Morgunblaðið - 12.03.1996, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 12. MARZ 1996 B 5
FIMLEIKAR
Övíst hvort
Rúnar kemst
á Ólympíu-
leikana
EKKI er víst að Rúnar Alexand-
ersson megi keppa á næstu
Olympíuleikum — í Atlanta í sum-
ar, því þar sem hann var ríkis-
fangslaus þegar síðustu úrtöku-
mót fyrir leikana fóru fram, gat
hann ekki tekið þátt. Það er því
undir Ólympíunefndinni hvort
hann fái leyfi til þátttöku en
hann hefur sýnt og sannað á
undanförnum mótum hvers hann
er megnugur og hefði árangur
hans í einstökum greinum á þess-
um mótum, dugað honum upp á
verðlaunapallinn.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
RÚNAR Alexanderson, Gerplu, var sigursæll á íslandsmótinu í flmleikum um helgina. Hér er hann á bogahesti, sem er hans
besta áhald og líkur á að það skili honum upp á verðlaunapall á IMorðurlandamótinu, sem fram fer á Islandi í lok mars.
Besti árangur Rúnars
RÚNAR Alexandersson úr Gerplu náði góð-
um árangri á Islandsmótinu um helgina en
hann hefur bætt sig mikið síðan hann kom
til Islands en sem kunnugt er er hann rúss-
neskur að uppruna. I keppni á einstökum
áhöldum eru ekki reiknuð stig samtals en
eftir stigin á sunnudeginum fékk hann 55,10
stig sem er besti árangur Rúnars frá upp-
hafi því hann hefur verið í kringum 51 stig
áður. „Eg er ánægður með þetta en hinir
eru líka að verðabetri,11 sagði Rúnar en
hann er á leið til Ósló um næstu helgi til
að taka þátt í sterku alþjóðlegu móti.
Nína og Rúnar með flest gull
HÁPUNKTUR vertíðar fimleikafólks var f Laugardalshöll um helg-
ina þegar íslandsmótið fór þar f ram og stóð keppnin yfir í þrjá
daga þannig að sjá mátti þreytuleg andlit er leið að kvöldi sunnu-
dags. En það var meira íhúfi en íslandsmeistaratitill því mótið
var einnig úrtökumót fyrir Evrópumeistaramót unglinga og karla
en hjá kvenfólkinu var barist um sæti í landsliðinu fyrir Norður-
landamótið i lok mars. Rúnar Alexandersson úr Gerplu og Nína
Björk Magnúsdóttir úr Björk voru sigursælust en unnu þó ekki
allar sínar greinar.
Fimleikamenn voru mjög ánægð-
ir með mótið og segja miklar
framfarir í fimleikum á íslandi,
ekki bara að stigin
Stefán séu nú mun fleiri
Stefánsson heldur er stöðug-
skrifar leikinn meiri og
fleiri spreyti sig við
meiri erfiðleikaæfingar. Það spili
ÍÞRÚmR
FOLK
■ ÞRÍR elstu keppendur á íslands-
mótinu í fimleikum fengu blóm fyrir
að þrautseigjuna og halda sínu striki
í fremstu röð. Það voru Þórey Edda
Elísdóttir úr Björk og Gerplu-
drengirnir Jóhannes Níels Sig-
urðsson og Guðjón Guðmundsson.
■ JÓHANNA Sigmundsdóttir úr
Ármanni, sem líkleg var til að verða
meðal þeirra stigahæstu á fímleika-
mótinu, gekk ekki heil til skógar því
gömul bakmeiðsli tóku sig upp.
■ FIMLEIKASTÚLKUR úr Kefla-
vík eru að koma til og unnu fyrsta
verðlaunapening Keflvíkinga þegar
Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir
náði í brons í keppni á slá.
