Morgunblaðið - 09.03.1996, Page 31

Morgunblaðið - 09.03.1996, Page 31
30 LAUGARDAGUR 9. MARZ 1996 MORGUNBLAÐIÐ i MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MARZ 1996 31 STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. FUNDATÆKNII STAÐ FERÐALAGA SÖLUMIÐSTÖÐ hraðfrystihúsanna hefur tekið sjón- varps- og símatæknina í þjónustu sina í rekstri fyrirtækisins. Símakerfi þess er þannig uppbyggt, að nýja skrifstofan á Akureyri er tengd innanhússsíma- kerfinu í Reykjavík og þannig má segja að skrifstofurn- ar tvær séu ein heild fyrir viðskiptavininn. Þá notaði fyrirtækið þessa tækni til að kynna starfsemi sína á fundi, sem haldinn var samtímis á báðum stöðum. Augljós hagur er af þessu fyrirkomulagi fyrir fyrir- tækið. Einn fundur er haldinn í staðinn fyrir tvo og sparast þannig mikill tími fyrir starfsmenn, ferðakostn- aður og ýmis annar kostnaður sem fylgir fundahaldi. Fundarmenn fylgdust með því sem fram fór á stóru tjaldi og var sjónvarpstæknin notuð til að endurvarpa þangað myndum úr fundarsölum. Jafnframt var unnt að taka þátt í umræðum á báðum stöðum sem um einn fund væri að ræða. Tæknin hefur gert það kleift í mörg ár að halda slíka fundi samtímis nánast hvar sem er í heiminum, hvort sem er um rásir í ljósleiðurum eða gervihnöttum. Mikil tregða hefur þó verið til að nýta þessa tækni til sparnaðar, ekki sízt í opinberri þjónustu. Er það með miklum ólíkindum þegar hagsmunir skattgreiðenda eru hafðir í huga. Sem dæmi um sparnaðinn má nefna dýrar flugferðir, gistingu og uppihald og hvers konar annan kostnað. Þá er að sjálfsögðu ótalinn dýrmætur tími þessara starfsmanna almennings sem fer í ferða- lögin og fundarseturnar. Nokkuð mun hafa verið um það, að embættismenn efni til svonefndra símafunda landa í milli. Kostnaður- inn er talsverður, en samt í engri líkingu við ferða- kostnað utanlands. Erlend samskipti eru óhjákvæmileg í nútíma stjórnsýslu, en er nauðsynlegt að fjölmennir hópar opinberra starfsmanna fari á hverjum degi til Brussel, Norðurlanda og margra annara staða til að sækja fundi og ráðstefnur, sem hafa óljóst gildi? í stað margra þessara funda má örugglega notast við símann, faxtækið, tölvuna eða aðra nútímatækni í fjar- skiptum. FRÁLEIT ÁKVÖRÐUN FORSETA FIDE AKVÖRÐUN forseta Alþjóðaskáksambandsins, FIDE, um að halda næsta heimsmeistaraeinvígi sambandsins í Bagdad, höfuðborg íraks, er fráleit. Forsetinn, Kirsan Ilúmjinov frá Rússlandi, hefur ekki einvörðungu tekið þessa ákvörðun án samráðs við skák- samböndin, sem aðild eiga að FIDE, heldur gengur hann með henni þvert á þá alþjóðlegu samstöðu, sem hefur ríkt um að sniðganga stjórnina í írak og komið hefur fram m.a. í ályktunum öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna og refsiaðgerðum samtakanna gegn írak. Með því að halda skákeinvígi í Bagdad er FIDE, sem eru stór og öflug samtök iðkenda skákíþróttarinnar um allan heim, að veita einræðis- og ógnarstjórn Sadd- ams Hussein óbeina viðurkenningu. Slíkt geta skák- sambönd frjálslyndra lýðræðisríkja ekki með nokkru móti sætt sig við. Það er því engin furða að forseti Skáksambands íslands lýsi því yfir í Morgunblaðinu í dag að til greina komi að Islendingar segi sig úr FIDE, gangi þetta eftir. Ákvörðun Ilúmjinovs hefur ekkert með hag skák- íþróttarinnar að gera. Hún hlýtur að vera, eins og Friðrik Ólafsson, fyrrverandi