, segir að
hálfgerð „fjallabaks-
leið“ hafi verið farin
til að fá Bowie til
landsins. „Við höfð-
um fyrst samband
við hann eftir venju-
bundnum leiðum, en
þá voru nefndar allt
of háar fjárhæðir.
Eftir það talaði
Ragnheiður Hanson,
einn eigenda fyrir-
tækisins, við gamlan
vin sinn úr tónlistar-
bransanum ytra. í
gegnum hann fékkst
samþykki Bowies.“
Ingvar tekur fram
að án stuðnings fyr-
irtækjanna Vífilfells,
fslensk-ameríska,
Flugleiða og íslands-
banka hefði aldrei
getað orðið af tón-
leikunum. Hann seg-
David
Bowie á
Listahátíð
DAVID Bowie kemur hingað til lands og heldur
tónleika á Listahátíð í júní.
ir að bryddað verði upp á nýj-
ungum í miðasölu. „Miðasalan
hefst í apríl og verður með held-
ur nýstárlegum hætti. Miðar
verða seldir í hraðbönkum ís-
landsbanka og hægt verður að
kaupa þá með debet- eða kredit-
kortum. Um leið og þessi aðferð
gerir landsbyggðarfólki auð-
veldara um vik að kaupa miða
gerir hún miðafölsun nær
ómögulega," segir Ingvar.
Með Bowie í för verða 25
manns, þar á meðal eiginkona
hans, fyrirsætan Iman. í hljóm-
sveitinni verða frægir tónlistar-
menn á borð við Carlos Alomar
og Reeves Gabriels, en báðir
hafa þeir unnið mikið með
Bowie.
David Bowie er
einn þekktasti tón-
listarmaður heims.
Hann hóf tónlistar-
feril sinn árið 1964
og gaf út fyrstu plötu
sína tveimur árum
síðar. Hann sló í gegn
árið 1969 með Iaginu
Space Oddity af sam-
nefndri plötu. Þekkt-
ustu plötur hans eru
The Rise and Fall of
Ziggy Stardust and
the Spiders from
Mars frá 1972 og
Let’s Dance frá árinu
1983. Einnig má
nefna plöturnar
Hunky Dory og The
Man Who Sold the
World, báðar frá
1971. Titillag þeirrar
síðarnefndu varð ný-
lega vinsælt í flutn-
ingi hljómsveitarinn-
ar Nirvana.
Nýjasta geisla-
plata hans heitir
5521150-5521370
LARUS Þ VALDIMARSSON, FRAMKV/í MOASiJORi
KRISTJAN KRISTJANSSON, loggiliur Fasieignasaii
Til sýnis og sölu meðal annarra eigna:
Eign í sérflokki - lækkað verð
Við Eskihlíð endurbyggð íb. rúmir 100 fm á 4. hæð. Öll eins og ný.
Stórt og gbtt risherb. fylgir. Snyrting í risinu. Tilboð óskast.
Nýleg og vönduð - lækkað verð
Suðuribúð á 3. hæð 85 fm við Vikurás. Parket. Sólsvalir. 40 ára hús-
næðislán kr. 2,5 millj. Góð sameign. Seljandi lánar hluta af útborgun
til 15 ára. Tilboð óskast.
Stórt endaraðh. - margskonar eignask.
Húsið er jarðh. og tvær hæðir. Alls 6 svefnherb. rn.m. Herb. á jarðh.
má hafa sér. Sérbyggöur bílsk. Langtímalán. Titboð óskast.
Einstakt tækifæri
Rúmgóð 3ja herb. íb. óskast í Heimum, Vogum, nágrenni. Má vera
góð jarðhæð. í skiptum fyrir 5 herb. hæð í Heimunum með öllu sér.
Skammt frá Hótel Sögu
3ja herb. stór og góð íb. á 4. hæð. Nýtt gler. Húsið nýklætt að utan.
Ágæt sameign.
• • •
Opið í dag kl. 10-12.
Óvenjumargir fjársterkir
kaupendur á skrá.
Margskonar eignaskipti.
ALMENNA
FASTEIGNASALAN
HU6HVE6118 S. 552 1151-552 137«
l.outside og kom hún út síðla
síðasta árs. Upp á síðkastið hef-
ur hann verið á tónleikaferða-
lagi til kynningar á plötunni og
tónleikarnir hér á landi í sumar
verða með þeim síðustu á því
ferðalagi. Bowie mun jafnt
flylja efni af plötunni sem eldra
efni.
