Morgunblaðið - 09.03.1996, Blaðsíða 34
34 LAUGARDAGUR 9. MARZ 1996
" MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
Hvað er verkjavítahringur? María Björk Olafsdóttir og Sólveig B. Hlöðvers-
dóttir sjúkraþjálfarar úr faghópi um gigt fjalla um ýmislegt sem hefur áhrif á verki.
Sjúkraþjálfarinn
segir ...
Lærðu að
lifa með
gigtinni
FRÆÐSLA skiptir miklu þegar um
er að ræða langvinnan sjúkdóm
eins og gigtina. Mikilvægt er að
fræðast sem mest um sjúkdóminn
og afleiðingar hans. Þó að lyf séu mikilvæg-
ur þáttur í meðferðinni skiptir ekki síður
máli hvernig hver og einn tekst á við sjúk-
dóminn. Hver þarf að læra hvað hann get-
ur gert sjálfur til að hafa áhrif á líðanina
í daglegu lífi.
Mikilvægt er að fræðast um hvemig á
að hiífa bólgnum liðum við of miklu álagi,
hvaða hjálpartæki koma að gagni, læra
rétta líkamsbeitingu og hvaða þjálfun er
við hæfi. Nauðsynlegt er að læra að taka
tillit til gigtarinnar án þess að hún stjórni
lífinu og færast ekki of mikið í fang, skipu-
leggja tímann vel þannig að álag verði
ekki of mikið sem leiðir til verkja og þreytu.
Setja sér raunhæf markmið og fara eftir
þeim.
Verkjavítahringur
Af ýmsu er að taka varðandi fræðslu
en hér verður aðallega fjallað um verkina
María Björk
Ólafsdóttir
Sólveig B.
Hlöðversdóttir
og ýmsa þætti sem geta haft áhrif á þá.
Verkir eru eitt stærsta vandamál gigtar-
sjúklinga. Þeir geta stafað af bólgnum
og/eða skemmdum liðum en ekki síður af
streitu, spenntum eða kraftlitlum
vöðvum og ýmsum tilfinningum.
Samverkan þessara þátta myndar oft
svonefndan verkjavítahring (sjá
mynd).
Mjög mikilvægt er að gera sér grein
fyrir hvort verkjavítahringur er til
staðar og vinna þá markvisst að því
að rjúfa hann og koma í veg fyrir að
hann myndist aftur. Það er hægt með
því að hafa áhrif á einn eða fleiri
þætti sem mynda vítahringinn. Verður
nú bent á ýmsar leiðir til þess.
Vöðvaspenna
Verkur sem t.d. getur stafað af
bólgu í lið veldur ósjálfrátt spennu í
vöðvum umhverfis hann því að við
reynum að vernda verkjastaðinn.
Langvarandi vöðvaspenna minnkar
blóðstreymi til vöðvanna og verkir
aukast. Mikilvægt er því að slaka á spennt-
um vöðvum t.d. með daglegum æfíngum,
stunda slökun reglulega, fara í sund eða
heitt bað.
Streita
Eðlilegt er að sá sem er með gigt sé
haldinn kvíða eða streitu, m.a. um sjúk-
dómshorfur og framtíðina. Get ég stundað
mína vinnu og tómstundaiðju áfram, séð
fjölskyldu minni farborða o.s.frv? Streita
getur aukið vöðvaspennu sem síðan veldur
verkjum eða eykur þá verki sem fyrir eru.
Margt má gera til að draga úr streitu, s.s.
stunda slökun, gönguferðir, minnka kaffi-
drykkju og ekki síst fræðast og læra að
takast á við sjúkdóm sinn.
Þunglyndi
Flestir ef ekki aliir með gigt finna ein-
hvern tímann.til þunglyndis eða depurðar.
Hver kannast ekki við að langa ekki á
fætur á morgnana, hafa ekki áhuga á að
klæða sig eða snyrta. í þannig hugará-
standi magnast öll líkamleg vanlíðan, s.s.
verkir og þreyta. Miklu skiptir því að láta
depurðina ekki ná tökum á sér en leita allra
ráða til að vinna bug á henni. Hægt er að
finna sér eitthvað smátt eða stórt til að
hlakka til á hveijum degi, hafa samband
við vini og ættingja, halda sér til, fara á
kaffihús, í gönguferð eða sund og þannig
mætti lengi telja.
Þreyta
Þreyta eða slen getur verið beinn fylgi-
fiskur gigtarsjúkdóma en einnig stafað af
lélegu líkamlegu ástandi, depurð eða lélegu
næringarástandi. Því er ekki alltaf rétta
leiðin að hvíla sig. Betri leið er að öðlast
meira þrek, t.d. með því að stunda leikfimi
við hæfi, fara reglulega í gönguferðir, sund
eða gera eigin æfingar heima. Þó má ekki
gleyma því að hvíld er mjög mikilvæg, sér-
staklega eftir allt álag, s.s. líkamsrækt eða
vinnu, hvort sem það eru heimilisstörfin eða
önnur vinna.
Námskeið eru haldin hjá Gigtarfélagi
íslands þar sem kenndar eru ýmsar aðferð-
ir til sjálfshjálpar, þ. á m. leiðir til að ijúfa
verkjavítahringinn.
María Björk Ólafsdóttir og Sólveig B.
