Morgunblaðið - 09.03.1996, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 9. MARZ 1996 13
LANDIÐ
FRÁ fundi bæjarstjórnar í Stykkishólmi.
Rannsóknir á beitar-
svæðum hreindýra
Neskaupstað - Guðmundur
Bjarnason, bæjarsljóri Neskaup-
staðar, afhenti 263.000 krónur
til Náttúrustofu Austurlands fyr-
ir skömmu til rannsókna á þeim
svæðum í landi staðarins sem
hreindýr ganga helst á. Þessi
fjárhæð er ágóði af veiðum
þeirra hreindýra sem sveitarfé-
iaginu var úthlutað til veiða á
síðasta ári.
Rannsókn Náttúrustofunnar
felst m.a. í athugun á ástandi
gróðurs í landi Neskaupstaðar
og áhrifum beitar hreindýra á
hann.
Ljóst er að þeir fjármunir sem
fengust af veiðunum duga ekki
til þessara rannsókna. Því er
áformað að leita eftir fjármagni
og samstarfi við aðra aðila, m.a.
Veiðistjóraembættið, Rannsókn-
arráð Islands og Náttúrufræði-
stofnun íslands.
Batnandi hagur
Stykkishólmsbæjar
Stykkishólmi - Á fundi bæjarstjórn-
ar Stykkishólms 26. febrúar sl. var
fjárhagsáætlun sveitarfélagsins til
seinni umræðu og afgreiðslu. Þar
kemur fram að hagur sveitarfélag-
anna hefur batnað mikið. Mikil upp-
bygging var í Stykkishólmi á síðasta
áratug, m.a. var byggður nýr grunn-
skóli, nýtt íþróttahús og hafnarað-
staða í Súgandisey og að sjálfsögðu
jók bæjarfélagið við skuldir sínar þá.
Á síðustu árum hefur verið lögð
áhersla á að greiða niður skuldir
bæjarfélagsins og hefur verulegur
árangur náðst. Nú er svo komið að
bæjarstjórn telur sig geta farið í fjár-
festingar að nýju. Heildarijárfesting
hjá bæjarsjóði og fyrirtækjum hans
er áætluð 96,5 millj. kr. Áðalfram-
kvæmdir á vegum bæjarins á þessu
ári er bygging 7 þjónustuíbúða fyrir
aldraða og er áætlað að í það verk-
efni fari 45 millj. kr. á þessu ári og-
stefnt á að þær verði tilbúnar á
næsta ári. Þá verður farið í gerð
íþróttavallar. Til staðar er grófur.
malarvöllur sem hentar ekki lengur.
Nú er ætlunin að gera grasvöll og
endurbyggja hlaupabrautir og aðra
aðstöðu fyrir útiíþróttir. Kostnaðará-
ætlun er 10 millj. kr. og er reiknað
með^ að ljúka framkvæmdum í sum-
ar. Ymsar aðrar minni framkvæmdir
eru áætlaðar í Stykkishólmi á þessu
ári. I fjárhagsáætlun Stykkishólms-
bæjar kemur fram að tekjur sveitar-
félagsins eru áætlaðar 139 millj. kr.
Rekstrargjöldin eru áætluð 108 millj.
og mismunurinn fer til fjárfestinga
og greiðslu vaxta og afborgana.
Stærsti einstaki útgjaldaliðurinn í
rekstri eru fræðslumál og renna í
þann málaflokk um 20% af tekjum
bæjarins. U.þ.b. 50% af rekstri og
fjárfestingu. bæjarsjóðs fara í þijá
málaflokka, þ.e. fræðslumál, félags-
þjónustu og æskulýðs- og tóm-
stundamál._ Bæjarstjóri í Stykkis-
hólmi er Ólafur Hilmar Sverrisson
og hefur hann starfað síðan 1991
er hann tók við af Sturlu Böðvars-
syni er hann var kosinn til þing-
mennsku. Fyrir nokkrum árum var
Stykkishólmur talinn vera eitt af
skuldsettustu sveitarfélögum lands-
ins og þar hefur orðið breyting á.
Það hefur oft verið erfitt og vanda-
samt verk hjá bæjarstjóra að vera
með fótinn á bremsunni en árangur
í starfi hans hefur skilað árangri.
Morgunblaðið/Ágúst Blöndal
GTJÐMUNDUR Bjarnason bæjarsljóri afhenti starfsfólki Nátt-
úrustofunnar umrædda fjárhæð. Talið frá vinstri: Guðrún Jóns-
dóttir, Svavar Ólafsson og Guðmundur Bjarnason.