forseti FIDE, segir í Morgunblaðinu í dag, „fljótfærnisákvörðun sem byggir á pólitískri afstöðu gegn írak eða flónsku“. Sé um það fyrra að ræða, liggur auðvitað ljóst fyr- ir að það er engan veginn viðeigandi að misnota skák- íþróttina í þágu stjórnmála, þótt vera kunni að í Rúss- landi vilji einhver öfl beita slíkum ráðum til þess að gera sig gildandi í Mið-Austurlöndum. Sé það síðara hins vegar tilfellið, hljóta ráðin einfaldlega að verða tekin af Ilúmjinov. Framundan eru breytingar á leiðbeiningarþjónustu í landbúnaði Aukin krafa um lægri fjárframlög ríkisins Miklar líkur eru á að breytingar verði gerðar á leiðbeiningarþjónustu í landbúnaði á næstu árum. Af hálfu fjármálaráðuneytisins er vax- andi krafa um að framlög ríkisins til þjón- ustunnar verið lækkuð. Framkvæmdastjóri Bændasamtakanna segir í samtali við Egil Olafsson að ráðunautar verði í auknum mæli að taka gjald fyrir þjónustu sína. Mat ráðuneyta á kostnaði við leiðbeiningaþjónustu í landbúnaði "S" rfttsí'Æ Landbúnaðar- ráðuneyti Landsráðunautar, BÍ 80 70 Héraðsráðunautar, BÍ 45 40 Kynbótastöðvar 35 Héraðsdýralæknar 40 Hagþjónusta landbúnaðarins 12 Rannsóknastofnun landbúnaðarins 60-80 5 Veiðimálastofnun 7 Skógrækt ríkisins 20 Landgræðsla ríkisins 15 Framleiðnisjóður 10 SAMTALS: 272-290 167 Flugstöb Leifs Eiríkssonar 1. hæb -jm D D = D r Útlendingaeftirlit JTÚ D D Verslanir X3B a 0 D, ............j 0 D Veitingar og bibsvæbi -TlB D D D D D Dj Kostur A: Þjónustumiðstöð er byggð undir núverandi landgangi og eru þær byggingar sem fyrir eru látnar halda sér. Þjónustumiðstöðin er sex metrum breiðari en núverandi landgangur til að skapa sæmilegt rými fyrir verslanir og veitingaaðstöðu. Ókosturinn er hins vegar sá, að fjárfestingin nýtist ekki nema að takmörkuðu leyti hvað snertirframtíðarstækkun flugstöðvarinnar. Flugstöb Leifs Eiríkssonar 2. hæb Verslanir, veitingar- og bibsvæbi Utlendingaeftirlit TT ki T2 Kostur B: Fyrsti áfangi að tveggja hæða þjónustumiðstöð sem byggð er við endann á núverandi landgangi. Á myndinni er þjónustumiðstöðin sýnd á annarri hæð með tengigangi á jarðhæð milli umferðarkjarna og hliða í núverandi landgangi. Þessi mynd er gerð til þess að sýna staðsetningu og umfang. Hún er ekki nákvæm. Framkvæmdasýsla ríkisins leggur til að byggt verði við Leifsstöð Kostnaður vegna Schengen og umferðar- aukningar 400 milljónir GUÐMUNDUR Bjarnason landbúnaðarráðherra áformar að setja á stofn nefnd sem á m.a. að koma með tillögur um breytingar á skipu- lagi leiðbeiningarþjónustu í landbún- aði. Magnús Pétursson, ráðuneytis- stjóri í fjármálaráðuneytinu, vill að bændur sjái sjálfir um að fjármagna leiðbeiningarþjónustuna. Sverrir Bjartmarz, hagfræðingur Bænda- samtakanna, vill að samtök bænda taki nú þegar frumkvæði í þessu máli og setji fram tillögur um breyt- ingar á leiðbeiningarþjónustunni áð- ur en ríkið sker framlag sitt til henn- ar niður. Skipulag og kostnaður við leið- beiningarþjónustu í landbúnaði var til umræðu á ráðunautafundi á veg- um Bændasamtakanna og Rann- sóknastofnunar landbúnaðarins (RALA) í síðasta mánuði. í mörg ár hefur verið rætt um að þörf sé á að gera breytingar á þjónustunni og eins hefur fjármögnun hennar verið umdeild. í dág er kostnaður við leið- beiningarþjónustuna greiddur úr þremur áttum, frá ríkinu, af búnað- armálasjóði, sem fær fjármagn frá bændum í gegnum