Morgunblaðið - 12.03.1996, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 12.03.1996, Blaðsíða 12
12 B ÞRIÐJUDAGUR 12. MARZ 1996 MORGUNBLAÐIÐ KÖRFUKNATTLEIKUR Urslitakeppnin í körfuknattleik 1996 Annar leikur liðanna i 8-liða úrslitum, leikinn á Sauðárkróki 9. mars 1996 tindastóll njarðvík 10/15: 19/31 4/22 3ja stiga 2/6 22 Villur 18 Óskar fleytti KR-ingum í annan leik ÓSKAR Kristjánsson var hetja KR-inga er þeir lögðu Keflvík- inga að velli í annarri viður- eign félaganna á Seltjarnar- nesi á sunnudaginn. Þegar 11 sekúndur voru eftir og staðan jöfn, 77:77, hófu Kefl- víkingar sókn, fleytti Óskar knöttinn úr höndum Fals Harðarsonar sem var við að brjótast í gegnum vörn KR. Því næst brunaði Óskar upp og sendi á félaga sinn Her- mann Hauksson sem tryggði sigurinn rétt áður en loka- flautið gall. „Falur gerir alltaf það sama og ekki kom annað til greina en taka af honum boltann," sagði Óskar að leikslokum, en hann lék eflaust sinn besta leik f vetur. Leikmenn KR voru með kanónur sínar vel stilltar í upphafi leiksins og hvert þriggja stiga skot þeirra rataði rétta leið. Eftir ■■■■■■ sex mínútna leik l'var höfðu þeir skorað Benediktsson 24 stig gegn 10 og sknfar þar af vonj £tján stig úr þriggja stiga skotum. Kefl- víkingar vissu ekki hvaðan á sig stóð veðrið og reyndu að bíta í skjaldarrendurnar. Jón Kr. þjálfari skipti sér og tveimur öðrum inná í þessari stöðu til að hressa upp á bragðdaufan og lánlítinn sóknar- leik Suðurnesjamanna gegn beittri vörn KR. Það dugði um tíma og Keflvíkingar nálguðust gestgjafa sína nokkuð. Eftir að Keflvíkingar höfðu jafnað 43:43 skömmu fyrir hlé var það margumtalaður Óskar sem átti síðustu fimm stig heima- manna fyrir hlé. Staðan í hálfleik 48:43. Keflvíkingar nýttu sér agaleysi KR í sókninni í síðari hálfleik og jöfnuðu leikinn fljótlega og kom- ust yfir er átta mínútur voru eftir 60:59 á meðan Bow tók ser hvíld í liði KR. Áfram hélt baráttan og Keflvíkingar voru skrefinu á und- an. KR jöfnuðu 71:71 og unnu síðan knöttinn í næstu sókn er dæmd voru skref á Dwight Stew- art. Þar með komust KR-ingar yfir á ný og spennuþrungnar loka- mínútur fóru í hönd. Davíð Gris- som kom Keflavík yfir þegar 23 sekúndur voru eftir 77:76 en hinu- megin fékk Hermann Hauksson tvö vítaköst þegar 11 sekúndur voru eftir en skoraði aðeins úr Úrslitakeppnin körfuknattleik 1996 Annar leikur liðanna i 8-liða úrslitum, leikinn á Seltjamamesi 10. mars 1996 KR KEFUlVÍK 8/10 7/15 12 Villur 19 öðru og Keflvíkingar brunuðu upp en sú sókn fór eins og að framan er greint. KR-liðið gerði sér þennan leik of erfiðan með óyfirveguðum leik á köflum og hafði nær tapað leikn- um fyrir vikið. Eftir að hafa gert 11 þriggja stiga körfur í fyrri hálfleik var of mikið reynt að end- urtaka leikinn í síðari hálfleik við slakan árangur og við það fengu Keflvíkingar oft boltann á ódýran hátt. Óskar Kristjánsson og Jonat- han Bow voru bestir KR-inga og Hermann skoraði mikilvæg stig á lokakaflanum, eftir að hafa látið lítið fyrir sér fara framan af. Keflavíkurliðið náði sér aldrei á stik í leiknum og virtist slen vera yfir því. Jóni Kr. tókst að hressa upp á það um tíma. Guðjón hélt félögum sínum á floti á kafla með fallegum körfum og Grissom átti ágætan leik undir lokin. Meiri baráttvilja vantaði samt í hópinn. Reyndar kom það illa við liðið að bæði Stewart og Sigurður Ingi- mundarson fengu sína 3. villu rétt eftir miðjan fyrri hálfleik og voru því hvíldir lengi leiks. En ljóst er að spenna verður í Keflavík í kvöld þegar þessi tvö lið mætast ef marka má þær tvær viðureignir sem nú eru að baki. Morgunblaðið/Ásdís ÓSKAR Kristjánsson KR-ingur lék mjög vel gegn Keflavík á Seltjarnarnesi á sunnudag. Hér sækir Davíð Grissom aö honum og sér þann kost vænstan að senda knöttinn frá sér. Orlando setti met og Chicago beið afhroð LEIKMENN Orlando settu met í NBA körfuboltanum í fyrrinótt er þeir sigruðu 39. heimaleikinn sinn í röð. Að þessu sinni voru