Unglingar
læra
skyndihjálp
Þórshöfn - Námskeið í skyndi-
hjálp var haldið fyrir skömmu
fyrir ungmenni í 10. bekk
grunnskólans hér á Þórshöfn.
Leiðbeinandi var Katrín Ósk
Þorgeirsdóttir, hjúkrunarfræð-
ingur og ljósmóðir, en hún er
jafnframt leiðbeinandi hjá
Rauða krossi íslands.
Á þessu 24 stunda námskeiði
var farið yfir mjög fjölbreytt
efni, sem of langt mál yrði að
telja upp, en nefna má t.d. end-
urlífgun, blástursaðferðina og
hjartahnoð. Mikið var lagt upp
úr stjórnun á slysstað, aðkomu
á slysstað og að greina þá slös-
uðu rétt og reyna að létta ástand
hins slasaða eða sjúka. Kólnun,
köfnun, bruni af ýmsum toga
og flutningur hins slasaða var
einnig meðal efnis á námskeið-
inu.
Þegar fréttaritari leit inn til
nemendanna var fjörugt um að
litast, en verið var að vinna með
dúkkur og hjálpartæki frá
Rauða krossinum. Nemendur
tóku námið augljóslega alvar-
lega og dúkkurnar sýndu við-
brögð með blikkandi ljósum svo
hver nemandi sá hvenær hann
gerði rétt í hjartahnoði og blást-
ursaðferð.
Námskeið sem þetta er nauð-
synlegt veganesti fyrir ungl-
inga, ekki síst þá, sem innan tíð-
ar fara út í atvinnulífið eða að
heiman í framhaldsnám. Ungl-
ingar úti á landi þurfa oftast
að flytja að heiman til að kom-
ast í framhaldsskóla og þurfa
því fyrr en jafnaldrar þeirra t.d.
á höfuðborgarsvæðinu að
standa á eigin fótum. Þessi tí-
undi bekkur, sem var að ljúka
námskeiðinu, var sammála um
gagnsemi þess, auk þess sem það
er metið sem ein eining í fram-
haldsskóla.
Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir
UNGMENNI úr 10. bekk æfa hjartahnoð og blástursaðferðina
á brúðum Rauða kross deildarinnar.
Sorpurðun á Aust-
urlandi samþykkt
SKIPULAGSSTJÓRI ríkisins hefur
fallist á fyrirhugaða sorpurðun á
jörðunum Berunesi og Þernunesi
við Iteyðarfjörð og er úrskurðurinn
byggður á frummati sem unnið var
fyrir Sorpsamlag Mið-Austurlands
og umsögnum um staðarvalið.
Urðunarstaðirnir eru Mýrdalur
og Auratún í landi Þeruness, um
300 m frá þjóðveginum, melur við
Landamótsá um 200 m frá þjóðveg-
inum og Lænur sem eru um 1,2
km frá þjóðveginum og eru tveir
síðarnefndu staðirnir í landi Beru-
ness. Undir urðunina fara um
1.000-1.500 fermetrar lands árlega.
Viss skilyrði
Fallist er á framkvæmdirnar,
með þeim skilyrðum að malarhjöll-
um fram við Mýrdal verði ekki rask-
að, í Auratúni og við Landamótsá
verði urðun hagað þannig að nýtan-
legu malarefni verði ekki spillt og
tryggt verði að hægt sé að nýta
malarefni úr námum þrátt fyrir
sorpurðun, óraskað svæði á bökkum
Landamótsár verði a.m.k. 50 m
breitt og í starfsleyfi verði ákvæði
um að urðunarsvæði sé rétt undir-
búið með tilliti til söfnunar sig-
vatns, eftirlits með efnainnihaldi
frárennslis og gass og annarra
þeirra umhverfisþátta sem Holl-
ustuvernd ríkisins telur þörf á.
Fallist er á flokkunarmiðstöð
fyrir sorp með því skilyrði að lóða-
mörk hennar verði minnst 15 metra
frá Norðurá, til að tryggja um-
ferðarrétt almennings meðfram
ánni. Jafnframt er krafa um að í
starfsleyfi verði ákvæði um mæl-
ingar og eftirlit með frárennsli frá
svæðinu og þar tekið fram að
óheimilt sé að hakka brotajárn í
stöðinni.
á morgun sunnudaginn 10. marskl. 20.30.
Forsala aðgöngumiða er frá kl. 1___
Ath: Seinni leikur liðanna ferfram þriðjudaginn 12. mars í Kaplakrika
SPARISJÓÐUR HAFNARFJARÐAR er aðalstyrktaraðili Hauka.