búvöruverð, og með þjónustugjöldum sem bændur greiða. Ríkið greiðir 74% af kostnaði við ráðunauta sem starfa á vegum Bændasamtakanna og 35% af kostn- aði við rekstur þjónustu héraðsráðu- nauta, sem starfa á vegum búnaðar- málasambanda um allt land. Mismunandi mat Nokkuð mismunandi er hvaða mat menn hafa á því hver kostnaður rík- issjóðs er við leiðbeiningarþjón- ustuna og fer það eftir því hvernig menn skilgreina leiðbeiningarþjón- ustu. Eru kynbætur og starfsemi dýralækna leiðbeiningarþjónusta? Hve stór hluti af starfsemi RALA, Framleiðnisjóðs landbúnaðarins, Skógræktar ríkisins, Landgræðslu ríkisins og Veiðimálastofnunar flokkast sem leiðbeiningarþjónusta? Hvernig á að skilgreina starfsemi bændaskólanna og Garðyrkjuskól- ans? Magnús Pétursson sagði á ráðu- nautafundinum að með því að flokka sem leiðbeiningarþjpnustu starfsemi Bændasamtaka íslands, búnaðarfélaga, þætti í starfsemi RALA, kynbæt- ur, dýralæknaþjónustu og vissan stuðning Fram- leiðnisjóðs næmi kostnaður ríkisins við hana 400-500 milljónum. Sé þjónustan hins vegar skilgreind sem starfsemi BÍ, héraðsráðunauta, hér- aðsdýralækna, kynbótastöðva og hagnýts rannsóknarstarfs bænda- skólanna og RALA nemi þessi kostn- aður fast að 300 milljónum. Guðmundur Bjarnason landbúnað- arráðherra mótmælti þessum tölum við setningu búnaðarþings í vikunni og sagði að kostnaður ríkisins við leiðbeiningarþjónustuna næmi um 170 milljónum. Hann taldi óeðlilegt að telja með kostnað við störf héraðs- dýralækna, hluta af starfsemi bændaskólanna og stjórnsýslustörf sem unnin eru af Bændasamtökun- um fyrir ríkið. Guðmundur viður- kenndi hins vegar að 170 milljónir væru miklir peningar og hann vildi í samvinnu við Bændasamtökin leita leiða til að nýta þessa fjármuni betur. Sigurgeir Þorgeirsson, fram- kvæmdastjóri Bændasamtaka ís- lands, sagði nauðsynlegt að gera greinarmun á leiðbeiningarþjónustu, rannsóknum í landbúnaði og kennslu í búnaðarfræðum. Hann sagði það sitt mat að færa mætti rök fyrir því að 150-170 milljónir færu í leiðbein- ingarþjónustu frá ríkinu með beinum eða óbeinum hætti. Starfsemi RALA og Veiðimálastofnunar kostar ríkis- sjóð samtals um 165 milljónir og sagði Sigurgeir nauðsynlegt að hafa í huga að hluti af starfsemi þessara stofnana væri ekki beint tengdur landbúnaði. Verulegur hluti af rann- sóknarstarfsemi RALA væri orðinn vistfræðilegs eðlis og myndi verða stundaðar hér þó að enginn landbún- aður væri á íslandi. Sama mætti segja um Veiðimálastofnun. Þar væru stundaðar rannsóknir á vist- fræði vatna og áa. Af sumu af því hefðu bændur hagnýt not, en annað væri stundað óháð þeirra hagsmun- um. Rekstur bændaskólanna og Garð- yrkjuskólans kostar ríkið í ár um 200 milíjónir. Sigurgeir sagðist vilja vekja athygli á því að verulegur hluti starfsemi Bændaskólans á Hólum væri tengdur íslenska hestinum og Garðyrkjuskólinn væri að verulegu leyti orðinn skóli sem tengdist vist- fræðilegum þáttum frekar en ylrækt. Hvers vegna á ríkið að borga þetta? Þó menn geti haft mismunandi skoðanir á því hversu mikinn kostnað ríkið ber af leiðbeiningarþjónustunni stendur eftir spurningin, hvers vegna eigi ríkið og hinn almenni skattgreið- andi að bera kostnað af þessu? „Menn verða fyrst að spyija sig þeirrar spurningar, hvers vegna ríkið styrkir landbúnað yfirleitt. Ef það markmið er enn við lýði að styrkja land- búnað, annars