Morgunblaðið - 12.03.1996, Side 12
12 B ÞRIÐJUDAGUR 12. MARZ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
KÖRFUKNATTLEIKUR
Urslitakeppnin
í körfuknattleik 1996
Annar leikur liðanna i 8-liða úrslitum,
leikinn á Sauðárkróki 9. mars 1996
tindastóll njarðvík
10/15:
19/31
4/22 3ja stiga 2/6
22 Villur 18
Óskar fleytti
KR-ingum í
annan leik
ÓSKAR Kristjánsson var hetja
KR-inga er þeir lögðu Keflvík-
inga að velli í annarri viður-
eign félaganna á Seltjarnar-
nesi á sunnudaginn. Þegar
11 sekúndur voru eftir og
staðan jöfn, 77:77, hófu Kefl-
víkingar sókn, fleytti Óskar
knöttinn úr höndum Fals
Harðarsonar sem var við að
brjótast í gegnum vörn KR.
Því næst brunaði Óskar upp
og sendi á félaga sinn Her-
mann Hauksson sem tryggði
sigurinn rétt áður en loka-
flautið gall. „Falur gerir alltaf
það sama og ekki kom annað
til greina en taka af honum
boltann," sagði Óskar að
leikslokum, en hann lék
eflaust sinn besta leik f vetur.
Leikmenn KR voru með kanónur
sínar vel stilltar í upphafi
leiksins og hvert þriggja stiga
skot þeirra rataði rétta leið. Eftir
■■■■■■ sex mínútna leik
l'var höfðu þeir skorað
Benediktsson 24 stig gegn 10 og
sknfar þar af vonj £tján
stig úr þriggja stiga skotum. Kefl-
víkingar vissu ekki hvaðan á sig
stóð veðrið og reyndu að bíta í
skjaldarrendurnar. Jón Kr. þjálfari
skipti sér og tveimur öðrum inná
í þessari stöðu til að hressa upp á
bragðdaufan og lánlítinn sóknar-
leik Suðurnesjamanna gegn beittri
vörn KR. Það dugði um tíma og
Keflvíkingar nálguðust gestgjafa
sína nokkuð. Eftir að Keflvíkingar
höfðu jafnað 43:43 skömmu fyrir
hlé var það margumtalaður Óskar
sem átti síðustu fimm stig heima-
manna fyrir hlé. Staðan í hálfleik
48:43.
Keflvíkingar nýttu sér agaleysi
KR í sókninni í síðari hálfleik og
jöfnuðu leikinn fljótlega og kom-
ust yfir er átta mínútur voru eftir
60:59 á meðan Bow tók ser hvíld
í liði KR. Áfram hélt baráttan og
Keflvíkingar voru skrefinu á und-
an. KR jöfnuðu 71:71 og unnu
síðan knöttinn í næstu sókn er
dæmd voru skref á Dwight Stew-
art. Þar með komust KR-ingar
yfir á ný og spennuþrungnar loka-
mínútur fóru í hönd. Davíð Gris-
som kom Keflavík yfir þegar 23
sekúndur voru eftir 77:76 en hinu-
megin fékk Hermann Hauksson
tvö vítaköst þegar 11 sekúndur
voru eftir en skoraði aðeins úr
Úrslitakeppnin
körfuknattleik 1996
Annar leikur liðanna i 8-liða úrslitum,
leikinn á Seltjamamesi 10. mars 1996
KR KEFUlVÍK
8/10
7/15
12 Villur 19
öðru og Keflvíkingar brunuðu upp
en sú sókn fór eins og að framan
er greint.
KR-liðið gerði sér þennan leik
of erfiðan með óyfirveguðum leik
á köflum og hafði nær tapað leikn-
um fyrir vikið. Eftir að hafa gert
11 þriggja stiga körfur í fyrri
hálfleik var of mikið reynt að end-
urtaka leikinn í síðari hálfleik við
slakan árangur og við það fengu
Keflvíkingar oft boltann á ódýran
hátt. Óskar Kristjánsson og Jonat-
han Bow voru bestir KR-inga og
Hermann skoraði mikilvæg stig á
lokakaflanum, eftir að hafa látið
lítið fyrir sér fara framan af.
Keflavíkurliðið náði sér aldrei á
stik í leiknum og virtist slen vera
yfir því. Jóni Kr. tókst að hressa
upp á það um tíma. Guðjón hélt
félögum sínum á floti á kafla með
fallegum körfum og Grissom átti
ágætan leik undir lokin. Meiri
baráttvilja vantaði samt í hópinn.
Reyndar kom það illa við liðið að
bæði Stewart og Sigurður Ingi-
mundarson fengu sína 3. villu rétt
eftir miðjan fyrri hálfleik og voru
því hvíldir lengi leiks. En ljóst er
að spenna verður í Keflavík í kvöld
þegar þessi tvö lið mætast ef
marka má þær tvær viðureignir
sem nú eru að baki.
Morgunblaðið/Ásdís
ÓSKAR Kristjánsson KR-ingur lék mjög vel gegn Keflavík á Seltjarnarnesi á sunnudag. Hér
sækir Davíð Grissom aö honum og sér þann kost vænstan að senda knöttinn frá sér.
