Morgunblaðið - 12.03.1996, Blaðsíða 10
10 B ÞRIÐJUDAGUR 12. MARZ 1996
KNATTSPYRNA
MORGUNBLAÐIÐ
Capello fer
til Parma
LORENZO Sanz, forseti Real
Madrid, hafði rétt fyrir sér
þegar hann sagði í viðtali fyr-
ir helgi að Fabio Cappello,
þjálfari AC Miian, væri búinn
að skrifa undir samning við
Parma. Giorgio Pedraneschi,
forseti Parma, kannaðist þá
ekkert við þetta — bar frétt-
ina tii baka. Um helgina kom
aftur á móti i \jós að Sanz
hafði rétt fyrir sér. ítalska
blaðið Corriere dello Sport
sagði frá því að Capello hafi
skrifað undir samning við
Parma fyrir sex vikum —
hann þjálfar liðið næsta
keppnistímabil. Árstekjur
hans verða um 112 mUlj. kr.
Blaðið sagði einnig frá því að
Parma hefðihug á að styrkja
lið sitt verulega og eru sókn-
arleikmennimir Pierluigi
Casiraghi, Lazíó og Gianluca
Vialli hjá Juventus efstir á
óskaiista liðsins.
Ráðist á
Ravanelli
TVEIR menn réðust á ítalska
landsliðsmanninn Fabrizio
Ravanelli á bensínstöð á Iaug-
ardaginn, þannig að hann
meiddist á hægri hendi i
sjálfsvðrn. „Þeir komu hlaup-
andi að mér hrópandi: „Þú
fjandans leikmaður Juvent-
us.““ Ravanelli sagði að árás-
armennimir, sem væm lík-
lega stuðningsmenn Tórínó,
hefðu fundist í Avellino. Þessi
gráhærði leikmaður, sem er
einn af vinsælustu leikmönn-
um Ítalíu, hefur áður lent í
vandræðum utan vallar. Fyrir
tveimur árum réðust stuðn-
ingsmenn Tórínó að honum
og árið áður varð hann fyrir
aðkasti starfsmanna hjá Fiat-
bifreiðaverksmiðjunni. Ra-
vaneili lék með umbúðir um
hönd í leik Juventus gegn
Lazíó.
Inter stöðvaði sigur-
göngu AC Milan
EFTIR að hafa leikið nítján leiki
í röð án taps urðu leikmenn
AC Milan að játa sig sigraða á
San Siro-leikvellinum í Mflanó,
þar sem nágrannarnir úr Inter
skoruðu eina mark leiksins.
Marco Branca skoraði markið
eftir aðeins fimm mín. og við
það sat — þetta var fimmti sig-
urleikur Inter í röð.
|ikið er um meiðsl í herbúðum
AC Milan, sem hefur sex
stiga forskot á Fiorentína. Liðið lék
án Dejan Savicevics, Zvonimir Bo-
bans og Demetrio Albertinis. Hetja
Inter var Branca, sem skoraði sitt
fjórtánda mark í 23 leikjum, þegar
hann braust fram hjá vamarmönnum
AC Milan og sendi knöttinn með
föstu skoti fram hjá Sebastiano
Rossi.
Besta tækifæri AC Milan fékk
George Weah, en markvörðurinn
Gianluca Pagliuca sá við honum.
Þetta var fyrsti tapleikur AC Milan
síðan liðið tapaði fyrir Bari 1. októ-
ber.
Fiorentína, sem er í öðru sæti,
varð að sætta sig við jafntefli, 1:1,
gegn botnliðinu Bari. Svíinn Kenneth
Andersson skoraði mark Bari, en það
var síðan Francesco Baiano sem jafn-
aði fyrir Fiorentína úr vítaspymu
fimm mín. fyrir leikslok og lék liðið
sinn fimmtánda leik án taps.
Coach Lippi, þjálfari Juventus,
sem deilt var á fyrir varnarleik eftir
tapleik gegn Real Madrid í Evrópu-
keppninni í sl. viku, blés í sóknarl-
úðra gegn Lazzio — þegar gestimir
voru komnir yfír, 0:2, eftir átján
mín. með mörkum frá Giuseppe Fa-
valli og Pierlugi Casiraghi. Eftir það
skoruðu leikmenn Juventus fjögur
mörk og fögnuðu sigri, 4:2. Lippi tók
vamarleikmanninn Moreno Torricelli
útaf eftir aðeins 23. mín. og bætti
sóknarleikmanni inná. I seinni hálf-
leik tók hann miðvörðinn Pietro Vi-
erchowod af velli og setti í hans stað
marksækinn miðvaliarspilara, Attilio
Lombardo.
Weah í erfiðleikum
Reuter
LÍBERÍUMAÐURINN George Weah hjá AC Milan, knattspyrnu-
maður árslns í heiminum, átti í erfiðleikum með að brjótast
í gegnum vðrn Inter Mllano á San Slro-lelkvellinum. Hér er
hann í baráttu við Gianluca Festa.
Enrico Chiesa skoraði þrennu fyrir
Sampdoria, sem vann Padova, 3:1.
Þessi ungi miðherji hefur skorað
fjórtán mörk í átján leikjum og er
líklegt að hann verði valinn í lands-
liðshóp Ítalíu fyrir EM í Englandi í
sumar.
Giovanni Cervone, markvörður
Roma, sem þótti standa sig illa í
UEFA-leik gegn Slavia Prag í sl. viku,
sýndi mjög góðan leik gegn Cagliari
og bjargaði Roma frá tapi þegar hann
varði snilldarlega frá Belgíumannin-
um Luis Oliveira. Hann náði þó ekki
að veija vítaspymu frá Oliveira á
sextándu mín. leiksins, eftir að Abel
Balbo hafði skorað fyrir heimamenn
úr vítaspyrnu á níundu mín.
