Morgunblaðið - 10.03.1996, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 10. MARZ 1996 39
FÓLK í FRÉTTUM
Bjartmar búsettur
í Oðinsvéum
„MAMMA beyglar alltaf munninn,
hún er að fara á ball“ er þekktur
slagari sem hljómaði heima á Fróni
fyrir nokkrum árum, en höfundur
þess lags er Bjartmar Guðlaugsson
tónlistarmaður, sem nú er búsettur
hér í Óðinsvéum í Danmörku. í síð-
ustu viku opnaði hann sína fyrstu
opinberu sýningu á málverkum í
boði „Filosofgangen" eða Fyns ud-
stillingsbygning for kunst og de-
sign, sem er ný listamiðstöð í hjarta
borgarinnar, ásamt 5 öðrum lista-
mönnum. Fjöldi gesta var mættur
þegar konsúll íslendinga hér í borg,
Magrethe Hansen, opnaði sýning-
una, en hún tók við starfinu af
manni sínum Harald Hansen sem
nú er nýlátinn.
Bjartmar, sem hefur starfrækt
eigin vinnustofu síðan námi lauk,
sýnir hér nokkur verk unnin bæði
með olíu og olíukrít og blandaðri
tækni á striga og pappír en hann
lauk á síðasta ári þriggja ára námi
í klassískri listmálun og listasögu
hjá þekktum dönskum listamanni,
Bent Veber.
Að sögn Bjartmars er „rosa
sveifla á þessu öllu“ og mikil að-
sókn að listamiðstöðinni síðustu
daga, en sýningin stendur til 10.
mars nk. Framundan er svo sýning
í júní í sumar og önnur á sama tíma
að ári þannig að fjöllistamaðurinn
Bjartmar Guðlaugsson hefur í nógu
að snúast á vinnustofu sinni á
næstu mánuðum, og til gamans
má geta þess, að hann er ekki enn
hættur í tónlistinni.
——— —’
SYSTKININ Albert og Vala léku á als oddi.
Morgunblaðið/Hilmar Þ6r
Borghildur Fjóla söng
lagið Litla systir.
Nemendur
Iðnskólans
brýna raust
sína
SÖNGKEPPNI Iðnskólans í
Reykjavík var haldin í Vörðu-
skóla fyrir skömmu. Þátttak-
endur voru fleiri en nokkru
sinni fyrr, eða tíu talsins.
Keppnin var hörð, en Oddur
Karl bar sigur úr býtum með
lagið Líf.
BJARTMAR og Magrethe Hansen. „Han er dejlig“
segir konsúllinn okkar um Bjartmar.
FRÁ opnun sýningarinnar.
Bjartmar ásamt konu sinni
Maríu og dótturinni Berglind
á spjalli við hjónin Margréti
Ólafsdóttur og Gunnar Pét-
ursson.
Glæsilegt páskatilboð
tn Kanarí
trá 49.932
49.932
Verð kr.
m.v. hjón með 2 böm, 2-14 ára,
3. apríl. Parque Nogal
59.950
Verð kr.
m.v. 2 í íbúð, 3. apríl. Skattar innifaldir.
Parque Nogal
Bókaðu strax
°g tryggðu þér
síðustu sœtin.
Við höfum nú fengið viðbótargistingu á Kanaríeyjum um
páskana á hreint frábæru verði og getum boðið 8 hús á þessu
einstaka verði. Falleg smáhýsi með öllum aðbúnaði, öll méð
einu svefnherbergi, stofu, eldhúsi, baði, svölum og verönd.
Fallegur garður við hótelið. Tryggðu þér síðustu sætin og
HEIMSFERÐIR
•kSIWPP
njóttu þess að vera í yndislegu veðri um páskana.
Austurstræti 17,2. hæð. Sími 562 4600.
Jatoba 10 mm stafir 2.300,-
fullklárað gólf með allri vinnu og eíhum 4.890,-
Jatoba 8 mm mosaik 1-996,
■KT fullklárað gólf með allri vinnu og efnun
Parkethúsið
sérverskm með gegnheHt perket
suðurlandsbraut 4a * sími: 568 5758 ■ fax: 568 3975