Morgunblaðið - 09.03.1996, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 9. MARZ 1996 51
ÍDAG
i,
i
i
i
i
i
i
I
l
I
l
l
I
i
:
I
l
I
í
I
BRIDS
(Jmsjón Uuðmundur Páll
Arnarson
ALSLEMMA í hjarta er
ekki slæmur kostur, en suð-
ur er í hálfslemmu og ætti
að einbeita sér að tólf slög-
um, en ekki þrettán.
Norður gefur; allir á
hættu. Sveitakeppni.
Norður
♦ K6
¥ K4
♦ Á86542
+ 763
Suður
♦ Á85
¥ ÁDG109
♦ K3
♦ ÁD2
Vestur Norður Austur Suður
- Pass Pass 1 hjarta
Pass 2 tíglar Pass 2 spaðar
Pass 3 hjörtu Pass 6 hjörtu
Pass Pass Pass
Útspil: Hjartaátta.
Hvernig á suður að spila?
Spilamennskan í al-
slemmu er einföld: Sagn-
hafi tekur trompin og spilar
svo tígli þrisvar og tromp-
ar. Þá fást þrettán slagir
ef hjartað liggur ekki verr
en 4-2 og tígullinn 3-2.
í sex hjörtum þolir sagn-
hafi 5-1-legu í hjarta með
jafnri tígullegu. Hann tekur
þá einfaidlega tromp fimm
sinnum og spilar svo tígli
þrisvar og hendir laufi. En
líkur á 5-1-skiptingu eru
aðeins 14,5%, og því er
skynsamlegra að einbeita
sér að slæmri tígullegu, en
litur brotnar 4-1 í 28% til-
vika.
Norður
+ K6
¥ K4
♦ Á86542
* 763
Vestur Austur
♦ 1)1043 ♦ G10972
¥ 8762 llllll * ^3
♦ D1097 111111 ♦ G
♦ K9 ♦ G10854
Suður
♦ Á85
¥ ÁDG109
♦ K3
♦ ÁD2
Suður tekur fyrsta slag-
inn heima og spilar tígul-
kóngi og síðan smáum tígli
frá báðum höndum! Vestur
fær slaginn og spilar til
dæmis spaða. Suður drepur
heima, fer inn í borð á hjar-
takóng og trompar tígul.
Tekur svo trompin og á enn
innkomu á spaðakóng til
að taka fríspilin í tígli.
Þessi spilamennska skil-
ar einnig tólf slögum ef
trompið liggur í hel, en tíg-
ullinn 3-2, nema í því eina
tilfelli að austur eigi þrjá
tígla og spili þeim þriðja
strax. Þá verður suður að
trompa.
LEIÐRÉTT
Rangt höfundarnafn
MORGUNBLAÐIÐ birti
miðvikudaginn 6. marz si.
grein eftir Hjálmar Jónsson,
þingmann Sjálfstæðisflokks
' Norðurlandskjördæmi
vestra, „Heildarsýn í heil-
brigðisþjónustu." Þau mis-
tök urðu við birtingu grein-
arinnar að höfundur var
sagður Hjálmar Árnason,
alþingismaður. Um leið og
þetta er leiðrétt biður Morg-
unblaðið þá nafna og les-
endur sína afsökunar á
þessum mistökum.
Pennavinir
ÞRJÁTÍU og eins árs ind-
versk kona, búsett í Dan-
mörku, vill skrifast á við
karlmenn:
Helene Christensen,
Hefrcskovalle 2C, lth,
3050 Humlebæk,
Denmark.
ÁRA afmæli. Á
morgun, sunnudag-
inn 10. mars, verður sjötug
Lilja Guðmundsdóttir,
Garðabraut 24, Akranesi.
Hún tekur ásamt börnum
sínum á móti gestum í Mið-
garði, Innri-Akranes-
hrepp, frá kl. 16 á afmælis-
daginn.
ÁRA afmæli. Mánu-
daginn 11. mars nk.
verður fimmtugur Magnús
Sædal Svavarsson, bygg-
ingarfulltrúi í Reykjavík.
Hann ásamt eiginkonu sinni
tekur á móti gestum í Odd-
fellowhúsinu í Reykjavík,
á morgun, sunnudaginn 10.
mars kl. 16-18.
F7 pTÁRA afmæli og gullbrúðkaup. Fimmtudaginn 7.