Orlando setti met og
Chicago beið afhroð
LEIKMENN Orlando settu
met í NBA körfuboltanum í
fyrrinótt er þeir sigruðu 39.
heimaleikinn sinn í röð. Að
þessu sinni voru fómarlömb
þeirra Charles Barkely og
félagar í Phoenix Suns. Á
sama tlma tóku Patrick Ew-
ing og samheijar í New York
Michaei Jordan og hinar
stjörnurnar í Chicago liðinu í
bakaríið, 104:72,1 New York.
Tapið setur strik í reikning
Chicago sem þarf að vinna
16 af 22 leikjum sinum sem
eftir eru til að bæta met Los
Angeles, sem er 69 sigurleikir
á keppnistlmabili.
Forráðamenn New York
liðsins ráku fyrir helgina
þjálfara liðsins Don Nelson
og við starfi hans tók tíma-
bundið aðstoðarþjálfarinn
Jeff Van Gundy. Undir hans
stjórn voru leikmenn liðsins
ekki neitt að tvínóna þegar
þeir tóku á móti Chicago
Bulls. Þeir sýndu gestum sín-
um enga kurteisi og rólluðu
þeim upp með 32 stiga mun.
Grunninn að sigrinum lögðu
þeir í öðrum leikhluta og í
upphafi þess þriðja er þeir
gerðu 34 stig gegn 6 stigum
gestanna. Derek Harper fór á
kostum á þessum leiktíma og
gerði 18 af 23 stigum sínum
þá. Patrick Ewing sýndi að
hann hefur engu gleymt hafi
einhver haldið að svo væri.
Hann gerði 26 stig ogtók 14
fráköst. Michael Jordan var
leikmaður Chicago sem lék
vel, var með 32 stig.
„Þetta var sætur sigur,“
sagði Van Gundy, þjálfari
New York. „Breytingar hafa
átt sér stað og nú þarf að
finna leið til að komast inn á
sigurbraut. Þessi sigur var
vissulega viðleitni til að kom-
ast inn á þá braut.“
„Botninum var náð og nú
er leiðin tekin upp á við. Mér
finnst andi Pat Railey vera
farinn að svífa yfir vötnum.
Við erum farnir að æfa eins
og menn á ný og æfðum með-
al annars í tæpa fjóra tíma í
gær,“ sagði Ewing glaðbeitt-
ur að leikslokum og bætti við:
„Er Chicago sigraði okkur
síðast hér á heimavelli sagði
Seottie Pippen að heimavöllur
okkur væri í raun eins og
heimavðllur fyrir þá, þeim
gengi svo vel hér. I kvöld af-
sönnuðum við þessa fullyrð-
ingu hans.“
„Leikmenn New York léku
með lyartanu og voru þess
vegna óviðráðanlegir,“ var
það eina sem Phil Jackson,
þjálfari Chicago, sagði.
„Þungu fargi er af okkur
létt nú þegar metið er í höfn,“
sagði Horace Grant leikmað-
ur Orlando þegar 39. heima-
sigurinn var staðreynd og
heimaleikjamet í höfn. Gamla
metið, 38 sigiar á heimavelli,
var í eigu Boston Celtics.
Shaquille O’Neal lagði hart
að sér í fjórða leikhluta til
koma sigrinum í hús og gerði
þá 15 af 25 stigum sínum.
Næstur lionum kom Nick
Anderson með 34 stig og
Penny Hardaway og Horaee
Grant með 20 stig hvor, Grant
tók auk þess 11 fráköst.
Danny Manning skoraði flest
stíg Phoenix, 32 talsins.
Mæta Keflavík eða KR í undanúrslitum
Þessi leikur var eins og við höfð-
um reiknað með, mjög erfiður
og við vissum að við máttum ekk-
ert misstíga okkur.
gjöm Tindastólsmenn eru
Björnsson alltaf harðir í horn
skrifarfrá að taka og gefast
Sauðárkróki - aldrei upp. Við viss-
um að við þyrftum tvo mjög góða
leiki til að slá þá út og það tókst,“
sagði Teitur Örlygsson, besti maður
leiksins á Sauðárkróki þar sem
UMFN lagði heimamenn, 78:68.
Þar með urðu Njarðvíkingar fyrstir
liða til að tryggja sér sæti í undan-
úrslitum.
Tindastólsmenn komu mjög
sterkir til leiks og tóku forystuna.
Hinrik Gunnarsson, Pétur Guð-
mundsson og Ómar Sigmarsson
léku mjög vel í sókninni og Torrey
John og Hinrik voru sterkir í vörn-
inni. Þegar á sjöttu mínútu fékk
Hinrik sína þriðju villu og gat minna
beitt sér í vörninni eftir það. Við
það gengu gestirnir á lagið og náðu
að jafna um miðjan leikhlutann. Þá
kom afleitur kafli hjá heimamönn-
um þar sem þeir skoruðu aðeins
eitt stig gegn nítján. Munurinn sem
á liðunum var héist til háifleiks en
þá stóð 33:44.
Allt annað var að sjá til heima-
manna í upphafi síðari hálfleiks og
náðu þeir að jafna leikinn 56:56
með öguðum sóknarleik, en lengra
komust þeir ekki. Njarðvíkingar
tóku öll völd á vellinum þar sem
Teitur Örlygsson fór fyrir sínum
mönnum, en auk hans voru Rondey
Robinson og Jóhannes Kristbjörns-
son mjög góðir. Hjá heimamönnum
voru Hinrik, Pétur og Torrey bestir.
nægðu Njarð-
Tveir leikir
víkingum