vegar til þess að halda niðri vöru- verði og hins vegar vegna byggðasjónarmiða, er að mínu mati mjög skynsam- Iegt að styrkja þennan enda framleiðslunnar. Það verður að hafa það í huga að til þessa þáttar fara aðeins 4-5% af þeim styrk sem ríkið ver til búvöruframleiðslunnar. Ég held hins vegar að það sé rétt að skipuleggja kostun þessarar starf- semi þannig að kostnaðarvitundin stýri svolítið starfseminni, þ.e.a.s. á hvað er lögð áhersla. Við þurfum að ganga lengra í því en gert er í dag að taka gjöld fyrir veitta þjónustu sem einstaklingar fá,“ sagði Sigur- geir. I erindi á ráðunautafundinum benti Magnús Pétursson á að að- stæður í landbúnaði hefðu mikið breyst síðan leiðbeiningarþjónustan var skipulögð. „Gleymum því ekki, að mikið af leiðbeiningarstarfi fyrri ára hefur farið fram við aðstæður, þar sem framleiðslan er til þess að gera laustengd við markaðinn eða eftirspurnina. Hefðu neytendur haft meira að segja um framleiðsluna og atvinnugreinin þurft að kosta rann- sóknar- og leiðbeiningarstarfið með beinum hætti, hef ég trú á að það væri með nokkuð öðrum hætti. Þegar litið er fram á við, efast ég um að núverandi skipan á leiðbein- ingarstarfinu sé vel til þess fallin að hjálpa atvinnugreininni í gegnum þá erfiðleika sem hún stendur frammi fyrir. í rauninni tel ég því, að sam- þætting alls þessa sé það sem leggja beri áherslu á og að marka þurfi stjórnsýslu og leiðbeiningarstarfi landbúnaðarins sess út frá því,“ sagði Magnús. Gjaldtaka aukin Sigurgeir sagðist vera þeirrar skoðunar að taka ætti upp í meira mæli gjaldtöku fyrir einstaka þætti í leiðbeiningarþjónustunni, sérstak- lega þá sem menn njóta sem einstaklingar. Hann sagði að í dagværi 10-15% kostnaðar vegna leiðbein- ingarþjónustunnar fjár- magnaður með þjónustu- gjöldum og þetta hlutfall þyrfti að hækka. Sigurgeir sagði hins vegar mikilvægt að kostnaður við almennt skýrslu- hald, sem er grundvöllur leiðbeining- arþjónustunnar, yrði greiddur af bændum sameiginlega. Ástæðan væri sú að bændur sem gera skýrsl- ur um afurðir búfjár síns njóti þessi í engu umfram hina sem gera engar skýrslur. Með því að innheimta þjón- -k ustugjöld af bændum, sem sinna skýrsluhaldi, væri hætta á að færri gerðu skýrslur og þar með yrði árangur af leiðbeiningarstarfinu minni. Sigurgeir sagði hins vegar eðlilegt að einstaklingsbundin þjón- usta svo sem fóðuráætlanir og úttekt á einstökum gripum væri greidd af bændum sjálfum. Magnús lagði til á ráðunautafund- inum að bændur tækju að sér að greiða 300 milljóna króna kostnað við leiðbeiningarþjónustuna og það yrði gert með hækkun búnaðarmála- sjóðsgjalds, en það er innheimt af búvöruverði. Jón Erlingur Jónasson, aðstoðar- maður landbúnaðarráðherra, sagði að það mætti færa rök fyrir því að ekki væri ýtrustu hagkvæmni gætt í leiðbeiningarþjónustu í sumum landshlutum. Vegakerfið hefði batn- að mikið frá því þessi þjónusta var upphaflega skipulögð og þjappa mætti þjónustunni saman og tengja hana við starfsemi atvinnuráðgjafa, ráðgjöf í skógrækt o.fl. Jón Erlingur sagði að landbúnað- arráðherra fyrirhugaði að loknu bún- aðarþingi, að setja á stofn nefnd til að skoða framtíðarskipulag leiðbein- ingarþjónustunnar. Nefndinni væri einnig ætlað að endurskoða jarð- ræktarlögin. Hann sagði að ráðherra hefði óskað eftir því að búnaðarþing setti fram hugmyndir um breytingar