Morgunblaðið - 09.03.1996, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ w LAUGARDAGUR 9. MARZ 1996 23
s
UTI AÐ BORÐA MEÐ JULIUSI FJ ELDSTED LAGANEMA
5AFARÍK Sirloin-steikin bráðnar í
munni eins og smér á brauði sem
legið hefur úti í garði á sólríkum
sumardegi. Ekki sakar að hún er glóð-
arsteikt og pensluð með sérlagaðri barbekjú-
sósu að hætti hússins. Glaðbeitt gengilbeinan
þjónar til borðs eins og henni er einni lagið,
enda er hún vön því að fá gesti.
Við erum á veitingastaðnum Astró og
klukkan er að verða átta. Það er ekki laust
við að viðmælandanum bregði við fyrstu
spurninguna, en eftir nokkurt hik og pat
kemur þó svarið.
Hverertu?
Ég er Júlíus Fjeldsted.
Hvað gerirðu?
Ég er laganemi á fyrsta ári.
Þú hlýtur þá að hafa fallið einu
sinni hið minnsta.
Jú, reyndar tvisvar.
Myndir þú ráðleggja „venjulegum“
nemanda, sem nú væri að klára fram-
haldsskóla; að fara í lagadeildina?
Hvað er venjulegur námsmaður?
Ég útskrifaðist frá MR og taldi mig
hafa góðan grunn fyrir háskólanám,
en svo reyndist ekki vera. Að mínu
viti er stökkið úr framhaldsskóla í
lagadeild mun meira en úr
grunnskóla í framhaldsskóla, þótt
það hafí verið mikið. En lagadeildin
er engri annarri deild lík. Þetta er al-
gjört sjálfsnám og prófið er aðeins
eitt. Enginn fylgist með og maður
fær aðeins eitt tækifæri.
Fullt starf
Erþetta ekki fullt starf, frá 9-6?
Jú. í rauninni ætti deildin að gefa út bækl-
ing, þar sem það kæmi fram. Flestir sem
hefja nám við deildina eru bara í tómu rugli.
Margir segja að námsmenn hafí gott af að
fara aðeins út á vinnumarkaðinn á milli
framhaldsskóla og háskóla, til að öðlast sjálf-
saga. Ertu sammála því?
Nei. Ég held að það væru mikil mistök. Ég
held að ekkert geti undirbúið mann fyrir
lagadeild betur en framhaldsskólinn. Hann
gerir það bara ekki nógu vel. Þeim einstakl-
ingum sem ég þekki og tóku sér frí frá námi
hefur ekki gengið vel í háskólanum, þótt und-
antekningar séu að sjálfsögðu til.
Eitthvað hlýtur að vera að í deildinni þegar
fallhlutfall er yfír 90%.
Það er engin einhlít skýring á þessu háa
hlutfalli að mínu mati. Ég var nýlega á fundi
með hagsmunaráði Orators [félags laga-
nema] og nemendum á fyrsta ári sem féllu
núna. Þar var spurt hvar orsakanna væri að
leita. Voru það nemendurnir, prófið eða
kennslan sem brugðust? Ég er á þvi að allir
þessir þættir hafi haft eitthvað að segja.
Morgunblaðið/Kristinn
s
Lífíð í lagadeild Háskóla Islands er erfitt, en Júlíus
Fjeldsted gaf sér þó tíma til að hitta Ivar Pál
Jónsson yfír kvöldverði á veitingahúsinu Astró.
Nú hefur oft komið fram gagn-
rýni á prófíð í almennri lögfræði
þess efhis að góð úrlausn byggist einna helst
á utanbókarlærdómi og skilningur þurfí þar
hvergi að koma við sögu.
Já, núna hefur einmitt vaknað sú spurning
hvort svo hafi verið í ár. Sumir segja að nú
hafi ekki dugað að kunna efnið utanbókar,
heldur hafi þurft að koma til skilningur og
eigið mat nemenda. Ef það er rétt þá er að
sjálfsögðu verið að gerbylta prófinu. Ég er á
því að þetta próf hafi verið ólíkt öllum öðrum
prófum sem tekin hafi verið, sama hvað hver
prófessor segir. í síðasta tímanum hjá
Sigurði Líndal, sem sér um prófgerðina að
miklu leyti, þóttust hundrað manns
heyra hann segja að prófið yrði með
hefðbundnum hætti. Hann þrætir fyrir það
núna.
Dregur það ekki kjarkinn úr mönnum að
falla jafnvel aftur og aftur?
Vissulega ætti svo að vera, en í mínu tilfelli
er sú ekki raunin. Sennilega er ég bara svona
þrjóskur. Ég vil ekki láta stöðva mig. En san-
narlega er leiðinlegt hversu margt bráð-
greint fólk, og þá er ég ekki endilega að tala
um sjálfan mig, lendir í þessum vítahring.