Bayem fékk skell í Freiburg
Reuter
JULIO Cesar og Karlheinz Riedler fagna Michael Zorc, eftlr
að hann skoraði slgurmarkið gegn St. Paull.
leistarar Borussia Dortmund
tylltu sér í efsta sæti þýsku
deildarinnar um helgina er þeir sigr-
uðu St. Pauli á heimavelli, 1:0, með
marki_ frá Michael Zorc í síðari hálf-
leik. Á sama tíma töpuðu aðalkeppi-
nautar þeirra í Bayem Múnchen 3:1
gegn Freiburg og em nú einu stigi
á eftir meistumm síðasta árs og
hafa auk þess leikið einum leik fleira.
Bayem Múnchen var eina þýska
liðið er sigraði í viðureign sinni í
Evrópukeppninni í síðustu viku. Leik-
menn virtust ekki vera komnir niður
á jörðina er þeir mættu Freiburg, en
með sigri hefði liðið náð tveggja stiga
forystu í deildinni. Júrgen Klinsmann
kom Bæjumm yfir með marki úr
vítapyrnu á 15. mín. Bæjarar réðu
gangi leiksins í byijun, en síðan létu
leikmenn Freiburg andstæðinga sína
ekki komast lengra. Þeir snem tafl-
inu sér í vil með tveimur mörkum
frá Hollendingnum Harry Deeheiver,
sem átti stórleik, og einu frá Jens
Todt. Svisslendingurinn Alain Sutter
sem Bayem seldi í haust til Freiburg
sýndi Rehhagel, þjálfara Múnchen,
snilli sína í Ieiknum og var arkitekt-
inn á bak við bæði mörk Hollendings-
ins. „Ástæðan fyrir tapi okkar í dag
er ekki sú að leikmenn mínir séu
þreyttir eftir Evrópuleikinn í vikunni
heldur gerðum við of mikið af mis-
tökum til að verðskulda sigur,“ sagði
Otto Rehhagel, þjálfari I3ayem,
brúnaþungur í leikslok. Þetta var
þriðji tapleikur Múnchenliðsins á úti-
velli gegn Freiburg á þremur ámm.
Skallamark miðvallarleikmannsins
Michael Zorcs á 63. mínútu nægði
Dortmund til fyrsta sigurs liðsins frá
því deildarkeppnin hófst að nýju eft-
ir vetrarleyfi. Markið var Zorc mjög
mikilvægt því hann hefur upp á síð-
kastið átt í erfíðleikum með að halda
sæti sínu í byijunarliði meistaranna
og var meðal annars varamaður gegn
Ajax í Evrópuleiknum í vikunni sem
leið.
Nú bendir allt til þess að einvígið
um meistaranafnbótina í Þýskalandi
verði á milli Dortmund og Bayem
en þessi tvö lið hafa yfirburðastöðu
gagnvart næstu félögum.
Stefan Effenberg lék stórt hlut-
verk hjá Gladbach, sem skaust upp
í þriðja sætið með sigri, 3:2, á Hansa
Rostock. Fyrirliðinn skoraði fyrsta
markið á 17. mín. með góðu skoti
og lagði upp annað markið fyrir Jörg-
en Pettersson.
FOLK
■ KARLHEINZ Riedle, miðheiji
Dortmund, skrifaði um helgina
undir nýjan samning við liðið, sem
gildir til 1998. Lið á Ítalíu og
Glasgow Rangers vildu fá hann
til sín.
■ FREDI Bobic, sóknarleikmaður
Stuttgart, verður frá keppni í sex
vikur. Liðþófí rifnaði og var hann
skorinn upp.
■ ÞRIR leikmenn fengu að sjá
rauða spjaldið í leik Bayer Uerd-
ingen og Köln. Allt voru það út-
lendingar - Daninn Jan Heintze
hjá Uerdingen, Austurríkismað-
urinn Anton Polster og Pablo
Thiam frá Guineu hjá Köln.
■ ULF Kirsten hjá Leverkusen
var óheppinn að skora ekki nokkur
mörk í markalaus jafntefli gegn
Stuttgart. Hann hefur ekki skorað
í 1. deildarkeppninni í 500 mín.
■ MIKLAR líkur eru á að „íslend-
ingaslagur" verði í 16 liða úrslitum
sænsku bikarkeppninnar í knatt-
spyrnu. Rúnar Kristinsson og fé-
lagar hans hjá Örgryte þurfa að
leggja Gummilse að velli til að kom-
ast í sextán liða úrslitin og þá leikur
Örgryte við Elfsborg. Með liðinu
leika landsliðsmaðurinn Kristján
Jónsson og unglingalandsliðsmað-
urinn Sigurður Friðriksson.
Bebeto frá La Coruna?
BÆÐI Barcelona og VaJencia eru tilbúin að kaupa brasiiíska Iands-
liðsmanninn Bebeto frá La Coruna. Frá þessu var sagt i spænska
útvarpinu fyrir helgi. Bebero hefur enn einu sinni orðið til vand-
ræða I\já La Coruna — hann er kominn upp á kant við þjálfara liðs-
ins, John Toslmck. Það kann ekki góðri lukku að stýra og setti
Toshack hann út úr liðinu fyrir leik í Evrópukeppni bikarhafa á
fimmtudaginn — gegn Real Zaragoza. Barcelona hefur ekki getað
teflt fram miklum markaskorara síðan Brasilíumaðurinn Romario
fór frá iiðinu og Valencia á í erfiðleikum eftir að miðherji iiðsins,
Jose Galvez, meiddist illa um sl. heigi.