fómarlömb þeirra Charles Barkely og félagar í Phoenix Suns. Á sama tlma tóku Patrick Ew- ing og samheijar í New York Michaei Jordan og hinar stjörnurnar í Chicago liðinu í bakaríið, 104:72,1 New York. Tapið setur strik í reikning Chicago sem þarf að vinna 16 af 22 leikjum sinum sem eftir eru til að bæta met Los Angeles, sem er 69 sigurleikir á keppnistlmabili. Forráðamenn New York liðsins ráku fyrir helgina þjálfara liðsins Don Nelson og við starfi hans tók tíma- bundið aðstoðarþjálfarinn Jeff Van Gundy. Undir hans stjórn voru leikmenn liðsins ekki neitt að tvínóna þegar þeir tóku á móti Chicago Bulls. Þeir sýndu gestum sín- um enga kurteisi og rólluðu þeim upp með 32 stiga mun. Grunninn að sigrinum lögðu þeir í öðrum leikhluta og í upphafi þess þriðja er þeir gerðu 34 stig gegn 6 stigum gestanna. Derek Harper fór á kostum á þessum leiktíma og gerði 18 af 23 stigum sínum þá. Patrick Ewing sýndi að hann hefur engu gleymt hafi einhver haldið að svo væri. Hann gerði 26 stig ogtók 14 fráköst. Michael Jordan var leikmaður Chicago sem lék vel, var með 32 stig. „Þetta var sætur sigur,“ sagði Van Gundy, þjálfari New York. „Breytingar hafa átt sér stað og nú þarf að finna leið til að komast inn á sigurbraut. Þessi sigur var vissulega viðleitni til að kom- ast inn á þá braut.“ „Botninum var náð og nú er leiðin tekin upp á við. Mér finnst andi Pat Railey vera farinn að svífa yfir vötnum. Við erum farnir að æfa eins og menn á ný og æfðum með- al annars í tæpa fjóra tíma í gær,“ sagði Ewing glaðbeitt- ur að leikslokum og bætti við: „Er Chicago sigraði okkur síðast hér á heimavelli sagði Seottie Pippen að heimavöllur okkur væri í raun eins og heimavðllur fyrir þá, þeim gengi svo vel hér. I kvöld af- sönnuðum við þessa fullyrð- ingu hans.“ „Leikmenn New York léku með lyartanu og voru þess vegna óviðráðanlegir,“ var það eina sem Phil Jackson, þjálfari Chicago, sagði. „Þungu fargi er af okkur létt nú þegar metið er í höfn,“ sagði Horace Grant leikmað- ur Orlando þegar 39. heima- sigurinn var staðreynd og heimaleikjamet í höfn. Gamla metið, 38 sigiar á heimavelli, var í eigu Boston Celtics. Shaquille O’Neal lagði hart að sér í fjórða leikhluta til koma sigrinum í hús og gerði þá 15 af 25 stigum sínum. Næstur lionum kom Nick Anderson með 34 stig og Penny Hardaway og Horaee Grant með 20 stig hvor, Grant tók auk þess 11 fráköst. Danny Manning skoraði flest stíg Phoenix, 32 talsins. Mæta Keflavík eða KR í undanúrslitum Þessi leikur var eins og við höfð- um reiknað með, mjög erfiður og við vissum að við máttum ekk- ert misstíga okkur. gjöm Tindastólsmenn eru Björnsson alltaf harðir í horn skrifarfrá að taka og gefast Sauðárkróki - aldrei upp. Við viss- um að við þyrftum tvo mjög góða leiki til að slá þá út og það tókst,“ sagði Teitur Örlygsson, besti maður leiksins á Sauðárkróki þar sem UMFN lagði heimamenn, 78:68. Þar með urðu Njarðvíkingar fyrstir liða til að tryggja sér sæti í undan- úrslitum. Tindastólsmenn komu mjög sterkir til leiks og tóku forystuna. Hinrik Gunnarsson, Pétur Guð- mundsson og Ómar Sigmarsson léku mjög vel í sókninni og Torrey John og Hinrik voru sterkir í vörn- inni. Þegar á sjöttu mínútu fékk Hinrik sína þriðju villu og gat minna beitt sér í vörninni eftir það. Við það gengu gestirnir á lagið og náðu að jafna um miðjan leikhlutann. Þá kom afleitur kafli hjá heimamönn- um þar sem þeir skoruðu aðeins eitt stig gegn nítján. Munurinn sem á liðunum var héist til háifleiks en þá stóð 33:44. Allt annað var að sjá til heima- manna í upphafi síðari hálfleiks og náðu þeir að jafna leikinn 56:56 með öguðum sóknarleik, en lengra komust þeir ekki. Njarðvíkingar tóku öll völd á vellinum þar sem Teitur Örlygsson fór fyrir sínum mönnum, en auk hans voru Rondey Robinson og Jóhannes Kristbjörns- son mjög góðir. Hjá heimamönnum voru Hinrik, Pétur og Torrey bestir. nægðu Njarð- Tveir leikir víkingum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.