Morgunblaðið - 14.03.1996, Page 1

Morgunblaðið - 14.03.1996, Page 1
80 SÍÐUR B/C/D 62. TBL. 84. ÁRG. FIMMTUDAGUR14. MARZ 1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Vopnaður maður gekk berserksgang í Skotlandi og réðst inn í leikfimisal Myrti sextán skólaböm og kennara Öll breska þjóðin harmi slegin MAÐUR vopnaður fjórum skamm- byssum gekk berserksgang í grunnskóla í bænum Dunblane í Skotlandi í gær og skaut 16 börn á aldrinum fimm og sex ára til bana ásamt kennara þeirra. Að loknu ódæðisverkinu svipti maður- inn sig lífi. Bretar eru harmi slegn- ir vegna þessa hörmulega atburð- ar. Thomas Hamilton réðst inn í leikfimisal, sem í voru 29 börn, skömmu eftir að fyrsti tími hófst. Fimmtán börn létu lífið í salnum og eitt barn lést á sjúkrahúsi, að sögn talsmanns lögreglu. Sjö börn og tveir fullorðnir voru enn á sjúkrahúsi síðdegis í gær. Þijú börn voru talin í lífshættu. Farið var með börn í nærliggjandi sjúkrahús og flogið með nokkur í þyrlu til sjúkrahúsa annars staðar í Skotlandi. Líkin voru ekki fjar- lægð strax úr skólanum. Þetta er skelfilegasta fjölda- morð, sem framið hefur verið með skotvopni í sögu Bretlands, og voru Bretar slegnir yfir þessum atburði. Elísabet drottning og John Major forsætisráðherra sendu bæjarbúum samúðarkveðj- ur. Margir skoskir stjórnmála- menn táruðust þegar þeir lýstu hryllingi sínum og sorg. Fyrrverandi skátaforingi Hamilton var 43 ára gamall og fyrrverandi skátaforingi. Hann var látinn hætta í skátunum 1974 vegna ásakana um óviðurkvæmi- lega hegðun, að því er breska fréttastofan Press Association greindi frá. Nágrannar Hamiltons segja að hann hafi haft mikinn áhuga á skotvopnum. John Major, sem er tveggja barna faðir, vottaði foreldrum, ijölskyldum og kennurum þeirra, sem létu lífið og særðust, samúð sína. „Orð fá ekki lýst því áfalli og þeirri sorg, sem þessi bijálæðislegi og illi verknaður hefur leitt af sér,“ sagði Major, sem staddur er á ráðstefnu um hryðjuverk í Egyptalandi. „Það er erfitt að trúa því að endi hafí verið bundinn á öll þessi ungu líf með svo miskunn- arlausum hætti.“ „Slátrun hinna saklausu“ „Þetta er slátrun hinna sak- lausu,“ sagði Helen Liddell, tals- maður Verkamannaflokksins. „Að nokkurt barn skuli myrt með þess- um hætti er hrikalegt." ■ Harmi sleginn bær/20 Reuter ÆTTINGJAR barnanna og aðrir bæjarbúar söfnuðust saman fyrir utan skólann harmi slegnir þegar fréttist af þeim voðaatburði, sem þar hafði átt sér stað. Biðu flestir grátandi eftir nánari fréttum og margir gátu ekki skilið, að þetta hefði gerst í bænum þeirra. Hermdarverk fordæmd á leiðtogafundi um frið í Miðausturlöndum Sharm el-Sheikh. Reuter. LEIÐTOGAR 27 ríkja, sem komu saman f Egyptalandi í gær, for- dæmdu „hermdarverk í öllum sín- um andstyggilegu myndum“ og hvöttu til þess að friðarviðræðum ísraela og araba yrði haldið áfram. Bill Clinton, forseti Bandaríkjanna, sem stjórnaði fundinum ásamt Hosni Mubarak, forseta Egypta- lands, kvaðst ánægður með niður- stöðu fundarins og sagði að fjár- mögnun hermdarverkasamtaka yrði stöðvuð. Leiðtogarnir hefðu sent þau skilaboð að „ísraelar stæðu ekki einir". í lokayfirlýsingu fundarins sagði að leiðtogarnir hefðu „lýst yfir fullum stuðningi við friðarferlið í Miðausturlöndum og lofað að beita sér fyrir áframhaldi þess til að tryggja réttlátan og varanlegan allsheijarfrið í þessum heims- hluta". í yfirlýsingunni segjast leiðtog- arnir ætla að samhæfa aðgerðir sínar til að binda enda á hermdar- verkin, tryggja að hermdarverka- menn verði sóttir til saka, styðja tilraunir annarra ríkja til að hindra starfsemina og koma í veg fyrir Heita stuðningi við friðarferlið Reuter LEIÐTOGARNIR tóku höndum saman á fundinum og líka að honum loknum. Ystur til vinstri er Shimon Peres, þá Bill Clint- on, Hosni Mubarak, Borís Jeltsín og loks Yasser Arafat. að hryðjuverkasamtök geti aflað sér liðsmanna, vopna eða fjár- magns. Clinton sagði að nefnd yrði skip- uð til að samhæfa aðgerðirnar og hún ætti að senda leiðtogunum skýrslu innan mánaðar. Lítill stuðningur við fordæmingu á Iran Shimon Peres, forsætisráðherra Israels, gagnrýndi stjórnvöld í íran harðlega í ræðu sinni á fundinum. Hann lýsti Teheran sem „höfuð- borg hermdarverka“ en Iran var ekki nefnt í lokayfirlýsingunni og aðeins einn leiðtoganna, John Maj- or, tók undir þessa ásökun. Peres kvaðst þó ánægður með fundinn og sagði að arabísku leiðtogarnir hefðu sýnt ísraelum mikinn skiln- ing vegna hryðjuverkanna að und- anförnu. Yasser Arafat, leiðtogi Palest- ínumanna, sagði að fundurinn myndi efla friðarferlið og kvaðst vona að ísraelsstjórn aflétti á næstu dögum samgöngubanninu sem hún setti á palestínsku sjálf- stjórnarsvæðin eftir tilræðin. Fylgi við Lee eykst Taipei. Reuter. KÍNVERSKAR orrustuþotur flugu með miklum gný yfir Tævansundi í gær og kínverski herinn skaut fjórðu eldflauginni á skotmark vestur af tævönsku hafnarborginni Kaohsi- ung. Heræfingarnar, sem er ætlað að hræða tævanska kjósendur frá stuðningi við Lee Teng-hui forseta, hafa þó haft þveröfug áhrif og eykst fylgi við hann dag frá degi. Talsmaður tævanska varnarmála- ráðuneytisins sagði í gær, að hundr- uð orrustuþotna og meira en 10 herskip hefðu tekið þátt í heræfing- unum á Tævansundi þar sem það er mjóst og í Fujian-héraði gegnt Tævan hafa Kínveijar safnað saman 150.000 manna her. Dagblað í Hong Kong, sem styður stjórn kommúnista í Kína, sagði í gær, að afskipti Bandaríkjamanna af málefnum Tævans gætu komið af stað styrjöld og annað kvaðst hafa eftir heimildum í kínverska hernum, að verið væri að leggja á ráðin um innrás í Quemoy, litla en hernaðarlega mikilvæga eyju, sem tilheyrir Tævan.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.