„ Að mínu mati er það tóm
heppni að fá Bowie hingað til
lands, enda hefur það verið
reynt margoft áður. Bowie er
einn vinsælasti tónlistarmaður-
inn og í rauninni má segja að
aðeins Rolling Stones og Paul
McCartney hafi náð að halda
vinsældum í jafn langan tíma,“
segir Ingvar H. Þórðarson.
íslenskir ríkisborgarar
í útlöndum 1970-95
nn qóo
Dvalarlönd
1. des. 1995
75 '80 '85 '90 1 995
Erlendir ríkisborgarar*
á ísland 1970-95
6000
4000
Danmörk
Þýskaland 698
Bretland 650
Kanada 412
Eyjaálfa 392
Upprunalönd
l.des. 1995
4.807
2000-
i-----1-----1-----F----1—----H
70 75 '80 ’85 ’90 1995
Ert.
Bandarlkin
Pólland 326
Bretland 315
Noregur 305
Þýskaland 286
Taíland 208
Svíþjóð 198
Filippseyjar 167
Vietnam 102
Önnur lönd
Yfir 20 þúsund íslenskir
ríkisborgarar í útlöndum
ISLENSKUM ríkisborgurum í út-
löndum fjölgaði um nær tvö þúsund
á síðasta án, samkvæmt yfirliti sem
Hagstofa íslands hefur sent frá
sér. Þar af fjölgaði ísienskum ríkis-
borgurum í Danmörku um 1.131 í
fyrra.
Alls voru 20.832 íslenskir ríkis-
borgarar með lögheimili erlendis
hinn 1. desember síðastliðinn, af
þeim voru 18.034 fæddir á íslandi.
Langflestir voru á Norðurlöndum,
13.684, i Bandaríkjunum voru
3.511 og í Evrópu, utan Norður-
landa, voru 2.526.
Hinn 1. desember síðastliðinn
átti • lögheimili hér á landi 10.901
íbúi fæddur eriendis, en erlendir
ríkisborgarar voru 4.807. Hluti
þeirra sem fæddir eru erlendis eru
börn foreldra sem bjuggu ytra við
nám eða störf. Erlendir sendiráðs-
menn og varnarliðsmenn eru ekki
með í þessum tölum.
Hæstiréttur sýknaði íslandsbanka af kröfum eigenda Stöðvar 2
Þátttaka í hlutafjáraukn-
ingu en ekki sala bréfa
OPIÐ HUS
laugardag og sunnudag
Ekrusmári 5 og 7, Kóp.
Glæsilega hönnuð 164-173 fm raðhús á einni hæð með útsýn-
isstofu í norðvesturkvisti. Skilast fokheld að innan, fullbúin
en ómáluð að utan, lóð grófjöfnuð. Verð 8,4-9,1 millj (vestur-
endi). Einnig hægt að fá húsin lengra komin.
Byggingaraðili verður á
staðnum og sýnir húsin
á milli kl. 13 og 17 laugar- KJORBYLI
dag og sunnudag.
IlUblll Itfliyid K.UÍ
íf ^
F a ste ig n a s a la n
NÝBYLAVEGUR 14
fax00.33o7oour IS‘564 1400
IRfotiptiiMtafeitt
- kjarni málsins!
HÆSTIRÉTTUR hefur sýknað Is-
landsbanka af öilum kröfum Fjöl-
miðlunar hf. Áður hafði Héraðs-
dómur Reykjavíkur dæmt bankann
til að greiða eigendum Fjölmiðlunar
23 milljónir króna auk vaxta.
Forsaga málsins er sú að í lok
ársins 1989 leituðu þrír aðaleigend-
ur íslenska sjónvarpsfélagsins, upp-
haflegs eiganda Stöðvar 2, fyrir sér
um hlutafjáraukningu og gerðu á
gamlársdag það ár samkomulag við
Verslunarbankann um að hlutafé
félagsins yrði aukið um 400 milljón-
ir. Aðaleigendurnir skyldu kaupa
hlutabréf fyrir 150 miiljónir en
bankinn kaupa eða útvega kaup-
endur að hlutabréfum fyrir 250
milljónir. Þá var bankanum veitt
heimild til að auka hlutafé um 400
milljónir til viðbótar.
