Morgunblaðið - 12.03.1996, Page 16

Morgunblaðið - 12.03.1996, Page 16
u Hollensk þrenna? HOLLENDINGAR eru nýög ánægðir raeð árangur þriggja bestu liða sinna, Ajax, Eind- hoven og Feyenoord, og vonast eftir því að liðin koraist í úrslit í Evrópumótunum þremur í knattspyrnu. Eindhoven, undir stjórn Dick Advocaat, fyrrum landsliðsþjálfara Hollands, náðu jöfnu gegn Barcelona í fyrri leik iiðanna í 8-liða úrslit- um í UEFA-keppninni - í Barcelona, 2:2. Ajax vann Dortmund á útivelli, 2:0, í fyrri ieik liðanna í Evrópumeistara- deildinni - ieikur seinni leikinn í Amsterdam 20. mars. Feye- noord, undir stjórn Arie Ha- ans, náði jöfnu á útivelii gegn Mönchengladbach, 2:2. Jean- Paul van Gastel, sem skoraði fyrra mark Feyenoord í sínum fyrsta Evrópuleik, sagði að það væri aldrei hægt að bóka sigur fyrirfram gegn þýskuin liðum, sem eru þekkt fyrir annað en gefast upp. Ed de Goey, mark- vörður Ajax, segir að líkur liðs- ins á að komast áfram séu sex- tíu prósent. Þýska biaðið Bild sagði að Ajax hefði tekið þýska knattspyrnu í kennslustund; sýnt hvernig ætti að leika góða og árangursrika knattspyrnu. „Hvernig getur Dortmund komist í undanúrslit, án ieik- manna eins Andy Möllers, Matthias Sammers og Stefan Reuters, sem eni meiddir eða í banni? spurði þýska blaðið Express. „Leikskipulag og tækni leikmanna Ajax erú mikju betri en okkar,“ sagði blaðið Rheinische Post. Mesta gleðin í Englandi SEPP Blatter, framkvæmda- stjóri Alþjóða knattspyrnusam- bandsins, FIFA, sagði í þýska íþróttablaðinu Kicker í gær að þótt Englendingar hefðu átt í erfiðleikum varðandi árangur í alþjóða knattspyrnunni væri hugarfar þeirra og framkoma á veliinum öðrum til eftir- breytni. „Allir sem taka þátt í leiknum skemmta sér betur en í öðrum löndum,“ sagði hann. „Leikmennirnir gantast við hver við annan, við dómarann, stuðningsmennina og jafnvel Iögregluna.“ Hann sagði að enska hugarfarið inni á vellin- um hefði jákvæð áhrif á áhorf- endur og ætti þátt í að auka vinsældir íþróttarinnar, ekki síst vegna þess að ekki færi á milli mála að þeir sem ættu hlut að máli skemmtu sér vel. Rísandi svissnesk stjarna Svissneska skíðastúlkan Karin Roten, sem er aðeins tvítug og varð heimsmeistari unglinga í stórsvigi fyrir tveimur árum, sigr- aði örugglega í svigi kvenna í Lille- hammer á sunnudag. Þessi unga og efnilega stúlka þykir vera með svipaða tækni og hin sigursæla Verni Schneider, sem lagði skíðin á hilluna eftir síðasta keppnistíma- bil. Pernilla Wiberg frá Svíþjóð varð önnur og Marianne Kjörstad, Noregi, þriðja en hún var aðeins í níunda sæti eftir fyrri umferð. „Ég vissi að ég yrði að ná góðri síðari umferð til að eiga mögu- leika,“ sagði Roten. „Ég er mjög ánægð og þetta var góður endir á löngu og ströngu keppnistíma- bili.“ Nýkrýnd drottning heimsbikars- ins, Katja Seizinger frá Þýskalandi, sem sigraði í stórsviginu á laugar- dag, keyrði út úr í sviginu í fyrri umferð. „Þetta er allt í lagi, þetta er bara svig,“ sagði Seizinger sem var efst í stigakeppninni. Bartsch hættur DIETER Bartsch, austurríski þjálfari norska landsliðsins sem hefur lyft grettistaki í norskum alpagreinum á undanförnum árum, hætt- ir nú sem landsliðsþjálfari. „Samningur hans við norska skíðasam- bandið rennur út í apríl og það hefur orðið samkomulag