Morgunblaðið - 09.03.1996, Síða 23

Morgunblaðið - 09.03.1996, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ w LAUGARDAGUR 9. MARZ 1996 23 s UTI AÐ BORÐA MEÐ JULIUSI FJ ELDSTED LAGANEMA 5AFARÍK Sirloin-steikin bráðnar í munni eins og smér á brauði sem legið hefur úti í garði á sólríkum sumardegi. Ekki sakar að hún er glóð- arsteikt og pensluð með sérlagaðri barbekjú- sósu að hætti hússins. Glaðbeitt gengilbeinan þjónar til borðs eins og henni er einni lagið, enda er hún vön því að fá gesti. Við erum á veitingastaðnum Astró og klukkan er að verða átta. Það er ekki laust við að viðmælandanum bregði við fyrstu spurninguna, en eftir nokkurt hik og pat kemur þó svarið. Hverertu? Ég er Júlíus Fjeldsted. Hvað gerirðu? Ég er laganemi á fyrsta ári. Þú hlýtur þá að hafa fallið einu sinni hið minnsta. Jú, reyndar tvisvar. Myndir þú ráðleggja „venjulegum“ nemanda, sem nú væri að klára fram- haldsskóla; að fara í lagadeildina? Hvað er venjulegur námsmaður? Ég útskrifaðist frá MR og taldi mig hafa góðan grunn fyrir háskólanám, en svo reyndist ekki vera. Að mínu viti er stökkið úr framhaldsskóla í lagadeild mun meira en úr grunnskóla í framhaldsskóla, þótt það hafí verið mikið. En lagadeildin er engri annarri deild lík. Þetta er al- gjört sjálfsnám og prófið er aðeins eitt. Enginn fylgist með og maður fær aðeins eitt tækifæri. Fullt starf Erþetta ekki fullt starf, frá 9-6? Jú. í rauninni ætti deildin að gefa út bækl- ing, þar sem það kæmi fram. Flestir sem hefja nám við deildina eru bara í tómu rugli. Margir segja að námsmenn hafí gott af að fara aðeins út á vinnumarkaðinn á milli framhaldsskóla og háskóla, til að öðlast sjálf- saga. Ertu sammála því? Nei. Ég held að það væru mikil mistök. Ég held að ekkert geti undirbúið mann fyrir lagadeild betur en framhaldsskólinn. Hann gerir það bara ekki nógu vel. Þeim einstakl- ingum sem ég þekki og tóku sér frí frá námi hefur ekki gengið vel í háskólanum, þótt und- antekningar séu að sjálfsögðu til. Eitthvað hlýtur að vera að í deildinni þegar fallhlutfall er yfír 90%. Það er engin einhlít skýring á þessu háa hlutfalli að mínu mati. Ég var nýlega á fundi með hagsmunaráði Orators [félags laga- nema] og nemendum á fyrsta ári sem féllu núna. Þar var spurt hvar orsakanna væri að leita. Voru það nemendurnir, prófið eða kennslan sem brugðust? Ég er á þvi að allir þessir þættir hafi haft eitthvað að segja. Morgunblaðið/Kristinn s Lífíð í lagadeild Háskóla Islands er erfitt, en Júlíus Fjeldsted gaf sér þó tíma til að hitta Ivar Pál Jónsson yfír kvöldverði á veitingahúsinu Astró. Nú hefur oft komið fram gagn- rýni á prófíð í almennri lögfræði þess efhis að góð úrlausn byggist einna helst á utanbókarlærdómi og skilningur þurfí þar hvergi að koma við sögu. Já, núna hefur einmitt vaknað sú spurning hvort svo hafi verið í ár. Sumir segja að nú hafi ekki dugað að kunna efnið utanbókar, heldur hafi þurft að koma til skilningur og eigið mat nemenda. Ef það er rétt þá er að sjálfsögðu verið að gerbylta prófinu. Ég er á því að þetta próf hafi verið ólíkt öllum öðrum prófum sem tekin hafi verið, sama hvað hver prófessor segir. í síðasta tímanum hjá Sigurði Líndal, sem sér um prófgerðina að miklu leyti, þóttust hundrað manns heyra hann segja að prófið yrði með hefðbundnum hætti. Hann þrætir fyrir það núna. Dregur það ekki kjarkinn úr mönnum að falla jafnvel aftur og aftur? Vissulega ætti svo að vera, en í mínu tilfelli er sú ekki raunin. Sennilega er ég bara svona þrjóskur. Ég vil