■ FIMM fímleikastúlkur hafa náð
lágmörkum fyrir Evrópumeistara-
mótið. Þær eru Jóhanna Sigmunds-
dóttir úr Ármanni í yngi-i flokki,
Nína Björg Magnúsdóttir, Elva
Rut Jónsdóttir og Þórey Edda Elís-
dóttir úr Björk ásamt Sólveigu
Jónsdóttur úr Gerplu, en tvær síð-
astnefndu náðu lágmörkunum á
mótinu um helgina.
mikið inní að erlendir þjálfarar hafa
komið inn með meiri þekkingu og
reynslu í keppni og þegar Rúnar
frá Gerplu fluttist hingað jókst
áhuginn til muna. Þetta er allt að
skila sér í ungu og efnilegu fim-
leikafólki. Til dæmis hlaut Lilja
Erlendsdóttir úr Gerplu brons í
stökk en hún er aðeins 11 ára og
á framtíðina fyrir sér. Frá Gerplu
komu einnig ungir og efnilegir
strákar, Ómar Örn Ólafsson fékk
silfur á tvíslá og Dýri Kristjánsson
brons fyrir gólfæfingar.
Liðakeppnin hófst á föstudegin-
um. Hjá stúlkunum var fyrirfram
talið að fimleikafélagið Björk úr
Hafnarfirði myndi hreppa gullið og
baráttan um silfrið stæði á milli
Ármenninga og Gerplustúlkna. Það
gekk eftir, Björk sigraði með yfir-
burðum og í öðru sæti höfnuðu sig-
urvegararnir frá í fyrra, Gerpla.
í piltaflokki náði Gerpla, með
Rúnar í fararbroddi, að hirða titilinn
af Ármenningum. Rúnar var stiga-
hæstur með 54.050 stig en Guðjón
Guðmundsson, Ármanni, fékk
50.350 þannig að munurinn var
ekki mikill á efstu mönnum. Guðjón
hefur bætt sig undanfarið og á nóg
eftir en yngri strákarnir eru ekki
langt að baki.
A laugardeginum fór fram seinni
hluti keppni í fjölþraut en þar þurfa
keppendur að spreyta sig á öllum
áhöldum og er árangur úr öllum
áhöldum lagður saman. Baráttan í
stúlknaflokki stóð á milli Elvu Rut-
ar Jónsdóttur og Nínu Bjargar en
góður árangur þeirra síðarnefndu
fyrri daginn dugði henni til að
hreppa gullið. Hún hlaut 71.337
stig en Elva Rut 71.199 þannig að
ekki mátti miklu muna.
Rúnar var öruggur sigurvegari í
piltaflokki með 107.450 stig og
Guðjón Guðmundsson úr Ármanni
fékk silfur með 99.650 stig en hann
sigraði Rúnar í stökki og gaf ekki
frá sér þann titil. í þriðja sæti
skaust Ómar Örn úr Gerplu upp
fyrir Jóhannes Níels Sigurðsson frá
Ármanni en aðeins munaði 0,1 stigi
á þeim.
Keppni á einstökum áhöldum fór
fram á sunnudeginum. Eins og við
var að búast var Rúnar í aðalhlut-
verki þar en náði samt ekki fullu
húsi því hann meiddist lítillega í
stökkinu og Guðjón úr Ármanni
hafði betur. Eftir stökkið var keppt
á tvíslá og svifrá þannig að meiðsl-
in háðu Rúnari ekki þar. Ármenn-
ingarnir Guðjón og Jóhannes Níels
hirtu tvo silfurpeninga hvor en
Ómar Örn fékk einn fyrir keppni í
tvíslá.
Nína Björg hélt áfram sigur-
göngu sinni með sigri í stökki, á
slá og í gólfæfingum en hún hafn-
aði í öðru sætinu á tvíslá. Þar var
Elva Rut örugg en hún fékk silfur
á tvíslánni.
Keppnin
aldrei eins
hörð og núna
NÍNA Björg Magnúsdóttir
var kampakát að loknum
þriðja keppnisdegi enda hafði
hún þá sigrað í liðakeppni
með félögum sínum í hinu sig-
ursæla liði Björk, unnið fjöl-
þrautina og unnið gnll í þrem-
ur af fjórum áhöldum. „Mér
gekk vel á föstudaginn en
ekki eins vel á laugardeginum
enda munaði mjög litlu á mér
og EIvu Rut,“ sagði Nína
Björg eftir mótið. „Það hefur
alltaf munað litlu á okkur og
keppnin alltaf verið hörð en
aldrei eins hörð og núna.“
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
Sópuðu til sín gulli
NÍNA Björg Magnúsdóttir, Björk, og Rúnar Alexanderson,
Gerplu, sópuðu til sín verðlaunum á íslandsmótinu.