Morgunblaðið - 12.03.1996, Side 1

Morgunblaðið - 12.03.1996, Side 1
FRJALSIÞROTTIR / EM I STOKKHOLMI Morgunblaðið/Golli JÓN ARNAR Magnússon í hástökkskeppninni í Evrópumeistaramótlnu í Globen-höllinni í Stokkhólmi. Svekktur en sáttur „AUÐVITAÐ er ég- svekktur, en um leið sáttur með þriðja sætið og bronsverðlaun. Þetta er það besta sem ég hef gert á ferlin- um,“ sagði Jón Arnar Magnús- son eftir að hann varð í þriðja sæti í sjöþrautinni. Hann sagðist mjög ánægður með fimm grein- ar, allar nema 60 metrana, bæði 60 metra sprettinn og 60 metra grindahlaupið. „Ég held ég hafi verið of ákaf- ur, of æstur. Maður er alltaf að reka sig á að maður verður að vera afslappaður í þessu. Ég fann mig mjög vel í upphitun- inni og þetta virtist allt ætla að vera í lagi. Startið var reyndar ekki mjög gott en ég náði þeim strax á fyrstu grind þannig að það virtist allt vera eðlilegt. Svo rak ég fótinn í grindina, hællinn lenti á henni og fóturinn fór ekki yfir. Við þetta datt ég nærri því og náði síðan að bjarga mér við næstu grind með þvi að hoppa jafnfætis yfir hana og kláraði siðan hlaupið. Það er ekki margt sem maður hugsar á svona stundu, annað en reyna að klára hlaupið þrátt fyrir áfallið. Ég er eiginlega hissa á hversu góðan tíma ég fékk þrátt fyrir allt. Ef ég hefði hlaupið grindina eins og maður hefði ég fengið rúmlega 200 stigum meira og þá hefði ég sigrað og sett Norðurlandamet. En það er allt- af hægt að segja ef og ef. Mað- ur verður áð læra af þessum mistökum og nýta sér það næst. Ég ákvað að láta þetta óhapp hvetja mig í stangarstökkinu og það var í rauninni klaufaskapur að fara ekki yfir 5,05 metra. Annars er ég sáttur því ég bætti árangur minn í stöng innanhúss, átti áður 4,90 best. Við Gísli reiknuðum síðan út að í 1.000 metra hlaupinu yrði ég að vera kominn út úr síðustu beygju þegar Pólverjinn kæmi í mark. Ég reyndi að hanga í honum eins og ég gat og það tókst,“ sagði Jón Arnar um sjöþrautar- keppnina. ■ Martröö... / B9 VIÐTAL VIÐ EVRÓPUMEISTARANN VÖLU FLOSADÓTTUR / B8 VINNINGSTOLUR MIÐVIKUDAGINN AÐALTOLUR BÓNUSTÖLUR HeikJarvinningsupphæð: 82.390.140 Á ískmdi: 1.730.140 UPPLÝSINGAR í aukaútdrœtti I Vlkingalottóínu síöastliðlnn miðvikudag komu upp eftlrfarandl tölur: 2,8,13, 29,43, og 47. Fjórir skiptu með sér rúmlega 58 milljónum. Tvöfaisiur 1. vinnirtgur Vertu viðbúin(n) vinningi !. vinningur er áætlaður 44 miiljónir kr

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.