ekki láta stöðva mig. En san- narlega er leiðinlegt hversu margt bráð- greint fólk, og þá er ég ekki endilega að tala um sjálfan mig, lendir í þessum vítahring. Það eyðir heilu árunum í námið, leggur sig allt fram, en kröfurnar eru hreint ómann- legar. Dulbúin fjaldatakmörkun Þeirri skoðun hefur verið varpað fram í gegnum tíðina að það sé dulbúin fjöldatak- mörkun, eða numerus clausus, á fyrsta ári í lagadeild. Er eitthvað til íþví að þínu mati? Já, ég tel svo vera. Dulbúin fjöldatakmörk- un er að mínu viti hálfu verri en auglýst. Núna eru óvenju margir nemendur á öðru ári og auðvitað væri það alvarlegt mál ef þessar óvenju ströngu kröfur miðuðu að því að halda fjölda nemenda í lagadeildinni í skorðum. Ég hef alltaf verið á þeirri skoðun að þessir menn [kennarar í la- gadeild] séu hálfpartinn sjálfskipaðir hagsmunaaðilar fyrir vinnumarkaðinn. Þeir ráði hve margir fari út á vinnu- markaðinn, en ekki vinnumarkaðurinn sjálfur. Félagslífið Hvernig er lífhins dæmigerða laga- nema, svo farið sé aðeins út í aðra sálma? Ég held að dæmigerður fyrsta árs laganemi sé lítt virkm’ í félagslífi deild- arinnar. Vegna þessa mikla fjölda fyrs- ta árs nema er þeim ekki boðið í svokallaðar vísindaferðh’, þar sem fyrirtæki eru heimsótt og léttar veitingar þáðar. í raun er aðeins um tvennt að ræða: árshátíðina og hina ár- legu Þingvallaferð, sem er í byrjun hvers kennsluárs. Hinn dæmigerði laganemi á 1. ári er vinnusamur, les mikið, en árangurinn er oft ekki sem skyldi. Eitt er að lesa, annað að læra. Er æskilegt að námsmenn í erfíðu laganámi skemmti sér um helgar? Ég fór á ansi gott námskeið hjá Astu Ragnarsdóttur námsráðgjafa, þar sem hún sagði að æskilegt væri að breyta svefii- tímanum ekki um helgar, heldur fara að sofa og vakna á sama tíma og aðra daga. Ef maður gæti þetta væri maður vel staddur. En ég hef alltaf viljað skemmta mér um helgar, þó kannski ekki endilega hverja einustu. Mér finnst það nauðsynlegt til að fá útrás. Ég hitti oft og tíðum laganema á fyrsta ári á skemmtistöðunum. Hvaða skemmtistaðir eru vinsælastir hjá þér og kunningjum þínum ? Það eru Astró og Skuggabarinn. Ég er í raun alæta á þessa staði. Ég hef farið mikið á Bíóbarinn, Kaffibarinn, Síberíu, en það er mjög misjafnt hvaða staður verður fyni’ val- inu. Já, tíminn hefurliðið hratt. Eigum við ekki að segja þetta gott? Jú, ég held það. Þakka þér fyrir. Sömuleiðis. I I I I ) I ) ) ) ) i ) FELIU Eldhústæki tveggja handa handlaugartæki m/botnv. + Ivftit. I Sturtutæki m/ barka oa úöara frá kr. 3« I 68stgr. ^ VATNSVIRKINN Ármúla 21, slmi 533 2020 - Blöndurnartæki n hnoxtijeAij vprhi frá kr. 3.996stgr frá kr. 2.831 stgr. Hið Ijósa man lefkur Sigrún Edda Björnsdóttir . . Leikstjóri; Bríet Héölnsdóttir Tónlist: Jón Nordal Lelkmynd: Stígur Stelnþórsson Búningar: Messíana Tómasdóttir Lýsing: David Walters Sýnlngarstjóri: Ingibjörg Elva Bjarnadóttir Aðrir leikendur: Ari Matthfasson, Árni Pétur Guöjónsson, Bryndís Petra Bragadóttir. Guömundur E. Knudsen, Guömundur Ólafsson, Hanna María Karlsdóttlr, Jón Hjartarson, Kristján Franklín Magnús, Margrét Helga HJartardóttlr, Pálína Jónsdóttir, Pétur Einarsson, Siguröur Karlsson, Soffía Jakobsdóttir, Steindór Hjörteifsson, Theodór Júlíusson, Valgeröur Dan, Þorsteinn Gunnarsson, Þórey Slf Haröardóttlr og Þröstur Leó Gunnarsson. Frumsýníng í kvöld 9. mars kl. 20:00 á Stóra sviði Borgarieikhússina LEIKFÉLAG<1J<» reykjavíkurPM BORGARLEIKHÚSIÐ ♦ SÍMI: 568 8000 T

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.