Eftir að Verslunarbankinn hætti
bankastarfsemi var nafni _________
hans breytt í Eignar-
haldsfélag Verslunar-
bankans og síðar tók ís-
landsbanki við fyrirsvari
Eignarhaldsfélagsins
vegna málsins.
Forráðamenn Eignarhaldsfélags-
ins hófu viðræður um kaup á hluta-
fé í íslenska sjónvarpsfélaginu sem
leiddu til samnings sem gerður var
9. janúar 1990 um kaup á 150
milijóna kr. hlutafé við fjóra aðila,
sem stofnuðu sameignarfélagið
Fjölmiðlun. Það gekk inn í kaupin
og tók inn nýja sameignaraðila.
Deilt um verð
gildi hluta-
bréfanna
Um þessi hlutafjárkaup var deilt
í málínu þar sem upp kom ágrein-
ingur milli þeirra sem að málinu
stóðu um hvert raunverulegt verð-
gildi hlutabréfanna hafi verið á
söludegi og hvort Eignarhaldsfélag-
ið hafi verið eigandi bréfanna eða
einungis séð um að útvega kaup-
endur að hlutafénu. Við hlutafjár-
kaupin hafði Eignarhaldsfélagið
lagt fram upplýsingar frá bankan-
um um stöðu fyrirtækisins og áætl-
anir unnar á vegum lánasviðs bank-
ans um stöðu sjónvarpsfélagsins
þar sem fram hafi komið að eftir
hlutafjáraukningu yrði eiginfjár-
staða þess ekki neikvæð.
Nokkrum dögum eftir að kaupin
voru gerð var haldinn hluthafafund-
ur í Islenska sjónvarpsfélaginu, sem
heitir nú íslenska útvarpsfélagið,
þar sem lagður var fram áætlaður
_________ efnahags- ________________
reikningur.
Þar kom fram
að eiginfjár-
staða félags-
ins væri nei
Dómi Héraðs
dóms var
snúið við
kvæð um 126,5 milljónir þrátt fyrir
hlutafjáraukninguna.
Hluthafarnir fóru fram á að
kaupverðið yrði leiðrétt og í janúar
1991 var samþykkt á fundi í Fjöl-
miðlun sf. að höfða mál fyrir dóm-
stólum vegna ágreiningsins. Dóm-
kvaddir matsmenn komust að þeirri
niðurstöðu að kaupverð hlutabréf-
anna hefði verið 23 milljónum of
hátt og dæmdi Héraðsdómur í sam-
ræmi við það.
Hæstiréttur kemst hins vegar að
þeirri niðurstöðu, að samkvæmt
samkomulaginu um hlutafjáraukn-
inguna hafi bankinn tekið að sér að
kaupa eða útvega kaupendur að
hlutabréfum fyrir 250 milljónir. Af
gögnum málsins sé ljóst, að samn-
ingurinn hafi verið um þátttöku í
aukningu hlutafjár, en ekki sölu
hlutabréfa. Um hlutafjáraukninguna
hafi hlotið að fara eftir ákvæðum
III. kafla laga nr. 32/1978 um hluta-
félög, en í 13. grein segi, að greiðsla
hlutar megi ekki nema minna en
nafnverði hans að frádreginni sann-
anlegri söluþóknun allt að 10%.
Hæstiréttur sagði því að ekki yrði
á það fallist að Eignarhaldsfélagið
hafi verið seljandi hlutafjárins í
skilningi laga nr. 39/1922 um
________ lausafjárkaup.
„Þegar það, sem að
framan greinir og að-
dragandi samningsgerð-
ar málsaðila í janúar
“1990 er virt í heild verður
ekki talið, að gagnáfrýjandi [Fjöl-
miðlun sf.] hafi sýnt fram á, að
aðaláfrýjandi [íslandsbanki] eigi að
bera bótaábyrgð að lögum gagnvart
honum. Ber þegar af þeirri ástæðu
að sýkna aðaláfrýjanda af öllum
kröfum hans,“ segir í dómi Hæsta-
réttar, sem jafnframt felldi 500 þús-
und króna málskostnað í héraði og
fyrir Hæstarétti á Fjölmiðlun sf.