• tf mars varð sjötíu og fimm ára Tómas Grétar Sig-
fússon, Kelduhvammi 1, Hafnarfirði. Eiginkona hans
er Sigríður Gunnarsdóttir. Þau hjónin eiga fimmtíu ára
hjúskaparafmæli í dag, en þau voru gefin saman í Fríkirkj-
unni í Hafnarfirði 9. mars 1946. Þau eiga 5 börn og 12
barnabörn. Sigríður og Tómas Grétar eru nú stödd erlendis.
Með morgunkaffinu
0
Ast er ...
einhversem iljarþér.
TM Reg. U.S P«t. OH. — all righta ressrved
(c) 1996 Loa Angelea Tlmes Syndicate
COSPER
HVERJA ætlarðu núna að heilla fyrst þú ert búinn
að lita hárið á þér svart?
STJÖRNUSPÁ
cttir Frances Drake
FISKAR
Afmælisbarn dagsins:
Þú hefur lag á að miðla
málum ogsjá báðarhliðar
þegar tveir deila.
Hrútur
(21. mars - 19. aprfl) **
Þú vinnur að máli, sem erf-
itt er að leysa, en ættir ekki
að einangra þig, því þú þarft
bæði á stuðningi og skilningi
að halda.
Naut
(20. april - 20. mai) (ffö
Þú gerir engum greiða með
því að hylma yfir með með
starfsfélaga, sem er alls ekki
fær um að gegna starfi sínu
sem skyldi.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní) lck
Einbeitingin er ekki sem
skyldi hjá þér, og þú gætir
átt erfitt með að finna hlut,
sem þú manst ekki hvar þú
lagðir frá þér.
Krabbi
(21. júnf — 22.JÚ1Í) HS6
Þér verða falin ný verkefni
í vinnunni, sem valda því að
þú hefur minni tíma til að
sinna fjölskyldunni. Bættu
það upp síðar.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú ert með hugann við eigin
málefni í dag, og móttekur
ekki fyllilega það sem ein-
hver er að segja þér. Reyndu
að hlusta.
Meyja
(23. ágúst - 22. september) M
Láttu ekki peningaáhyggjur
spilla annars góðum degi.
Málið leysist fljótlega, og er
alls ekki jafn slæmt og þú
ímyndar þér.
Vog
(23. sept. - 22. október)
Óvænt vandamál kemur upp
heima, sem þú leysir fljót-
lega. Eitthvað, sem þú ert
að íhuga várðandi vinnuns,
þarfnast endurskoðunar.
Sþorddreki
(23.okt.-21.nóvember) Cjjg
Þú átt erfitt með að tjá þig
í dag, og getur það valdið
óþarfa misskilningi milli ást-
vina, sem þér tekst þó að
leiðrétta.
Bogmaður
(22. nóv. -21. desember) $6
í stað þess að fara út á vina-
fund í dag, ættir þú að sinna
einkamálunum, sem þú hef-
ur vanrækt. Barn leitar ráða
hjá þér.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar) TpS
Eitthvað hefur farið úrskeið-
is í samskiptum við ættingja
í öðru bæjarfélagi. Þú ættir
að skreppa í heimsókn og
leysa málið.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar)
Vinur kemur þér á óvart með
tillitsleysi sínu í þinn garð.
En vinurinn á við vanda að
striða og vill þer ekkert illt.
Fiskar
(19.febrúar-20.mars)
Verkefni, sem þú tekur að
þér, er ekki jafn auðleyst og
þú heldur. En þú hefur til-
hneigingu til að ofmeta eigin
getu.
Stjörnuspána á ad lesa sem
dægradvöl. SpAr af þessu tagi
byggjast ekki á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Matur og matgerð
Pastaréttur og
naglasúpa
Hvað er líkt með pastarétti og
naglasúpu? spyr Kristín Gestsdóttir.
ER pastað bara naglinn í súp-
unni? Það er ekki svo fjarri lagi.
Pasta er búið til úr hveiti og
vatni, og er því engin hollustu-
fæða svona eitt og sér. Ég hefi
lengi reynt að segja nemeridum
mínum það með litlum árangri.