Það eyðir heilu árunum í námið, leggur sig
allt fram, en kröfurnar eru hreint ómann-
legar.
Dulbúin
fjaldatakmörkun
Þeirri skoðun hefur verið varpað fram í
gegnum tíðina að það sé dulbúin fjöldatak-
mörkun, eða numerus clausus, á fyrsta ári í
lagadeild. Er eitthvað til íþví að þínu mati?
Já, ég tel svo vera. Dulbúin fjöldatakmörk-
un er að mínu viti hálfu verri en auglýst.
Núna eru óvenju margir nemendur á öðru ári
og auðvitað væri það alvarlegt mál ef þessar
óvenju ströngu kröfur miðuðu að því
að halda fjölda nemenda í lagadeildinni
í skorðum. Ég hef alltaf verið á þeirri
skoðun að þessir menn [kennarar í la-
gadeild] séu hálfpartinn sjálfskipaðir
hagsmunaaðilar fyrir vinnumarkaðinn.
Þeir ráði hve margir fari út á vinnu-
markaðinn, en ekki vinnumarkaðurinn
sjálfur.
Félagslífið
Hvernig er lífhins dæmigerða laga-
nema, svo farið sé aðeins út í aðra
sálma?
Ég held að dæmigerður fyrsta árs
laganemi sé lítt virkm’ í félagslífi deild-
arinnar. Vegna þessa mikla fjölda fyrs-
ta árs nema er þeim ekki boðið í
svokallaðar vísindaferðh’, þar sem
fyrirtæki eru heimsótt og léttar
veitingar þáðar. í raun er aðeins um
tvennt að ræða: árshátíðina og hina ár-
legu Þingvallaferð, sem er í byrjun
hvers kennsluárs. Hinn dæmigerði
laganemi á 1. ári er vinnusamur, les
mikið, en árangurinn er oft ekki sem
skyldi. Eitt er að lesa, annað að læra.
Er æskilegt að námsmenn í erfíðu
laganámi skemmti sér um helgar?
Ég fór á ansi gott námskeið hjá Astu
Ragnarsdóttur námsráðgjafa, þar sem hún
sagði að æskilegt væri að breyta svefii-
tímanum ekki um helgar, heldur fara að sofa
og vakna á sama tíma og aðra daga. Ef maður
gæti þetta væri maður vel staddur. En ég hef
alltaf viljað skemmta mér um helgar, þó
kannski ekki endilega hverja einustu. Mér
finnst það nauðsynlegt til að fá útrás. Ég hitti
oft og tíðum laganema á fyrsta ári á
skemmtistöðunum.
Hvaða skemmtistaðir eru vinsælastir hjá
þér og kunningjum þínum ?
Það eru Astró og Skuggabarinn. Ég er í
raun alæta á þessa staði. Ég hef farið mikið á
Bíóbarinn, Kaffibarinn, Síberíu, en það er
mjög misjafnt hvaða staður verður fyni’ val-
inu.
Já, tíminn hefurliðið hratt. Eigum við ekki
að segja þetta gott?
Jú, ég held það.
Þakka þér fyrir.
Sömuleiðis.
I
I
I
I
)
I
)
)
)
)
i
)
FELIU
Eldhústæki tveggja handa
handlaugartæki m/botnv.
+ Ivftit. I
Sturtutæki m/ barka
oa úöara
frá kr. 3« I 68stgr.
^ VATNSVIRKINN
Ármúla 21, slmi 533 2020
- Blöndurnartæki
n hnoxtijeAij vprhi
frá kr. 3.996stgr
frá kr. 2.831 stgr.
Hið Ijósa man lefkur Sigrún Edda Björnsdóttir . .
Leikstjóri; Bríet Héölnsdóttir
Tónlist: Jón Nordal
Lelkmynd: Stígur Stelnþórsson
Búningar: Messíana Tómasdóttir
Lýsing: David Walters
Sýnlngarstjóri: Ingibjörg Elva
Bjarnadóttir
Aðrir leikendur: Ari Matthfasson,
Árni Pétur Guöjónsson, Bryndís Petra
Bragadóttir. Guömundur E. Knudsen,
Guömundur Ólafsson, Hanna María
Karlsdóttlr, Jón Hjartarson,
Kristján Franklín Magnús, Margrét
Helga HJartardóttlr, Pálína Jónsdóttir,
Pétur Einarsson, Siguröur Karlsson,
Soffía Jakobsdóttir, Steindór
Hjörteifsson, Theodór Júlíusson,
Valgeröur Dan, Þorsteinn
Gunnarsson, Þórey Slf Haröardóttlr
og Þröstur Leó Gunnarsson.
Frumsýníng í kvöld 9. mars
kl. 20:00 á Stóra sviði Borgarieikhússina
LEIKFÉLAG<1J<»
reykjavíkurPM
BORGARLEIKHÚSIÐ ♦ SÍMI: 568 8000 T