á leiðbeiningarþjónustunni, sem yrðu veganesti fyrir nefndina. Skotland eða Danmörk fyrirmyndir? Jón Erlingur sagði að við framtíð- arskipulagningu leiðbeiningarþjón- ustunnar yrði ekki síst horft til Dan- merkur og Skotlands. Á ráðunauta- fundinum fluttu Arne Nielsen, frá dönsku leiðbeiningarþjónustunni, og James Gilmour, frá skosku leiðbein- ingarþjónustunni, erindi um hvernig þjónustunni er hagað í þessum lönd- um. I Danmörku reka félagssamtök bænda leiðbeiningarþjónustuna og fær hún ákveðið fjármagn frá ríkis- valdinu til þess. í Skotlandi er skipu- lagið þannig að sjálfstætt hlutafélag rekur skóla, rannsóknir og leiðbein- ingar í landbúnaði og fær til þess styrk frá stjórnvöldum. Jón Erlingur sagði nauðsynlegt að skoða reynslu nágrannaþjóða okkar af skipulagi leiðbeiningarþjónustunnar. Hann sagðist þó telja nauðsynlegt að ríkið niðurgreiddi þessa þjónustu áfram til þess að stuðla að því að bændur nýttu sér hana. Sverrir Bjartmarz, hagfræðingur Bændasamtakanna, sagði á aðal- fundi Landssambands kúabænda í fyrra að hann teldi að leiðbeiningar- þjónustan myndi þróast í þá átt að henni yrði sinnt af sjálfstæðum fyrir- tækjum ráðunauta, sem seldu bænd- um þjónustu sína. Hann sagði í sam- tali við Morgunblaðið að þetta myndi ekki breytast í þessa veru á allra næstu árum. Það sem mestu skipti núna væri að samtök bænda myndu bregðast við þeirri kröfu stjórnvalda að dregið yrði úr kostnaði ríkissjóðs við leiðbeining- arþjónustuna. „í mínum huga er ljóst að ríkið mun á næstu árum minnka framlag sitt til leiðbeiningarþjónustunnar. Ég tel að Bændasamtökin eigi núna strax að taka frumkvæði í þessum málum áður en ríkið dregur sig út úr þessu. Það er betra fyrir okkur að geta mótað nýtt skipulag frekar en að standa allt í einu uppi með allt niður um sig,“ sagði Sverrir. HALLDÓR Ásgrímsson utan- ríkisráðherra kynnti í gær fyrir ríkisstjórninni skýrslu Framkvæmda- sýslu ríkisins um breytingar á Flug- stöð Leifs Eiríkssonar vegna aukinnar flugumferðar og hugsanlegrar aðildar íslands að Schengen-vegabréfasam- komulaginu. Aðild að Schengen er nauðsynleg til að viðhalda núverandi vegabréfsfrelsi á Norðurlöndum. Framkvæmdasýslan leggur til að byggð verði 2.000 fermetra viðbygg- ing við enda núverandi landgöngurana við flugstöðina, ásamt því að land- göngubrúm verði fjölgað úr sex í níu. Kostnað við þetta áætlar Fram- kvæmdasýslan um 400 milljónir króna. Þar af koma 150 til vegna hugsanlegrar Schengen-aðildar, en gangi ísland í Schengen verður að aðskilja farþega, sem eru að ferðast innan Schengen-svæðisins, og þá, sem eru að fara út af því eða koma inn á það. Þarf þjónusturými fyrir 500 farþega í einu í skýrslu Framkvæmdasýslunnar, sem utanríkisráðherra lagði fyrir rík- isstjórn, kemur fram að að miðað við ástandið nú og allra næstu ár sé hæfilegt að gera ráð fyrir að þjónusta þurfi um 500 utan-Schengenfarþega í einu í sérstöku þjónusturými, þar sem þeir séu aðskildir frá Schengenfarþeg- um. Miðað við ástandið eins og það verði, þegar stækkunarmöguleikar Leifsstöðvar verði fullnýttir, þ.e. stöð- in stækkuð til norðurs og tveimur örmum bætt við núverandi landgöng- urana, megi gera ráð fyrir að um 1.000 farþegar geti notið þjónustu í þjónusturýminu. í skýrslunni er miðað við að þörf fyrir aukið þjónusturými verði .leyst með því að byggja þjónustumiðstöð fyrir utan- Schengenfarþega. Reiknað er með að lengingu landgöngu- ranans í fulla lengd og gerð nýrra, steyptra flughlaða verði slegið á frest. Þær fram- kvæmdir séu dýrar en ekki mjög brýnar. Þó þurfi að taka mið af því við hönnun þjón- ustumiðstöðvarinnar að ráðizt verði í þessar framkvæmdir eftir nokkur ár. „Rétt er að undirstrika að hér er um að Kostnaður vegna við- byggingar við Flugstöð Leifs Eiríkssonar er nú áætlaður um 400 millj- ónir króna, þar af 150 vegna aðildar íslands að Schengen-samkomulag- inu. Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra segir að ekki sé hægt að hafna aðild vegna kostnaðar. ræða framkvæmdir, sem ráðast þarf í, óháð því hvort ísland gerist aðili að Schengen-samkomulaginu eða ekki,“ segir Framkvæmdasýslan. „Sama gildir um nauðsynlega fjölgun innritunarstaða og endurbætur á að- stöðu við móttöku farangurs komu- megin í aðatbyggingu flugstöðvar. Þær úrbætur þarf að framkvæma, raunar fyrr en seinna, óháð því hvort ísland gerist aðili að Schengen-sam- komulaginu eða ekki.“ í skýrslu stofnunarinnar eru skoð- aðir tveir kostir. Annars vegar er um að ræða að breikka landgönguranann og bæta við byggingum undir honum, en hins vegar að byggja sérstaka byggingu við enda ranans. Fyrri kost- inn segir Framkvæmdasýslan ódýrari, en ókosturinn við hann sé að fjárfest- ingin nýtist ekki nema að mjög tak- mörkuðu leyti hvað snerti framtíðar- stækkun flugstöðvarinnar. Framkvæmdasýslan mælir því með seinni kostinum. Samkvæmt honum yrði byggður fyrri áfangi þjónustu- miðstöðvarinnar, um 2.000 fermetrar, og umferðarkjarni milli hæða. Talið er æskilegt að tengja megi allt að þrjár landgöngubrýr við þjónustumið- stöðina og fjölga þannig flugvélastæð- um, sem þjóna má með landgöngubrú, um tvö. Kostnaðurinn er áætlaður um 400 milljónir. Þetta er mun lægri tala en fram kom í fyrri áætlunum Húsa- meistara ríkisins, þar sem einnig var gert ráð fyrir viðbyggingu við enda landgönguranans. Þar var rætt um kostnað, sem yrði allt að milljarði króna. Halldór Ásgrímsson segir að í tillögu Framkvæmdasýslunnar sé gert ráð fyrir mun einfaldari byggingu og að sama skapi ódýrari. Inni í kostnað- aráætlun Framkvæmdasýslunnar séu hins vegar ekki þær breytingar, sem nauðsynlegt sé að gera í sjálfri flug- stöðinni vegna aukins umferðarálags. „Ég held að þetta sé einfaldasta og ódýrasta lausnin. Þar falla saman þarfir vegna aukinnar umferðar og vegna Schengen-málsins," segir utan- ríkisráðherra. Ekki hægl að hafna samstarfi vegna kostnaðar Halldór segir að nú séu fengnar réttar forsendur til að meta hvort rétt- lætanlegt sé að hafna aðild að Scheng- en-samkomulaginu vegna kostnaðar. „Mitt mat er að ekki sé hægt að hafna samstarfi við Seheng- en-ríkin af kostnaðarástæðum. Ég tel að pólitískt skipti afar miklu máli fyrir okkur að vera með í því,“ segir ráðherra. Halldór segir að næsta skref hvað varðar framkvæmdir við Leifsstöð verði væntanlega ‘að bjóða út teikningar af breyting- unum. Hann geti hins vegar ekki sagt til um hvenær fram- kvæmdir muni hefjast. íslenzk stjórnvöld þurfi þó alveg á næstunni að gera upp við sig, hvort þau ætli að taka boði um samstarfssamning við Scheng- en-ríkin. Sjálfstætt hlutafélag rekur leið- beiningar- þjónustu í Skotlandi Vilji til að auka töku þjónustu- gjalda vegna leiðbeiningar- þjónustu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.