Hlöðversdóttir eru sjúkraþjálfarar hjá
Gigtarfélagi íslands.
Vímuefnavandinn -
forvarnarstarf Lions
MEGINKJARNINN í Liöns-
Quest námskeiðinu sem á íslensku
er nefnt „Að ná tökum á tilver-
unrii“ er eftirfarandi:
1. Að hjálpa ungu fólki til að
þroska með sér eiginleika eins
og sjálfsaga, ábyrgðartilfinn-
ingu, góða dómgreind og hæfni
til samskipta við aðra.
2. Að hjálpa ungu fólki til að
efla tengsl við fjölskyldu, skóla,
jafnaldra og samfélagið og til-
einka sér auk þess heilbrigðan
og vímuefnalausan lífsmáta.
Við lesum í blöðunum og heyrum
í útvarpinu um þjófnaði, glæpi og
líkamsmeiðingar. Við stynjum og
segjum að við sjáum
hvert stefnir. Hvað
verður eiginlega um
þessa nýju kynslóð? En
getum við verið viss um
að sökin sé aðeins
þeirra? Kannski eigum
við nokkra sök á þessu.
Of mikið eyðslufé, of
miklar tómstundir og
of margar kvikmyndir
um glæpi.
Meira en helmingur
af öllu því fólki sem
býr á jörðinni er ungt
fólk undir 25 ára aldri.
Þetta unga fólk er
Jón Bjarni
Þorsteinsson
framtíð okkar. Ég og
margir aðrir telja að
ein aðalhindrunin í
vegi forvama hafi oft
verið sú árátta
manna að leita að
blóraböggli. Margir
voru að leita að ein-
hveijum til að kenna
um faraldur vímu-
efnanotkunar,
kenndu skólunum
um. En skólamenn-
irnir sökuðu foreldr-
ana. Þeir sögðu: For-
eldrunum er orðið
sama. Astæða þess
að ungt fólk notar vímuefni nú er
sögð sú að foreldrar veija ekki leng-
ur tíma með börnum sínum. Börnin
era ekkert öguð og þau fá engan
stuðning heima. Hver hefur ekki
heyrt þetta? Síðan komum við og
ásökum fjölmiðla eða stjórnvöld.
í námsefni Lions-Quest er eitt
aðalatriðið það að taka afstöðu sem
er ábyrg, þ.e. að segja einfaldlega
nei. Færni sú sem kennd er í náms-
efninu „Að ná tökum á tilverunni"
fjallar m.a. um eftirtalin atriði:
Samskipti og samvinnu. Að byggja
upp sjálfstraust, sjálfsaga og
ábyrgðartilfinningu. Að skilja og
hafa stjórn á tilfinningum. Að leysa
vandamál og taka skynsamlegar
ákvarðanir. Að vera gagnrýnin í
hugsun. Að greina og standast nei-
kvæð áhrif og þrýsting frá jafnöldr-
um. Að setja sér markmið og ná
þeim. Hjálpa og leggja öðrum lið.
Þátttaka foreldra er í námskeiði
Lions-Quest í tengslum við verkefni
nemenda s.s. heimavinnu, með
Eining er séreignarsjóður í vörslu Kaupþings hf.
Sjóðurinn sýndi bestu ávöxtun séreignarsjóða á síðasta ári
8,8% nafnávöxtun eða 7,0% raunávöxtun
400 manns gengu í Einingu á síðasta ári
h*. Sjóðurinn er ávaxtaðar örugglega, að mestu í ríkisverðbréfum
Treystu ekki hverjum sem erfyrir þinni framtíð
KAUPÞING HF
-elsta o£ stærstit
verðbréfqfyrirtsehi lu ndsins
Hafðu samband við ráðgjafa í síma 5151500
Aðalhindrunin í vegi
forvarna, segir Jón
Bjarni Þorsteinsson,
er sú árátta að leita
að blóraböggli.
lestri foreldrabóka og með því að
sækja fjóra foreldrafundi sem er
hluti námsefnisins. Kennari á ungl-
ingastigi segir m.a. um þetta náms-
efni: „Lions-Quest er frábært náms-
efni þar sem farið er inn á marga
mannlega þætti, leitast er við að
byggja upp krakkana þannig að
þeir taki ákvarðanir á sínum eigin
forsendum og láti ekki aðra teyma
sig í eitthvað sem þeir ekki vilja
og getur jafnvel valdið þeim heilsu-
tjóni. Lofsvert framtak sem mun
skila okkur betra fóíki út í þjóðfé-
lagið.“
Því er meginmarkmið Lions-
Quest að vinna saman að því að
búa börnum og unglingum betri
heim. Kennum þeim að ná tökum
á tilverunni með því að segja nei
við vímuefnum. Slík færni eða hæfi-
leiki er mikilvæg til að auka and-
lega vellíðan, styrkja góð samskipti
við aðra, auk þess sem hún auðveld-
ar okkur að kljást við vandamál,
álag og streitu daglegs lífs. Með
þessu verkefni Lions-Quest nær
unga fólkið einnig færni eða hæfi-
leika til að tileinka sér að beita stað-
reyndum í verki, segja nei við vímu-
efnum.
Höfundur er heilsugæslulæknir og
fræðslusljóri Lions.
- kjarni málsins!