Þau horfa á mig stórum augum
og hugsa með sér: „Sú er vit-
laus, íþróttamenn borða pasta
til að fá orku fyrir keppni.“
Fyrir rúmum úórum árum
greip ég með mér seðil í stór-
markaði með samkeppni um
pastarétti. Fyrsti vinningur var
Amsterdamferð fyrir tvo en ann-
ar vinningur Glasgowferð fyrir
tvo. Ég bjó til lasagnarétt með
ýsu og skellti síðan inn á tölvuna
og sendi daginn eftir. Hugsaði
síðan ekki meira um það, enda
vinn ég aldrei í happdrætti eða
öðru slíku. Nokkrum dögum síð-
ar hringdi systir mín til mín, hún
hafði lesið í blaði að ég hefði
unnið. Ég kom af fjöllum, hafði
enga tilkynningu fengið um það,
en mikið rétt, þarna stóð nafn
mítt meðal vinningshafa. Ég
hljóp í símann og var næstum
flogin á pastanu yfir hafið. Ég
mátti sækja verðlaunin. Þegar
þangað kom var mér hvorki rétt-
ur farseðill til Amsterdam né
Glasgow, heldur stærðar kassi
fullur af alls konar pasta og
pakkasúpum. Ég hafði bara
fengið þriðju verðlaun. Ég rog-
aðist með kassann heim og held
að ég hafi aldrei séð svona mik-
ið pasta saman komið á einu
heimili.
Mér hafði alltaf þótt pasta
gott og næstu vikur og mánuði
borðuðum við hjónin mikið af
pasta og vinir og ættingjar sem
í heimsókn komu voru leystir
út með pastapakka, en allt í einu
gat ég ekki borðað meira pasta
- kvótinn var búinn. Enn er til
pasta í búrinu og verður vænt-
anlega um ókomin ár.
Hin forna menningarþjóð,
Etrúar, gerði lasagna á 4. öld
fyrir Krist áður en veldi Róm-
verja jókst. Þeir biönduðu saman
vatni og semiljumjöli og flöttu
deigið þunnt út - í lasagnaplöt-
ur. I þessum þætti birti ég verð-
launauppskriftina - lasagnaýsa
- en uppskriftina að naglasúp-
unni birti ég ekki - hana kunna
flestir.
Lasagnaýsa
350-400 g ýsuflök
1 msk. sítrónusafi
1 'Atsk. salt
nýmalaður pipar
1 hálfdós niðursoðnirsveppir
50 g smjör
1 dl hveiti
1 dl mjólk
1 dl rjómi
'/< tsk. múskat
____________2 egg
10O g rjómaostur án bragðefna
12-15 lasagnablöð
4 meðalstórir tómatar (nota má
niðursoðna)
200 g mjólkurostur, sú tegund
sem ykkur hentar
1 tsk. oregano
100 g rækjur
1 meðalstór paprika
1. Hitið bökunarofn í 210° C,
blástursofn í 190° C.
2. Roðdragið ýsuflakið og fjar-
lægið bein, skerið í þunnar flög-
ur, hellið yfir það sítrónusafa og
stráið yfir salti og pipar.
3. Síið sveppina, notið soðið í
jafninginn. Bræðið smjörið í potti,
setjið hveiti út í og þynnið með
1 72 dl af sveppasoði, mjólk og
ijóma. Takið af hellunni og kælið
örlítið, hrærið síðan egg, múskat
og ijómaost út í.
4. Rífið ostinn. Látið tómatana
liggja í sjóðandi vatni í 'U mín-
útu, fjarlægið þá hýðið, stappið
síðan með gaffli.
5. Smyijið eldfast kantað fat,
u.þ.b. 15-20 sm á kant.
6. Setjið Va af jafningnum
jafnt á fatið. Raðið lasagnaplöt-
um þétt yfir, setjið ýsusneiðarnar
jafnt ofan á, þá stappaða tómata,
síðan 7a af ostinum, þá aftur lag
af lasagnaplötum, síðan aftur 7s
af jafningnum og 'U af osti, þá
sveppi, síðan aftur lasagnaplötur,
þá það sem eftir er af jafningnum
og það sem eftir er af ostinum.
7. Setjið í miðjan ofninn og
bakið í 25 mínútur.
8. Takið stilk og steina úr
papriku, skerið smátt, takið fatið
úr ofninum, stráið papriku og
rækjum yfir og berið á borð.
Með þessu má borða hrásalat
og brauð.