milli okk- ar um að endurnýja hami ekki,“ sagði Jan Jensen, forseti norska skíðasambandsins. „Við eigum honum mikið að þakka. Það er lík- lega vegna hans sem við höfum náð svo góðum árangri." Bartsch gerðist þjálfari Norðmanna 1989. Hann hefur skilað góðu verki og sem dæmi um það varð Lasse Kjus heimsbikarmeistari og Alte Skaardal fagnaði sigri í risasvigi heimsbikarsins og eins varð hann heimsmeistari í greininni. Kjus og félagar hans, Kjetil Andre Aamodt og Finn Christian Jagge, hafa allir unnið gullverðlaun á Ólympíuleikum meðan Bartsch hefur verið við stjórnvölinn. Ekki hefur verið ákveðið hver tekur við af Bartsch. Reuter Ertl stórsvigsmeistari ÞÝSKA stúlkan Martina Ertl tryggði sér stórsvlgstitil heims- bikarsins með því að ná öðru sæti í síðasta stórsvigi heims- bikarsins í Liliehammer á laugardaginn. Landa hennar, Katja Seizinger, sigraði í stórsviginu og varð efst í stigakeppni heimsbikarsins en þar var Ertl í öðru sæti. Frakkinn Sebastien Amiez varð heimsbikarmeistari í svigi og tók þar með titilinn úr höndum Ital- ans Albertos Tombas. Amiez varð annar á eftir Austurríkismanninum Thomasi Sykora í síðasta svigi vetr- arins í Lillehammer á sunnudaginn og fékk samtals 539 stig, en Tomba, sem varð í fjórða sæti á sunnudag, endaði með 490 stig. Fyrir keppnina á sunnudag munaði aðeins 19 stigum á þeim. Amiez er fyrstur Frakka til að vinna svigtitlinn síðan Jean-Neol Augert gerði það 1972. íurniR Tomba hefur fengið nóg Alberto Tomba segist vera orðinn langþreyttur og búinn að fá nóg af skíðaíþróttinni í bili. „Ég er orðinn þreyttur á þessu öllu, frétta- mönnum og fólkinu sem er í kringum mig,“ sagði Tomba eftir síðasta heimsbikarmótið í Lillehammer á sunnudaginn. Hann hefur verið sigursæll í skíða- brekkunum undanfarin ár. Unnið þrenn gullverðlaun á Olympíuleikum og tvenn á heimsmeistaramóti, auk 47 gullverðlaun í heimsbikarmótum á ellefu ára keppnisferli. „Ég ætla að ákveða mig með fram- haldið á næstu mánuðum, en ég get ekki hugsað um skíði í augnablikinu. Ég hef fengið mig fullsaddan núna. Ég hef ekkert lengur til að keppa að, nema kannski ólympíu-brons- verðlaun eða silfurverðlaun á heims- meistaramóti," sagði hann og brosti. Tomba, sem verður þrítugur í desem- ber, hefur unnið allt sem skíðamaður getur unnið. Þó svo að Tomba hafi ekki náð á verðlaunapall í síðustu heimsbik- armótunum, svigi og stórsvigi, í Lille- hammer er hann ánægður með vetur- inn. „Lasse Kjus verðskuldaði heims- bikartitilinn og Sebastien Amiez átti meira skilið að vinna svigtitilinn en ég. Þessir titlar voru ekki þeir sem ég hafði áhuga á í vetur. Það var heimsmeistaratitill sem vantaði í safnið og honum náði ég.“ Það er talið ólíklegt að Tomba leggi skíðin á hilluná núna því á næsta ári er heimsmeistaramót í Sestriere á Ítalíu. En þegar hann tekur ákvörðun um að hætta verður hans minnst sem eins besta skíða- manns sögunnar. Kóngurinn féll af stalli ALBERTO Tomba, sem hefur verið konungur alpagreinanna í vetur, varð að sætta sig við fjórða sætið í síðasta svigmóti vetrarins í Hafjell við Lillehammer á sunnudag. Hann segist hafa fengið nóg af skíðaíþróttinni í bili og hefur í hyggju að leggja skíðin á hilluna. Amiez tók svigtitilinn SKIÐI

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.